Skessuhorn - 17.02.2021, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 2021 17
Í Velferðarstefnu Vesturlands sem
kom út fyrir ári síðan voru málefni
eldri borgara í brennidepli. Þar
voru sett fram ýmis markmið sem
eiga að stuðla að aukinni vellíðan
eldri borgara og bæta þjónustu við
þennan ört vaxandi hóp, m.a. með
því að styrkja samstarf og samvinnu
þeirra aðila sem koma að öldrun-
arþjónustu. Ljóst er að aldursam-
setning þjóðarinnar er að breytast
og að öldruðum mun fjölga hlut-
fallslega á næstu árum og áratug-
um. Því er það áskorun hvernig
tekist er á við þessa þróun í sam-
félaginu.
ein af forgangsaðgerðum vel-
ferðarstefnunnar var að stofnaður
yrði samráðshópur um öldrunar-
þjónustu, skipaður fulltrúum frá
sveitarfélögum, Heilbrigðisstofnun
Vesturlands (HVe) og hjúkrunar-
heimilunum á Vesturlandi. Hóp-
urinn tók til starfa síðasta haust.
Hópurinn telur að á tímum sem
nú eru, sé mikilvægt í upphafi að
ráðast í verkefni til þess að styðja
við og styrkja starfsfólk í öldrun-
argeiranum í landshlutanum. Því
hefur verið gerður samningur við
Símenntunarmiðstöð Vesturlands
um að skipuleggja og standa fyrir
fyrirlestrum og stuttum námskeið
fyrir starfsfólk í öldrunarþjónustu.
Gengið er út frá því að námskeiðin
verði hnitmiðuð og aðgengileg, en
með því að nýta tæknina geta þátt-
takendur setið námskeiðin í gegn-
um netið þegar þeim hentar. Nám-
skeiðin munu hefjast nú í febrúar
og verða kynnt frekar þegar nær
dregur. framundan eru fleiri verk-
efni og áherslur sem samráðshóp-
urinn mun taka til umfjöllunar, seg-
ir í tilkynningu frá samráðshópi um
öldrunarþjónustu á Vesturlandi.
mm/ Ljósm. Golden age
product company.
biobú ehf. hefur gert samning
við handverkssláturhúsið í borg-
arnesi um slátrun og fullvinnslu
á kjöti sem kemur frá bæjun-
um sem framleiða lífræna mjólk;
Neðri Hálsi, búlandi og Skaft-
holti. Sláturhús Vesturlands fékk
lífræna vottun á gamlársdag síð-
asta og við það tilefni var mynd-
in tekin.
Á myndinni er Guðjón Krist-
jánsson sláturhússtjóri, Helgi
Hrafn Gunnarsson frá bíóbú
og Anna Dröfn Sigurjónsdótt-
ir gæðastjóri Sláturhúss Vestur-
lands. mm/ Ljósm. Bíóbú
Lífrænt ræktuðum naut-
gripum slátrað í Borgarnesi
Auka samvinna í
öldrunarstarfsemi á Vesturlandi
Útilokar ekkert
Talið berst nú að ráðherrastólum
en Haraldur hefur eins og kunn-
ugt er ekki sótt það stíft að sækj-
ast eftir slíkum vegtyllum. „Þeg-
ar verið var að mynda ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks, bjartrar fram-
tíðar og Viðreisnar árið 2016 kom
að hinu hefðbundan ráðherravali.
