Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202122
Harpa Dögg bergmann Heiðars-
dóttir og Þytur frá Stykkishólmi
sigruðu á dögunum í Hrímnisfjór-
gangi í fyrstu keppni vetrarins í
Meistaradeild Líflands og æskunn-
ar. Harpa Dögg er 14 ára gömul,
nemandi í 10. bekk, og efnilegur
knapi. Hún kemur af miklu hesta-
fólki og hefur verið á kafi í hesta-
mennsku allt sitt líf.
„Ég var bara mjög lítil þegar ég
byrjaði að ríða út. Svo þegar ég var
orðin aðeins eldri fór ég að keppa
og hef mikið verið að keppa síð-
ustu ár,“ segir Harpa í samtali við
Skessuhorn. Hún mætir á hverjum
degi í hesthúsið strax eftir skóla og
sinnir þjálfun á átta hrossum. „Ég
fer bara í allt það sem þarf að gera
í hesthúsinu; moka, gef þeim og
þjálfa en við fjölskyldan erum öll
í þessu saman. Svo er ég líka að
vinna hjá honum Lárusi Ástmari
Hannessyni og er þar eiginlega all-
an daginn,“ segir Harpa. „Þar er ég
að vinna við að þjálfa hesta, bæði
fara á bak á þeim og vinna með þá í
hendi,“ bætir hún við. Síðustu þrjú
sumur hefur hún að auki verið að
vinna á Skáney í borgarfirði.
Á Meistaramóti Líflands og æsk-
unnar er Harpa bæði að keppa í
einstaklingskeppni og í liðakeppni
en hún er í Icewear liðinu ásamt
þeim Kolbrúnu Kötlu Halldórs-
dóttur, Kolbrúnu Sif Sindradóttur
og Kristínu Karlsdóttir, en þeirra
lið var í öðru sæti í liðakeppninni
á síðasta móti. Aðspurð segir hún
næsta mót verða um næstu helgi
þar sem keppt verður í fimmgangi.
„Þar verð ég með annan hest,“ seg-
ir Harpa. Aðspurð segir hún nóg að
gera í hestamennskunni en vetur-
inn er þétt skipaður af mótum og í
sumar taka við útimót. „Það er nóg
að gera,“ segir hún og hlær. arg
breytingar á bakvaktarsvæðum sjálf-
stætt starfandi dýralækna á landinu
tóku gildi um áramótin. Símanúm-
er sjálfstætt starfandi dýralækna á
bakvakt fyrir neyðartilfelli eru að
finna á vef Matvælastofnunar undir
Dýr í neyð eða hér:
Dýralæknar á vakt
Vaktsvæði dýralækna eru nú skil-
greind í reglugerð sem hér greinir:
Vaktsvæði 1: Garðabær, Hafn-•
arfjarðarkaupstaður, Kjósar-
hreppur, Kópavogsbær, Mos-
fellsbær, Reykjavíkurborg,
Seltjarnarnesbær, Grindavík-
urbær, Reykjanesbær, Sand-
gerðisbær, Suðurnesjabær og
Sveitarfélagið Vogar.
Vaktsvæði 2: Akraneskaupstað-•
ur, borgarbyggð, Hvalfjarðar-
sveit og Skorradalshreppur.
Vaktsvæði 3: eyja- og Mikla-•
holtshreppur, Grundarfjarðar-
bær, Helgafellssveit, Snæfells-
bær og Stykkishólmsbær.
Vaktsvæði 4: Dalabyggð, •
Reykhólahreppur, Strand-
abyggð, Árneshreppur, Kald-
rananeshreppur og fyrrum
bæjarhreppur.
Vaktsvæði 5: Vesturbyggð, •
Tálknafjarðarhreppur, Ísa-
fjarðarbær, bolungarvíkur-
kaupstaður og Súðavíkur-
hreppur.
Vaktsvæði 6: Húnaþing vestra •
(nema fyrrum bæjarhreppur),
Húnavatnshreppur, blönduós-
bær, Skagabyggð og Sveitarfé-
lagið Skagaströnd.
Vaktsvæði 7: Akrahreppur og •
Sveitarfélagið Skagafjörður.
