Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 Valin undirföt, náttföt, náttkjólar, sloppar og sundföt á 50% afslætti og hluti af úrvalinu einnig aðgengilegt í vefverslun www.selena.is Útsalan hefst í dag Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is 50% afsláttur af öllum útsölu- vörum Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Við höfum bjartsýnina að leiðar- ljósi og vonum svo sannarlega að allt fari að óskum í ár,“ segir Pétur Ólafsson, hafnarstjóri Hafna- samlags Norðurlands. Horfurnar eru góðar, fyrir liggja bókanir allt að 230 skemmti- ferðaskipa til Akureyrar, í Hrísey og Gríms- ey á komandi sumri. Liðið ár reyndist Hafna- samlaginu líkt og mörgum öðrum þungt í skauti, tekjurnar voru allt að 430 milljónum króna minni en áætlað var enda harla fá skemmti- ferðaskip á siglingu það árið. Pétur segir að samdráttur í tekjum vegna fjarveru skemmti- ferðaskipanna setji vissulega strik í reikninginn. „Við höfum unnið að heilmiklum endurbótum á bryggjum okkar, bætt og aukið við en fyrst og fremst miðuðu okkar framkvæmdir að því að gera aðstöðu fyrir við- skiptavini hafnarinnar sem besta. Það er ljóst að nú þrengir að um sinn,“ segir Pétur. 230 skip væntanleg í sumar Góðu fréttirnar er þær að aldrei áður hafa fleiri skemmtiferðaskip bókað komu sína en einmitt nú í sumar, en þau verða alls 227. Far- þegar verða um 200 þúsund talsins ef allir mæta. Skipin koma flest til hafnar á Akureyri, 171 skip er vænt- anlegt þangað, til Grímseyjar koma 42 skip og 14 skip til Hríseyjar. „Komur skemmtiferðaskipa eru mjög þýðingarmiklar fyrir hafnir á landsbyggðinni, þær eru stór hluti af tekjum þeirra. Það eru tæplega 20 hafnir víða um land sem taka á móti þessum skipum, þeim hefur fjölgað á liðnum árum,“ segir Pétur. Gerir hann ráð fyrir að eitthvað færri farþegar verði um borð fyrsta árið en þeim fari svo fjölgandi á ný þegar heimsfaraldri verði lokið. „Ís- land er vinsæll áfangastaður meðal skipafélaganna og það selst iðulega fljótt upp í ferðir hingað til lands. Farþegar eru áhugasamir um land og þjóð, náttúruna og strjálbýlið. Það er almennt mikil ánægja með þær ferðir hingað,“ segir Pétur. 20 þúsund tonna afli Aðrir tekjustofnar Hafnasamlags- ins eru á pari við meðalár, segir Pét- ur. Vöruflutningar til og frá Akur- eyri til að mynda voru svipaðir að magni og verið hefur liðin ár. Fiski- skip lönduðu um 20 þúsund tonna afla og er bróðurpartur þess magns frá skipum Samherja til vinnslu hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. „Landanir fiskiskipa eru gríðarlega mikilvægar fyrir okkar rekstur, ekki síður en komur skemmti- ferðaskipanna,“ segir Pétur. Skipa- komur hafa einnig mikla þýðingu fyrir þau fyrirtæki sem veita þjón- ustu í landi. Helstu verkefni sem unnið er að á vegum Hafnasamlagsins um þessar mundir tengjast rafmagnsmálum, en við slík verkefni er m.a. unnið í smábátahöfninni í Sandgerðisbót auk smábátahafnanna á Svalbarðs- eyri, Hjalteyri, Hrísey og Grenivík. Eins er verið að vinna við rafmagn við Tangabryggju sem nýtast mun minni skemmtiferðaskipum í fram- tíðinni. Pétur segir umræðu í gangi bæði hér á landi og eins á alþjóðavísu um hver stefnan eigi að vera varðandi rafmagnstengingar við hafnir og hversu umfangsmiklar þær eigi að vera. Um sé að ræða mjög dýrar framkvæmdir til að koma til móts við þarfir stærstu skipanna og það sé ekki á allra færi að standa undir þeim. Hann bendir einnig á að fram- farir séu í gangi varðandi orkugjafa skipanna og því þurfi að vega og meta hversu mikið á að leggja í framkvæmdir af þessu tagi. Torfunefsbryggja endurnýjuð Til hefur staðið um skeið að laga umhverfi Torfunefsbryggju. Fyrir- hugað er að færa bryggjuna utar sem nemur um 16 til 20 metrum, m.a. til að skapa dýrmætt svæði í hjarta bæjarins. Pétur segir að ef allt gangi að óskum í ár verði efni í framkvæmdina pantað næsta haust og hafist handa við verkefnið vorið 2022. Stefnt verði að því að ljúka því ári síðar eða vorið 2023. Liðið ár þungt fyrir Hafnasam- lag Norðurlands Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Það er óþægilega mikið frost, sögðu þeir Haukur og Valdimar, starfsmenn Finns ehf., er þeir unnu við smábátahöfnina í Sandgerðisbót í gær í fimbulkulda. Verkið er unnið fyrir Hafnasamlag Norðurlands.  Bókanir skemmtiferðaskipa í ár aldrei verið fleiri  Vonum að allt fari að óskum, segir Pétur hafnarstjóri Pétur Ólafsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.