Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 28

Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 28
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Grétar Karl Sindrason fæddist á Lands- spítalanum þann 3. október 2020. Hann var 3260 gr og 50 cm. Foreldrar hans eru þau Sindri Már Sigurðsson og Jónína Rún Ragnarsdóttir fyrir eiga þau dótturina Hjördísi Ingunni. Í eldhúsinu ÁRIÐ 2020 Ég held það séu fáir þarna úti sem sitja og lofsyngja síðasta ár fyrir það hversu frábært það var. Staðir eða viðburðir þar sem fólk gat komið saman og notið félagsskapar hvers annars eða hresst upp á andlega og líkamlega heilsu voru lokaðir eða með skerta starfsemi stærstan hluta árs og enginn komst til útlanda að sóla sig og sleppa við íslenska skammdegis - myrkrið ... En þátt fyrir það var 2020 hið besta ár hjá mér. Ég eignaðist litla stúlku í ágústmánuði og hefur lífið síðan þá ek ki snúist um annað en litla einræðisherr - ann minn, svo ég hef nú varla tíma til að velta mér upp úr því sem Covid hefur tekið frá okkur. Ég hef frekar lært af því sem Covid hefur gefið okkur, það er að segja að kunna að meta það að eiga stóra og nána fjölskyldu, læra að slaka á heima hjá mér, kunna betur að meta íslenska náttúru og víðáttu og heilmargt annað álíka væmið. Vinir mínir sem búa erlendis hafa ekki allir sömu sögu að segja af síðast a ári. Ég hef margoft þakkað fyrir það að búa á Íslandi og geta verið nokkuð frjá ls ferða minna en ekki bundin heima ein s og stór hluti heims var um tíma. Þetta eru furðulegir tímar sem hafa kennt okkur að meta heilmargt sem við höfu m áður tekið sem sjálfsögðu. Ég neita því þó ekki að ég er full til- hlökkunar fyrir komandi ári og get ek ki beðið eftir því að geta vappað grímula us um bæinn og knúsað mann og annan án þess að líða eins og holdsveikisjúkling i sem reynir að smita alla. Árið 2021 verður svo sannarlega ekki hindranalaust en við skulum nú vona að það verði ögn mildara en 2020. Gleðilegt nýtt ár og megum við öll halda áfram að æfa þakklæti fyrir litlu hlutina í lífinu Unnur Heiða og Bjarni Kristinn skora á Sindra Frey & Sigrúnu að deila næstu uppskrift Unnur Heiða Harðar- dóttir og Bjarni Kristinn Gunnarsson deila með okkur uppskrift að þessu sinni að einföldum rétti sem hefur reynst þeim vel á haust- og vetrarmánuð- um, þegar sálina vantar kaloríur og kolvetni. Uppskrifin er fyrir ca. 4. Hráefni: • 500 g pasta að eigin vali • 1 bréf beikon (ca. 300 g) • ½ l rjómi • 100 g rifinn piparostur Salat: • 2-3 tómatar • ½ gúrka • 1 avókadó • 1 krukka salatostur (fetaostur) Aðferð: Skerið beikonið í smærri bita; best að taka allt búntið og skera það þversum í 4-5 stykki. Steikið á pönnu. Þegar beikonið er orðið steikt skal bæta rjómanum og pipar- ostinum út í og láta malla þangað til ostur- inn hefur bráðnað. Sjóðið pastað. Þegar það er fullsoðið skal bæta því út í pönnuna með beikoninu og rjómaostablöndunni og hræra vel saman. Saxið grænmetið og blandið saman í skál. Bætið við salatostinum (og olíunni úr krukkunni) eftir smekk. Endurteknar athuganir hafa leitt í ljós að ískalt vatn er besti drykkurinn með þessum rétti. Verði ykkur að góðu. móey pála Pastaréttur - Heyrst hefur...28 hjá Unni heiðU & Bja rna heyrst hefUr... ...að Þorrablót Aftureldingar falli niður þetta árið. ...að Bubbi og Hrafnhildur séu búin að selja húsið sitt í Kjósinni. ...að Aldís Sunna og Bjarni Bjarka hafi eignast stúlku um síðustu helgi. ...að Sindri Ploder, sem sýnir nú í Listasalnum, hafi selt 32 verk fyrstu tvo sýningardagana. ...að skemmdarverk hafi verið unnin á Kósí Kjarna sem er verkefni úr Okkar Mosó. Í skoðun er að setja upp myndavélar eða fjarlægja húsgögn ...að GDRN sé komin á listamannalaun. ...að Helgi Björns snúi aftur á skjáinn úr Hlégarði 23. janúar. ...að Kalli Emils og Elsa Hlín hafi trúlofað sig um áramótin. ...að Svava og Hrannar hafi eignast stúlku í vikunni. ...að íþróttakona Mosfellsbæjar, Cec­­i- lía Rán, sé í viðræðum við Everton. ...að kjötkóngurinn hafi skellt sér á skíði til Sviss. ...að Einar einstaki og Inga María hafi gift sig í byrjun árs ...að handboltakappinn Gunnar Malmquist og Elín Huld hafi eignast fyrsta Mosfelling ársins og uppljóstri nafninu á honum í blaðinu. ...að haldið verði Þorrabingó á Barion á bóndadaginn, 22. janúar. ...að Siggi Hansa, Stormsveitarforingi, sé orðinn fimmtugur. ...að Sindri og Fríða Arnalds eigi von á stelpu í sumar. ...að vinsælasta skáldsaga ársins 2020 á Bókasafninu hafi verið Hvíti dauði eftir Ragnar Jónasson. ...að Málfríður á Reykjum hafi orðið 96 ára um síðustu helgi. ...að beðið sé eftir snjónum til að taka í notkun nýja upplýsta skíðabrekku við Varmárskóla. ...að Mosfellsbær hafi gefið sínum starfsmönnum gjafabréf á Grill- markaðinn í jólagjöf að andvirði 15.000 kr. ...að Mosfellingur Ívar Ben sé kominn til Egyptalands þar sem hann sendir rammíslenskar handboltafréttir heim á klakann gegnum Handbolti.is ...að Lukku Láki í Kjarnanum hafi verið að skipta um eigendur. ...að Agnes Geirs og Halli Örn eigi von á barni í sumar. ...að Alli fimleikaþjálfari hafi verið kjörinn þjálfari ársins bæði hjá Aftureldingu og Mosfellsbæ en valið fór fram í fyrsta sinn. ...að gullbarkinn Dagur Sig verði á Barion á föstudagskvöldið. ...að Fellið sé opið fyrir bæjarbúa alla virka daga kl. 8-14 fyrir hreyfingu. ...að næsta blað komi út 11. febrúar. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.