Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 2

Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 20212 Nú er tími til kominn að dusta ryk- ið af félagsfærni okkar því nú getum við smám saman farið að eiga sam- skipti á ný í raunheimum. Ýmislegt er framundan. Bíóhöllin á Akranesi hefur til að mynda opnað að nýju og um helgina verða skemmtilega sýningar í boði. Þá er Sirkus Íslands væntanlegur með sýningu í Borgar- nes á sunnudaginn. Á morgun á að vera hæg vestlæg átt og víða dálítil él, en skúrir austast á landinu. Þurrt að kalla um kvöldið. Hiti í kringum frostmark. Á föstudag er útlit fyrir að verði norðaustan 5-13 m/s og úrkomulítið, en bætir í vind síðdegis með dálitlum skúrum eða éljum við norður- og austurströnd- ina. Hiti breytist lítið. Á laugardag er spáð norðaustlægri eða breytilegri átt og rigningu eða slyddu um tíma í flestum landshlutum. Hiti 0-5 stig. Á sunnudag á að vera austlæg átt og rigning með köflum, en þurrt að kalla vestantil á landinu. Hiti breytist lítið. Á mánudag er útlit fyrir hæga breytilega átt og bjart veður, en dá- lítil él eða slydduél verða á Norður- landi. Vatnsdeigsbollur eru töluvert vin- sælli ef marka má niðurstöður úr há- vísindalegri könnun á vef Skessu- horns síðustu vikuna. Þar var ein- faldlega spurt: „Vatnsdeigsbollur eða gerbollur?“ og 80% svarenda kusu vatnsdeigsbollurnar. 9% sögðu þær báðar jafn góðar, 8% kjósa frekar gerbollur og 3% vilja hvoruga gerð- ina. Í næstu viku er spurt: Hver er verst lyktandi útihúsalyktin? Í Dölum tóku fjórar mæður sig til og opnuðu íþróttaskóla fyrir börn 0-5 ára. Þær Guðbjört Lóa Þorgríms- dóttir, Íris Dröfn Brynjólfsdóttir, Rúna Blöndal og Sara Kristinsdóttir eru Vestlendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Vesturland án veirunnar VESTURLAND: Samkvæmt samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi síðastliðinn laugar- dag er landshlutinn nú án Co- vid-19 veirunnar. enginn er í sóttkví og enginn í einangrun á Vesturlandi. Sú staða hefur ekki komið upp í tæpt ár frá því sjúk- dómurinn barst fyrst í landhlut- ann í mars 2020. -mm Seinni úthlutun í febrúar AKRANES: Mæðrastyrks- nefnd Akraness verður með seinni úthlutun sína í mán- uðinum, miðvikudaginn 24. febrúar frá klukkan 13-17 í húsi Hb-granda við báru- götu á Akranesi. „Umsækjend- ur geta hringt í síma 859-3000 og 859-3200 miðvikudaginn 17. febrúar og fimmtudaginn 18. febrúar frá kl. 11-13 eða á netfangið maedrastyrkurakra- nes@gmail.com. Vinsamlegast sækið um á réttum tíma því við pöntum matinn seinnipartinn á fimmtudaginn.“ -mm Leiðrétt vegna af- rekaskrár HSH SNÆF: Í síðasta tölublaði var birt afrekaskrá HSH fólks í frjálsum íþróttum í samantekt Ingimundar Ingimundarson- ar. Hann vill gera nokkrar leið- réttingar. Í fyrsta lagi féll niður nafn Jóns Péturssonar en hann er í 31. sæti í kringlukasti með 49,98 m og 71. sæti í langstökki með 6,8m. Þá féll nafn Jóhanns b. Hjörleifssonar niður í upp- talningu á árangri í bikarkeppni fRÍ. Jóhann varð í 4. sæti í há- stökki. Vala var sögð vera í 41. sæti í spjótkasti en á að vera í 81. sæti. Loks er Hjálmar A. Sigur- þórsson ranglega sagður vera Sigþórsson. Þetta leiðréttist hér með. -ii ÞÞÞ gefur endurskinsmerki AKRAN/HVALFJ: bifreiða- stöð ÞÞÞ gaf nýlega öllum leik- skóla- og grunnskólabörnum á Akranesi og í Hvalfjarðar- sveit endurskinsmerki. Í sam- tali við blaðamann Skessuhorns sagði Anna María Þórðardótt- ir að ÞÞÞ vildi gæta að sýni- leika vegfarenda og að það væri hagsmunamál fyrir fyrirtækið að ökumenn þess og allir aðr- ir ökumenn sjái gangandi veg- farendur og því vill fyrirtækið hvetja alla til þess að nota end- urskinsmerki. endurskinsmerki fara aldrei úr tísku. Ljósmynd er af vef Vallarsels. -frg Í því skyni að mæta efnahagsleg- um áhrifum heimsfaraldurs kór- ónaveirunnar var gerð breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda á síðasta ári. breytingin færði launagreiðendum, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna faraldursins, heimild til að fresta allt að þremur gjalddögum skatta, þ.m.t. útsvari, á tímabilinu apríl til desember 2020. Vísbendingar eru um að þessa kerf- isbreytingu hafi ríkisvaldið ekki náð að halda utan um. Í lok nýliðins árs greiddi fjársýsla ríkisins útsvar til sveitarfélaga, sem frestað hafði ver- ið, að upphæð 3,1 milljarður króna. Sveitarfélögum hafði verið kynnt að frestun þessara greiðslna myndi ekki hafa áhrif á greiðslur útsvars til þeirra. Ríkið sér um það fyr- ir sveitarfélögin að innheimta út- svar af launatekjum, samhliða inn- heimtu tekjuskatts og