Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 20216
Komin af neyð-
arstigi niður á
hættustig
LANDIÐ: Ríkislögreglu-
stjóri hefur ákveðið í sam-
ráði við sóttvarnalækni að
færa almannavarnastig úr
neyðarstigi í hættustig vegna
Covid-19. Þetta kom fram
í tilkynningu frá Almanna-
vörnum síðastliðinn föstu-
dag. Neyðarstigi var lýst
yfir 4. október síðastliðinn,
í upphafi þriðju bylgju far-
aldursins og smitum tók að
fjölga verulega. breytingin
hefur engin áhrif á sóttvarn-
arráðstafanir sem eru í gildi
nú samkvæmt reglugerð-
um heilbrigðisráðherra. Af-
létting neyðarstigs mun því
ekki hafa í för með sér breyt-
ingar gagnvart almenningi.
„ferli sem fer í gang vegna
neyðarstigs er lokið, en sótt-
varnarlæknir og stýrihóp-
ur um verkefni sem snýr að
Covid-19, fylgjast eftir sem
áður með þróun faraldurs-
ins og taka ákvarðanir mið-
að við framvindu hans,“ seg-
ir í tilkynningunni. frá því
að neyðarstigi var fyrst lýst
yfir þann 6. mars á síðasta
ári hafa verið staðfest 6.033
smit, yfir 46.005 hafa farið í
sóttkví og 488.851 sýni verið
tekin innanlands og á landa-
mærum. Það hafa 29 einstak-
lingar látist hér á landi vegna
kórónuveirunnar. -arg
Gaf upp kenni-
tölu annars
VESTURLAND: Lög-
regla stöðvaði för ökumanns
á Vesturlandsvegi á móts við
Grundartanga á mánudag.
Við athugun reyndist öku-
maður undir áhrifum áfengis
og fíkniefna. Ökumaður gat
ekki framvísað ökuskírteini
en gaf upp kennitölu. Kenni-
talan reyndist tilheyra öðrum
aðila. Þá reyndist ökumaður
sviptur ökuréttindum. -frg
Ekið undir
áhrifum am-
fetamíns
VESTURLAND: Á þriðju-
dag í síðustu viku stöðvaði
lögregla ökumann á Vest-
urlandsvegi. Við athugun
reyndist ökumaður undir
áhrifum amfetamíns. Öku-
maður var handtekinn og
fluttur á lögreglustöðina í
borgarnes þar sem mál hans
fór í hefðbundið ferli. -frg
Námsefni fyrir
vinnuskólafólk
GRUNDARFJ: Vinnuvernd-
arskóli Íslands, VÍS og Grund-
arfjarðabær hafa gert með sér
samkomulag um framleiðslu
á námsefni fyrir ungmenni í
vinnuskólum sveitarfélagsins.
efnið er miðað að þeim ald-
urshópi sem að jafnaði starf-
ar í vinnuskólunum en því til
viðbótar verður sér efni fyr-
ir flokkstjóra. Vinna er þeg-
ar hafin við gerð efnisins en
stefnt er að því að það verði
tilbúið fyrir vorið 2021 svo
nemendur vinnuskólanna sem
hefja störf næsta sumar muni
eiga kost á að hafa glöggv-
að sig á námsefninu. Kennsla
mun fara fram í vendinámi
líkt og í öðrum námskeiðum
Vinnuverndarskóla Íslands,
námsefnið rafrænt og verk-
efnavinna gagnvirk. -mm
Guðmundur
Franklín stofnar
flokk
LANDIÐ: „frjálslyndi lýð-
ræðisflokkurinn hefur feng-
ið úthlutað listabókstafnum
O. flokkurinn hyggst bjóða
fram lista í öllum kjördæm-
um í komandi alþingiskosn-
ingum,“ segir í tilkynningu frá
Guðmundi franklín Jónssyni.
