Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 22
MAGNAÐ TÍMABIL ELVARS MÁS
Leikmaður ársins í litháensku úr valsdeildinni
Njarðvíkingurinn Elvar Már
Friðriksson átti hreint magnað
tímabil með Siauliai í litháensku
úrvalsdeildinni í körfuknattleik
í vetur og fyrir vikið var hann
valinn leikmaður deildarinnar í
ár (Most Valuable Player).
Elvar Már var algerlega lang-
besti maðurinn í liði Siauliai í ár
sem endaði í sjöunda sæti lithá-
ensku deildarinnar. Nú er úrslita-
keppni deildarinnar að hefjast og
í átta liða úrslitum mæta Elvar og
félagar í Siauliai liði Rytas sem
endaði í öðru sæti. Fyrsti leikur
liðanna fer fram á fimmtudags-
kvöld.
Það er ljóst að frammistaða
Elvars hefur vakið athygli margra
og verður áhugavert að sjá hvort
Njarðvíkingurinn færi sig um set
fyrir næsta tímabil ... og þá hvert
hanni fari.
Með því að smella á myndina
í rafrænni útgáfu Víkurfrétta má
sjá skemmtilega samantakt af
snilldartilþrifum Elvars Más frá
tímabilinu.
ÚRSLITAKEPPNI
DOMINO'S-DEILDANNA
Í undanúrslitum Domino’s-deildar kvenna mætti
Keflavík Haukum á Ásvöllum síðasta föstudag. Hafn-
firðingar höfðu betur í þeirri viðureign, 77:63. Liðin
mættust á ný í Blue-höllinni á mánudag og aftur höfðu
Haukar betur, 68:80, og leiða því einvígið með tveimur
sigrum en fyrra liðið til að vinna þrjá leiki fer áfram í
úrslitaleikinn.
Þriðji leikur Keflavíkur og Hauka fer fram á föstudag
en Keflvíkingar þurfa nauðsynlega að sigra þá þrjá leiki
sem í boði eru ætli þær að eiga möguleika á að komast
í úrslitaleikinn.
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, var ekki
ánægður eftir fyrri leik liðanna og í viðtali á karfan.is
sagði hann að Keflavíkurstúlkurnar hafi verið eins og
litlar mýs og leyft Haukakettinum að ráða för allan
tímann.
Það voru hins vegar Keflvíkingar sem höfðu betur í
fyrsta leik sínum í úrslitakeppni Domino's-deildar karla
þegar þeir tóku á móti Tindastóli í Blue-höllinni síðasta
laugardag.
Það var fyrst og fremst góður varnarleikur Keflvíkinga
sem skóp sigurinn, 79:71. Dominykas Milka fór fyrir liði
Keflvíkinga með 33 stig og átta fráköst.
Á sama tíma fóru Grindvíkingar í Garðabæinn þar sem
þeir léku gegn Stjörnunni í úrslitakeppni Domino's-
deildar karla.
Stjarnan hafði betur í fyrsta leik, 90:72, og leiðir þá
viðureign því með einum sigri.
Viðureignir Grindavíkur og Stjörnunnar annars vegar og
Tindastóls og Keflavíkur hins vegar fóru fram á þriðju-
dagskvöld áður en Víkurfréttir fóru í prentun en nánar er
fjallað um þá leiki og aðra íþróttaviðburði á vf.is.
Daniela Wallen Morillo hefur verið atkvæðamest
í liði Keflavíkur en þær þurfa að gera betur
vilji þær komast lengra í keppninni.
Sandgerðingar deildarmeistarar í annarri deild karla
Reynismenn léku gegn ÍA um sigur í annarri deild karla
í körfuknattleik. Eftir fjörugan og spennandi leik voru
það Reynismenn sem fögnuðu sigri.
Reynismenn byrjuðu leikinn betur og leiddu eftir
fyrsta leikhluta 25:21. Reynir náði mest ellefu stiga for-
ystu í fyrsta leikhluta en Skagamenn náðu að jafna fyrir
leikhlé, staðan 43:43 í hálfleik.
Með þremur þristum í upphafi fjórða leikhluta náðu
Reynismenn góðu forskoti sem þeir héldu til leiksloka –
lokatölur 107:95 og Reynir er deildarmeistari annarrar
deildar karla í körfuknattleik 2020–2021.
Már bætti eigið Íslandsmet
Sundmaðurinn Már Gunnarsson (ÍRB) keppir nú á Evrópumóti fatlaðra
í sundi sem haldið er á Madeira. Á mánudag, öðrum keppnisdegi Más,
gerði hann sér lítið fyrir og bætti eigið Íslandsmet í 100 metra flugsundi
í flokki S11.
Það er ekki hægt að segja að mótið hafi farið vel af stað hjá Má en á fyrsta
degi lenti hann í óhappi þegar hann stakk sér til sunds í 50 metra skriðsundi
og festi hægri hendina í brautarlínunni. Már sagði í færslu á Facebook: „Það
leynast áhættur í öllum íþróttum og þær minnka ekki í íþróttum blindra.
Ég stakk mér til sunds í morgun í 50M skriðsundi og ætlaði svo sannar-
lega að bæta mig en á leiðinni festi hægri hendina í brautarlínunni og í
stað þess að stöðva tímatökubúnaðinn á hefðbundinn hátt í innkomunni
barði ég í búnaðinn hjá næsta manni á annari braut og stöðvaði minn
eiginn tíma með höfuðkúpunni á mér. Sem betur fer virðist ekkert vera
brotið, mögulega tognun og má maður vera þakklátur fyrir að ekki verr
fór en svo og þá skiptir ekki máli hálf sekúnda til eða frá. Er ekki sagt, fall
er farar heill. Þannig lít ég á það fyrir þær fjórar greinar sem eftir eru.“
Með jákvæðni að leiðarljósi átti Már góðan dag á mánudga þegar hann
lenti í fjórða sæti í 100 metra flugsundi og bætti Íslandsmet sitt sem er nú
01:11:11. Á þriðjudag átti Már frí frá keppni og sagði það vel þegna hvíld fyrir
þær þrjár greinar sem eftir eru.
Már stóð sig vel á mánudag og bætti Íslandsmet
sitt í 100 metra flugsundi. Mynd af Facebook-síðu Más
Miðvikudagur 19. Maí 2021 // 20. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is