Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021
Reiði vegna árásarinnar á þing-
húsið beinist ekki bara að Trump
Bandaríkjaforseta. Þannig hafa
háværar raddir verið um að refsa
beri með einhverjum hætti þeim
þingmönnum repúblikana, sem
neituðu að staðfesta kjörmenn
Arizona- og Pennsylvaníuríkja í
umræðunni í síðustu viku, jafnvel
eftir að árásin var orðin að stað-
reynd.
Hefur reiðin einkum beinst að
öldungadeildarþingmönnunum
Ted Cruz frá Texas og Josh Haw-
ley frá Missouri, en þeir voru í
forystu þeirra þingmanna sem
vildu gera athugasemdir við kjör-
mennina. Hafa þeir verið hvattir
til að segja af sér, og jafnvel
heyrst raddir innan þingsins um
að vísa þeim af þinginu, en ólík-
legt er að 2⁄3 hluti öldungadeild-
arinnar myndu samþykkja slíka
tillögu. Hins vegar er talið líklegt
að einfaldur meirihluti myndi
samþykkja vítur á þá.
Vilja að forsprakkar segi af sér
ÓLGA Á BANDARÍKJAÞINGI
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti í gærkvöldi að ákæra ætti
Donald Trump Bandaríkjaforseta til
embættismissis í annað sinn eftir að
áhrifamiklir repúblikanar í deildinni
lýstu því yfir í fyrrinótt að þeir hygð-
ust greiða atkvæði með tillögunni.
Liz Cheney, þriðji háttsettasti
fulltrúi repúblikana og dóttir Dicks
Cheney, fyrrverandi varaforseta,
var þar fremst í flokki, en hún sagði
að árás stuðningsmanna Trumps á
þinghúsið hefði verið að undirlagi og
með stuðningi forsetans. „Aldrei í
sögunni hefur forseti Bandaríkjanna
svikið embætti sitt og eið sinn að
stjórnarskránni með meiri hætti,“
sagði Cheney í yfirlýsingu sinni, og
bætti við að uppreisnin hefði valdið
áverkum, dauðsföllum og eyðilegg-
ingu á helgasta stað lýðveldisins.
Er þetta í fyrsta sinn frá Water-
gate-málinu 1974 sem fulltrúar úr
flokki forseta styðja við málshöfðun
á hendur honum.
Ákæran var sett á dagskrá full-
trúadeildarinnar eftir að Mike Pence
varaforseti staðfesti við Nancy Pel-
osi, forseta deildarinnar, að hann
hygðist ekki virkja 25. viðauka
stjórnarskrárinnar til að lýsa því yfir
að Trump væri ekki hæfur til þess að
gegna embættinu, þar sem viðauk-
inn væri hugsaður fyrir þau tilfelli
þegar heilsa forsetans meinaði hon-
um að gegna störfum sínum.
Pelosi sagði hins vegar við upphaf
þingstarfa í dag að Trump yrði að
víkja, þó að innan við vika sé eftir af
kjörtímabili hans, þar sem hann væri
„skýr og stöðug ógn“ við öryggi
Bandaríkjanna. Kevin McCarthy,
leiðtogi repúblikana, sagði að Trump
bæri ábyrgð á árásinni, en vildi frek-
ar að hann yrði víttur af deildinni.
Óvíst um öldungadeildina
Demókratar hugðust vísa málinu
til öldungadeildarinnar um leið og
ákæran yrði samþykkt í fulltrúa-
deildinni, en ekki er víst hvenær
réttarhöldin yfir Trump geta hafist,
þar sem deildin er nú í hléi og á ekki
að koma saman fyrr en 19. janúar,
daginn fyrir innsetningu Joes Biden,
verðandi forseta, í embætti.
Samkvæmt reglum deildarinnar
getur hún ekki komið úr slíku hléi
nema með samþykki allra öldunga-
deildarþingmannanna hundrað, en
Mitch McConnell, leiðtogi repúblik-
ana í deildinni, sagði Chuck Schum-
er, leiðtoga demókrata, að stuðn-
ingsmenn Trumps í deildinni myndu
ekki samþykkja það.
Mögulegt er þó að Schumer geti
gripið til neyðarákvæðis frá árinu
2004, þar sem heimilt er að kalla
deildina aftur úr hléi undir vissum
kringumstæðum ef leiðtogar beggja
flokka eru sammála um það.
Óvíst er hvernig McConnell myndi
taka í slíka beiðni ef hún bærist, en
heimildir New York Times hermdu í
fyrrinótt að McConnell væri ekki
mótfallinn því að sakfella Trump
þegar ákæran bærist til öldunga-
deildarinnar, en hann yrði fyrst að
sjá hvernig hún yrði orðuð frá full-
trúadeildinni.
Hermdu heimildir blaðsins að
McConnell sæi embættissviptingu
Trumps sem leið til þess að losa
Repúblikanaflokkinn undan áhrifum
hans, en McConnell mun vera reiður
forsetanum fyrir að hafa eyðilagt
sigurvonir repúblikana í seinni um-
ferð þingkosninganna í Georgíuríki,
sem tryggði að demókratar munu
taka yfir meirihlutann í öldunga-
deildinni eftir innsetningu Bidens.
Öryggisgæsla í hámarki
Undirbúningur fyrir innsetning-
arathöfnina er nú í fullum gangi.
Bandaríska leyniþjónustan, sem sér
um að verja líf forsetans, stýrir þeim
undirbúningi, en athöfnin á að fara
fram við þinghúsið.
Öryggisgæsla við athöfnina verð-
ur í algjöru hámarki, en bandaríska
alríkislögreglan hefur varað við því
að hætta sé á mótmælum í öllum 50
ríkjum Bandaríkjanna þennan dag
og helgina á undan. Hafa því að
minnsta kosti 20.000 þjóðvarðliðar
verið kallaðir út til þess að sinna ör-
yggisgæslu við þinghúsið, og verður
hluti þeirra undir vopnum.
Trump ákærður í annað sinn
Forsetinn sagður hafa ýtt undir árásina á þinghúsið í ákæru fulltrúadeildarinnar Liz Cheney með-
al repúblikana sem studdu við ákæruna McConnell sagður samþykkur því að svipta Trump embætti
AFP
Allt í hers höndum Bandarískir þjóðvarðliðar sjá nú um öryggisgæslu í Washingtonborg eftir óeirðirnar í síðustu
viku. Þeir hafa þurft hvíla sig á gólfum þinghússins og nærliggjandi bygginga og verður varla þverfótað fyrir þeim.
Embættissvipting
» Alls hafði 221 demókrati
kosið með ákærunni þegar
Morgunblaðið fór í prentun,
auk tíu repúblikana.
» 197 repúblikanar höfðu kos-
ið gegn ákærunni.
» Einn demókrati og fjórir
repúblikanar höfðu ekki kosið.
» Trump er fyrsti forsetinn til
að vera ákærður tvisvar.
Fífa THERMORE® Kápa
kr. 29.990.-
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
AYJA - K129
3ja sæta, 2ja sæta og stóll.
Margir litir af áklæði eða leðri.
Komið og skoðið úrvalið
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is