Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 1
Rekstur Reykjanesbæjar gekk
betur en á horfðist á Covid-ári en
rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
var jákvæð um 1,4 milljarða króna
en að teknu tilliti til þeirra liða er
rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins
jákvæð um 82,6 milljónir króna.
Rekstrarniðurstaða sveitar-
félagsins fyrir A og B hluta fyrir
afskriftir og fjármagnsliði nam 4,4
milljörðum króna, en að teknu tilliti
til þeirra liða, var niðurstaðan já-
kvæð um 69,7 milljónir króna.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á
árinu 2020 námu um 25 milljörðum
króna samkvæmt samstæðureikn-
ingi A og B hluta. Rekstrartekjur
bæjarsjóðs eða A hluta námu um
17,3 milljörðum króna. Laun og
launatengd gjöld sveitarfélagsins
námu um 10,4 milljörðum króna en
stöðugildi hjá sveitarfélaginu voru
meðaltali 1.096. Þetta er hækkun
upp á 1,7 milljarða milli ára eða um
18%. Skýringa er að finna í nokkrum
atriðum s.s launabreytinga vegna
kjarasamninga, fjölgunar stöðugilda
og átaksverkefna sem ráðist var í á
árinu til þess til að halda uppi at-
vinnustigi.
„Það hlýtur að teljast viðunandi
niðurstaða að skila jákvæðri afkomu
við þessar aðstæður sem uppi hafa
verið. Fyrri áætlanir sem unnar voru
fyrir Covid, gerðu ráð fyrir að bæjar-
sjóður yrði rekinn með tæplega 500
milljóna tekjuafgangi, en útkomuspá
í október gaf til kynna að afkoman
yrði neikvæð um einn milljarð.
Jákvæð niðurstaða nú ætti að
gefa fyrirheit um að viðspyrnan
verði hraðari en í upphafi var talið
og hægt verði að lifa eðlilegu lífi að
nýju innan skamms.
Við viljum nota tækifærið og koma
á framfæri þakklæti til bæjarstjóra
og hans góða starfsfólks fyrir að
halda vel utan um reksturinn. Við
höfum þrátt fyrir allt, verið á góðri
siglingu sem sveitarfélag og þeirri
góðu siglingu verður fram haldið,“
segir m.a. í bókun meirihluta bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar á fundi
hennar 18. maí.
LJÓSLEIÐARINN
er kominn!
Ekkert tengigjald
FRÍR ROUTER
11.490,- kr/mán.
H a f n a r g a t a 2 1 • S í m i 4 2 1 4 6 8 8
w w w . k v . i s • k v @ k v . i s
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
GILDIR
Í YFIR 60
VERSLUNUM
UM LAND
ALLT
MEIRI
AFSLÁTTUR
OG FRÁBÆR
TILBOÐ!
TOMMI
segir sögur af
Suðurnesjum
>>> sjá miðopnu
Jákvæð rekstrarniðurstaða gefur
fyrirheit um hraðari viðspyrnu
Rekstur Reykjanesbæjar gekk betur en áætlanir gerðu ráð fyrir
Bæjarful ltrúar
S j á l f s t æ ð i s -
flokksins lögðu til
á síðasta bæjar-
stjórnarfundi í
Reykjanesbæ að
kannaðir verði kostir, gallar og
kostnaður við að bjóða upp á
forskóladeild fyrir fimm ára börn
í bæjarfélaginu. Nú þegar hafa
nokkur sveitarfélög þegar farið
þessa leið. Tekið var vel í hug-
myndina bæði af meirihluta og
minnihluta og var málinu vísað
til bæjarráðs til frekari umræðu.
„Mörg sveitarfélög hafa þegar
farið þessa leið og væri æskilegt
að fá upplýsingar um hvernig til
hefur tekist. Með tilkomu fimm
ára deildar mun fjölbreytni á
námsúrræðum fyrir börnin
aukast og foreldrar geta þá valið
um það hvort barnið þeirra
verði áfram í leikskóla eða fari í
grunnskóla. Einnig gæti myndast
svigrúm til að brúa bilið frá
fæðingarorlofi til átján mánaða
aldurs, segir m.a. í bókuninni“.
„Það vekur athygli að á þessum
erfiðu tímum þá skilar Reykja-
nesbær ársreikningi með 83
milljónum í hagnað. Samkvæmt
endurskoðendum Reykjanes-
bæjar þá eru tekjur oftaldar um
150 milljónir og bæjarsjóður því
með réttu rekinn með tapi.
Starfsfólki heldur áfram að
fjölga hlutfallslega umfram
fjölgun bæjarbúa. Stöðugildum
fjölgar um 85 milli ára og þá
eru vinnumarkaðsúrræði ekki
meðtalin. Fjölgun starfsmanna
hjá Reykjanesbæ er um 9,7% á
meðan íbúum fjölgar um 1,3%
og launakostnaður eykst um
rúmlega 17% á milli ára (leiðrétt
vegna vinnumarkaðsúrræða).
Annar rekstrarkostnaður eykst
síðan um 14% á milli ára skv.
endurskoðendaskýrslu,“ segir í
bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks, Miðflokks og Frjáls afls á
bæjarstjórnarfundi 18. maí við
síðari umræðu um ársreikning
sveitarfélagsins.
Í bókunninni er einnig gagn-
rýnd fjölgun stöðugilda hjá sveit-
arfélaginu og að launakostnaður
hafi aukist um 32%. Þá muni
Reykjanesbær ekki uppfylla fjár-
hagsleg viðmið sem sett eru í
sveitarstjórnarlögum á komandi
árum.
Starfsfólki fjölgar
og kostnaður eykst
Skólavist fyrir
5 ára börn í
Reykjanesbæ?
Knattspyrnuvertíðin er byrjuð og Keflavík á lið í efstu deild bæði hjá körlum og konum en liðin unnu sér sæti í
deildum þeirra bestu á síðasta ári. Hér er baráttumynd úr leik Keflavíkur og Þróttar. Sjá nánar í blaðinu í dag.
Miðvikudagur 19. Maí 2021 // 20. tbl. // 42. árg.