Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.2021, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 19.05.2021, Blaðsíða 17
Sjálfbær orkuframtíð og atvinnuuppbygging á Suðurnesjum Ný Orkustefna til ársins 2050 var lögð fyrir Alþingi í byrjun þessa árs. Orku- stefnan er framsýn og metn- aðarfull þar sem sjálfbær orkuframtíð er meginstefið. Framtíðarsýnin kveður meðal annars á um að öll orkuframleiðsla, þar með talið vara- aflsframleiðsla, verði af endurnýjan- legum uppruna í stað framleiðslu varaafls með díselolíu. Stefnt er að því að hér á landi verði markmiði um kolefnishlutleysi náð fyrir árið 2040 og við verðum óháð jarðefna- eldsneyti ekki síðar en árið 2050. Til þess að þetta verði að veruleika þarf að þróa markaði, nýja tækni en ekki síst þarf að beita frjórri hugsun og samvinnu. Þannig verða kerfi, tækni og fólk lykilbreytur til árangurs svo að vel til takist. Ótal tækifæri leynast á Íslandi til grænnar atvinnuuppbyggingar og við sem þjóð stöndum afar vel að vígi þegar kemur að orkuframleiðslu í samræmi við þau gildi. Hins vegar skulum við hafa það hugfast að um öfluga keppinauta er að etja. Danir stefna hraðbyr að hreinum orku- skiptum og undirbúa nú byggingu nýrrar vindorkueyju til útflutnings á endurnýjanlegri raforku. Fram- kvæmdin hefur verið kynnt sem bjartasta von orkuskipta Danmerkur. Þegar lítil eftirspurn er fyrir raforku er stefnt að framleiðslu vetnis með rafgreiningu eða annarri loftslagsvænni orku sem nýta má til að knýja skip og stærri samgöngu- tæki. Á meðan Danir, þjóð sem fátæk er af náttúrulegum auðlindum, undirbúa framtíð algjör- lega óháða jarðefnaeldsneyti með beislun sólar og vindorku, er engin ástæða til annars en að ætla að Ís- lendingar geti sýnt mátt sinn í slíkri samkeppni. Græn framtíð sameinar efnahags- lega og umhverfislega hagsmuni. Tækifærin felast í nýrri aðferðar- fræði og nýrri hugsun við nýtingu þeirra endurnýjanlegu orkugjafa sem við Íslendingar eigum gnægð af. Nýr orkusækinn atvinnuvegur gefur okkur færi á að hætta innflutningi á jarðefnaeldsneyti, eykur orkuöryggi okkar og skapar gjaldeyristekjur. Þörfin fyrir vistvænt eldsneyti og tækifærin á Suðurnesjum Til þess að draga úr losun gróður- húsalofttegunda þarf að leita fleiri vistvænna orkugjafa til að knýja stærri samgöngufarartæki þar sem rafmagn er ekki fýsilegur orku- beri. Framleiðsla vistvæns rafelds- neytis svo sem vetnis, ammoníaks, metanóls og metans er lykilþáttur í að orkuskipti í samgöngum verði að veruleika. Slík framleiðsla krefst mikillar orku sem við erum rík af. Þá kallar rafbílavæðingin á stóraukna framleiðslu á rafhlöðum. Markað- urinn kallar á nýja tækni og hraða þróun. Því er nauðsynlegt að vera vakandi fyrir aukinni eftirspurn og tækifærum þar að lútandi. Nýlega birtist frétt í viðskiptablaði Morgunblaðsins þar sem fjallað var um ákvörðun skipafélagsins Maersk um, að hætta að nota olíu á öll sín skip. Áform eru um að fyrsta „græna“ skipið verði sjósett eftir tvö ári, knúið rafmetanóli. Eitt af meginsóknartækifærum vetnis er að gera iðnaðarhafnir ná- tengdar framleiðslustaðnum. Vetni, framleitt með rafgreiningu, gæti þá þjónað ýmsum greinum þar sem varmaorka og mikið hágæðasúr- efni nýtist. Má þar til dæmis nefna seiða- og fiskeldi á landi. Við það skapast tækifæri til að auka hag- kvæmnina við vetnisframleiðsluna. Helguvíkurhöfn, sem tengir Ísland við umheiminn, gegnir þar afar mikilvægu hlutverki með sinni stað- setningu. Orkuskiptin eru að knýja dyra í þungaflutningum á öllum víg- stöðvum. Aukinn áhugi erlendis, bæði af hálfu fyrirtækja og erlendra stjórnvalda, er um samstarf á fram- leiðslu umhverfisvæns eldsneytis og nýtingu á endurnýjanlegri orku sem styður við græna framtíð. Með vaxandi vitund almennings um sjálf- bærni og samfélagslega ábyrgð verða fyrirtæki sem ætla sér að vera leið- andi á komandi árum að taka ábyrgð á þeim áhrifum sem starfsemi þeirra hefur og sýna í verki að sjálfbærni er höfð að leiðarljósi fyrir komandi kynslóðir. