Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 22
- Íþróttir22
N a m o e h f . - S m i ð j u v e g i 7 4 ( g u l g a t a ) - 2 0 0 K ó p a v o g i Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
AftureldingAr
vörurnAr
fást hjá okkur sport íslandi
Á gamlársdag fór fram uppskeruhátíð
Aftureldingar en viðburðurinn var öllu
látlausari en undanfarin ár. Haldin var
stutt athöfn að Varmá og streymt í gegnum
Facebook til Mosfellinga.
Sesselja Líf Valgeirsdóttir knattspyrnu-
kona og Guðmundur Árni Ólafsson hand-
knattleiksmaður voru valin íþróttakona og
-maður Aftureldingar 2020.
Framúrskarandi í boltanum
Sesselja Líf er uppalinn í Mosfellsbæ og
lék með yngri flokkum félagsins áður en
hún spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik
fyrir Aftureldingu árið 2010, aðeins 16 ára
gömul. Sesselja kom aftur heim fyrir síðasta
tímabil frá Vestmannaeyjum og var fyrirliði
liðsins í Lengjudeildinni í sumar og ein af
mikilvægustu leikmönnum liðsins, en liðið
endaði í 4. sæti Lengjudeildar með 28 stig.
Guðmundur Árni lék mjög vel á seinni
hluta síðasta tímabils og endaði sem næst-
markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar.
Hann var lykilmaður liðsins sem endaði í 3.
sæti. Guðmundur Árni hefur einnig leikið
mjög vel á þessu tímabili og er liðið núna á
toppnum áður en leikjum var frestað. Hann
komst í 35 manna landsliðhóp fyrir HM í
Egyptalandi sem hefst núna í janúar.
Þjálfari ársins valinn í fyrsta sinn
Í fyrsta skipti var valinn þjálfari ársins
eins og sjá má hér til hliðar en viðurkenn-
inguna hlaut Alexander Sigurðsson þjálfari
fimleikadeildarinn. Þá voru einnig veittar
viðurkenningar til þeirra sem stutt hafa
við félagið. Barion fékk þakklætisviður-
kenningu og Eygerður Helgadóttir valin
vinnuþjarkur ársins.
Önnur verðlaun voru einnig veitt
Hópabikar UMSK sem 2. flokkur kvenna
í blaki hlaut en þær urðu bikar og deildar-
meistarar árið 2020. Stelpurnar í 2. flokki
sóttu allar æfingar með úrvalsdeild kvenna
og meistaraflokknum og tóku þátt í öllum
þeirra leikjum einnig. Stelpurnar spiluðu
því yfir 50 leiki á tímabilinu þrátt fyrir að
ekki hafi náðst að klára úrvalsdeild og bik-
arkeppni fullorðinna vegna COVID19.
Starfsbikar UMFÍ hlaut körfuknattleiks-
deild Aftureldingar sem unnið hefur ötult
starf og vaxið mjög undanfarin ár. Nú telur
deildin rúmlega 100 iðkendur og starfrækir
barna- og unglingastarf fyrir börn í 1.-10.
bekk. Að auki hafa nokkrir fimm ára sýnt
áhuga og æfa þeir með 1. og 2. bekk.
Hvataverðlaun aðalstjórnar fékk stjórn
sunddeildar Aftureldingar en stjórn og
þjálfari deildarinnar hafa fært deildina nær
sínu gamla horfi eftir erfið ár. Stjórnin er
samstíga í verkefnum og eru allir sammála
um markmiðin og leiðina til að ná þeim.
Vinnuþjarkur 2020
Eygerður Helgadóttir
Eyja er formaður fimleikadeildar, en hún
hefur verið í stjórn deildarinnar í fjölda
ára. Eyja er ekki bara hluti af fimleika-
deildinni heldur öllu félaginu, en hún lék
knattspyrnu með Aftureldingu hér á árum
áður og spilar nú blak.
þjálfari ársins
Alexander Sigurðsson
Alexander er þjálfari fimleikadeildarinn-
ar. Hann hefur einstaka leiðtogahæfileika
sem nýtast honum í þjálfun og starfi
yfirþjálfara deildarinnar. Hann hefur
frábært lag á iðkendum og nær að kalla
það allra besta fram í hverjum og einum.
þakkarViðurkenning
Barion
Þakklætisviðurkenning Afturelding 2020
fer til Barion fyrir frábært samstarf, mikla
gleði og frábærar lausnir þegar kemur að
fjáröflunum. Simmi og Óli Valur tóku við
viðurkenningunni á gamlársdag.
Rafræn uppskeruhátíð á gamlársdag • Sesselja Líf og Guðmundur Árni efst í kjörinu
Íþróttafólk Aftureldingar
heiðrað eftir skrýtið ár
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la