Morgunblaðið - 14.01.2021, Page 20

Morgunblaðið - 14.01.2021, Page 20
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er nóg að skipuleggja íbúða- hverfi og leggja götur og lagnir sem húsbyggjendur greiða með gatna- gerðargjöldum. Bæjarfélög í útþenslu þurfa einnig að hugsa fyrir stoðkerf- um, ekki síst grunnskólum og leik- skólum, og oft einnig stækkun íþróttamannvirkja og fleiri innviða. Þessi kostnaður er oft vanmetinn en hann á að greiðast með fasteigna- sköttum af nýju húsunum og út- svari íbúanna sem í þau flytjast en það gerist á mörg- um árum, kannski áratugum. Stoðkerfin eru gjarnan byggð upp í stökkum. Skóli og leikskóli eru byggðir vel við vöxt og þegar þeir eru orðnir fullsetnir og kannski vel það þarf að taka annað stökk. Skóli kostar 3-4 milljarða Sú mikla uppbygging íbúðahverfa sem nú er á Suðurlandi og víðar í ná- grenni höfuðborgarsvæðisins leiðir hugann að því hvernig bæjarfélögin standa að uppbyggingu stoðkerfa. Í nýju 2.500 íbúa hverfi á Selfossi, Björkurstykki, er gert ráð fyrir nýj- um skóla, Stekkjaskóla, enda segir Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Árborgar að skólar bæjarins séu þeg- ar yfirsetnir. Stekkjaskóli á að taka við börnum úr hverfinu og einnig ná- grenninu til að létta á hinum skól- unum. Gert er ráð fyrir að skólinn geti tekið við 600 börnum, fullbyggður. Unnið er að fyrsta áfanga og er gert ráð fyrir að hann verði tilbúinn haust- ið 2022. Skólinn mun þó taka til starfa í bráðabirgðahúsnæði á komandi hausti. Með leikskóla er þetta fjár- festing upp á þrjá til fjóra milljarða króna. Gatnagerðargjöld standa undir gatnagerð og lögnum í götum nýja hverfisins og Gísli Halldór segir að þau skili einhverjum fjármunum í bæjarsjóð umfram það. Það hjálpar Árborg, því ekki duga gatnagerð- argjöld alls staðar fyrir þessum grunnkostnaði. Vanda þarf áætlanir Fjölgun íbúa kallar á frekari fjár- festingar í stoðkerfum, til dæmis við íþróttamannvirki. Á Selfossi er verið að byggja fjölnota íþróttahús, hálft til að byrja með. Segir bæjarstjórinn að væntanlegir fasteignaskattar og út- svar nýju íbúanna muni standa undir fjárfestingunni í skólum og íþrótta- mannvirkjum en treystir sér ekki til að áætla á hvað löngum tíma það muni gerast. Gísli Halldór leggur áherslu á að vanda þurfi til áætlana um stofn- kostnað og íbúafjölgun. Þær geti vissulega verið vandasamar enda erf- itt að spá fyrir um hvers konar íbúar flytjist, til dæmis um barnafjölda, og hversu hratt tekjurnar skili sér. Um- sóknir um lán hjá Lánasjóði sveitarfé- laga til að fjármagna uppbygginguna grundvallast á þessum áætlunum. Vilja ekki innviðagjöld Ef sveitarfélög fara offari í fjárfest- ingum geta þau lent í fjárhags- vandræðum, eins og ýmis dæmi sanna. Afturkippur í efnahagslífinu getur hægt á uppbyggingu og þá skila tekjur sér seinna en áætlað var. Þekktasta dæmið um slík vandræði er að finna í Hafnarfirði og að hluta til í Kópavogi eftir bankahrunið. Verktak- ar höfðu hamstrað lóðir og bæj- arfélögin lagt í miklar framkvæmdir við götur og aðra innviði. Reglurnar voru hins vegar þannig að verktak- arnir gátu skilað lóðunum og fengið útlagðan kostnað sinn endurgreiddan með verðbótum. Það gerðu þeir í Hafnarfirði og að einhverju leyti í Kópvogi og urðu bæjarfélögin fyrir þungu höggi vegna þess. Reglunum var breytt í kjölfarið og dregur það úr líkunum á slíkum hamförum í fjár- málum sveitarfélaga. Einhver sveitarfélög hafa skoðað álagningu svokallaðra innviðagjalda til að standa undir kostnaði við stoð- kerfi. Það þýðir að kostnaðurinn leggst á lóðaverðið og nýju íbúarnir greiða þá hluta kostnaðarins í upphafi. Það hefur verið gert í Reykjavík og er ef til vill ástæðan fyrir því að fólk sér hag í því að flytja í kragann umhverf- is höfuðborgina, meðal annars á Suð- urland, þar sem íbúðaverð er skap- legra og búsetukostir fjölbreyttari. Fyrir utan land sveitarfélagsins er einnig uppbygging á einkalandi á Sel- fossi. Gísli Halldór segir að verktak- arnir annist sjálfir gatnagerð og lagn- ir en það sé gert í samræmi við kröfur sveitarfélagsins. Ekki hafi verið lögð á þá kvöð um að byggja leikskóla eða grunnskóla en gert sé ráð fyrir að bærinn geti fengið lóð fyrir skóla- mannvirki í hverfinu. Eiga ekki val Ef aftur er vikið að