Víkurfréttir - 19.05.2021, Qupperneq 15
Suðurnesjafólk verður í framlínunni þegar einstakir tónleikar Korda Sam-
fónía verða fluttir í Hörpu 21. maí n.k. Stjórnandi og aðal höfundur er
Keflvíkingurinn Sigrún Sævarsdóttir en hún fær sprenglært tónlistar-
fólk, nemendur, sjálfsmenntað tónlistarfólk og fólk sem aldrei hefur lagt
stund á tónlist saman í þessa óvenjulegu hljómsveit, alls 35 manns, úr
ólíkum áttum. Í Kordu Samfóníu eru fimm þátttakendur frá Samvinnu á
Suðurnesjum, þá er Sævar Helgi Jóhannsson, bróðursonur Sigrúnar, að-
stoðarstjórnandi. „Þetta er stór hópur fulltrúa svæðisins hér að verki á
þessum einstöku tónleikum í Hörpu þann 21. maí nk. þegar óvenjulegasta
hljómsveit landsins þreytir frumraun sína,“ segir Sigrún en hún kemur úr
stórri tónlistarfjölskyldu í Keflavík, móðir hennar er Ragnheiður Skúla-
dóttir píanóleikari og tónlistarkennari og bræðurnir Sigurður og Jóhann
Smári Sævarssynir, báðir mjög þekktir í tónlistargeiranum.
Sigrún Sævarsdóttir Griffiths stýrir
óvenjulegustu hljómsveit landsins.
Bróðursonur hennar og fleiri Suður-
nesjamenn með henni í Hörpu 21.
maí
Korda Samfónía er ný 35 manna
hljómsveit, samsett af hljóðfæraleik-
urum Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
nemendum Listaháskóla Íslands og
skjólstæðingum Hugarafls og Starfs-
endurhæfingastöðva Vesturlands,
Hafnarfjarðar og Suðurnesja. Hljóm-
sveitin var stofnsett í febrúar 2021
og koma hljómsveitarmeðlimir úr
hinum ýmsu áttum, með mjög fjöl-
breyttar sögur að baki. Verkefnið
er runnið undan rifjum MetamorP-
honics, samfélagsmiðuðu fyrirtæki
sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths,
tónlistarkona úr Keflavík, stýrir í
London. Aðrir aðilar að verkefninu
eru Tónlistarborgin Reykjavík og
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús.
Á efnisskrá tónleikanna verður
frumflutningur glænýrrar tónlistar,
sem samin er af hljómsveitarmeð-
limum í sameiningu undir stjórn
Sigrúnar.
„Hugmyndafræði MetamorPhonics
byggir á því, að til þess að fólki vegni
vel í lífinu, þurfi það að upplifa sig
sem gjaldgenga, virka meðlimi sam-
félagsins og að á það sé hlustað. Því
skapar MetamorPhonics einstakan,
opinn og aðgengilegan vettvang til
tónsköpunar, fyrir tónlistarnem-
endur á háskólastigi og fólk sem
stendur á krossgötum í lífinu sem er
að byggja sig upp eftir margs konar
áföll, t.d. heimilisleysi, atvinnuleysi
eða kulnun,“ segir Sigrún en Meta-
morPhonics rekur hljómsveitir í
London, Leicester, Los Angeles og
nú á Íslandi.
„Markmiðið er að fólk kynnist í
gegnum þessa tónlistarsköpun og
taki áhættu sem hentar því og prófi
eitthvað sem það hefur ekki prófað
áður. Við erum öll að vinna á nýjum
vettvangi. Um helmingur hljóm-
sveitarinnar er frá Listaháskólanum,
þrír koma frá Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og svo er hinn helmingurin
fólk sem er að vinna í sér og koma
sér af stað aftur í lífinu, og kemur frá
starfsendurhæfingastöðvum á Akra-
nesi, Hafnarfirði og Suðurnesjum.
Það eru hljómsveitir í Hugarafli og í
þessum sveitarfélögum og við sam-
einumst í fimmtu sveitinni, Korda.
Við öll saman semjum tónlist og það
hefur verið ofboðslega gaman.“
Aðgangur er ókeypis en bóka þarf
miða vegna takmarkaðs miðafram-
boðs. Frekari upplýsingar á
Harpa.is og miðabókun á tix.is
Fékk að finna fyrir Covid-19
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths býr í Sy-
denham, Suð-austur London, með mann-
inum sínum, Paul Griffiths, og börnunum
þeirra tveimur, Sædísi Rheu, tólf ára, og
Rhys Ragnari, sextán ára. Sigrún flutti til
London 1997 til þess að stunda tónlist-
arnám við Guildhall School of Music and
Drama. Hún endaði svo á því að giftast
kennaranum sínum og taka við rekstri
kúrsins sem hún lærði við .„Ég stýrði meist-
aranámi við Guildhall í tólf ár en í dag rek
ég mitt eigið fyrirtæki og stýri ýmsum sjálf-
stæðum verkefnum sem stjórnandi og kenni
við Guildhall innan tónlistardeildarinnar,“
seagði Sigrún í samtali við Víkurfréttir í maí
á síðasta ári.
Vinnur með heimilislausu fólki
Sigrún kennir sitt fag við Guildhall en jafn-
framt vinnur hún sjálfstætt fyrir listastofn-
anir á alþjóðlega vísu, auk þess sem hún er
fengin sem gestakennari við tónlistarháskóla
um allan heim, þar á meðal Listaháskóla Ís-
lands.
