Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 13.01.2021, Blaðsíða 7
Nánari upplýsingar og skráning á mss.is Þekking í þína þágu Tækifæri til náms á þínum forsendum! – Sveigjanlegir kennsluhættir og tengsl við atvinnulífið Skrifstofuskólinn Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og starfsfærni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf. Kennt er á bókhaldsforritið DK. Samfélagstúlkun Nám fyrir þá sem vilja starfa við túlkun. Forkröfur eru að hafa gott vald á íslensku og því tungu- máli sem á að túlka. Frábært nám og góðir starfsmöguleikar að námi loknu. Grunnmenntaskólinn Viltu verða kennari, hársnyrtir, viðskiptafræðingur eða rafvirki? En það er langt síðan þú varst á skólabekk og þú vilt læra að læra aftur - Þá er Grunnmenntaskólinn möguleika eitthvað fyrir þig. Grunnmenntaskólinn er tilvalinn fyrir þá sem hafa ekki lokið grunnskólaprófi að fullu eða langar að byrja aftur í námi eftir langa pásu. MSS býður margvíslegt nám sem hefur það að markmiði að skapa þér ný tækifæri og efla færni þína á vinnumarkaði. Viltu skipta um starfsvettvang eða verða eftirsóttari starfskraftur? Ágúst Pedersen, leiðsögunemi „Skrifstofuskólinn hjálpaði mér að taka ákvarðanir varðandi það sem mig langar að hafast að í framtíðinni. Eftir langt hlé frá námi hjálpaði þetta nám mér að læra uppá nýtt og er ég nú kominn í leiðsögunám hjá Leiðsöguskólanum í Kópavogi. Skrifstofuskólinn opnaði augu mín varðandi framtíðina“ Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir, lögfræðinemi við Háskólann í Reykjavík „Grunnmenntaskólinn kenndi mér að læra upp á nýtt. Ég öðlaðist líka sjálfstraust í námi í Grunnmenntaskólanum sem ég hafði aldrei upplifað áður. Ég ákvað þarna að ég ætlaði mér ekki að hætta námi heldur halda áfram“ “ Med Haythem Akari, túlkur hjá Alþjóðasetri „Námið var mjög vel skipulagt og kennararnir eru mjög hæfir í að miðla til nemenda. Það er mikill stuðningur við nemendur og undirstaðan byggð á góðri kennslufræði. Persónulega hafði ég mikinn ávinning af námskeiðinu. Ég fékk mörg tækifæri til að fá vinnu og góð samskipti við fólk, bæði í skólanum og í opinberri stjórnsýslu“

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.