Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 10
Það hefur spurst út að til stæði að
opna staðinn og hefur tónlistarfólk
verið mjög áhugasamt, segir Garðar.
Sem fyrr segir verður lifandi tónlist í
boði öll kvöld, t.d. djass eitt kvöld í
viku. Búið er að koma upp öflugu
hljómkerfi og fjárfesta í flygli sem
kominn er í hús. Tónlistarfólkið verð-
ur í mikilli nálægð við gestina.
Uppistandarar verða með sýningar
reglulega og boðið upp á ljóðalestur
um helgar. Þá mun myndlistarfólk
verða með sýningar í húsinu.
Bókabúð Máls og menningar hefur
verið rekin á Laugavegi 18 í áratugi
en rekstrinum var hætt í október í
fyrra. Bækur verða áberandi á hinum
nýja stað. Bókabúð verður á 1. hæð
og í kjallaranum verður Ari Gísli
Bragason, kaupmaður í Bókinni við
Klapparstíg, með fornbækur til sölu.
Þá geta gestir komið og lesið bækur á
staðnum.
„Við viljum að fólk upplifi þennan
stað sem innlegg í menningu okkar,
með bækur, lifandi tónlist og mynd-
list,“ segir Garðar.
Bókabúð Máls og menningar við
Laugaveg í Reykjavík var lengi vel
með stærstu bókabúðum landsins.
Búðin var stofnuð 1940, segir í al-
fræðiritinu Wikipediu. Mál og menn-
ing var útgáfufélag og bókaforlag
sem var stofnað árið 1937.
Félagið var lengi tengt við sósíal-
ista á Íslandi og virðist hafa fengið
fjárstyrki frá Sovétríkjunum á tímum
kalda stríðsins, segir í alfræðiritinu.
Forlagið hafði lengi aðsetur á Lauga-
vegi 18, í húsi sem reist var þar 1970
og oft nefnt Rúblan vegna orðróms-
ins um „rússagullið“.
Hús Máls og menningar við
Laugaveg teiknaði Sigvaldi Thordar-
son arkitekt og hann hannaði einnig
flesta innanstokksmuni, t.d. skrifborð
og hillur í versluninni sem síðar voru
fjarlægð. Nokkur útibú forlagsins
voru stofnuð síðar, hið stærsta þeirra
við Síðumúla.
Garðar hefur látið stækka myndir
af helstu listamönnum þjóðarinnar og
munu þær prýða húsið innan sem ut-
an. Margar af þessum myndum eru
eftir hinn kunna ljósmyndara
Morgunblaðsins, Ólaf K. Magnússon.
Lifandi tónlist á Laugavegi
Bókabúðir Máls og menningar verða opnaðar um leið og Víðir leyfir Verður „Græni hattur“
höfuðborgarinnar Lifandi tónlist öll kvöld og aðrir menningarviðburðir Fornbækur í kjallaranum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veitingamaðurinn „Við viljum að fólk upplifi þennan stað sem innlegg í menningu okkar, með bækur, lifandi tónlist og myndlist,“ segir Garðar Kjartansson.
Salurinn Bækur setja svip sinn á staðinn. Gestirnir verða í mikilli nálægð við tónlistarfólkið. Skreytingar Ljósmyndir af helstu listamönnum þjóðarinnar prýða húsið, utan sem innan.
VIÐTAL
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Boðið verður upp á lifandi tónlist öll
kvöld vikunnar á nýjum veitinga- og
skemmtistað sem verið er að innrétta
í hinu sögufræga húsi, Laugavegi 18,
sem á árum áður gekk undir heitinu
Rúblan. Staðurinn mun heita Bóka-
búðir Máls og menningar og verður
með leyfi fyrir 300 manns. Opið verð-
ur frá klukkan 12 alla daga.
„Við opnum um leið og Víðir leyf-
ir,“ segir Garðar Kjartansson veit-
ingamaður sem mun reka staðinn.
Hann verður meirihlutaeigandi.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík
samþykkti á fundi í síðustu viku leyfi
til breytinga á innra skipulagi á
Laugavegi 18. Félagið MMT ehf.
sótti um leyfi til að koma fyrir nýjum
snyrtingum á 1. og 2. hæð, nýrri af-
greiðslu á 1. hæð þannig að við rekst-
ur bókabúðar á báðum hæðum og
veitingastaðar í flokki II á 2. hæð
bætist veitingastaður í flokki II á 1.
hæð hússins. Tvær kaffiteríur verða í
húsinu, á 1. hæð og efsta palli.
Reynslumikill veitingamaður
„Fyrst tónlistarstaðurinn Græni
hatturinn gengur svona glimrandi vel
á Akureyri hlýtur að vera hægt að
reka svona stað í miðbæ Reykjavík-
ur,“ segir Garðar. Hann þekkir vel til
í veitingageiranum eftir að hafa rekið
veitinga- og skemmtistaði um 16 ára
skeið, m.a. Nasa, Apótekið, Hótel
Borg og Þrastarlund. Garðar hefur
starfað við fasteignasölu síðustu sjö
árin en snýr sér nú alfarið að veit-
ingarekstri á ný.
„Ég hef haft augastað á þessu húsi
í 10 ár, tel að það smellpassi sem mið-
stöð fyrir tónlist og menningu. Ég hef
mikla trú á húsinu og staðsetningunni
við Laugaveg,“ segir Garðar.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021
Þegar frost
er á fróni
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is