Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Drög hafa verið lögð að byggingu
nýrrar byggingar fyrir meðferðar-
starf á Heilsustofnun Náttúru-
lækningafélags Íslands í Hveragerði
og er gert ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist á næsta ári. Er nú unnið að
þarfagreiningu og útfærslu á ýmsum
hugmyndum sem fyrir liggja. Í dag
er meðferðarstarfið, það er lækna-
stofur, sjúkraþjálfun, nuddaðstaða,
líkamsrækt og fleira slíkt, í elstu hús-
um stofnunarinnar, sem reist voru
fyrir nærri 70 árum og svara ekki
kröfum dagsins í dag, Ráðgert er að
reisa um 2.800 fermetra byggingu á
tveimur hæðum og sameina faglega
endurhæfingu, meðferð og fræðslu í
einu húsi. Áætlaður kostnaður við
framkvæmdir er 1,5 milljarðar króna.
Skipuleggja byggð með
80 þjónustuíbúðum
„Mikið hagræði felst í því að vera
með allt meðferðarstarf okkar á sama
stað og í byggingum sem henta,“ seg-
ir Þórir Haraldsson sem síðastliðið
haust tók við sem forstjóri Heilsu-
stofnunarinnar. Hann hafði þá í
nítján ár verið lögmaður og stjórn-
andi hjá Íslenskri erfðagreiningu og
frá 1995-2001 var hann aðstoðar-
maður Ingibjargar Pálmadóttur, þá-
verandi heilbrigðisráðherra. Hann
þekkir því til heilbrigðismála frá
mörgum hliðum.
Jafnhliða byggingu nýs meðferð-
arhúss verða byggðar í grennd við
heilsustofnunina þjónustuíbúðir fyrir
fólk 55 ára og eldra. Allmargar slíkar
hafa verið teknar í gagnið á undan-
förnum árum, en þær eru fyrir fólk
sem kýs að búa þar sem góð heil-
brigðisþjónusta, líkamsrækt, sund-
laugar og fleira gott er nærri. Eftir-
spurn er eftir fleiri íbúðum á
svæðinu. Nú skal því kalli svarað,
enda styrkir slík byggð starfsemina
heildstætt. Því er nú verið að skipu-
leggja byggð með um 80 íbúðum og
mun fólk sem þar býr hafa aðgengi að
aðstöðu og þjónustu á heilsustofnun.
Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir við fyrstu íbúðirnar nú í
sumar.
„Við höfum í þessum uppbygging-
aráformum fundið mikinn velvilja
Hveragerðisbæjar. Starfsemin hér
skiptir allt samfélagið miklu máli, því
hér vinna um 100 manns og þetta er
einn stærsti vinnustaðurinn í bæn-
um,“ segir Þórir.
Færri dvalargestir
vegna smitvarna
Sóttvarnareglur vegna Covid hafa
þýtt að starfsemi Heilsustofnunar
hefur verið með öðru sniði en vana-
lega. Um hríð síðasta vor var hlé gert
á starfseminni, en þegar hún hófst að
nýju gilti að í meðferð væru 70-80
manns hið mesta, en ekki 120 eins og
að jafnaði er. Þannig má uppfylla sett
skilyrði um fjarlægðir og fjöldatak-
mörk, auk þess sem brýnt er fyrir
gestum að halda sig sem mest inni á
eða við stofnunina til að draga úr
smithættu. Einnig er lokað á að ut-
anaðkomandi geti sótt matstofu,
sundlaug og fleira.
„Starfsfólk hefur staðið sig mjög
vel í því að fylgja eftir smitvörnum;
fylgir ábendingum um að hafa sam-
band við sem fæsta og vera á verði
fyrir einkennum sem kunna að koma
upp,“ segir Þórir. „Einnig höfum
gætt þess vel að dvalargestir finni
ekki til veikinda sem líkjast Covid eða
komi úr vafasömum aðstæðum. Vel
er gætt að sóttvörnum, grímuskylda
er í sameiginlegum rýmum og matsal
skipt upp. Í hóptíma koma nú aðeins
tuttugu manns hið mesta saman í
einu. Þetta og fleira hefur – sjálfsagt í
bland við heppni – skilað því að engin
smit hafa komið upp hér á bæ. Við
fjölgum gestum í meðferð hér eftir
því sem sóttvarnareglur heimila, en
höldum áfram að sýna fulla varúð og
verja starfsemina fyrir smitum eins
og við mögulega getum. “
Á ári hverju hafa dvalargestir á
Heilsustofnun að jafnaði verið um
1.350, skv. samningi milli stofnunar-
innar og Sjúkratrygginga Íslands
sem greiðir stóran hluta af kostnaði
hvers sem kemur. Langur biðlisti er
eftir meðferð og þörfin eykst. Margir
þurfa þjónustu til dæmis í kjölfar
áfalla eða aðgerða, vegna stoðkerf-
isvanda, andlegra veikinda og kuln-
unar. Þá er líka ljóst, að sögn Þóris,
að mikill þungi verður á heilbrigð-
iskerfinu næstu árin þegar þangað
leitar fólk sem glímir við eftirköst
Covid.
