Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Side 31

Skessuhorn - 17.02.2021, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 2021 31 Skallagrímur spilaði tvo leiki í 1. deild karla í körfubolta í vikunni sem leið. fyrst mættu strákarn- ir Álftanesi á útivelli á föstudag- inn. Álftnesingar reyndust of erf- iðir fyrir borgnesinga sem töpuðu með 61 stigi gegn 87. borgnesing- ar komu öllu sterkari til leiks í fjós- inu á mánudaginn þegar þeir sigr- uðu breiðablik örugglega með 100 stigum gegn 88. Heimamenn voru öflugri á vellinum strax í fyrsta leik- hluta og voru komnir í 7-0 eft- ir þrjár mínútur. Gestirnir gáfu þá aðeins í og náðu að minnka for- ystuna en staðan í lok fyrsta leik- hluta var 18-16 borgnesingum í hag. Jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta og þegar flautað var til hálfleiks var breiðablik með þriggja stiga forystu, 46-43. eftir leikhlé voru gestirnir í forystu all- an þriðja leikhluta og voru komn- ir níu stigum yfir fyrir lokaleikhlut- ann, 74-65. Skallagrímsmenn voru fljótir að jafna í lokaleikhlutanum og náðu að sigla fram úr gestunum síðustu mínútur leiksins og sigra að endingu með 12 stigum. Í liði Skallagríms var Marinó Þór Pálmason atkvæðamestur með 24 stig og sjö stoðsendingar og þeir Davíð Guðmundsson og benedikt Lárusson voru næstir með 14 stig hvor. Aðrir skoruðu minna. Í liði breiðabliks var Samuel Prescott Jr. stigahæstur með 19 stig. arg Sundkonan knáa brynhildur Traustadóttir frá Akranesi stund- ar nú nám og sund í University of Indianapolis. Hún tók þátt í The Great Lakes Valley Conferance Championships um helgina og var kosin; „The freshman of the year“ eftir mótið. Í frétt frá gömlu liðs- félögum brynhildar í Sundfélagi Akraness kemur fram að brynhild- ur er nú í mjög góðu formi. Hún var mikilvægur hluti af liði sínu ytra þegar það setti mótsmet og skóla- met í 4x200 boðsundi. Hún stóð sig sömuleiðis vel í einstaklingsgrein- um og bætti sig um tæpar 17 sek- úndur í 1000y skriðsundi á tíman- um 10.08.59 sem skilaði henni 5. sæti á mótinu. Í 500y skriðsundi bætti hún sig um 7 sek. á tíman- um 4.56.73 og lenti í 6. sæti. Loks í 200y synti hún á tímanum 1.51.67 sem er bæting um 1,5 sek og varð í 7. sæti. Þá keppti hún í fyrsta skipti i 1650y, (ca 1500m) og varð þar í 5. sæti á tímanum 17.04.61. „Við hjá sundfélaginu erum afar stolt af þessari frábæru fyrirmynd okkar,“ segir í tilkynningu frá Sundfélagi Akraness. mm Golfklúbburinn Jökull stóð fyr- ir opnu húsi síðastliðinn laugar- dag. Tilefnið var að kynna og opna formlega innanhúsaðstöðu klúbbs- ins á Hellissandi. Að sögn Jóns bjarka Jónatanssonar formanns klúbbsins var áætlað að opna í október á síðasta ári en því varð að fresta sökum sóttvarnaráðstafanna. Nú þegar búið er að slaka aðeins á var hægt að gera þetta. Í nýja húsnæðinu er púttaðstaða og golfhermir og verður aðstaðan öllum opin og ekki neinn sérstakur opnunartími. Verður fyrirkomulag- ið þannig að félagar í golfklúbbn- um geta skráð sig á skjal til að kom- ast í golfherminn og fá þá sérstaka kóða til að opna lyklabox sem veitir þeim aðgang að húsnæðinu. einnig verður hægt fyrir aðra að nýta að- stöðuna og þurfa þeir