Víkurfréttir - 19.05.2021, Blaðsíða 10
Aud Lise Norheim, sendiherra
Noregs á Íslandi, heimsótti Bóka-
safn Reykjanesbæjar á dögunum.
Tilefni heimsóknarinnar var að
skoða sýningu um Kardemom-
mubæinn í Átthagastofu safnsins
en sýningin hafði staðið yfir frá því
í janúar.
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri
í Reykjanesbæ og Stefanía Gunn-
arsdóttir forstöðumaður Bókasafns
Reykjanesbæjar tóku á móti Aud
Lise og fylgdarliði frá norska sendi-
ráðinu.
Rúmlega 1000 íbúar skoðuðu sýn-
inguna sem byggir á teikningum
Thorbjörn Egner’s úr Kardemommu-
bænum. Á meðan sýningunni stóð
gátu gestir tekið þátt í getraun sem
byggði á spurningum úr Karde-
mommubænum. Mikil þátttaka var í
getrauninni en Aud Lise dró út þriðja
og síðasta vinningshafann sem var
að vonum alsæll með verðlaunin.
Það kemur fyrir að ég er ekki
staddur á Suðurnesjum á þeim degi
sem ég skrifa þessa pistla.
Núna er ég í Varmahlíð í Skaga-
firðinum, og eins og gefur að skilja
þá er nú ekki mikið hægt að tengja
Varmahlíð við sjávarútveginn á
Suðurnesjunum. En ef ég myndi fara
niður að sjó og á Sauðárkrók þá er
hægt að finna ansi margar tengingar
við Suðurnesin. Lítum á nokkrar.
Á sínum tíma var til fyrirtæki
í Keflavík sem hét Hraðfrystihús
Keflavíkur (HK) og það fyrir gerði
meðal annars út togarana Aðalvík
KE og Bergvík KE. Seint á árinu
1988 kaupir Fiskiðja Sauðárkróks
báða togarana en í staðinn þá fékk
HK, togarann Drangey SK. Sá togari
var þá orðin hálfrystitogari, en HK
lét breyta honum í alfrystitogara.
Reyndar gekk rekstur HK mjög
erfiðlega því um mitt ár 1990 þá var
Aðalvík KE, sem var áður Drangey
SK, seldur til Útgerðarfélags Akur-
eyra. Skömmu seinna þá varð HK
gjaldþrota.
Fiskiðjan á Sauðárkróki kom
reyndar við sögu aftur árið 1990,
en þá var bátur í Sandgerði sem hét
Sandgerðingur GK en sá bátur var
seldur norður og fékk þar nafnið
Ólafur Þorsteinsson GK. Hann kom
síðan aftur suður þegar að Hólm-
grímur Sigvaldson kaupir bátinn og
gefur honum hafnið Tjaldanes GK.
Að lokum má bæta við að Snorri
Snorrason skipstjóri á Pálínu Þór-
unni GK, sem Nesfiskur á, býr á
Sauðárkróki.
Annars fer að styttast í hinn reglu-
lega sumarboða sem kemur vanalega
suður um þetta leyti og er ég þá ekki
að tala um fugla, heldur dragnóta-
bátinn Steinunni SH frá Ólafsvík.
Báturinn hefur vanalega klárað
kvótann sinn í maí og hefur síðan
komið í Njarðvík og þar beint í slipp
og verið þar yfir sumarið. Steinunn
SH hefur mokveitt núna í maí og
landað alls 322 tonnum í aðeins 9
róðrum og mest 43 tonnum.
Bátarnir frá Nesfiski voru stopp-
aðir af í lok apríl og fóru ekkert á
veiðar aftur fyrr en núna um miðjan
maí. Siggi Bjarna GK hefur landað
19,4 tonnum, Benni Sæm GK 14,1
tonnum, báðir í einni löndun. Aðal-
björg RE hefur róið nokkuð duglega
í maí og landað 72 tonn í 7 róðrum
í Sandgerði.
Hérna að ofan þá notaði ég orðin
„á sínum tíma“, og ætla að nota þau
aftur núna, en á sínum tíma þegar að
nýr bátur var að koma þá fór hann
iðulega í sína heimahöfn og var
fagnað þegar að nýir bátar komu í
höfn.
Nýverið var Hulda GK afhent
eigendum sínum en Hulda GK er í
eigu Blikabergs ehf., sem er með fisk-
verkun í Sandgerði.
Báturinn var í Hafnarfirði í
nokkrar vikur meðan verið var að
klára bátinn, en svo kom að því að
hann fór í sína fyrstu veiðiferð. En
öfugt við það sem vaninn er þá kom
báturinn ekki í sína heimahöfn, sem
er Sandgerði, heldur kom báturinn til
Grindavíkur og þar tók presturinn í
Grindavík á móti honum og smá hóf
var haldið. Þetta er ansi furðulegt og
líklegast einsdæmi á íslandi að bátur
komi ekki í sína heimahöfn úr sínum
fyrsta túr.
Sendiherra Noregs heimsótti
Bókasafn Reykjanesbæjar
Tengsl Skagafjarðar og
Suðurnesja í sjávarútvegi
aFlaFrÉttir á SuðurNESJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útsýnið hjá aflafréttablaðamanni í Varmahlíð.
FRAMHALDSPRÓFS- OG
BURTFARARTÓNLEIKAR
Arnar Geir Halldórsson, sellónemandi, heldur
framhaldsprófs- og burtfarartónleika í Stapa,
Hljómahöll, miðvikudaginn 19. maí kl.19:30.
Aðeins verður um boðsgesti að ræða.
Tónleikunum verður streymt á YouTube-rás skólans.
SkólastjóriFIMMTUDAG KL. 19:30 Á HRINGBRAUT OG VF.IS
Suðurnesjasögur
Tomma í þætti vikunnar
„Leynigjóska“ úr gosinu
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár