Skessuhorn


Skessuhorn - 28.04.2021, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 28.04.2021, Blaðsíða 16
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202116 Sumardagurinn fyrsti fyrir rúmu ári hverfur Sveinbirni Reyr Hjalta- syni á Akranesi seint úr minni. Þann dag lenti hann í óhappi á motocross- brautinni við rætur Akrafjalls, hend- ist á hjóli sínu út fyrir braut og ligg- ur þar um tíma eða þar til félagi hans finnur hann eftir nokkra leit. Svein- björn Reyr brotnar við 6. hryggjarlið og er lamaður eftir slysið. Eftir sjálfu slysinu man hann lítið sem ekkert, einungis einhverskonar myndbrot eða óljósar glefsur. Samhliða því að vera í endurhæfingu á Grensás hefur Sveinbjörn, eða Svenni eins og hann er jafnan kallaður, glímt við ýmis eft- irköst slyssins. Meðal annars þverr- andi mátt í hægri hendi og lærbrot. Framundan er aðgerð 7. maí sem fel- ur í sér að tappa af vökva sem þrengir að mænunni. En það er fleira fram- undan hjá Svenna og vinum hans. Næstkomandi laugardag standa jafn- aldrar hans að áheitastökkum í Akra- neshöfn. Safna á peningum til stuðn- ings Svenna þannig að hann geti fest kaup á sérútbúnu torfæruhjóli sem framleitt er í Ameríku. Hjól sem þetta kostar á þriðju milljón króna. Blaða- maður Skessuhorns hitti Svenna að máli síðastliðinn mánudag og fékk að fræðast um slysið og síðasta ár í lífi fjölskylduföðursins á Reynigrund- inni, sem skyndilega þurfti að takast á við nýjar aðstæður og áskoranir. Með tækjadellu frá unga aldri Sveinbjörn Reyr er fæddur 1971 og uppalinn á Akranesi. Aðspurður segir hann að nafnið Reyr sé dregið af hin- um vellyktandi ilmreyr sem sums- staðar vex. Foreldrar hans voru bæði Vestfirðingar en settust að á Akranesi eftir að þau höfðu fest ráð sitt. Faðir hans kom úr Laugardal við Ísafjarðar- djúp en móðir hans, sem látin er fyr- ir allmörgum árum, var úr Álftafirði. Þau höfðu kynnst við nám í skólan- um á Reykjanesi. Eiginkona Svenna er Guðný Ósk Stefánsdóttir og sam- an eiga þau þrjár dætur. „Ég ólst því upp hér á Akranesi við allt það frjáls- ræði sem það fól í sér. Ég var ung- ur farinn að keyra allskyns tæki enda tækjadellan talsverð. Byrjaði á skelli- nöðru en var auk þess á fjórhjólum, snjósleðum og svo á krossurum. Ég lærði bifvélavirkjun og hef starfað á Bílaverkstæði Hjalta Njálssonar allt frá 1995, nær allan minn starfsferil, ef undan eru skilin tvö sumur þegar ég fór með pabba að vinna á jarðýtu fyrir vestan 2006 og 2007. Motoc- ross íþróttinni kynntist ég fyrst 2008 og var byrjaður að keppa 2009. Tók þetta alla leið eins og margir félagar mínir hafa gert,“ segir Svenni. „Félagið okkar á Akranesi er stórt og fjölmennt og þar hefur verið öfl- ugt unglingastarf sem við getum ver- ið stoltir af.“ Svenni viðurkennir að deyfð hafi verið yfir félaginu síðasta sumar, sumpart vegna Covid-19 en einnig vegna þess að slysið setti óhug í mannskapinn. Menn hvíldu því margir hjólin. „Vonandi mun áhug- inn og iðkunin vaxa að nýju,“ segir Svenni sem sjálfur ber titilinn braut- arstjóri í Akrabraut sem Vélhjóla- íþróttafélag Akraness á og rekur. Slysið Svenni segir að slysið síðasta vor sé sveipað þoku í minningu hans. „Þetta gerist á sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Við félagar vorum að taka út braut- ina og ákveða breytingar fyrir sum- aropnun. Ég var í brautinni og að koma á stökkpall í henni og man eig- inlega fátt eftir það. Man þó einhvers konar myndbrot frá því að ég keyri á stökkpallinn og svo hef ég einhvers konar smá mynd í minningunni frá því ég er í sjúkrabílnum á leiðinni suður. Allavega hendist ég út fyrir brautina og hjólið lendir ofan á mér. kannski hefur hjólið runnið á klakab- unka undir moldarlaginu, ég veit það hreinlega ekki. Eftir stökkið og fallið ligg ég í smá tíma