Víkurfréttir - 19.05.2021, Síða 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
augNablik MEð JÓNi StEiNari
Jón Steinar Sæmundsson
Ný og glæsileg Hulda kom inn til
Grindavíkur í vikunni úr sínum
fyrsta róðri. Báturinn reyndist vel
í alla staði í þessum fyrsta róðri að
sögn skipverja, sem sögðu þó að
aflinn hefði mátt vera meiri en hann
var um þrjú tonn.
Þegar að Hulda lagðist að bryggju
steig Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknar-
prestur í Grindavík, um borð og
blessaði hinn nýja bát eins og venja
er þegar ný skip koma í höfn í fyrsta
skipti. Að athöfn lokinni var gestum
boðið upp á veitingar.
Hulda GK 17 er af gerðinni Cleo-
patra Fisherman 40BB og er 11,99
metra löng. Mælist 29,5 BT að stærð.
Báturinn var hannaður hjá Ráðgarði
Skiparáðgjöf í samstarfi við Trefjar
ehf. og eigendur bátsins.
Eigandi og útgerðaraðili Huldu er
Blakknes ehf. en að því félagi standa
feðgarnir Sigurður Aðalsteinsson,
Ólafur Már Sigurðsson og Gylfi Þór
Sigurðsson. Heimahöfn Huldu er
Sandgerði.
Hulda blessuð
Söngleikurinn Mamma Mia - Styrktarsýning í Heiðarskóla
Leiklistarval Heiðarskóla frumsýndi á árshátíð skólans
þann 19. mars söngleikinn Mamma Mia í leikstjórn
þeirra Daníellu Hólm Gísladóttur, Estherar Níelsdóttur,
Guðnýjar Kristjánsdóttur og Hjálmars Benónýssonar
en öll eru þau kennarar við skólann. Það er í hefð fyrir
því til margra ára að setja upp eina vorsýningu með
leiklistarvalinu á árshátíð unglinganna sem síðan allir
nemendur skólans fá tækifæri til að sjá á skólatíma auk
þess sem aðstandendur leikaranna og almenningur
hafa fengið að koma á sýningar. Þá hefur verið hefð
fyrir því að halda styrktarsýningu til styrktar góðu
málefni og í ár á að styrkja Ljósið. Í Heiðarskóla hafa
bæði starfsmenn og nemendur notið góðs af starfsemi
Ljóssins og því varð það fyrir valinu í þetta skiptið.
Allur aðgangseyrir lokasýningarinnar rennur til þess
félags og er þetta gert af hugulsemi og væntumþykju
þeirra sem að þessari sýningu koma. „Við erum bara
alltaf svo heppin með hópa, hæfileikaríkir krakkar
sem vilja láta gott af sér leiða,“ sagði Guðný Kristjáns-
dóttir leiklistarkennari sem hefur sett upp fjölmargar
sýningar á undanförnum árum og hvetur fólk til þess
að mæta og sjá þessa snillinga.
Lokasýningin verður fimmtudaginn 20. mai kl. 20:15
á sal Heiðarskóla. Miðaverð er 1.000 kr. (ekki er hægt
að greiða með greiðslukortum).
FIMMTUDAGUR KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.ISnýr tími!
6 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár