Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.01.2021, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 13.01.2021, Qupperneq 16
„Við hvetjum þá sem eru án atvinnu að nýta tímann í að afla sér þekkingar, hlúi að sjálfum sér og kynni sér alla þá möguleika sem standa þeim til boða,“ segir nathalía druzin Halldórsdóttir, ráðgjafi í atvinnumálum hjá VR. „Á Suðurnesjum er fjöldi atvinnulausra félagsmanna hátt í 500 manns. Þetta er mjög stór hópur sem mikilvægt er að aðstoða eftir bestu getu og leita leiða til þess að styrkja þá til að endurkoma þeirra á vinnumarkað verði skjót og ánægjuleg. Ég vil hvetja Suðurnesjamenn til þess að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf,“ segir Nathalía Druzin Halldórsdóttir, ráðgjafi í atvinnumálum hjá VR. – Hvernig eruð þið að aðstoða fé- lagsmenn VR í atvinnumálum? „VR býður upp á nýja þjónustu við félagsmenn sína sem standa á kross- götum á sínum starfsferli. Það er mikilvægt að nýta tímann og fá hagnýt ráð varðandi ráðninga- ferlið sem geta nýst strax. Vegna Covid-19-faraldursins höfum við veitt ráðgjöfina í gegnum fjar- og símafundi sem hefur gefið góða raun og auðveldað okkur að hitta félags- menn sem búa utan höfuðborgar- svæðisins. Hér er tæpt á því helsta sem boðið er upp á: 1. Skoðum gögnin Að vera með skýr, skilmerkileg og upplýsandi gögn getur oft gert gæfumuninn í starfsleit og er að- göngumiði í atvinnuviðtal. VR býður upp á ráðgjöf varð- andi ferilskrárgerð, LinkedIn prófíl, kynningarbréf o.fl. Við hvetjum þá félagsmenn sem vilja aðstoð með útlit, upp- setningu og innihald gagna til þess að senda tölvupóst á net- fangið atvinnumal@vr.is og við förum yfir málin. 2. Stöðumat Að skipta um starf eða starfs- vettvang getur reynt á taugarnar, úthaldið og þolinmæðina. VR býður félagsmönnum upp á ráðgjöf varðandi stöðu viðkom- andi á vinnumarkaði og hvaða möguleikar eru í boði varðandi starfsleit sem og starfsmenntun. Við hvetjum þá félagsmenn sem vilja ráðgjöf með starfsum- sóknir og starfsleit til þess að senda tölvupóst á netfangið at- vinnumal@vr.is og við förum yfir málin. 3. Æfingaviðtal Að fara í atvinnuviðtal getur verið stressandi og margir upp- lifa sömu tilfinningu og að fara í próf. VR býður félagsmönnum upp á æfingaviðtal þar sem settar eru upp aðstæður líkt og um raunverulegt atvinnuviðtal sé að ræða. Í æfingaviðtalinu gefst félag- mönnum tækifæri til þess að æfa sig og láta ljós sitt skína en fá jafnframt endurgjöf á viðtalið. Við hvetjum þá félagsmenn sem vilja komast í æfingaviðtal að senda tölvupóst á netfangið at- vinnumal@vr.is og við bókum viðtal.“ – Nú hafa margir félagar í VR starfað hjá fyrirtækjum eða að- ilum sem tengjast ferðaþjónustu og margir með erlent ríkisfang. Hvernig er staðan hjá þessu fólki? „Það er þó nokkur fjöldi af erlendum félagsmönnum sem hefur nýtt sér þjónustu VR varðandi atvinnu- leit og undirbúning og má segja að staða þeirra sé misjöfn, fer allt eftir fyrri reynslu og eins hversu lengi viðkomandi hefur búið og starfað hérlendis. Margir eru komnir vel á veg með að aðlagast samfélaginu hér, hafa náð tökum á tungumálinu og eru staðráðnir í því að setjast hér að og finna sér starf til frambúðar. Aðrir eru ekki að horfa til framtíðarbúsetu á landinu, hafa margir hverjir komið til landsins í tengslum við vaxandi ferðamannaiðnað og sinnt ýmsum störfum. Sá hópur er á ákveðnum krossgötum og ég finn að margir eru tvístígandi og uggandi um afkomu sína og íhuga jafnvel að flytja af landi brott. Við hvetjum alla til þess að bæta við sig þekkingu og nýta þau fjölmörgu námskeið sem standa til boða. Að læra tungumálið er mikil- vægt, sér í lagi ef þú vilt setjast að í landinu til frambúðar.