Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021
Valin undirföt,
náttföt, náttkjólar,
sloppar og sundföt á
50% afslætti og hluti af úrvalinu
einnig aðgengilegt í vefverslun
www.selena.is
Útsalan
hefst í
dag
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
50%
afsláttur af
öllum útsölu-
vörum
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Við höfum bjartsýnina að leiðar-
ljósi og vonum svo sannarlega að
allt fari að óskum í ár,“ segir Pétur
Ólafsson, hafnarstjóri Hafna-
samlags Norðurlands. Horfurnar
eru góðar, fyrir
liggja bókanir allt
að 230 skemmti-
ferðaskipa til
Akureyrar, í
Hrísey og Gríms-
ey á komandi
sumri. Liðið ár
reyndist Hafna-
samlaginu líkt og
mörgum öðrum
þungt í skauti,
tekjurnar voru
allt að 430 milljónum króna minni en
áætlað var enda harla fá skemmti-
ferðaskip á siglingu það árið.
Pétur segir að samdráttur í
tekjum vegna fjarveru skemmti-
ferðaskipanna setji vissulega strik í
reikninginn. „Við höfum unnið að
heilmiklum endurbótum á bryggjum
okkar, bætt og aukið við en fyrst og
fremst miðuðu okkar framkvæmdir
að því að gera aðstöðu fyrir við-
skiptavini hafnarinnar sem besta.
Það er ljóst að nú þrengir að um
sinn,“ segir Pétur.
230 skip væntanleg í sumar
Góðu fréttirnar er þær að aldrei
áður hafa fleiri skemmtiferðaskip
bókað komu sína en einmitt nú í
sumar, en þau verða alls 227. Far-
þegar verða um 200 þúsund talsins
ef allir mæta. Skipin koma flest til
hafnar á Akureyri, 171 skip er vænt-
anlegt þangað, til Grímseyjar koma
42 skip og 14 skip til Hríseyjar.
„Komur skemmtiferðaskipa eru
mjög þýðingarmiklar fyrir hafnir á
landsbyggðinni, þær eru stór hluti
af tekjum þeirra. Það eru tæplega
20 hafnir víða um land sem taka á
móti þessum skipum, þeim hefur
fjölgað á liðnum árum,“ segir Pétur.
Gerir hann ráð fyrir að eitthvað
færri farþegar verði um borð fyrsta
árið en þeim fari svo fjölgandi á ný
þegar heimsfaraldri verði lokið. „Ís-
land er vinsæll áfangastaður meðal
skipafélaganna og það selst iðulega
fljótt upp í ferðir hingað til lands.
Farþegar eru áhugasamir um land
og þjóð, náttúruna og strjálbýlið.
Það er almennt mikil ánægja með
þær ferðir hingað,“ segir Pétur.
20 þúsund tonna afli
Aðrir tekjustofnar Hafnasamlags-
ins eru á pari við meðalár, segir Pét-
ur. Vöruflutningar til og frá Akur-
eyri til að mynda voru svipaðir að
magni og verið hefur liðin ár. Fiski-
skip lönduðu um 20 þúsund tonna
afla og er bróðurpartur þess magns
frá skipum Samherja til vinnslu hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa.
„Landanir fiskiskipa eru gríðarlega
mikilvægar fyrir okkar rekstur,
ekki síður en komur skemmti-
ferðaskipanna,“ segir Pétur. Skipa-
komur hafa einnig mikla þýðingu
fyrir þau fyrirtæki sem veita þjón-
ustu í landi.
Helstu verkefni sem unnið er að á
vegum Hafnasamlagsins um þessar
mundir tengjast rafmagnsmálum,
en við slík verkefni er m.a. unnið í
smábátahöfninni í Sandgerðisbót
auk smábátahafnanna á Svalbarðs-
eyri, Hjalteyri, Hrísey og Grenivík.
Eins er verið að vinna við rafmagn
við Tangabryggju sem nýtast mun
minni skemmtiferðaskipum í fram-
tíðinni.
Pétur segir umræðu í gangi bæði
hér á landi og eins á alþjóðavísu um
hver stefnan eigi að vera varðandi
rafmagnstengingar við hafnir og
hversu umfangsmiklar þær eigi að
vera. Um sé að ræða mjög dýrar
framkvæmdir til að koma til móts
við þarfir stærstu skipanna og það
sé ekki á allra færi að standa undir
þeim. Hann bendir einnig á að fram-
farir séu í gangi varðandi orkugjafa
skipanna og því þurfi að vega og
meta hversu mikið á að leggja í
framkvæmdir af þessu tagi.
Torfunefsbryggja endurnýjuð
Til hefur staðið um skeið að laga
umhverfi Torfunefsbryggju. Fyrir-
hugað er að færa bryggjuna utar
sem nemur um 16 til 20 metrum,
m.a. til að skapa dýrmætt svæði í
hjarta bæjarins. Pétur segir að ef
allt gangi að óskum í ár verði efni í
framkvæmdina pantað næsta haust
og hafist handa við verkefnið vorið
2022. Stefnt verði að því að ljúka því
ári síðar eða vorið 2023.
Liðið ár þungt
fyrir Hafnasam-
lag Norðurlands
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Það er óþægilega mikið frost, sögðu þeir Haukur og Valdimar, starfsmenn Finns ehf., er þeir unnu við
smábátahöfnina í Sandgerðisbót í gær í fimbulkulda. Verkið er unnið fyrir Hafnasamlag Norðurlands.
Bókanir skemmtiferðaskipa í ár
aldrei verið fleiri Vonum að allt fari
að óskum, segir Pétur hafnarstjóri
Pétur
Ólafsson