að hafa sam- band við gjaldkera golfklúbbsins. Vel var mætt á opna húsið en á milli 20 og 30 gestir komu til að skoða. Voru allir sammála um að aðstaðan væri öll hin glæsilegasta en hún mun bæta til muna aðstöðu golfara til að stunda íþrótt sína á veturna. Aðstaða mun svo enn batna þegar nýr golfvöllur verður tekin í notkun en vinna við hann hófst síðasta sumar. þa bikarglíma Íslands fór fram í Ak- urskóla 13. febrúar. Níu keppend- ur tóku þátt á mótinu fyrir hönd Glímufélags Dalamanna og varð Jóhanna Vigdís Pálmadóttir bikar- meistari hjá 15 ára stelpum, Dagný Sara Viðarsdóttir varð í 3. sæti og birna Rún Ingvarsdóttir í 4. sæti. fjórir keppendur kepptu í flokki stelpna 14 ára. embla Dís björg- vinsdóttir varð í 4. sæti, Krist- ey Sunna björgvinsdóttir varð í 5. sæti og Jasmin Hall Arnarsdóttir og Kristín Ólína Guðbjartsdóttir deildu 6. sætinu. Mikael Hall varð í 4. sæti í flokki 12 ára stráka. Guð- björt Lóa Þorgrímsdóttir tók þátt á mótinu eftir nokkurra ára hlé frá keppni og stóð sig mjög vel. Hún sigraði í báðum flokkunum sem hún keppti í; opna flokkinn og +70 kg. mm/ SHH fjórar mæður í Dölunum opn- uðu í janúar íþróttaskóla á Laug- um í Sælingsdal. Þær Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir, Íris Dröfn brynjólfsdóttir, Rúna blöndal og Sara Kristinsdóttir eru allar mæð- ur með börn á aldrinum upp í fimm ára. Þeim þótti vanta afþreyingu fyrir börn á þessum aldri í Dala- byggð og ákváðu því sjálfar að opna íþróttaskóla. Skólinn er opinn ann- an hvern laugardag frá kl. 10:30 til 11:30 í íþróttasalnum á Laugum. „Við setjum upp þrautabrautir og leikjastöðvar og svo förum við í leiki, syngjum og dönsum og fleira skemmtilegt,“ segir Guðbjört Lóa í samtali við Skessuhorn. Íþrótta- skólinn hefur nú verið tvo laugar- daga og segir Guðbjört þátttökuna lofa góðu. „Ég hlakka bara til fram- haldsins,“ segir hún. Hægt er að kaupa klippikort fyrir tíu skipti þar sem aðeins er klippt einu sinni fyr- ir hvern systkinahóp, séu fleiri en eitt barn á þessum aldri í einni fjöl- skyldu. Íþróttaskólinn er ekki rek- inn í hagnaðarskyni og er öll vinna, skipulag og undirbúningur, unnin í sjálfboðavinnu. Peningur sem safn- ast fyrir sölu á klippikortunum fer í búnaðarkaup fyrir íþróttaskól- ann. „Við fengum fjárhagsstyrk frá tveimur ungmennafélögum hérna í sveitinni sem við gátum notað til að koma okkur af stað. Það mun- ar miklu að vera fjórar saman í þessu, það er ekki eins mikil bind- ing og þægilegt að geta skipt með sér verkum,“ segir Guðbjört Lóa. Þá segir hún að einnig sé hægt að koma í stakan tíma og hvetur hún foreldra úr nágrannasveitarfélög- um að mæta með sín börn og hafa gaman. arg Marinó Þór skoraði tólf stig í leiknum. Ljósm. Skallagrímur. Góður sigur Skallagríms í Fjósinu Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir og Ásmundur Hálfdán Ás- mundsson, en þau unnu bæði tvöfalt á mótinu. Guðbjört Lóa og Jóhanna Vigdís bikarmeistarar í glímu Hópurinn frá GFD. Mikið fjör í íþróttaskólanum á Laugum. Ljósm. aðsend. Opnuðu íþróttaskóla í Dölum Brynhildur kosin Freshman of the year Búið að opna golfæfinga- aðstöðu á Hellissandi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.