Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 14

Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202114 „Það er nú gaman að hafa eitt- hvað svona skemmtilegt að brasa við,“ segir Ingi Hans Jónsson kát- ur þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í honum. Í árslok 2020 samdi Grundarfjarðarbær við fyr- irtækið ILDI ehf., sem er í eigu Inga Hans, um umsjón með hönn- un á uppbyggingu í Sögumiðstöð- inni í Grundarfirði. Þar á að breyta húsnæði Sögumiðstöðvarinnar í líflegt menningar- og samfélags- setur þar sem mikilvægar stofnan- ir samfélagsins koma saman undir einu þaki auk aðstöðu fyrir íbúa að hittast. „Þarna verða þessar nauð- synlegu stofnanir samfélagsins sem þurfa húsnæði með góðu aðgengi, eins og bókasafn, sögusafn og fleira. Að auki verður fundaaðstaða fyr- ir íbúa Grundarfjarðar,“ segir Ingi Hans. „Þetta á að vera miðpunkt- urinn í bænum okkar og þangað sem fólk með fjölbreytt erindi get- ur komið saman, farið á bókasafnið, sögusafnið, í bíó eða haldið fundi og hitt annað fólk. Þetta er svona ný gerð af samkomuhúsi,“ bætir hann við. Hægt að tryggja sér tíma Þegar framkvæmdum verður lokið geta félagasamtök, klúbbar og aðrir hópar tryggt sér tíma í húsinu fyr- ir sína starfsemi. „Rekstrarmódel- ið er ekki ósvipað og í íþróttahús- um, þar sem íþróttahópar tryggja sér æfingatíma. Hugmyndin er að yfirfæra slíkt rekstrarmódel yfir á menningu. Mitt verkefni er að skapa heillandi umhverfi sem get- ur laðað slíka starfsemi að sér,“ seg- ir Ingi Hans. „Það eru í öllum sam- félögum ýmsir klúbbar og félög, saumaklúbbar, golfklúbbar, Lions- klúbbar og fleira. Svona klúbbar í Grundarfirði gætu þá eignast sinn tíma í húsinu til að hittast,“ útskýr- ir hann. Tilbúið í vor Sjálfur tók Ingi Hans þátt í upp- byggingu Sögumiðstöðvarinnar upp úr aldamótum. „Á þeim tíma voru áherslurnar aðrar. Þá var verið að horfa til ferðaþjónust- unnar. Síðan þá hefur verið byggð upp metnaðarfull ferðaþjónusta í bænum og því réttur tími til að horfa aðeins nær, og byggja upp starfsemi fyrir samfélagið okk- ar. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera núna með þess- um framkvæmdum. Þetta er stórt verkefni og ég er stoltur af sveit- arfélaginu okkar að taka þessum hugmyndum svona vel og vera tilbúið að leggja af stað í þetta,“ segir hann. Aðspurður segist Ingi Hans stefna á að Sögumiðstöð- in verði tilbúin í vor. „Þá verð- ur vonandi hægt að fara að hitt- ast meira. Þegar Covid er búið verður þetta svo tilbúið til að taka við fólki sem ég er sannfærður að verði með mikla félagsþörf á þeim tímapunkti og næstu árin á eftir,“ segir hann og hlær. arg Sögumiðstöðin verður ný gerð af samkomuhúsi Ingi Hans Jónsson og Ágúst Jónsson rafvirki í Sögumiðstöðinni. Ljósm. tfk. Viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ lögðu sitt af mörkum í tilefni dagsins. Þeir söfnuðust saman við Björgunarstöðina Von í Rifi þaðan sem ekið var með ljósum og sírenum sem leið lá um Rif, út á Hellissand og loks til Ólafsvíkur þar sem ekinn var hringur. Endaði aksturinn við Slökkvistöðina í Ólafsvík. Ekki var boðið upp á að fara inn í tækin og skoða eins og venjulega heldur héldu allir til síns heima að akstri loknum. Ljósm. þa. 112 dagurinn á Vesturlandi Viðbragðsaðilar í Borgarnesi fóru í hópakstur um bæinn á fimmtudaginn. Hér er mynd sem Rolando Díaz tók af hópnum í lokin. Lest viðbragðsaðila leggur af stað úr Brákarey með lögreglu í broddi fylkingar. Ljósm. Rolando Diaz. Viðbragðsaðilar í Grundarfirði létu ekki sitt eftir liggja á einn einn tveir deginum þann 11. febrúar síðastliðinn. Sjónum var beint sérstaklega að barnavernd og öryggi og velferð barna og ungmenna. Ljósm. tfk. Slökkvilið Grundarfjarðar, sjúkrabíll og björgunarsveitin Klakkur óku með blikkandi ljós og vælandi sírenur fram hjá grunnskólanum og leikskólanum í Grundarfirði og vakti það mikla hrifningu nemenda skólanna. Hér er bílunum stillt upp í lokin. Ljósm. tfk. Í Búðardal var ákveðið að neyðarteymið tæki sinn árlega rúnt með sírenum og ljósasýningu þrátt fyrir að aðrir við- burðir væru ekki í boði þetta árið. Ljósm. sm.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.