uppbygging- unni í Árborg segir Gísli Halldór að fjölgun íbúa hjálpi til við að standa undir fleiri fjárfestingum, eins og til dæmis fráveituframkvæmdum við Ölfusá. Raunar þurfi íbúunum að fjölga meira en nú er í kortunum til þess að auðvelda allar fjárfesting- arnar og telur Gísli Halldór að grund- völlur sé fyrir áframhaldandi upp- byggingu. En hvar á að stoppa? Gísli Halldór telur að sveitarfélagið eigi ekkert val. Það verði að taka vel við þeim íbúum sem þangað vilja koma og veita þeim góða þjónustu. Það kalli aftur á að fleiri vilji koma. Reyndur sveitarstjórnarmaður bendir á að ef einhver bæjarstjórn telur að íbúafjöldinn sé kominn í hæfi- lega stærð miðað við nýtingu þeirra stoðkerfa sem fyrir hendi eru og ákveður að úthluta ekki fleiri lóðum megi hún búast við að falla í næstu kosningum. Íbúar vilji sjá hreyfingu á hlutunum því það styrki samfélögin til framtíðar að fá fleiri íbúa, þjónusta verði til dæmis fjölbreyttari. Þá er það spurningin um hvaða stærð er hagkvæmust. Margir hafa velt henni fyrir sér og svörin geta orð- ið mismunandi, eftir aðstæðum á hverjum stað. Er nóg að fjöldi íbúa sé 8-12 þúsund, eins og er á Akranesi, í Árborg og Mosfellsbæ? Þarf hann kannski að vera 17-20 þúsund eins og í Garðabæ, á Akureyri og í Reykja- nesbæ? Eða er hagkvæmasta stærðin ef til vill 30-40 þúsund íbúa byggð eins og er í stærstu sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykja- víkur, það er að segja Hafnarfirði og Kópavogi? Allar þessar íbúatölur eru langt frá því lágmarki sem stjórnvöld stefna að, 1.000 íbúa markinu. Stoðkerfi greiðast á löngum tíma  Mikil uppbygging fylgir í kjölfar nýrra íbúðahverfa  Kostnaður við skóla og íþróttamannvirki greiðist með fasteignasköttum og útsvari nýrra íbúa  Ekki val um að hætta uppbyggingu Gísli Halldór Halldórsson Morgunblaðið/Sigmundur G. Sigurgeirsson Björkurstykki Uppbygging er í fullum gangi í nýja hverfinu á Selfossi og styttist í að fyrstu íbúarnir flytji inn. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva, tölva og dróna Bolholt 4 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Afturköllun á vottunum á kolmunna mun leiða til lægra verðs á mjöli og lýsi úr kolmunna og getur hugsan- lega haft sölutregðu í för með sér, að mati Jóns Más Jónssonar, formanns Félags íslenskra fiskimjölsframleið- enda. Vottun frá MSC og Marine Trust á kolmunna féll niður um ára- mót. Ekkert hefur verið selt af afurð- um sem framleiddar eru eftir þann tíma, en Jón Már reiknar með að fyrstu áhrif af þessum breytingum komi í ljós á næstu vikum. Í fóður fyrir eldislax Mest af kolmunnamjöli er nýtt í fóður fyrir eldislax og mikið af því er selt til Noregs, Danmerkur og Skot- lands. Ferli við laxeldi í þessum lönd- um er að stórum hluta vottað og því eru gerðar kröfur um að afurðir sem eru nýttar í eldinu séu einnig vott- aðar, að sögn Jóns Más. Þá hafi við- horf neytenda breyst og á betur borgandi mörkuðum, t.d. í Vestur- Evrópu, hafi kröfur þeirra aukist. Á síðasta ári veiddu Íslendingar rúm 244 þúsund tonn af kolmunna og auk þess lönduðu erlend skip rúmlega 10 þúsund tonnum. Úr þessu hráefni gætu hafa fengist rúm 50 þúsund tonn af mjöli og 4-5 þúsund tonn af lýsi. Hátt verð hefur verið fyrir þessar af- urðir síðustu misseri og áætlar Jón Már að útflutningsverðmæti mjöls og lýsis af kolmunna á síðasta ári hafi verið um 12 milljarðar króna. Ábyrgð og sjálfbærni Meginástæða þess að kolmunni og norsk-íslensk síld misstu MSC-vottun um síðustu áramót er að kröfur um úrbætur hafa ekki verið uppfylltar þar sem veiðar hafa verið umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES. Í byrjun árs 2019 missti mak- ríll þessa vottun, en ekki eru í gildi heildarsamningar um stjórnun veiða á deilistofnum í NA-Atlantshafi. Í samtali við Morgunblaðið í októ- ber sagði Gísli Gíslason, svæðisstjóri Marine Stewardship Council (MSC) fyrir Ísland, Færeyjar og Grænland, að kröfur frá neytendum hefðu síð- ustu ár gert vottun nauðsynlegri en áður og stórmarkaðir gerðu margir auknar kröfur um vottun. Umhverfis- vitund almennings hefði vaxið og kröf- ur aukist um ábyrgð og sjálfbærni. Lægra verð fyrir mjöl án vottana  Um 12 milljarðar fyrir afurðir kolmunna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.