Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 8
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG lógó / með og án slagorðs GRAFÍSK HÖNNUN / HREYFIMYNDAGERÐ / MYNDSKREYTINGAR sími 898 4796 / stinamaja@atarna.is Ingólfur Hrólfsson formaður s. 855 2085 ihhj@simnet.is Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður s. 896 5700 bruarholl@simnet.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.com Snjólaug Sigurðardóttir ritari s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi s. 898 3947 krist2910@gmail.is Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður s. 899 0378 hanna@smart.is Bragi Bergmann Steingrímsson 2. varamaður bbergman@hive.is StJÓrn FaMoS Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is GleðIleGt ár Gleðilegt árið kæru vinir og þökkum gömul og góð kynni. Í þessari viku tóku nýjar sóttvarnareglur gildi og þegar þetta er skrifað er ekki algjörlega á hreinu hvernig þær hafa áhrif á okkar góða starf, þess vegna biðjum við ykkur að vera dugleg að fylgjast með póstinum ykkar eða Facebook-síðu okkar, Félags- starfið Mosfellsbæ. Vonum að sem flest námskeið geti byrjað i einhverri mynd en ennþá verður 2 metra regla, grímuskylda og 20 manna fjöldatakmörk. Á Eirhömrum er starfandi hárgreiðslu- stofan Hárdís og býður hún upp á alla almenna hársnyrtingu. Tímapantanir eru í síma 859-2800. Á Eirhömrum er einnig starfandi nuddari og fótaaðgerðafræðingurinn Eva Eðvalds og tekur hún við tímapöntunum í síma 698-7864. Kærleikskveðja Starfsmenn félagsstarfsins Mosfellsbæ - Fréttir af Mosfellingum8 Bólusetning á Hömrum Í lok desember var heimilsfólk á hjúkrunarheimilinu Hömrum bólusett fyrir COVID-19. Flaggað var í tilefni dagsins og boðið upp á vöfflur þegar búið var að sprauta alla íbúa. mest lesnu fréttirnar á mosfellingur.is árið 2020 World Class í mosfellsbæ stækkar um helgina Frétt | Líkamsræktarstöðin World Class í Mosfellsbæ mun taka í notkun nýja 940 m2 viðbyggingu á laugardaginn. Líkamsræktarstöðin, sem fyrst var opnuð í Lágafellslaug í desember 2007, mun því stækka um helming. World Class mun bjóða upp á stærri tækjasal, infrared heitan sal, hjólasal með ic7 hjólum, fjölnota sal, tvo nýja búningsklefa, infrared gufu, þurrgufu og auðvitað aðgang að Lágafellslaug. Mosfellsbær og World Class undirrituðu samning vegna stækkunar á íþrótta- og líkamsræktaraðstöðu í Lágafelli sumarið 2017 ... mælir ekki með sjúkra­ húsvist í Króatíu Frétt | Andrea Kristín Gunnars- dóttir fór í örlagaríka hjólaferð ásamt vinkonum sínum þeim Helenu Byron og Hönnu Sigríði Stefáns- dóttur til Króatíu í september síðastliðnum. Vinkonurnar flugu til Split og fóru þaðan í viku siglingu með lítilli snekkju sem sigldi á milli króatísku eyjanna þar sem þær hjóluðu um og nutu lífsins. „Við vorum þrjár íslenskar valkyrjur í 30 manna hópi sem var frá öllum heimshornum, þetta var frábær hópur sem var eiginlega eins og lítil fjölskylda ... rússneska keisara­ dæmið í mosfellsbæ Aðsend grein | Ánægjulegt er að líta til baka og sjá hvað hefur áunnist síðustu misserin. Það sem einna mest hefur komið á óvart er hve fundir bæjarstjórnar eru líflegir og sérstaklega þegar slökkt er á myndavélinni og forseti bæjarstjórnar tilkynnir fundarmönnum að skollið sé á fundarhlé. Vinarþel og varfærni í orðfari fara þá oft veg allrar veraldar þegar vígvöllurinn er ... Á www.mosfellingur.is eru birtar helstu fréttir úr blaðinu 12. mars 18. júní 3 2 1 10. janúar lárus haukurjón guðlaugur stella kristjánsdóttir fékk fyrstu sprautuna tinna og kristín þóra færa íbúum hressingu Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekkjum grunnskóla Mosfellsbæjar, skólaárið 2019– 2020, hófst að vanda á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2019. Nemendur í Varmárskóla og Lágafells- skóla kepptu innbyrðis í sínum skólum og að lokum voru valdir 5 nemendur úr hvorum skóla til að keppa á lokahátíð keppninnar sem fyrirhuguð var í mars 2020. Sökum heimsfaraldurs varð að fresta keppninni þá og eftir nokkrar tilraunir fram eftir hausti varð því miður að aflýsa lokahátíðinni. Í desember sl. fengu þeir nemendur sem keppa áttu á lokahátíðinni, afhent viður- kenningarskjöl og verðlaunabækur fyrir þátttöku í Stóru upplestrarkeppninni þrátt fyrir að lokahátíð félli niður. Keppendur Lágafellsskóla: Steinunn Eva Óladóttir, Rebekka Líf Ólafsdóttir, Ægir Þór Þorvaldsson og Ísabella Björt Þórsdóttir. Á myndina vantar Gerði Evu Sigurðardóttur Wiium. Keppendur Varmárskóla: Dóra Þórarinsdóttir, Vígsteinn Frosti Hauksson, Elio Mar Rebora, Leó Halldórsson. Á myndina vantar Heru Sjöfn Atladóttur. Lokahátíðinni aflýst • Viðurkenningar veittar í skólunum stóra upplestrarkeppnin

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.