Skessuhorn - 17.02.2021, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 2021 9
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
KONUDAGURINN 2021
15% afsláttur af öllum vörum
fyrir konur.
Auk sértilboða.
Veitur, dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur, hafa tekið tilboði Sec-
uritas í uppsetningu á 160 þúsund
snjallmælum hjá viðskiptavinum
fyrirtækisins. Um er að ræða mæla-
skipti á um 102 þúsund rafmagns-
mælum, 55 þúsund varmamælum
og þrjú þúsund vatnsmælum á þjón-
ustusvæði Veitna. Samningurinn er
um 1.800 milljóna króna virði.
Snjallmælar eru jákvætt skref í
þróun veitukerfa og hafa stjórn-
völd víða um heim gert kröfu um
snjallvæðingu mæla. Ávinningur
fyrir viðskiptavini og samfélagið
í heild er mikill. Áætlunarreikn-
ingar munu heyra sögunni til og
mánaðarlegir reikningar framvegis
byggðir á raunnotkun. Því fylgir að
viðskiptavinir geta átt von á árstíð-
arbundnum sveiflum í orkuútgjöld-
um. Með nýju mælunum hafa not-
endur einnig möguleika á að fylgj-
ast með orkunotkuninni á „mínum
síðum“ á vef Veitna og gera ráðstaf-
anir til sparnaðar ef þurfa þykir.
Samkvæmt tilkynningu frá Veit-
um verður á næstu mánuðum hafist
handa við undirbúning verkefnisins
og þjálfun starfsfólks. Lítið svæði
verður tekið fyrir og það snjallvætt
á síðasta ársfjórðungi þessa árs. Þar
verður um eins konar sannpróf-
unarverkefni að ræða áður en haf-
ist verður handa af fullum krafti
við mælaskiptin um mitt næsta ár.
Áætlanir gera ráð fyrir að snjall-
mælavæðingu veitukerfanna verði
að fullu lokið í árslok 2024.
mm
Veitur semja um uppsetningu á
160 þúsund snjallmælum
RAFRÆNN ÍBÚAFUNDUR
18. FEBRÚAR
Útsendingin verður aðgengileg inn á heimasíðu Borgarbyggðar.
www.borgarbyggd.is
Fundurinn hefst kl. 20:00.