Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Drög hafa verið lögð að byggingu nýrrar byggingar fyrir meðferðar- starf á Heilsustofnun Náttúru- lækningafélags Íslands í Hveragerði og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Er nú unnið að þarfagreiningu og útfærslu á ýmsum hugmyndum sem fyrir liggja. Í dag er meðferðarstarfið, það er lækna- stofur, sjúkraþjálfun, nuddaðstaða, líkamsrækt og fleira slíkt, í elstu hús- um stofnunarinnar, sem reist voru fyrir nærri 70 árum og svara ekki kröfum dagsins í dag, Ráðgert er að reisa um 2.800 fermetra byggingu á tveimur hæðum og sameina faglega endurhæfingu, meðferð og fræðslu í einu húsi. Áætlaður kostnaður við framkvæmdir er 1,5 milljarðar króna. Skipuleggja byggð með 80 þjónustuíbúðum „Mikið hagræði felst í því að vera með allt meðferðarstarf okkar á sama stað og í byggingum sem henta,“ seg- ir Þórir Haraldsson sem síðastliðið haust tók við sem forstjóri Heilsu- stofnunarinnar. Hann hafði þá í nítján ár verið lögmaður og stjórn- andi hjá Íslenskri erfðagreiningu og frá 1995-2001 var hann aðstoðar- maður Ingibjargar Pálmadóttur, þá- verandi heilbrigðisráðherra. Hann þekkir því til heilbrigðismála frá mörgum hliðum. Jafnhliða byggingu nýs meðferð- arhúss verða byggðar í grennd við heilsustofnunina þjónustuíbúðir fyrir fólk 55 ára og eldra. Allmargar slíkar hafa verið teknar í gagnið á undan- förnum árum, en þær eru fyrir fólk sem kýs að búa þar sem góð heil- brigðisþjónusta, líkamsrækt, sund- laugar og fleira gott er nærri. Eftir- spurn er eftir fleiri íbúðum á svæðinu. Nú skal því kalli svarað, enda styrkir slík byggð starfsemina heildstætt. Því er nú verið að skipu- leggja byggð með um 80 íbúðum og mun fólk sem þar býr hafa aðgengi að aðstöðu og þjónustu á heilsustofnun. Stefnt er að því að hefja fram- kvæmdir við fyrstu íbúðirnar nú í sumar. „Við höfum í þessum uppbygging- aráformum fundið mikinn velvilja Hveragerðisbæjar. Starfsemin hér skiptir allt samfélagið miklu máli, því hér vinna um 100 manns og þetta er einn stærsti vinnustaðurinn í bæn- um,“ segir Þórir. Færri dvalargestir vegna smitvarna Sóttvarnareglur vegna Covid hafa þýtt að starfsemi Heilsustofnunar hefur verið með öðru sniði en vana- lega. Um hríð síðasta vor var hlé gert á starfseminni, en þegar hún hófst að nýju gilti að í meðferð væru 70-80 manns hið mesta, en ekki 120 eins og að jafnaði er. Þannig má uppfylla sett skilyrði um fjarlægðir og fjöldatak- mörk, auk þess sem brýnt er fyrir gestum að halda sig sem mest inni á eða við stofnunina til að draga úr smithættu. Einnig er lokað á að ut- anaðkomandi geti sótt matstofu, sundlaug og fleira. „Starfsfólk hefur staðið sig mjög vel í því að fylgja eftir smitvörnum; fylgir ábendingum um að hafa sam- band við sem fæsta og vera á verði fyrir einkennum sem kunna að koma upp,“ segir Þórir. „Einnig höfum gætt þess vel að dvalargestir finni ekki til veikinda sem líkjast Covid eða komi úr vafasömum aðstæðum. Vel er gætt að sóttvörnum, grímuskylda er í sameiginlegum rýmum og matsal skipt upp. Í hóptíma koma nú aðeins tuttugu manns hið mesta saman í einu. Þetta og fleira hefur – sjálfsagt í bland við heppni – skilað því að engin smit hafa komið upp hér á bæ. Við fjölgum gestum í meðferð hér eftir því sem sóttvarnareglur heimila, en höldum áfram að sýna fulla