Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 7

Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 2021 7 Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Tilgangur styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekk- ingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Heildarfjárhæð styrkja er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna. Úthlutað er til árs í senn. Umsóknarfrestur er til 9. mars nk. Allar nánari upplýsingar á www.anr.is Lóa - nýsköpunarstyrkir Leggjum línurnar fyrir framtíð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls Opinn rafrænn íbúafundur um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Þjóðgarðinn verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 17:30 – 19:30 FUNDAREFNI » Hvaða gildi hefur Þjóðgarðurinn fyrir þig? » Hvað finnst þér merkilegast? » Hvernig vilt þú sjá Þjóðgarðinn í framtíðinni? » Hvað þarf að gera til þess? Fólk er beðið um að skrá sig á ust.is/svsnae fyrir 23. febrúar. Fundurinn er haldinn á Microsoft Teams, og þátttakendur fá sendan hlekk á fundinn í tölvupósti eftir að þeir skrá sig. Við hvetjum áhugasama til að mæta og taka þátt í umræðunni. Hlökkum til að „skjá“ ykkur! biskup Íslands hefur auglýst til um- sóknar starf sóknarprests í Reyk- holtsprestakalli en undir það heyra sex sóknir; bæjarsókn, fitjasókn, Hvanneyrarsókn, Lundarsókn, Síðumúlasókn auk Reykholtssókn- ar. Á svæðinu búa nú tæplega eitt þúsund manns. frestur til að sækja um brauðið rennur út 25. febrú- ar nk. Skal væntanlegur prest- ur búa í Reykholti og sitja prests- setrið. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða í síð- asta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyr- ir. Séra Jón Ragnarsson var nýverið settur til bráðabirgða í starfið. mm Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 ein- staklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfi- zer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með markaðsleyfi og kom- in í notkun hér á landi. Þetta er mun meira en áður var vænst. Í til- kynningu frá heilbrigðisráðuneyt- inu kemur fram að mestu mun- ar annars vegar um nýjan samn- ing evrópusambandsins við Pfizer sem tryggir Íslandi bóluefni fyr- ir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum ársfjórðungi, til viðbót- ar fyrri samningum. Gert er ráð fyrir að Ísland undirriti samning um aukið magn bóluefna frá Pfi- zer á grundvelli nýs samnings evr- ópusambandsins fyrir lok þessar- ar viku. einnig mun aukin fram- leiðslugeta AstraZeneca hafa áhrif. Alls verður rúmlega 280.000 ein- staklingum boðin bólusetning hér á landi, þ.e. öllum sem eru 16 ára og eldri. Vænta má bóluefna frá fleiri lyfjaframleiðendum á öðrum ársfjórðungi að því gefnu að þeim verði veitt markaðsleyfi á næstunni eins og að er stefnt. Fleiri bóluefni í vændum Gert er ráð fyrir að evrópska lyfja- stofnunin leggi mat á bóluefni Janssen og Curevac innan skamms en mat hennar er forsenda mark- aðsleyfis. Áætlað er að afhending þessara bóluefna geti hafist á öðr- um fjórðungi ársins en ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar frá framleiðendunum um magn. Að auki er framkvæmdastjórn evr- ópusambandsins að leggja loka- hönd á samning um kaup á bólu- efni frá Novavax sem Ísland getur fengið hlutdeild í á sömu forsend- um og gilt hafa um aðra samninga evrópusamstarfsins. Bólusetningardagatal í smíðum Sóttvarnalæknir vinnur að gerð bólusetningardagatals á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga um af- hendingu bóluefna á næstu mán- uðum. Þar verða birtar upplýs- ingar um forgangshópa og hvenær einstaklingar í hverjum hópi geta vænst þess að fá boð um bólusetn- ingu. Þessum upplýsingum er fyrst og fremst ætlað að veita fólki gróf- ar upplýsingar um framvindu bólu- setninga gegn COVID-19 hér á landi. Upplýsingarnar verða birt- ar með fyrirvara um mögulegar breytingar á áætlunum um afhend- ingu bóluefna. benda má á bólu- setningardagatal líkt og hér um ræðir sem birt hefur verið á vef Sundhedsstyrelsen, sem er dönsk systurstofnun embættis landlæknis og einnig sambærilegt dagatal á vef systurstofnun embættis landlæknis í Noregi. mm Öllum sem koma til landsins frá og með föstudeginum 19. febrú- ar verður skylt að framvísa ný- legu vottorði um neikvæða niður- stöðu úr PCR-prófi fyrir brottför á leið til Íslands og á landamær- um við komuna. Kemur sú ráð- stöfun til viðbótar kröfu um tvö- falda skimun. frá sama tíma verð- ur þeim sem greinast með CO- VID-19 við skimun á landamær- um skylt að dvelja í sóttvarnahúsi ef önnur viðunandi aðstaða til ein- angrunar er ekki fyrir hendi eða ef einstaklingur er með afbrigði veir- unnar sem eru þekkt fyrir að vera meira smitandi en önnur eða valda alvarlegri veikindum. Heilbrigð- isráðherra kynnti ákvörðun þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í gær og er hún í samræmi við tillögur sótt- varnalæknis um hertar aðgerðir á landamærum. mm Bólusetning verður langt komin í lok júní Jóhannes Bergsveinsson sá um að bólusetja Huldu Gestsdóttur hjúkrunarfræðing á HVE og Ragnheiður Björnsdóttir bólusetti Sigurð Má Sigmarsson sjúkraflutn- ingamann, en þau voru fyrstu Vestlendingarnir sem voru bólusettir 29. desember sl. Síðan er búið að bólusetja 4,3% íbúa á Vesturlandi. Spornað gegn útbreiðslu smita með hertum aðgerðum á landamærum Biskup auglýsir Reykholtsprestakall laust

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.