Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 28

Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202128 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn á morgun, fimmtu- daginn 18. febrúar kl. 20, í fund- arsalnum í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum. Í tilkynningu frá félaginu segir: „Stjórn félagsins hefur ákveðið að halda fundinn miðað við þær samkomutakmark- anir sem í gildi eru, en þær heimila 20 manna fund en það er einmitt sá lágmarksfjöldi sem krafist er til þess að fundurinn teljist lögleg- ur. Óskað er eftir skilningi félags- manna en mikilvægt er að aðal- fundur fari fram til að skipa stjórn og taka ársreikning til afgreiðslu þannig að starfið geti haldið áfram sinn vanabundna gang. Jafnframt hefur stjórn félagsins ákveðið að birta á heimasíðu félagsins árs- skýrslu og ársreikning fyrir starfs- árið 2020, fjárhagsáætlun 2021 og þær lagabreytingar sem fyrir fund- inum liggja. félagsmenn geta því kynnt sér þessi gögn og ef þeir þess óska komið spurningum um þau eða athugasemdum til fram- kvæmdastjóra (geir@ia.is) þannig að um slíkt megi fjalla á fundin- um.“ segir í tilkynningu frá KfÍA. Þá kemur fram í tilkynning- unni frá félaginu að Knattspyrnu- félag ÍA glímdi við erfiðleika í rekstri félagsins á starfsárinu. „fé- lagið þurfti að hagræða í rekstri sínum vegna Kórónufaraldur- ins og umtalsverðs rekstrartaps frá fyrra starfsári. Með samstilltu átaki sem fól m.a. í sér launalækk- un á öllum sviðum og sölu leik- manna félagsins tókst að reka fé- lagið með hagnaði. Rekstrartekjur voru rúmar 210 milljónir króna en rekstrargjöld rúmar 207 milljónir króna sem gerði rekstrarafgang að teknu tilliti til fjármagnsliða upp á 2,7 milljónir króna.“ Tókst að snúa tap- rekstri í hagnað fram kemur í ársreikningnum að mikill og jákvæður viðsnúning- ur hafi orðið í rekstri félagsins á árinu. Tæplega þriggja milljóna króna hagnaður nú samanborið við tæplega 62 milljóna króna tap árið áður. Rekstrartekjur félags- ins jukust um ríflega 12 milljón- ir króna en mestu munar um að rekstrargjöld lækkuðu úr tæpum 260 milljónum í rúmar 207 millj- ónir. Söluhagnaður leikmanna hækkaði um rúmar níu milljónir króna milli ára, æfinga- og félags- gjöld jukust um tæpar sjö milljón- ir, framlög styrktaraðila jukust um rúmar sjö milljónir og greiðslur frá KSÍ jukust um fjóra og hálfa milljón. Gjaldamegin lækkuðu laun og launatengd gjöld um rúm- lega 13 milljónir milli ára og ann- ar rekstrarkostnaður um tæpar 20 milljónir. Birta allar upplýsingar Í samtali við blaðamann Skessu- horns sagði Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnu- félagsins, að það væri alls ekki þannig að viðsnúningur í rekstri félagsins væri eins manns verk eins og komið hafi fram í sumum fjölmiðlum. bætt afkoma félagsins hafi náðst með öflugri samstöðu allra; stjórnar, starfsmanna, leik- manna og allra annarra sem koma að félaginu. „Þessi árangur náðist með því að velta hverri krónu við til að ná endum saman og á stjórn og starfsfólk heiður skilinn fyr- ir það. Við skárum niður þar sem hægt var og þekkingin og innsýnin í reksturinn og knattspyrnustarfið skipti öllu máli,“ segir Geir. Hann segir að næstu misserin verði strembinn tími. „Það skipt- ir máli í þessari stöðu að við erum nánast skuldlaust félag en á sama tíma eigum við engar eignir, enga sjóði. Við byrjum því hvert tímabil með tómar hendur svo að segja.“ Geir bendir á að það að birta öll gögn, ársreikninga og annað, sé dálítið merkilegt og eiginlega for- dæmalaust. „Það er sennilega ein- stakt í íslenskri íþróttasögu að fé- lag birti allar þessar upplýsingar með þessum hætti fyrir aðalfund.“ Magnús hættir Magnús Guðmundsson sem ver- ið hefur formaður Knattspyrnu- félags ÍA undanfarin sjö ár hefur ákveðið að stíga til hliðar. Í árs- skýrslu félagsins kveður hann fé- laga sína með þessum orðum: „Þrátt fyrir að árið 2020 hafi verið þungt í skauti vegna Co- vid-19 heimsfaraldursins þá eru mörg jákvæð teikn á lofti fyrir knattspyrnuna á Akranesi. Stað- an í rekstri Knattspyrnufélags ÍA er í góðu jafnvægi og allt starf- ið einkennist af metnaði og fag- mennsku. Það eru líka afar já- kvætt að Akraneskaupstaður hef- ur ákveðið að auka framlög til íþróttafélaga í bænum og að hefja byggingu íþróttahúss á Jaðars- bökkum þar sem verða m.a. bún- ingsklefar og vinnuaðstaða fyrir Knattspyrnufélag ÍA. framtíðin er því björt fyrir knattspyrnuna á Akranesi en áfram þarf úthald, samstöðu og þrautseigu til að ná settum markmiðum. eftir sjö ár sem formaður Knattspyrnufélags ÍA hefur undirritaður ákveðið að stíga til hliðar. Það hefur verið mikill heiður og ánægja að sinna starfi formanns félagsins og upp úr standa frábær kynni og samvinna við fjöldan allan af Skagamönn- um með ÍA hjartað á réttum stað. Knattspyrnufélag ÍA er magnað- ur klúbbur með mikla sögu sem sameinar Skagamenn nær og fjær. Takk fyrir mig og áfram ÍA!,“ seg- ir Magnús Guðmundsson, fráfar- andi formaður Knattspyrnufélags ÍA í yfirlýsingunni. Þess má að lokum geta að aðal- fundur Knattspyrnufélags ÍA ann- að kvöld verður í beinni útsend- ingu á vegum ÍATV. mm/frg Magnús Guðmundsson stígur nú til hliðar sem formaður KFÍA. Aðalfundur KFÍA framundan Jákvæður viðsnúningur í rekstri félagsins Félagið hefur ástæðu til að fagna eftir að hagræðingaraðgerðir urðu til þess að það var gert upp með hagnaði í fyrra. Geir Þorsteinsson segir að þakka megi viðsnúning í rekstri samstilltu átaki allra sem hlut eiga að máli.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.