tryggingar- gjalds. Viðbótargreiðslur útsvars komu sveitarfélögum því á óvart í lok síðasta árs. fiskistofa hefur birt upplýsingar um veiðigjöld sem íslenskar útgerð- ir greiða í ríkissjóð fyrir nýtingu auðlindarinnar fyrir árið 2020. Alls greiða útgerðir tæplega 4,8 millj- arða króna í veiðigjöld fyrir árið 2020, greiddu 6,6 milljarða fyrir 2019 og 11,3 milljarða fyrir 2018. Af 4,8 milljörðum sem ríkissjóð- ur innheimtir koma 505 milljónir króna frá útgerðum á Vesturlandi. Í meðfylgjandi töflu má sjá hvernig gjöldin skiptast eftir póstnúmerum í landhlutanum. Langmest greiða útgerðir á Hellissandi og í Rifi, en útgerðir í Snæfellsbæ greiða sam- anlagt 320 milljónir króna í rík- issjóð eða 63,4% af veiðigjöldum sem innheimt eru á Vesturlandi. mm Fjársýslan með misvísandi upplýsingar til sveitarfélaga Áætlanagerð ómarkviss þegar útsvarstekjur liggja ekki fyrir björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, hefur ítrek- að vakið máls á því sem hún kall- ar skort á gagnsæi í uppgjöri og upplýsingagjöf um útsvar sveit- arfélaganna, sem fái engar upp- lýsingar aðrar en þær sem felast í strípuðum tölum um regluleg inn- legg á bankareikning. bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur allt frá árinu 2018-19 rýnt í þessi mál og kallað eftir haldbetri upplýsingum um megintekjustofn sinn, m.a. um fjölda launagreiðenda og launþega, um uppruna og skiptingu útsvars eftir atvinnugreinum. Meðal annars flutti hún ítarlegt erindi um málið á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga síð- astliðið haust. Segir hún að skort- ur á upplýsingum bæði um uppgjör og væntanlegar útsvarstekjur geri sveitarfélögum erfitt um vik með að stýra rekstri. Við erfið rekstrar- skilyrði og óvissu, eins og á síðast- liðnu ári, sé þessi skortur á upplýs- ingum og þekkingu á eðli og upp- runa útsvarsins ekki hvað síst baga- legur. björg hefur ásamt fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi kallað eftir haldbetri upplýs- ingum um útsvarstekjur; um álagn- ingu útsvars, innheimtu og almennt um upplýsingagjöf af hendi ríkisins og stofnana þess. Kostnaðarsamt fyrir sveitarfélögin Grundarfjarðarbæ bárust útsvars- greiðslur í lok desember sem ekki voru fyrirséðar þegar endurskoð- un fjárhagsáætlunar fór fram síð- asta haust og endurspeglaðist ekki í spám um útsvarsgreiðslur á síðasta ári sem unnið hafði verið eftir. Af þeim sökum hafði bæjarfélagið ver- ið búið að taka lán sem var hærra en ástæða var til að taka, þegar skekkja í upplýsingum fjársýslu ríkisins kom í ljós. bæjarfélaginu hafi ekki ver- ið kunnugt um það á síðasta ári að innborgaðar útsvarsgreiðslur ársins væru ekki að skila sér að fullu þeg- ar þær voru greiddar inná reikning sveitarfélagsins. björg segir að út- svarið sé langveigamesti tekjustofn sveitarfélaganna og því afar brýnt að bæta upplýsingaflæði milli rík- is og sveitarfélaganna. Á fundi bæj- arráðs í lok janúar og bæjarstjórn- ar Grundarfjarðarbæjar í síðustu viku var samþykkt að lýsa furðu yfir þessu verklagi af hálfu ríkisins, að útsvar hafi ekki verið greitt sveit- arfélögunum í samræmi við skila- greinar og fyrri upplýsingar af hálfu ríkisins um að heimiluð frest- un á staðgreiðslu opinberra gjalda hefði ekki áhrif á greiðslur útsvars til sveitarfélaganna. Fá ekki upplýsingar um uppruna tekna bæjarráð og bæjarstjórn Grund- arfjarðarbæjar hafa nú sett fram formlega gagnrýni á slaka upplýs- ingagjöf af hálfu ríkisins til sveit- arfélaga um útsvarið og kalla eft- ir haldbetri upplýsingum, m.a. um uppruna útsvars og skiptingu eft- ir atvinnugreinum. „Þegar mikl- ar sviptingar eru í efnahagsmálum þjóðarinnar og óvissa mikil, eins og allt síðasta ár vegna áhrifa Co- vid, þá er það sérlega bagalegt hve litla innsýn sveitarfélögin hafa í eðli og uppruna útsvarstekna sinna. Það er að auki allsendis óviðunandi að sveitarfélög þurfi að byggja fjár- hagsstjórn sína á misvísandi upplýs- ingum um megintekjustofn sinn,“ segir í bókun bæjarráðs Grundar- fjarðar sem jafnframt kallar eftir skoðun og nánari reikningsskilum frá fjársýslunni á útvarstekjum til Grundarfjarðarbæjar. mm Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði berst fyrir því að upplýsingaflæði frá Fjársýslu ríkisins batni, þannig að sveitarfélög eigi auðveldara með áætlanagerð sína. Ljósm. úr safni/ tfk. Tafla sem sýnir greidd veiðigjöld á Vesturlandi. Útgerðir á Vesturlandi greiða hálfan milljarð í veiðigjöld Útgerðir í Snæ- fellsbæ greiða 63,4% af þeim veiðigjöldum sem innheimt eru á Vesturlandi.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.