þar til félagi minn finnur mig loks. Þá var hann búinn að keyra tvo hringi eftir brautinni til að leita að mér en sá mig ekki í fyrstu. Meðan ég beið eftir aðstoð nær bens- ín að leka yfir fæturnar á mér og við það verður einhvers konar efnabruni í húðinni. Sá bruni átti eftir að leika stórt hlutverk í að hægja á bataferl- inu hjá mér. Svo hefur einnig tafið mig að þegar ég var í teygjuæfing- um hér inni á stofugólfi lærbrotnaði ég um verslunarmannahelgina. Lík- lega hefur verið leynt brot í beini eft- ir slysið. Þegar ég tók of mikið á því brotnaði einfaldlega leggurinn með miklum hvelli. Ég fór því í aðgerð og brotið neglt saman. Það gekk vel en skurðsárið ætlaði aldrei að ná að gróa. Þurfti ég því að fara í nokkrar aðgerðir þar sem reynt var að flýta því að sárið greri og þurfti að liggja inni á spítala í einar fimm vikur vegna þessa.“ Stefnan sett út í náttúruna En fleira átti eftir að hægja á batanum hjá Svenna og enn ein aðgerðin er framundan. „Í nóvember finn ég að mátturinn í höndunum er að fjara út. Þá kom í ljós að mænugöngin voru að stíflast við það að mænan bólgnar út. Þessi mænuvökvamyndun er ofarlega í mænunni og tekur því máttinn úr höndunum. Sjálft hryggbrotið var í 6. hryggjarlið en bólgan var í nóvember komin alla leið upp í 6. hálslið. Ég var því sendur í aðgerð í desember sem tekst að hluta til. Ennþá er tilfinning í hægri hendinni en enginn máttur í henni. Læknirinn hefur því ákveðið að taka mig inn í aðgerð 7. maí næst- komandi og nú á að reyna að létta á þrýstingnum.“ Svenni keyrir þrisvar í viku á end- urhæfingardeildina í Grensás þar sem hann fer í tækjasal auk þess sem iðju- og sjúkraþjálfarar hjálpa honum við æfingar. Hann segir lán í óláni að þau Guðný Ósk eiga einbýlishús á einni hæð á Grundunum og þurfti litlu að breyta í húsinu til að það yrði hjóla- stólafært. En með ómetanlegri hjálp góðra vina og fyrirtækja var aðgengi að utan gert aðgengilegt og innan- dyra þurfti litlu að breyta. Þá hefur heimilisbíllinn verið útbúinn til akst- urs fyrir hann og einnig festi hann kaup á notuðum Benz lyftubíl. Vin- ir og félagar hans lögðust síðan á eitt við að mála bílinn og gera hann enn betri. Svenni getur því ekið allra sinna ferða en nú er stefnan sett á enn meira frjálsræði með kaupum á torfæruhjóli fyrir hreyfihamlaða. Nú skal haldið út í náttúruna. Torfæru þríhjól „Það er eiginlega örstutt síðan ég heyrði fyrst af þessum hjólum, sem framleidd eru í Ameríku. Græjan sem nú stendur til að kaupa er frá fyrir- tæki sem heitir Lasher Sport. Þetta er nokkurs konar torfæru þríhjól sem hægt er að knýja með handafli en er auk þess með rafmagns hjálparmótor. SEM samtökin, Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra, fundu þessi hjól í USA og kynntu fyrir félagsmönnum. SEM hefur ákveðið að hefja söfnun fyrir fjórum svona hjólum sem leigð verða út til hreyfihamlaðra viku í senn. Ég hef hins vegar áhuga á að eignast fimmta hjólið og geta haft það hér heima í skúr til taks,“ seg- ir tækjamaðurinn Svenni sem kveðst fullur tilhlökkunar fyrir kaupum á þessu nýja hjóli. „SEM samtökin eru frábær. Fé- lagar úr þeim koma upp á Grens- ás og miðla upplýsingum um líf- Sveinbjörn Reyr tekst á við nýjan veruleika eftir vélhjólaslys Framundan er áheitasöfnun fyrir handknúnu torfæruhjóli fyrir Svenna Fjölskyldan á útskriftardegi miðdótturinnar. F.v. Sigurbjörn Hauksson, Stefanía Sól, Ragna Dís, Arnór Sigurðsson, Agnes Rós, Guðný Ósk og Sveinbjörn Reyr. Ljósm. Kim Klara. Sveinbjörn Reyr Hjaltason. Ljósm. mm. Fjölskyldan á Reynigrund. F.v. Sveinbjörn Reyr, Guðný Ósk og dæturnar Ragna Dís, Agnes Rós og Stefanía Sól. Myndin er tekin á stúdentsdegi yngstu dótturinnar. Ljósm. Kim Klara. Svenni í keppni á Akureyri. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.