Víkurfréttir - 13.01.2021, Qupperneq 16
„Við hvetjum þá sem eru án atvinnu að nýta tímann í að afla sér þekkingar, hlúi að sjálfum sér og kynni sér alla þá
möguleika sem standa þeim til boða,“ segir nathalía druzin Halldórsdóttir, ráðgjafi í atvinnumálum hjá VR.
„Á Suðurnesjum er fjöldi atvinnulausra félagsmanna hátt í 500 manns.
Þetta er mjög stór hópur sem mikilvægt er að aðstoða eftir bestu getu og
leita leiða til þess að styrkja þá til að endurkoma þeirra á vinnumarkað
verði skjót og ánægjuleg. Ég vil hvetja Suðurnesjamenn til þess að hafa
samband við okkur og fá ráðgjöf,“ segir Nathalía Druzin Halldórsdóttir,
ráðgjafi í atvinnumálum hjá VR.
– Hvernig eruð þið að aðstoða fé-
lagsmenn VR í atvinnumálum?
„VR býður upp á nýja þjónustu við
félagsmenn sína sem standa á kross-
götum á sínum starfsferli.
Það er mikilvægt að nýta tímann
og fá hagnýt ráð varðandi ráðninga-
ferlið sem geta nýst strax. Vegna
Covid-19-faraldursins höfum við
veitt ráðgjöfina í gegnum fjar- og
símafundi sem hefur gefið góða raun
og auðveldað okkur að hitta félags-
menn sem búa utan höfuðborgar-
svæðisins.
Hér er tæpt á því helsta sem boðið
er upp á:
1. Skoðum gögnin
Að vera með skýr, skilmerkileg
og upplýsandi gögn getur oft gert
gæfumuninn í starfsleit og er að-
göngumiði í atvinnuviðtal.
VR býður upp á ráðgjöf varð-
andi ferilskrárgerð, LinkedIn
prófíl, kynningarbréf o.fl.
Við hvetjum þá félagsmenn
sem vilja aðstoð með útlit, upp-
setningu og innihald gagna til
þess að senda tölvupóst á net-
fangið atvinnumal@vr.is og við
förum yfir málin.
2. Stöðumat
Að skipta um starf eða starfs-
vettvang getur reynt á taugarnar,
úthaldið og þolinmæðina.
VR býður félagsmönnum upp á
ráðgjöf varðandi stöðu viðkom-
andi á vinnumarkaði og hvaða
möguleikar eru í boði varðandi
starfsleit sem og starfsmenntun.
Við hvetjum þá félagsmenn
sem vilja ráðgjöf með starfsum-
sóknir og starfsleit til þess að
senda tölvupóst á netfangið at-
vinnumal@vr.is og við förum yfir
málin.
3. Æfingaviðtal
Að fara í atvinnuviðtal getur
verið stressandi og margir upp-
lifa sömu tilfinningu og að fara
í próf.
VR býður félagsmönnum upp
á æfingaviðtal þar sem settar
eru upp aðstæður líkt og um
raunverulegt atvinnuviðtal sé að
ræða.
Í æfingaviðtalinu gefst félag-
mönnum tækifæri til þess að
æfa sig og láta ljós sitt skína en
fá jafnframt endurgjöf á viðtalið.
Við hvetjum þá félagsmenn sem
vilja komast í æfingaviðtal að
senda tölvupóst á netfangið at-
vinnumal@vr.is og við bókum
viðtal.“
– Nú hafa margir félagar í VR
starfað hjá fyrirtækjum eða að-
ilum sem tengjast ferðaþjónustu
og margir með erlent ríkisfang.
Hvernig er staðan hjá þessu fólki?