varúð og verja starfsemina fyrir smitum eins og við mögulega getum. “ Á ári hverju hafa dvalargestir á Heilsustofnun að jafnaði verið um 1.350, skv. samningi milli stofnunar- innar og Sjúkratrygginga Íslands sem greiðir stóran hluta af kostnaði hvers sem kemur. Langur biðlisti er eftir meðferð og þörfin eykst. Margir þurfa þjónustu til dæmis í kjölfar áfalla eða aðgerða, vegna stoðkerf- isvanda, andlegra veikinda og kuln- unar. Þá er líka ljóst, að sögn Þóris, að mikill þungi verður á heilbrigð- iskerfinu næstu árin þegar þangað leitar fólk sem glímir við eftirköst Covid. „Hingað hefur á síðustu mánuðum komið fólk sem er að safna sér saman eftir baráttu við kórónuveiruna,“ seg- ir Þórir að lokum. Sólarhringsdvöl mikilvæg „Afleiðingarnar geta verið úthalds- leysi og síþreyta. Fólk með slík ein- kenni þarf mikla aðstoð til að komast aftur út í daglegt líf. Því er þá mik- ilvægt að geta komið í meðferð og einbeitt sér alveg að því að ná bata. Að geta verið hér í sólarhringsdvöl í kannski fjórar vikur, en ekki í dag- eða göngudeildarþjónustu, getur skipt sköpum um árangur af með- ferðinni, rétt eins og var staðfest í könnun meðal gesta hér í desember síðastliðnum.“ Allt meðferð- arstarf verði á einum stað  Uppbygging á HNLFÍ  Veiran mun skapa þunga á heilbrigiskerfið Tölvumynd/Arkþing Nordic Hveragerði Samkvæmt tölvumynd gæti heildarsvipur bygginga Heilsustofnunar NLFÍ orðið svona í framtíðinni, þegar búið verður að reisa meðferðarhús, en áform eru um að framkvæmdir við byggingu þess hefjist á næsta ári. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forstjóri Þá er mikilvægt að fólk geti komið í meðferð og einbeitt sér að því að ná bata, segir Þórir Haraldsson. Ljósmynd/Aðsend Vatnsleikfimi Sund, leirböð, nudd, styktarþjálfun. Með- ferð í Hveragerði er margþætt – og leið fólks út í lífið. Fagleg endurhæfing, þjálfun, fræðsla, heilbrigt fæði, heit böð, nudd og útivera. Þetta eru meg- instefin í löngu gagnreyndu með- ferðarstarfi á Heilsustofnun Nátt- úrulækningafélags Íslands. Velta stofnunarinnar í ár verður um 1.450 milljónir kr. Í þann pott greiðir ríkið 936 millj. kr. Dval- argestir greiða hluta dvalar- kostnaðar síns sjálfir en njóta þá oft tilstyrks frá til dæmis sjúkra- sjóði stéttarfélaga, velferðar- þjónustu sveitarfélaga eða öðrum eftir atvikum. „Það er umhugs- unavert að ákveðinn hluti þeirra sem þurfa á þjónustu okkar að halda eru í vanda með að greiða fyrir meðferð, sem þó gerir þeim mögulegt að verða að nýju þátt- takendur í samfélaginu. Að stöðu þess hóps þarf að huga sér- staklega,“ segir Þórir Haraldsson og að lokum: „Fjármál heilbrigðisstofnana eru annars eilífðarverkefni, því alltaf eru að koma nýjar kröfur og viðmið eins og gerist í sí- breytilegu samfélagi. Þeim opin- beru fjármunum sem varið er til heilbrigðisþjónustu ber að ráð- stafa af skynsemi og ráðdeild. Slík þjónusta er líka í boði hér í Hveragerði; læknisfræðileg endurhæfing sem hefur sannað gildi sitt og skilað góðum árangri fyrir dvalargesti og samfélagið allt.“ Heilbrigt fæði og heit böð LÆKNISFRÆÐILEG ENDURHÆFING SEM HEFUR SANNAÐ SIG Byggingar Hús Heilsustofnunar eru í jaðri Hveragerðisbæjar og standa á fallegum stað á Varmárbökkum. Gönguferðir og útivist eru stór hluti af meðferðarstarfinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.