Ég hins vegar hafði ekki trú á sam-
starfi við þessa flokka og því mið-
ur reyndist það ekki vera út í loft-
ið. bjarni benediktsson formaður
stóð auk þess frammi fyrir þeirri
áskorun að hafa sem jafnasta kynja-
skiptinu í ráðuneytunum sem féllu í
hlut flokksins. Ég stakk því upp á að
hann biði Þórdísi ráðherrastól. Við
síðustu stjórnarmyndun hafði Sjálf-
stæðisflokkurinn færri ráðherra-
stóla úr að spila og studdi ég áfram
að Þórdís fengi einn þeirra. fannst
það skipta kjördæmið miklu máli að
við ættum þar sæti. Áfram hafði ég
og hef mikinn metnað fyrir þeim
verkefnum sem mér er trúað fyrir
en ákvað að metnaði mínum yrði
best fundinn farvegur með að sinna
þingmennskunni og tel mig hafa
orðið þar að liði. Alþingismaður
sem er vinnusamur og virkjar þær
leiðir sem eru í boði getur áorkað
miklu. Hins vegar útiloka ég ekk-
ert, komi síðar meir sú staða upp að
ráðherrastóll verði í boði. Loka mig
alls ekki af í þeirri hugsun. Ég lít
hins vegar á það sem styrk að gefa
horft framhjá eigin hagsmunum og
metnaði ef mér finnst heildarhags-
munum betur borgið með öðrum
hætti.“
Fléttar saman
tveimur störfum
Samhliða störfum sínum á Alþingi
Íslendinga hefur Haraldur rek-
ið kúabú á jörð sinni Vestri-Reyni.
Lilja Guðrún eyþórsdóttir eigin-
kona hans hefur sinnt búinu all-
an þann tíma, en Haraldur eftir
því sem aðstæður hafa leyft. „Oft-
ar en ekki höfum við haft starfsfólk,
lengst Ingiberg mág minn sem er
nýlega hættur og var mjaltamaður
hjá okkur.“ blaðamaður spyr Har-
ald hvort hann þekki ennþá allar
kýrnar með nafni? „Já, ég geri það.
eyþór sonur okkar ræður nafngift-
inni og ég næ að læra nöfnin! en
án alls gríns þá hef ég aldrei hætt
að sinna búinu. Mitt hlutverk þar
snýr að fjósaverkum um helgar og
á helgidögum og síðan ákveðnum
verkefnum eins og að koma áburð-
inum og skítnum á túnin, ég sé um
gjöfina, jarðræktina og heyskapinn.
en eðli málsins samkvæmt mæti
ég ekki alltaf í mjaltir. Undanfar-
ið í þessu kóvidástandi hef ég getað
mætt í morgunmjaltir því nefndar-
fundir hefjast ekki fyrr en klukkan
níu á morgnana. en vissulega koma
strembin tímabil þar sem hagsmun-
ir beggja vinnuveitenda stangast á.
Til dæmis hefur heyskapur stund-
um byrjað áður en þingstörfum lýk-
ur á sumrin og það getur verið ves-
en. Af þessum sökum get ég viður-
kennt að það hefur verið galli að ég
hafi ekki verið eins sýnilegur í kjör-
dæminu og æskilegt væri, því bú-
störfin taka sinn tíma. en ég er og
verð áfram starfandi bóndi meðan
ég sit á þingi. Mér finnst það styrk-
ur að geta með þessu fyrirkomu-
lagi verið nær atvinnulífinu. fund-
ið á eigin skinni hvar skóinn krepp-
ir. Vissulega er maður stundum eft-
ir annasamt sumar á öðrum stað
en hinir þingmennirnir sem koma
ferskir og sællegir af sólarströnd til
starfa að hausti en ég kannski beint
úr síðustu törninni í heyskap. Ég er
trúlega, í orðsins fyllstu merkingu,
jarðbundnari að áliðnu sumri.“
Lít á mig sem liðsmann
Haraldur segist líta á það sem for-
réttindi að starfa í félags- og stjórn-
málum eins og hann hefur sinnt
undanfarna tvo áratugi. „Það eru
ekkert annað en forréttindi að fá
tækifæri til að kynnast fólki, hvað
það er að starfa og hugsa. Þing-
maðurinn er alltaf í nánu sambandi
við umbjóðendur sína. Því kynnist
maður mörgu fólki sem er að fást
við ólíkustu verkefni til sjávar og
sveita. Ég get hins vegar alveg við-
urkennt að það er stöðug áskorun
fyrir mig að vera feiminn að eðlis-
fari og vera starfandi í stjórnmál-
um. Vonandi er það ekki augljóst
en við feimni hef ég alltaf glímt.
Kannski af þeim sökum er ég ekki
mikið fyrir að hossa mér og mínum
verðleikum, hverjir sem þeir annars
eru. Vegna persónueinkenna minna
lít ég á mig sem liðsmann sem hef-
ur það hlutverk að leiða fólk saman,
jafnvel úr ólíkum flokkum, þannig
að farsælla lausna sé leitað. er lítið
fyrir að kaupa mér vinsældir öðru-
vísi en að láta verkin sjálf tala.“
Næg verkefni
framundan
Aðspurður um verkefni ársins og
næsta kjörtímabils vísar Haraldur
meðal annars til ummæla Þórdísar
Kolbrúnar á netfundum sem féllu á
nýliðnum kjördæmadögum. „Hún
sagði það verkefni stjórnmálamanna
að virkja fólkið í Norðvesturkjör-
dæmi í kröftuga viðspyrnu eftir
kóvid. Mín skoðun er sú að hvort
sem það er á sviði stóriðju, iðnaðar,
landbúnaðar, sjávarútvegs, fiskeld-
is eða ferðaþjónustu, þá eru verk-
efnin mörg og tækifærin sömuleið-
is. Við eigum t.d. ekki að vera með
neinn heimóttarskap heldur leggja
áherslu á að við séum að framleiða
heilnæman og góðan mat úr úrvals
hráefni. fátt mun hafa meira að
segja um lýðheilsu í framtíðinni en
fæðan sem við setjum ofan í okkur.
Menn sáu það eftir síðasta hrun og
það næstsíðasta hversu mikilvægt
það er að búa við þokkalega gott
fæðuöryggi. Auk fæðuöryggis, höf-
um við góð fjarskipti, sterka aðra
innviði eins og heilbrigðisþjónustu
og góða skóla og marga þá kosti
sem þjóðir í hinum vestræna heimi
eru að sækjast eftir. Samgöngumál
eru reyndar pólitískt landsbyggðar-
kjördæmis númer eitt.“
Dugnaður skilar
okkur lengst
Haraldur segir því ljóst að stjórn-
málamenn þurfa að halda bet-
ur vöku sinni og hlúa að innlendri
framleiðslu, þótt sumir kjósi að
nota orðið þjóðremba til að tala
slíkt niður. „Segja má að á sama
tíma og áhrifa gallaðs tollasamn-
ings um aðgang landbúnaðarvara
á okkar markað komu fram, þá
hrundi ferðaþjónustan. Það hitti
því illa á að of mikið var flutt inn
af matvælum og hér innanlands var
færri munna að metta. Vörubirgð-
ir safnast því upp innanlands. Við
misstum sjónar á að gæta að grunn-
stoð landbúnaðar og hollrar mat-
vælaframleiðslu og sjónarmið inn-
flutningsaðila urðu fyrirferðarmik-
il í umræðunni. en það er unnið
markvisst núna að framtíðarstefnu
fyrir íslenskan landbúnað. Við eig-
um sem þjóð að hlúa að því sem við
gerum vel og þannig verðum við
áfram sterk á heimsvísu með okk-
ar fisk, kjöt og aðrar úrvalsvörur.
fjárfesting í nýsköpunarumhverf-
inu, en fyrst og fremst dugnaður
fólks, mun verða til að bæta hér aft-
ur þjóðarhag,“ segir Haraldur að
endingu. mm
„Vegna persónueinkenna minna lít ég á mig sem liðsmann sem hefur það hlutverk að leiða fólk saman, jafnvel úr ólíkum
flokkum, þannig að farsælla lausna sé leitað. Er lítið fyrir að kaupa mér vinsældir öðruvísi en að láta verkin sjálf tala.“