Vaktsvæði 8: Akureyrarbær, •
Dalvíkurbyggð, eyjafjarð-
arsveit, fjallabyggð, Grýtu-
bakkahreppur, Hörgársveit og
Svalbarðsstrandarhreppur.
Vaktsvæði 9: Langanesbyggð, •
Norðurþing, Skútustaða-
hreppur, Svalbarðshreppur,
Tjörnes-hreppur og Þingeyj-
arsveit.
Vaktsvæði 10: fjarðabyggð, •
fljótsdalshreppur, Múlaþing
(norður af Djúpavogi) og
Vopnafjarðarhreppur.
Vaktsvæði 11: Sveitarfélagið •
Hornafjörður og Múlaþing
(Djúpivogur og suður af hon-
um).
Vaktsvæði 12: Mýrdalshreppur •
og Skaftárhreppur.
Vaktsvæði 13: Ásahreppur, •
bláskógabyggð, flóahrepp-
ur, Grímsnes- og Grafnings-
hreppur, Hrunamannahrepp-
ur, Hveragerðisbær, Rangár-
þing eystra, Rangárþing ytra,
Skeiða- og Gnúpverjahreppur,
Sveitarfélagið Árborg, Sveit-
arfélagið Ölfus og Vestmanna-
eyjabær.
Um bakvaktir dýralækna
„Til að tryggja velferð dýra og al-
menna þjónustu við dýraeigendur
skal dýralæknir jafnan vera á bak-
vakt utan venjulegs dagvinnutíma á
hverju vaktsvæði, sbr. lög um dýra-
lækna og heilbrigðisþjónustu við
dýr. Héraðsdýralæknar, hver í sínu
umdæmi, skipuleggja bakvaktir í
samráði við sjálfstætt starfandi dýra-
lækna sem þar starfa. fyrir bakvakta-
þjónustu er greitt samkvæmt samn-
ingi Dýralæknafélags Íslands við at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið og fjármála- og efnahags-
ráðuneytið. Dýralæknar, sem stunda
almennar dýralækningar, eiga rétt á
og þeim ber skylda til að taka þátt
í vaktafyrirkomulagi sem skipulagt
er á viðkomandi vaktsvæði nema
þeir séu sjálfir sjúkir eða hindrað-
ir af öðrum meira aðkallandi emb-
ættisstörfum,“ segir í tilkynningu frá
Matvælastofnun. mm
Á dögunum kom frá Noregi skip
til Ísafjarðar. flutti það laxafóð-
ur fyrir vestfirsku laxeldisfyrirtæk-
in. Skipið fór ekki tómt þaðan og
til Noregs því á Ísafirði var skip-
að um borð 100 rúmmetra tanki til
undirkælingar (Sub chilling) á laxi
með viðeigandi búnaði, pöllum og
böndum frá Skaganum 3X. Það er
vestfirski fréttamiðillinn bb.is sem
greinir frá: „Sub Chill búnaður-
inn á að afkasta um 30 tonnum á
klukkustund og fer hann í eitt af
stærstu laxasláturhúsum í Noregi
sem vinnur úr um 70.000 tonn-
um af laxi á ári. Þessi tankur er sá
stærsti sinnar tegundar sem fyr-
irtækið Skaginn 3X hefur fram-
leitt. Þetta er fjórða kerfið af þess-
ari gerð sem fyrirtækið selur til
Noregs og verða því að uppsetn-
ingu þess lokinni um 10% af öllum
eldislaxi í Noregi undirkældur að
lokinni slátrun í vinnslukerfum frá
Skaganum 3X.“
Sub-chilling tæknin hefur ótví-
ræða kosti, en hún minnkar stór-
lega kolefnisfótspor laxeldisins.
Með því bæði lengist líftími afurð-
ar og hægt er að flytja laxinn ís-
lausan á markað.
mm
Harpa Dögg og Þytur frá Stykkishólmi sigruðu í Hrímnisfjórgangi í fyrstu keppni
vetrarins í Meistaradeild Líflands og æskunnar. Ljósm. Óla myndir.
Harpa sigraði í Hrímnisfjórgangi
Harpa Dögg. Ljósm. tfk.
Búnaðurinn hífður um borð í skipið. Ljósm. bb.is
Stærsta undir-
kælingartæki Skagans
3X flutt til Noregs
Kynna breytingar á
bakvaktarsvæðum dýralækna