„frjálslyndi lýðræðisflokkur-
inn berst fyrir fullveldi lands-
ins, beinu lýðræði, auðlindum
í eigu þjóðar og gegn spill-
ingu. flokkurinn verður með
opinn stofnfund sem verður
auglýstur síðar. Áhugasam-
ir geta fylgst með umræðunni
og málefnastarfinu á facebo-
ok síðu flokksins „betra Ísland
– beint lýðræði“ Áhugasam-
ir geta einnig haft samband
í gegnum netfangið: frjáls-
lyndi@gmail.com.“
-mm
félagið Hinsegin Vesturland
var formlega stofnað síðastlið-
inn fimmtudag, 11. febrúar, og fór
stofnfundur fram í gegnum fjar-
fundabúnað. Á fundinum var fyrsta
stjórn Hinsegin Vesturlands kjör-
in. félagið er opið öllu hinsegin
fólki, aðstandendum og öðrum vel-
unnurum og hefur það markmið að
standa fyrir viðburðum, fræðslu og
ráðgjöf um málefni hinsegin fólks
um allt Vesturland.
Stjórnina skipa: Guðrún St.
Guðbrandsdóttir forseti, en
meðstjórnendur eru Ingvar
breiðfjörð Skúlason og Alexan-
der Aron Guðjónsson. Varamenn
í stjórn eru Arnaldur Máni finns-
son, bragi Þór Gíslason og Kristín
Halldóra Kristjánsdóttir.
Þeir sem vilja skrá sig í félagið
geta fundið Hinsegin Vesturland á
facebook þar sem hægt er að finna
hlekk á skráningarform. arg
Innlend matvælaframleiðsla stend-
ur fyrir stórum hluta fæðufram-
boðs á Íslandi og þá sérstaklega
próteini. Garðyrkjan sér fyrir um
43% af framboði grænmetis, bú-
fjárrækt um 90% af kjöti, 96% af
eggjum og 99% af mjólkurvör-
um. Þetta er meðal þess sem kem-
ur fram í nýrri skýrslu um fæðuör-
yggi, en hún var unnin af Land-
búnaðarháskóla Íslands að beiðni
landbúnaðarráðherra.
„Niðurstöður þessarar skýrslu
sýna vel hvað innlend matvæla-
framleiðsla stendur sterkt og hvað
hún er mikilvæg stoð enda stend-
ur hún undir stórum hluta fæðu-
framboðs á Íslandi. Um leið sýnir
skýrslan fram á þau tækifæri sem
blasa við að gera enn betur, m.a. í
því að efla framleiðslu á korni og
innlenda áburðarframleiðslu. Um
leið sýnir skýrslan fram á mikilvægi
þess að móta stefnu um hvern-
ig tryggja megi fæðuöryggi þjóð-
arinnar. Með slíkri stefnu þarf að
setja markmið um getu innlendr-
ar matvælaframleiðslu til að takast
á við skyndilegar breytingar á að-
gengi að innfluttri matvöru og að-
föngum til að tryggja fæðuöryggi
þjóðarinnar,“ segir Kristján Þór
Júlíusson.
Í skýrslunni kemur m.a. fram
að innlend matvælaframleiðsla er
mjög háð innflutningi á aðföng-
um og þá sérstaklega eldsneyti og
áburði en einnig fóðri, sáðvöru,
tækjum og rekstrarvörum til fram-
leiðslunnar. eðli og umfang inn-
flutnings aðfanga er misjafnt eft-
ir greinum og því myndi skortur
á aðföngum hafa mismikil áhrif
á framleiðsluna. Staða einstakra
greina er metin í skýrslunni. Með
viðeigandi ráðstöfunum varðandi
birgðahald á aðföngum væri hægt
að tryggja meirihluta innlendrar
framleiðslu í einhvern tíma, háð
framleiðslugreinum. Þá eru tæki-
færi talin liggja í því að efla fram-
leiðslu á korni, bæði sem fóður fyr-
ir búfé og til manneldis, efla úti-
ræktun grænmetis og efla innlenda
áburðarframleiðslu með bættri nýt-
ingu hráefna. Til að tryggja að það
land sem hentugast er undir rækt-
un tapist ekki undir aðra starfsemi
þarf að liggja fyrir skýr stefna um
landnotkun og flokkun landbúnað-
arlands. Skýrsluna í heild má lesa á
vef landbúnaðarráðuneytisins.
mm
Skjáskot frá stofnfundi Hinsegin Vesturlands.
Hinsegin Vesturland stofnað
Íslendingar geta enn aukið
fæðuöryggi sitt