„Það er þó nokkur fjöldi af erlendum
félagsmönnum sem hefur nýtt sér
þjónustu VR varðandi atvinnu-
leit og undirbúning og má segja að
staða þeirra sé misjöfn, fer allt eftir
fyrri reynslu og eins hversu lengi
viðkomandi hefur búið og starfað
hérlendis. Margir eru komnir vel á
veg með að aðlagast samfélaginu hér,
hafa náð tökum á tungumálinu og
eru staðráðnir í því að setjast hér að
og finna sér starf til frambúðar. Aðrir
eru ekki að horfa til framtíðarbúsetu
á landinu, hafa margir hverjir komið
til landsins í tengslum við vaxandi
ferðamannaiðnað og sinnt ýmsum
störfum. Sá hópur er á ákveðnum
krossgötum og ég finn að margir eru
tvístígandi og uggandi um afkomu
sína og íhuga jafnvel að flytja af landi
brott. Við hvetjum alla til þess að
bæta við sig þekkingu og nýta þau
fjölmörgu námskeið sem standa til
boða. Að læra tungumálið er mikil-
vægt, sér í lagi ef þú vilt setjast að í
landinu til frambúðar.“
– Hafiði verið að beina atvinnu-
lausu fólki á aðrar brautir, t.d. í nám
eða námskeið?
„Við hvetjum alla okkar félagsmenn,
hvort sem þeir eru í vinnu eða án at-
vinnu til þess að bæta við sig þekk-
ingu og styrkja kunnáttu sína.
Það er mikilvægt að þeir sem eru
án atvinnu reyni að nýta tímann í að
afla sér þekkingar, hlúi að sjálfum
sér og kynni sér alla þá möguleika
sem standa atvinnuleitendum til
boða. Það að læra nýja hluti og huga
að eigin heilsu er alltaf mikilvægt,
hvort sem fólk er í vinnu eður ei, en
þegar einstaklingur er án atvinnu
í einhvern tíma þýðir það að fleiri
klukkustundir eru lausar í sólar-
hringnum og því mikilvægt að nýta
þær til góðra verka. Það að halda
dampi, sækja námskeið eða lengra
nám og sinna líkamlegri og and-
legri heilsurækt skilar sér margfalt
til baka, bæði meðan á því stendur
sem og þegar viðkomandi einstakl-
ingur fer aftur út á vinnumarkaðinn.
Meira sjálfstraust, meiri ánægja með
eigin afrek og fleiri verkfæri til þess
að vinna með er mjög dýrmætur
ávinningur.
Það er mikið námsframboð, bæði
hér á Íslandi sem og í gegnum er-
lenda aðila og hægt að komast yfir
mikið efni, oft með ekki svo miklum
tilkostnaði og stundum jafnvel
ókeypis. Ekki má svo gleyma öllum
fyrirlestrunum, fræðsluerindunum,
hljóðvörpunum, bókunum o.s.frv.
sem er aðgengilegt hverjum þeim
sem sækist eftir því að viða að sér
þekkingu.
Félagsmenn VR geta nýtt sér rétt-
indi sín í starfsmennta- og varasjóði
og ættu allir að kanna stöðu sína
þar með því einfaldlega að fara inn
á Mínar síður á vr.is þar sem stöðu
sjóðanna má sjá með mjög skýrum
hætti. Ég hvet alla til þess að kynna
sér sín réttindi. Eins hefur Vinnu-
málastofnun boðið upp á námsstyrk
sem vert er að nýta sér.
Nú nýverið var samþykkt frum-
varp sem gerir atvinnuleitendum
kleift að stunda nám í eina önn
meðan þeir eru án atvinnu. Þetta er
gríðarlega mikilvægt skref og kemur
sér mjög vel fyrir stóran hóp at-
vinnuleitenda.
Verslunarstjóri –
Flügger litir Reykjanesbæ
Flügger litir óskar eftir að ráða verslunarstjóra fyrir verslun sína í Reykjanesbæ.
Við leitum að jákvæðum, ábyrgðafullum og kraftmiklum verslunarstjóra í fullt
starf sem hefur gaman af mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Sala og þjónusta við viðskiptavini
• Dagleg stjórnun, birgðahald og umhirða verslunar
• Framstilling á vörum og vörumeðhöndlun
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi. Iðnmenntun er kostur
• Reynsla af verslunarstörfum/verslunarstjórnun og sölustörfum
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur
• Tölvukunnátta nauðsynleg
Allar nánari upplýsingar veita Vigfús Gunnar Gíslason (vigi@flugger.com)
og Elín Ólafsdóttir (elino@flugger.com) í síma 567-4400. 11
74
19
0
1/
21
Verslunarstjóri
óskast
Sækja skal um starfið á alfred.is
Nathalía Druzin Halldórsdóttir.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Mikilvægt er að aðstoða
atvinnuleitendur og leita
leiða til þess að styrkja þá
16 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár