Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.2021, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 19.05.2021, Blaðsíða 13
Guðlaugur Jónsson sem rekur Hamborgara- búlluna í Reykjanesbæ hafði starfað fyrir Tómas í fjármálum í sex eða sjö ár þegar Covid kom og erlendu staðirnir lokuðu. Hann hefur reyndar þekkt Tómas í áratugi en móðir hans starfaði hjá Tómasi í Festi á áttunda áratug síðustu aldar. „Þá kom sú hugmynd hjá syni Tomma að opna stað í Reykjanesbæ og hér er ég, kominn á grillið,“ segir Guðlaugur í samtali við Víkurfréttir. Guðlaugur hafði starfað við fjármál alla sína starfsævi hjá stórum sem smáum fyrir- tækjum. Hann nefnir Icelandair og FL-Group og fleira. „Svo er maður kominn í það að steikja hamborgara, sem er svolítið ólíkt því sem ég lærði og hef starfað við síðustu 30 ár.“ – Og þú opnar á Covid-ári. „Já. Ég hef fylgst vel með Búll- unni í gegnum árin og þegar illa hefur árað í þjóðfélaginu þá hefur Búllan gengið ágætlega. Við vorum með Búllu-trukkinn hér í fyrra og móttökurnar voru gríðarlega góðar þannig að við voru óhræddir að opna og fólk hefur tekið rosalega vel á móti okkur.“ – Þessi staðsetning hér á gömlu bæjarmörkunum. Það var merkileg starf- semi hér í gamla daga. „Já. Hérna voru síldarþrær og fiskibræðsla. Undir það síðasta var hér aðstaða til að þrífa bíla, þannig að það er mikil saga í þessu húsi og það hefur verið gerð mikil breyting á þessum hluta hússins frá því við tókum við því í júní í fyrra.“ – Hvernig hafa mót- tökurnar verið? „Eins og við var búist, alveg frá- bærar. Fólkið man eftir Tómasi þegar hann var niðri á Hafnar- götu og ég man líka eftir honum þaðan. Fólkið hér á Suður- nesjum hefur tekið mér ein- staklega vel. Þrátt fyrir að það sé engin umferð ferðamanna þá er ekki hægt að kvarta.“ – Þannig að þú ert ekki á leið til London aftur til að sjá um fjármálin. „Nei, ég verð bara hér.“ stöðinni var sýsluskrifstofa sem var opin hálfan daginn. Ég sótti um það og fór í þjálfun hjá Jóni Eysteinssyni, sýslumanni og bæjarfógeta. Þegar skrifstofan var opnuð á nýju lög- reglustöðinni var ég eini fulltrúinn og sá um allt. Gaf út passa, rukkaði þinggjöldin, gaf út öll skírteini sem þurfti að gera. Ég þinglýsti líka en af nafninu til komu fulltrúarnir og skoðuðu hvort ég hafi ekki gert rétt. Ofan á allt annað gaf ég oft út vín- veitingaleyfi á félagsheimilið Festi. Félög gátu sótt um einu sinni á ári að halda hátíð með vínveitingaleyfi. Ef ég þurfti á vínveitingaleyfi að halda þá fann ég eitthvað félag og gaf út vínveitingaleyfið sjálfur og allir ánægðir. Það er allt í lagi að segja þetta núna 40 árum seinna.“ Keflvíkingar þekktu hamborgara af Vellinum – Þú heldur áfram tengingu þinni til Suðurnesja nokkrum árum síðar þegar þú opnar hamborgarastað í Keflavík. „Ég hætti í Festi haustið 1977 og fór til Ameríku að læra hótel- og veitingarekstur í háskóla. Þegar ég var í Festi þá drakk ég ekki en þegar ég kom til baka frá Ameríku var ég byrjaður að drekka og var í hálf- gerðri óreiðu. Ég fór því í meðferð og þegar ég kom úr henni opnaði ég fljótlega Tommahamborgara. Sama ár, 1981, opnaði ég líka í Keflavík því ég hafði á tilfinningunni að Keflvík- ingar væru tilbúnir að borða ham- borgara – sem þeir voru. Keflavík var ekki lík neinum öðrum kaupstað á landinu. Völlurinn hafði mikil áhrif á þjóðlífið hérna. Það var svolítið „er- lendis“ að koma til Keflavíkur. Það var allt annar fílingur en í nokkrum öðrum kaupstað eða kauptúni sem ég hafði komið í. Ég vissi það að þeir myndu þekkja hamborgara. Nánast allir Keflvíkingar voru vanir að fara upp í Viking og fé sér burger. Svo opnum við á Fitjum í Njarðvík og breyttum staðnum á Hafnar- götunni í leiktækjasal. Svo seldi ég Tommaborgara-fyrirtækið um ára- mótin ‘83–’84 og fór aftur til Am- eríku í vettvangsrannsókn. Út úr því kom Hard Rock Café sem varð tíu ára dæmi hjá mér. Þá seldi ég staðinn og honum síðan lokað eftir að hafa starfað í tuttugu ár.“ – Þú hefur komið víða við í veitinga- rekstri og ert núna nýlega búinn að opna Búlluna í samstarfi við þína menn á gömlu bæjarmörkum Kefla- víkur og Njarðvíkur. „Sá sem á Búlluna hérna heitir Guð- laugur Jónsson og búinn að vera fjármálastjóri hjá okkur í Búllunni í nokkur ár. Hann hafði fylgst með og borðað mikið af borgurum. Hann er fæddur í Grindavík en er ættaður bæði þaðan og úr Keflavík og hann var staðráðinn í að opna Búllu hér. Við sögðum honum að ef hann væri tilbúinn, þá værum við tilbúin. Hann lét sig hafa það að opna hér í Covid og það hefur gengið lyginni líkast.“ „Það kemur enginn hingað til að fá vondan hamborgara“ – Hver er lykillinn að þessum ham- borgara? „Þú getur fengið mjög góða borgara mjög víða í dag. Okkar leyndarmál, ef leyndarmál skal kalla, eru gæði, góð þjónusta og stöðugleiki. Þetta eru þrír þýðingarmestu póstarnir í rekstrinum. Við höfum alltaf verið með UN 1 nautakjöt sem er ungnaut 1. flokkur. Þegar við opnuðum Tommaborgara vorum við að nota kýrkjöt. Ég byrjaði svo að nota ungnautakjötið og að hafa 20% fitu því að bragðið kemur úr fitunni. Einu sinni kom maður til mín og sagði: „Ég skal selja þér ódýra ham- borgara. Ég nota bara hrossakjöt og set nautafitu saman við það, þá veit enginn neitt.“ Bragðið er úr fitunni. Til að fá mýktina og góða bragðið þá höfum við 20% fitu. Svo ferskt, nýtt brauð daglega. Þetta er mjög einfalt. Leyndarmálið er í raun ekki neitt. Það þarf að hugsa vel um þetta og því segi ég ást og umhyggja. Það er leyndarmálið – serve all, love all.“ Að þjónusta alla og elska alla er eitt af lykilatriðunum í rekstri. „Tender loving care,“ segi ég. Ef ein- hver er óánægður hérna þá í fyrsta lagi endurgreiðum við honum og bjóðum honum að koma aftur frítt. Það kemur enginn hingað til að fá vondan hamborgara. Það er grund- vallarregla. Við spyrjum viðskipta- vininn hvað var að en förum aldrei að þrefa við hann um hvort eitthvað hafi verið svona eða hinsegin. Hann hefur alltaf rétt fyrir sér. Það er partur af leyndarmálinu.“ Dásamlegt eldgos – Hvað finnst þér um þessa miklu ferðamannasprengju sem varð? „Ég átti Hótel Borg í tíu ár. Ég keypti Hótel Borg 1992 og rak í áratug. Þá voru ferðamennirnir 150–200 þúsund á ári og þetta var stöðug barátta hjá öllum sem voru í ferða- mannabransanum. Við vorum svo heppin að smám saman komst Ís- land á kortið. Það var Björk og Vigdís forseti. Það var handboltaliðið, Eyja- fjallajökull og svo framvegis. Allt í einu varð Ísland „hot stuff“ og fólk fór að koma. Það er gaman að verða vitni að þessu þegar þetta springur svona út. Þetta voru erfiðir tímar í ferðaiðnaði, árin 1995–1998, á sama tíma og ég var með hótelið. Við höfðum þetta af og voru tilbúnir þegar ferðamenn fóru loksins að koma.“ – Nú er nýtt eldgos sem margir segja Lottó-vinning númer tvö á eftir Eyjafjallajökli. „Þetta er dásamlegt eldgos. Það getur ekki verið betur staðsett. Það er óveruleg hætta í gangi. Þetta er nálægt flugvellinum. Ég á von á því að þetta kveiki áhuga hjá ferða- mönnum og sérstaklega Bandaríkja- mönnum sem eru ágætis kúnnar. Þeir fíla þetta og ég ímynda mér að þetta gos geri Ísland áhugaverðara. Svo eru að opna baðlón út um allt og það er fullt að gerast hérna. Ísland er þróað þjóðfélag. Ég er búinn að ferðast til yfir 50 landa en á Íslandi er allt til alls. Hér tala allir ensku og eins og eigandi Hard Rock Café sagði þegar hann kom hingað, að allt væri í tíu mínútna fjarlægð. Það er allt svo aðgengilegt hérna.“ – Ertu bjartsýnn núna þegar Covid er að ljúka? „Þegar kófinu lýkur er ég bjartsýnn. Ekki spurning.“ Bestu árin í Grindavík og Keflavík var eins og erlendis Páll Ketilsson pket@vf.is Búllan fengið góðar móttökur í Reykjanesbæ Ungnautakjöt með 20% fitu er í Búlluborgaranum og það er fitan sem gefur góða bragðið segir Tommi. VF-mynd: Hilmar Bragi víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.