“ – Hafiði verið að beina atvinnu- lausu fólki á aðrar brautir, t.d. í nám eða námskeið? „Við hvetjum alla okkar félagsmenn, hvort sem þeir eru í vinnu eða án at- vinnu til þess að bæta við sig þekk- ingu og styrkja kunnáttu sína. Það er mikilvægt að þeir sem eru án atvinnu reyni að nýta tímann í að afla sér þekkingar, hlúi að sjálfum sér og kynni sér alla þá möguleika sem standa atvinnuleitendum til boða. Það að læra nýja hluti og huga að eigin heilsu er alltaf mikilvægt, hvort sem fólk er í vinnu eður ei, en þegar einstaklingur er án atvinnu í einhvern tíma þýðir það að fleiri klukkustundir eru lausar í sólar- hringnum og því mikilvægt að nýta þær til góðra verka. Það að halda dampi, sækja námskeið eða lengra nám og sinna líkamlegri og and- legri heilsurækt skilar sér margfalt til baka, bæði meðan á því stendur sem og þegar viðkomandi einstakl- ingur fer aftur út á vinnumarkaðinn. Meira sjálfstraust, meiri ánægja með eigin afrek og fleiri verkfæri til þess að vinna með er mjög dýrmætur ávinningur. Það er mikið námsframboð, bæði hér á Íslandi sem og í gegnum er- lenda aðila og hægt að komast yfir mikið efni, oft með ekki svo miklum tilkostnaði og stundum jafnvel ókeypis. Ekki má svo gleyma öllum fyrirlestrunum, fræðsluerindunum, hljóðvörpunum, bókunum o.s.frv. sem er aðgengilegt hverjum þeim sem sækist eftir því að viða að sér þekkingu. Félagsmenn VR geta nýtt sér rétt- indi sín í starfsmennta- og varasjóði og ættu allir að kanna stöðu sína þar með því einfaldlega að fara inn á Mínar síður á vr.is þar sem stöðu sjóðanna má sjá með mjög skýrum hætti. Ég hvet alla til þess að kynna sér sín réttindi. Eins hefur Vinnu- málastofnun boðið upp á námsstyrk sem vert er að nýta sér. Nú nýverið var samþykkt frum- varp sem gerir atvinnuleitendum kleift að stunda nám í eina önn meðan þeir eru án atvinnu. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref og kemur sér mjög vel fyrir stóran hóp at- vinnuleitenda. Verslunarstjóri – Flügger litir Reykjanesbæ Flügger litir óskar eftir að ráða verslunarstjóra fyrir verslun sína í Reykjanesbæ. Við leitum að jákvæðum, ábyrgðafullum og kraftmiklum verslunarstjóra í fullt starf sem hefur gaman af mannlegum samskiptum. Helstu verkefni og ábyrgð • Sala og þjónusta við viðskiptavini • Dagleg stjórnun, birgðahald og umhirða verslunar • Framstilling á vörum og vörumeðhöndlun • Önnur tilfallandi störf Hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi. Iðnmenntun er kostur • Reynsla af verslunarstörfum/verslunarstjórnun og sölustörfum • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur • Tölvukunnátta nauðsynleg Allar nánari upplýsingar veita Vigfús Gunnar Gíslason (vigi@flugger.com) og Elín Ólafsdóttir (elino@flugger.com) í síma 567-4400. 11 74 19 0 1/ 21 Verslunarstjóri óskast Sækja skal um starfið á alfred.is Nathalía Druzin Halldórsdóttir. Páll Ketilsson pket@vf.is Mikilvægt er að aðstoða atvinnuleitendur og leita leiða til þess að styrkja þá 16 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.