„Hingað hefur á síðustu mánuðum
komið fólk sem er að safna sér saman
eftir baráttu við kórónuveiruna,“ seg-
ir Þórir að lokum.
Sólarhringsdvöl mikilvæg
„Afleiðingarnar geta verið úthalds-
leysi og síþreyta. Fólk með slík ein-
kenni þarf mikla aðstoð til að komast
aftur út í daglegt líf. Því er þá mik-
ilvægt að geta komið í meðferð og
einbeitt sér alveg að því að ná bata.
Að geta verið hér í sólarhringsdvöl í
kannski fjórar vikur, en ekki í dag-
eða göngudeildarþjónustu, getur
skipt sköpum um árangur af með-
ferðinni, rétt eins og var staðfest í
könnun meðal gesta hér í desember
síðastliðnum.“
Allt meðferð-
arstarf verði
á einum stað
Uppbygging á HNLFÍ Veiran
mun skapa þunga á heilbrigiskerfið
Tölvumynd/Arkþing Nordic
Hveragerði Samkvæmt tölvumynd gæti heildarsvipur bygginga Heilsustofnunar NLFÍ orðið svona í framtíðinni,
þegar búið verður að reisa meðferðarhús, en áform eru um að framkvæmdir við byggingu þess hefjist á næsta ári.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Forstjóri Þá er mikilvægt að fólk geti komið í meðferð
og einbeitt sér að því að ná bata, segir Þórir Haraldsson.
Ljósmynd/Aðsend
Vatnsleikfimi Sund, leirböð, nudd, styktarþjálfun. Með-
ferð í Hveragerði er margþætt – og leið fólks út í lífið.
Fagleg endurhæfing, þjálfun,
fræðsla, heilbrigt fæði, heit böð,
nudd og útivera. Þetta eru meg-
instefin í löngu gagnreyndu með-
ferðarstarfi á Heilsustofnun Nátt-
úrulækningafélags Íslands. Velta
stofnunarinnar í ár verður um
1.450 milljónir kr. Í þann pott
greiðir ríkið 936 millj. kr. Dval-
argestir greiða hluta dvalar-
kostnaðar síns sjálfir en njóta þá
oft tilstyrks frá til dæmis sjúkra-
sjóði stéttarfélaga, velferðar-
þjónustu sveitarfélaga eða öðrum
eftir atvikum. „Það er umhugs-
unavert að ákveðinn hluti þeirra
sem þurfa á þjónustu okkar að
halda eru í vanda með að greiða
fyrir meðferð, sem þó gerir þeim
mögulegt að verða að nýju þátt-
takendur í samfélaginu. Að stöðu
þess hóps þarf að huga sér-
staklega,“ segir Þórir Haraldsson
og að lokum:
„Fjármál heilbrigðisstofnana
eru annars eilífðarverkefni, því
alltaf eru að koma nýjar kröfur
og viðmið eins og gerist í sí-
breytilegu samfélagi. Þeim opin-
beru fjármunum sem varið er til
heilbrigðisþjónustu ber að ráð-
stafa af skynsemi og ráðdeild.
Slík þjónusta er líka í boði hér í
Hveragerði; læknisfræðileg
endurhæfing sem hefur sannað
gildi sitt og skilað góðum árangri
fyrir dvalargesti og samfélagið
allt.“
Heilbrigt fæði og heit böð
LÆKNISFRÆÐILEG ENDURHÆFING SEM HEFUR SANNAÐ SIG
Byggingar Hús Heilsustofnunar eru í jaðri Hveragerðisbæjar og standa á fallegum
stað á Varmárbökkum. Gönguferðir og útivist eru stór hluti af meðferðarstarfinu.