„Í júní 2019 setti ég á stofn nýtt fyrirtæki, svo-
kallað Community Interest Company (sem
er óhagnaðardrifið), þar sem ég vinn með
heimilislausu fólki og fólki sem er að byggja
sig upp eftir ýmiss konar áföll og erfiðleika í
lífinu. Fyrirtækið mitt heitir Metamor-Pho-
nics og gengur út á að stofna hljómsveitir sem
semja og flytja sína eigin, frumsömdu tónlist.
Núna, tíu mánuðum síðar, stýri ég tveimur
hljómsveitum í London, einni í Leicester, einni
í Los Angeles og þremur á Íslandi í samstarfi
við Starfsendurhæfingastöðvar á suðvestur-
horninu“.
Í Reykjanesbæ stýrir Sigrún hljómsveit sem
ber nafnið 360°. Hún er rekin í samstarfi
við Samvinnu á Suðurnesjum og var fyrsta
hljómsveitin sem hún stofnaði hér á landi og
nú hafa starfsendurhæfingastöðvar í Hafna-
firði og á Akranesi fylgt í kjölfarið.
Búið nánast öll
fullorðinsárin í London
Sigrún hefur búið í London nánast öll sín
fullorðinsár. Við spurðum hana hvort hún
sakni einhvers frá Íslandi. „Ég var rétt rúm-
lega tvítug þegar ég flutti út og var orðin gift
kona og stjúpmóðir þriggja yndislegra dætra
tveimur árum síðar. Því má segja að ég hafi
byggt mitt líf í Englandi en þrátt fyrir að hafa
búið erlendis í rúm 22 ár hef ég alltaf haldið
tengingunni til Íslands og er hálfpartinn búin
að búa mér til umhverfi þar sem ég er virk á
báðum stöðum. Þegar ég hlusta á útvarpið
er það nánast alltaf íslenskar stöðvar. Ég
hlusta á morgunútvarp Rásar 2 á hverjum
einasta virkum morgni og það er í bakgrunn-
inum þegar fjölskyldan borðar morgunmat.
Ég fylgist með fréttum á báðum stöðum og
rífst yfir pólítíkinni alveg jafnt á Íslandi sem
og Englandi.“
Sigrún og Paul maður hennar veiktust alvar-
lega af Covid-19.
„Allt í mínu lífi hefur breyst á síðustu sex
vikum. Ég átti að stjórna tónleikum á djass-
festivali í London í apríl, átti að vera að vinna
á Íslandi í maí, átti að tala á ráðstefnu í Búda-
pest í júní og vinna með heimililausa sam-
félaginu í Los Angeles í október en öllu hefur
verið aflýst. Börnin mín munu að öllum lík-
indum ekki ganga í skóla aftur fyrr en í sept-
ember og maðurinn minn, sem venjulega væri
1/3 hluta hvers árs á vinnutengdum ferða-
lögum um allan heim, er allt í einu heima alla
daga og verður það þangað til annað kemur
í ljós.
Að auki urðum við Paul fyrir þeirri hrika-
legu lífsreynslu að verða alvarlega veik með
COVID-19. Þó við höfum ekki verið lögð inn
á sjúkrahús þá stóð ég mjög tæpt þar sem ég
hætti að anda og féll saman. Sem betur fer var
Paul hér hjá mér svo hann náði að aðstoða
mig og þegar sjúkrabíllinn kom voru lífsmörk
mín orðin eðlileg á ný. Daginn eftir var okkur
ráðlagt að hringja á annan sjúkrabíl þar sem
ég fann fyrir svo miklum verkjum í brjóst-
holi og efra baki. Á bráðamóttökunni var ég
mynduð og þá kom í ljós vatn á lungum. Ég
fékk fúkkalyf og við það hófst mitt bataferli
en þá varð Paul mjög veikur. Nú eru liðnar sex
vikur frá því að við urðum veik. Ég er nánast
alveg orðin eins og ég á að mér að vera, þó ég
finni af og til fyrir eftirköstum, og Paul er við
það að ná sér. Það tók mun lengri tíma fyrir
hann að komast almennilega á fætur, enda er
hann astmasjúklingur.“
Lífsreynsla sem setti allt
annað í nýtt samhengi
Sigrún segir að þessi lífsreynsla hefur skilið
mikið eftir sig og sett allt annað í nýtt sam-
hengi. „Ég er viss um að hefðum við ekki lent
í þessu værum við eflaust miklu uppteknari
af áhyggjum af atvinnunni okkar og áhrifum
veirunnar á daglegt líf og framtíðarsýn en eins
og stendur erum við ótrúlega þakklát fyrir
það sem er. Við eigum yndislegt heimili þar
sem við höfum öll nóg pláss til þess að eiga
okkar einverustundir sem og samverustundir.
Við erum með stóran garð þar sem við getum
dundað okkur, grillað og haft það notalegt.“
Viðtalið í heild við Sigrúnu má sjá hér:
https://www.vf.is/mannlif/
%E2%80%9Eallt-i-lifinu-hefur-breyst-
a-sidustu-sex-vikum%E2%80%9C
Suðurnesjafólk í sviðljósinu
á einstökum tónleikum
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Sigrún og maður hennar, Paul
Griffiths, og börnin þeirra tvö,
Sædís Rhea og Rhys Ragnar.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 15