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem orkugjafa fyrir flugvélar og vinnur bandaríska félagið Uni- versal Hydrogen að lausn um þessar mundir. Til þess að alþjóðaflugvöll- urinn haldi áfram að vera mikilvægur hlekkur í millilandatengingum eftir orkuskipti er deginum ljósara að tryggja þarf að fyrirliggjandi áhugi þeirra fyrirtækja sem hyggjast á græna eldsneytisvinnslu beinist að Suðurnesjum. Hér spretti þannig upp ný og græn orkutækifæri. Þörfin fyrir Suðurnesjalínu 2 Ekkert af þessu er möguleiki án þess að byggðir séu hér upp nauð- synlegir og sterkir innviðir enda eru þeir lífæðar samfélagsins. Til þess að fyrirtæki líti á Suðurnesin sem raunhæfan og ákjósanlegan val- kost sem taka beri alvarlega verður að vera tryggt að raforkuflutnings- kerfið byggist upp í takt við aðra mikilvæga innviði eins og vegakerfi og fjarskipti. Aukin raforkunotkun á Suðurnesjum hefur leitt til þess að flutningskerfið er orðið verulega þungt lestað, svo mjög, að ástandið er farið að valda verulegu tjóni fyrir núverandi atvinnustarfsemi á svæðinu. Það skýtur skökku við að ekki sé tryggt afhendingaröryggi á Suðurnesjum þótt næg framleiðslu- geta sé á svæðinu. Truflanir á Suður- nesjum geta valdið alvarlegum út- slætti á höfuðborgarsvæðinu. Þá má benda á að komi til alvarlegrar bilunar á Suðurnesjalínu 1 þá getur tekið langan tíma að koma raforku- kerfinu á Suðurnesjum aftur í eðli- legan rekstur með tilheyrandi röskun á samfélagslegri starfsemi eins og al- þjóðaflugvellinum í Keflavík. Það er spennandi framtíð sem blasir við í orkuskiptum á Ís- landi. Suðurnesjamenn ættu því að grípa tækifærið samfélaginu og umhverfinu til heilla. Til þess að svo megi verða þarf að tryggja hér afhendingaröryggi raforku til at- vinnuuppbyggingar og fyrir sam- félagið sjálft. Um þetta mikilvæga mál munu komandi Alþingiskosningar meðal annars snúast. Hanna Björg Konráðsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ. Passaðu að slasa þig á virkum degi, alls ekki um helgar! Þetta virðist vera tilfellið á HSS og er algjörlega óásættanlegt fyrir okkur íbúa á Suðurnesjum. Átta ára stúlka dettur úr rólu á föstudagskvöldið, hún finnur til og sefur ekki vegna verkja þá nóttina. Móðir hennar fer með hana á HSS á laugardagsmorgun þar sem kalla þarf út röntgen- tækni til að taka röntgenmyndina. Þegar því er lokið er barnið sett í teygjusokk og móðurinni tjáð að hringt verði í hana á mánudaginn ef um brot sé að ræða þar sem ekki er hægt að lesa út úr rönt- genmyndum um helgar. Ef barnið er verkjað, vinsamlegast gefið henni þá verkjalyf. Sem betur fer er þessi átta ára gamla stúlka algjört hörkutól, hún fann til og fór svo í skólann á mánudagsmorgun, ennþá með teygjusokk um höndina. Klukkan 13 á mánudag fær móðirin símhringingu frá HSS þar sem hún er beðin um að koma með barnið þar sem hún er brotin og þurfi að fá gifs. Er þetta virkilega svona árið 2021 að ekki sé læknir á vakt um helgar sem les út úr röntgen- myndum? Er það virkilega þannig að ef að fólk slasar sig um helgi þá þurfi það vinsamlegast að harka af sér og taka verkjalyf til mánudags? Eitthvað þarf að laga í heilbrigðis- þjónustunni á Suðurnesjum. Þetta er klárlega ekki eina dæmið en þessi saga og þessi átta ára stúlka stendur mér nær og mér fannst ég þurfa að koma þessu frá mér. Kveðja, Ester Grétarsdóttir, Suðurnesjabæ. Hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2021 Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir verkefni í skólastarfi sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Verðlaunin eru veitt til einstaka kennara, kennara- hópa og starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem standa að baki verkefnunum. Hvatningarverðlaunin verða afhent í Bíósal Duus Safnahúsa miðvikudaginn 9. júní kl. 17:00. Allir sem vilja geta sent inn ábendingar um áhugaverð verkefni sem hafa nýst skólasamfélaginu og hafa verið unnin á yfirstandandi skólaári. Skila þarf inn tilnefningum fyrir 28. maí nk. Eyðublað fyrir tilnefninguna má finna á heimasíðu Reykjanesbæjar. Elíza M. Geirsdóttir Newman og Unicef teymi Háaleitisskóla hlutu hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2020 fyrir verkefnið Réttindaskóli Unicef. Markmið verkefnisins var að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, efla jákvæð samskipti, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. VF-myndir HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR AÐALFUNDUR STARFSMANNAFÉLAGS SUÐURNESJA Áður frestaður aðalfundur vegna Covid-19 verður haldinn miðvikudaginn 26. maí 2021 kl. 20:00   í Krossmóa 4a, 5. hæð, 260 Reykjanesbæ. Kosning formanns. Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum félagsins. Önnur mál. Stjórn STFS á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 17

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.