Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 4. J A N Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 11. tölublað 109. árgangur
GIRNILEG TILBOÐ Í NETTÓ!
Ungnautahakk
1.329KR/KG
ÁÐUR: 1.899 KR/KG
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 14.—17. janúar
-30%
-50%
Bleikjuflök
Sjávarkistan
1.200KR/KG
ÁÐUR: 2.399 KR/KG
Kúrbítur
405KR/KG
ÁÐUR: 579 KR/KG
Eggaldin
531KR/KG
ÁÐUR: 759 KR/KG
-30%
MUN FLEIRI
ENSK ORÐ
NÚ EN ÁÐUR FEMINÍSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
OPNA Í RÚBLUNNI
UM LEIÐ OG
VÍÐIR LEYFIR
RVK FFF HEFST 56 MÁL OG MENNING 10SLANGUR UNGLINGA 6
Þóroddur Bjarnason
thoroddur@mbl.is
Jakob Einar Jakobsson eigandi
Jómfrúarinnar við Lækjargötu segir
að sóttvarnareglur, sem í tilfelli
Jómfrúarinnar heimili, að uppfylltum
skilyrðum, tvö aðskilin hólf, með tutt-
ugu gestum í hvoru hólfi, leiði til auk-
ins rekstrarkostnaðar. „Það væri
betra ef þetta væri eitt 40 manna hólf
og menn virtu tveggja metra regluna.
Slíkt gæfi betri nýtingu mannaflans
auk þess sem það rímar betur við þær
takmarkanir sem gilda t.d í leikhús-
um, bíóhúsum, tónleikastöðum og
sundstöðum þar sem mun fleiri mega
koma saman en á veitingastöðum.“ Í
gær urðu þær breytingar á sóttvarna-
reglum að gestir veitingahúsa mega
vera 20 í stað 15 áður.
SFV, Samtök fyrirtækja á veitinga-
markaði, sendu í gær frá sér harðorða
áskorun til stjórnvalda um að bregð-
ast tafarlaust við stöðu veitingageir-
ans áður en fleiri veitingastaðir gefast
upp og falla með tilheyrandi kostnaði
fyrir samfélagið. Helmingur svarenda
í skoðanakönnun samtakanna telur
rekstur sinn ekki lifa út febrúar 2021.
Chandrika Gunnur Gunnarsson
eigandi Austur-Indíafjelagsins og
Hraðlestarinnar segir að einkum
þrennt hafi fleytt henni í gegnum síð-
ustu mánuði; traustur viðskiptavina-
hópur, þekkt vörumerki og matur
sem ferðast vel í heimsendingu. Þá
hafi brotthvarf ferðamanna ekki skipt
sköpum þar sem heimamenn séu
stærstur hluti viðskiptavinahópsins.
Árið í heild sinni hafi þó verið
mesta áskorunin á 27 ára ferli.
Tónlistar- og athafnamaðurinn
Helgi Björnsson, sem ásamt Guðfinni
Karlssyni veitingamanni ætlaði að
opna veitingastað á Hótel Borg á síð-
asta ári, hefur frestað sínum fyrirætl-
unum um óákveðinn tíma. Glórulaust
sé að opna við núverandi aðstæður.
MTilslakanir nægja ekki … »32
Reglur auka kostnaðinn
Helmingur fyrirtækja á veitingamarkaði gæti farið í þrot í febrúar 2020 mesta
áskorun á 27 ára ferli Chandriku Gunnar Gunnarsson Helgi Björns bíður átekta
Veitingastaðir
» Veitingastaðir mega hafa
opið til kl. 22 og gestir mega
að hámarki vera 20.
» Heimilt verður að hleypa inn
nýjum viðskiptavinum til kl. 21
og heimilt að selja mat úr húsi
til kl. 23.
» Gæta skal að tveggja metra
nálægðarmörkum og skylt er
að hafa grímu þar sem því
verður ekki viðkomið.
„Rannsóknir benda til þess að
þeir sem eru lágir í D-vítamíni við
komu á sjúkrahús vegna Covid-19
fari venjulega verr út úr sjúkdómn-
um. Það eru meiri líkur á að þeir
deyi og þeir eru venjulega með al-
varlegri sjúkdóm,“ sagði dr. Hann-
es Hrafnkelsson heimilislæknir.
Hann telur verulegar líkur á því að
D-vítamín veiti ákveðna vernd gegn
Covid-19. Hannes tekur þátt í mál-
þingi um D-vítamín og áhrif þess á
Læknadögum í næstu viku.
Hann segir að þetta þýði ekki að
það að gefa D-vítamín hafi einhver
áhrif, en samkvæmt The Lancet sé
mögulega mikið að vinna en nánast
engu að tapa við að taka D-víta-
mínið í ljósi Covid-19.
The Lancet fjallar í nýlegum leið-
ara um D-vítamín og faraldurinn.
Það spyr hvers vegna ágreiningur
sé um áhrif D-vítamíns. »36
D-vítamín virðist
veita ákveðna vernd
Alls voru teknir út 23 milljarðar af
séreignasparnaði landsmanna á tíma-
bilinu apríl til desember sl. vegna sér-
stakrar heimildar í tengslum við kór-
ónuveirufaraldurinn skv. upplýs-
ingum skattsins í gær.
Á nýliðnu ári afgreiddi skatturinn
alls um 42.600 beiðnir um endur-
greiðslu virðisaukaskatts og námu
endurgreiðslurnar samtals um 19
milljörðum króna. Beiðnum um end-
urgreiðslur virðisaukaskatts fjölgaði
um 290% á síðasta ári. Alls námu
endurgreiðslur virðisaukaskatts
vegna bílaviðgerða 234 milljónum kr.
í fyrra og 4,9 milljarðar voru end-
urgreiddir vegna endurbóta og við-
halds á íbúðarhúsnæði til eigin nota.
Búið er að greiða rúma 11,7 millj-
arða í stuðning vegna hluta launa-
kostnaðar á uppsagnarfresti og tæp-
lega 1.500 rekstraraðilar hafa fengið
greidda lokunarstyrki upp á rúmlega
1,7 milljarða. omfr@mbl.is »4
23 milljarðar
teknir út
Aðgerðir vegna
kórónuveiru
Greiðslur í ma.kr.
19
12
23
Heimild:
Skatturinn
Laun á upp-
sagnarfresti
Endurgreiðsla
á VSK
Úttekt á
séreignar sp.
Líkamsræktarstöðvar voru opnaðar að nýju í
gær þegar ný reglugerð um fjöldatakmarkanir
tók gildi. Leyfilegt er að bjóða upp á hóptíma
þar sem 20 eða færri koma saman en eirðar-
lausir korthafar líkamsræktarstöðva verða að
bíða lengur eftir að geta verið einir síns liðs í
tækjasölum stöðvanna. Ljósmyndari fékk að
kíkja á æfingu hjá Hress í Hafnarfirði og náði
þessari mynd af heilsuhraustum hópi í ham.
Morgunblaðið/Eggert
Koma saman og hamast í hóptímum