Skessuhorn - 17.02.2021, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA
verður haldinn á morgun, fimmtu-
daginn 18. febrúar kl. 20, í fund-
arsalnum í Íþróttamiðstöðinni að
Jaðarsbökkum. Í tilkynningu frá
félaginu segir: „Stjórn félagsins
hefur ákveðið að halda fundinn
miðað við þær samkomutakmark-
anir sem í gildi eru, en þær heimila
20 manna fund en það er einmitt
sá lágmarksfjöldi sem krafist er til
þess að fundurinn teljist lögleg-
ur. Óskað er eftir skilningi félags-
manna en mikilvægt er að aðal-
fundur fari fram til að skipa stjórn
og taka ársreikning til afgreiðslu
þannig að starfið geti haldið áfram
sinn vanabundna gang. Jafnframt
hefur stjórn félagsins ákveðið að
birta á heimasíðu félagsins árs-
skýrslu og ársreikning fyrir starfs-
árið 2020, fjárhagsáætlun 2021 og
þær lagabreytingar sem fyrir fund-
inum liggja. félagsmenn geta því
kynnt sér þessi gögn og ef þeir
þess óska komið spurningum um
þau eða athugasemdum til fram-
kvæmdastjóra (geir@ia.is) þannig
að um slíkt megi fjalla á fundin-
um.“ segir í tilkynningu frá KfÍA.
Þá kemur fram í tilkynning-
unni frá félaginu að Knattspyrnu-
félag ÍA glímdi við erfiðleika í
rekstri félagsins á starfsárinu. „fé-
lagið þurfti að hagræða í rekstri
sínum vegna Kórónufaraldur-
ins og umtalsverðs rekstrartaps
frá fyrra starfsári. Með samstilltu
átaki sem fól m.a. í sér launalækk-
un á öllum sviðum og sölu leik-
manna félagsins tókst að reka fé-
lagið með hagnaði. Rekstrartekjur
voru rúmar 210 milljónir króna en
rekstrargjöld rúmar 207 milljónir
króna sem gerði rekstrarafgang að
teknu tilliti til fjármagnsliða upp á
2,7 milljónir króna.“
Tókst að snúa tap-
rekstri í hagnað
fram kemur í ársreikningnum að
mikill og jákvæður viðsnúning-
ur hafi orðið í rekstri félagsins á
árinu. Tæplega þriggja milljóna
króna hagnaður nú samanborið
við tæplega 62 milljóna króna tap
árið áður. Rekstrartekjur félags-
ins jukust um ríflega 12 milljón-
ir króna en mestu munar um að
rekstrargjöld lækkuðu úr tæpum
260 milljónum í rúmar 207 millj-
ónir. Söluhagnaður leikmanna
hækkaði um rúmar níu milljónir
króna milli ára, æfinga- og félags-
gjöld jukust um tæpar sjö milljón-
ir, framlög styrktaraðila jukust um
rúmar sjö milljónir og greiðslur
frá KSÍ jukust um fjóra og hálfa
milljón. Gjaldamegin lækkuðu
laun og launatengd gjöld um rúm-
lega 13 milljónir milli ára og ann-
ar rekstrarkostnaður um tæpar 20
milljónir.
Birta allar upplýsingar
Í samtali við blaðamann Skessu-
horns sagði Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
félagsins, að það væri alls ekki
þannig að viðsnúningur í rekstri
félagsins væri eins manns verk
eins og komið hafi fram í sumum
fjölmiðlum. bætt afkoma félagsins
hafi náðst með öflugri samstöðu
allra; stjórnar, starfsmanna, leik-
manna og allra annarra sem koma
að félaginu. „Þessi árangur náðist
með því að velta hverri krónu við
til að ná endum saman og á stjórn
og starfsfólk heiður skilinn fyr-
ir það. Við skárum niður þar sem
hægt var og þekkingin og innsýnin
í reksturinn og knattspyrnustarfið
skipti öllu máli,“ segir Geir.
Hann segir að næstu misserin
verði strembinn tími. „Það skipt-
ir máli í þessari stöðu að við erum
nánast skuldlaust félag en á sama
tíma eigum við engar eignir, enga
sjóði. Við byrjum því hvert tímabil
með tómar hendur svo að segja.“
Geir bendir á að það að birta öll
gögn, ársreikninga og annað, sé
dálítið merkilegt og eiginlega for-
dæmalaust. „Það er sennilega ein-
stakt í íslenskri íþróttasögu að fé-
lag birti allar þessar upplýsingar
með þessum hætti fyrir aðalfund.“
Magnús hættir
Magnús Guðmundsson sem ver-
ið hefur formaður Knattspyrnu-
félags ÍA undanfarin sjö ár hefur
ákveðið að stíga til hliðar. Í árs-
skýrslu félagsins kveður hann fé-
laga sína með þessum orðum:
„Þrátt fyrir að árið 2020 hafi
verið þungt í skauti vegna Co-
vid-19 heimsfaraldursins þá eru
mörg jákvæð teikn á lofti fyrir
knattspyrnuna á Akranesi. Stað-
an í rekstri Knattspyrnufélags ÍA
er í góðu jafnvægi og allt starf-
ið einkennist af metnaði og fag-
mennsku. Það eru líka afar já-
kvætt að Akraneskaupstaður hef-
ur ákveðið að auka framlög til
íþróttafélaga í bænum og að hefja
byggingu íþróttahúss á Jaðars-
bökkum þar sem verða m.a. bún-
ingsklefar og vinnuaðstaða fyrir
Knattspyrnufélag ÍA. framtíðin
er því björt fyrir knattspyrnuna
á Akranesi en áfram þarf úthald,
samstöðu og þrautseigu til að ná
settum markmiðum. eftir sjö ár
sem formaður Knattspyrnufélags
ÍA hefur undirritaður ákveðið að
stíga til hliðar. Það hefur verið
mikill heiður og ánægja að sinna
starfi formanns félagsins og upp úr
standa frábær kynni og samvinna
við fjöldan allan af Skagamönn-
um með ÍA hjartað á réttum stað.
Knattspyrnufélag ÍA er magnað-
ur klúbbur með mikla sögu sem
sameinar Skagamenn nær og fjær.
Takk fyrir mig og áfram ÍA!,“ seg-
ir Magnús Guðmundsson, fráfar-
andi formaður Knattspyrnufélags
ÍA í yfirlýsingunni.
Þess má að lokum geta að aðal-
fundur Knattspyrnufélags ÍA ann-
að kvöld verður í beinni útsend-
ingu á vegum ÍATV.
mm/frg
Magnús Guðmundsson stígur nú til hliðar sem formaður KFÍA.
Aðalfundur KFÍA framundan
Jákvæður viðsnúningur í rekstri félagsins
Félagið hefur ástæðu til að fagna eftir að hagræðingaraðgerðir urðu til þess að það var gert upp með hagnaði í fyrra.
Geir Þorsteinsson segir að þakka megi viðsnúning í rekstri samstilltu átaki allra
sem hlut eiga að máli.