Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 39
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021
Á embætismönnum
og forsvarsmönnum
stofnana eða félaga-
samtaka sem nær ein-
gönu eru rekin fyrir
opinbert fé hvílir
skylda bæði gagnvart
landslögum og siða-
reglum, auk þess sem
gengið er út frá því að
þessir starfsmenn hafi
í frammi almenna
mannasiði í samskiptum. Ef opin-
berir starfsmenn verða uppvís að
því að halda fram gegn betri vitund
röngum málflutningi sem til þess er
fallinn að rýra orðstír eða valda
þriðja aðila beinum skaða má með
gildum rökum halda því fram að
um sé að ræða afglöp í opinberu
starfi.
Þau Auður Magnúsdóttir fram-
kvæmdastjóri Landverndar og Ey-
þór H. Ólafsson, formaður fram-
kvæmdastjórnar Héraðsnefndar
Árnesinga, sem má með réttu kalla
opinbera starfsmenn hafa á undan-
förnum árum tekið höndum saman
í valdníðslumáli sem gengur út á
það að ná yfirráðum yfir landskika
sem er í þinglýstri eigu þriðja aðila
og með framgögnu sinni markvisst
unnið að niðurlægingu einstakra
menningarverðmæta. Gerð hefur
verið grein fyrir þessu yfirgengi-
lega máli og forsögu þess í tveimur
nýlegum greinum. Önnur greinin,
Tannhjól, birtist í Dagskránni á
Suðurlandi 6.janúar: https://
www.dfs.is/2021/01/06/tannhjol/ og hin,
Aalto, innbrot og hlandkoppar,
birtist í Morgunblaðinu 8. janúar.
Allt sem kemur fram í þessum
greinum er stutt gögn-
um, skjölum og rann-
sóknum.
Viðbrögð við þess-
um upplýsingum voru
síðan höfð eftir þeim
Auði og Eyþóri í
Morgunblaðinu 9. jan-
úar, en þau og sá fé-
lagsskapur sem þau
eru í forsvari fyrir,
Landvernd og Héraðs-
nefnd Árnesinga, eru
beinir aðilar og ger-
endur í umræddum
málum, það eru Alviðrumálið og
Laxabakkamálið sem greinarnar
fjalla um.
Í stuttu máli eru nær allar stað-
hæfingar sem hafðar eru eftir þess-
um aðilum rangar og í sumum til-
fellum beinlínis verið að halda fram
algerum fjarstæðum sem túlka má
sem þverbrot á þeirri upplýsinga-
skyldu sem að öllu jöfnu hvílir á
opinberum starfsmönnum. Á
grundvelli siðareglna blaðamanna
er mér nú sem fulltrúa eigenda
gefinn kostur á að leiðrétta yfir-
gengilegustu rangfærslurnar sem
hafðar eru í frammi.
Íslenski bærinn keypti Laxa-
bakka ekki af „þrotabúi“ heldur af
Lögheimtunni ehf. Lögheimtan ehf.
er ekki þrotabú.
Sagt er að með kaupum á Lax-
abakka hafi ekki fylgt eignarhald á
lóð. Hið rétta er að í þinglýstu af-
sali er tilgreind 10.0000 m2 lóð sem
tilheyrir Laxabakka, sú lóð sem var
afmörkuð 1942 þegar kaup á lóð-
inni milli Árna í Alviðru og Ósvald-
ar Knúdsen voru handsöluð. Af
þessari lóð hafa jafnan verið greidd
fasteignagjöld.
Eyþór og Auður segja hróðug
frá því að hafa boðið eigendum
Laxabakka, Íslenska bænum ehf.,
að leigja þá lóð sem Íslenski bær-
inn er sjálfur þinglýstur eigandi að.
Hér er um að ræða algera fjar-
stæðu sem lagalega er með öllu
óframkvæmanleg, þ.e. að reyna að
þvinga eigendur lóðar til þess að
leigja eigin eignarlóð af sjálfum
sér!
Til að leysa málið hafa þau Auð-
ur reynt að þvinga forsvarsmenn
Íslenska bæjarins til þess að gefa
sér lóðina sem tilheyrir Laxabakka
svo hægt verði að leigja þeim hana
aftur fyrir umtalsverða upphæð.
Auður og Eyþór hafa enga
heimild til neinna leyfisveitinga í
þessu sambandi eins og þau halda
fram í Morgunblaðinu 9. janúar.
Engin byggingarleyfi hafa fengist
til uppbyggingar og varðveislu hins
friðlýsta húss að Laxabakka, enda
skipulagsnefnd nær eingöngu skip-
uð fulltrúum héraðsnefndarinnar.
Íslenski bærinn hefur aldrei
aðhafst eða áformað neitt varðandi
uppbyggingu og nýtingu lóðar og
mannvirkja fram yfir það sem til-
greint er í friðlýsingu mennta-
málaráðherra á húsum og lóð. Allar
aðgerðir og áætlanir hafa ávallt
verið unnar í nánu samráði við sér-
fræðinga Minjastofnunar Íslands.
Að halda öðru fram eins og Auður
Magnúsdóttir gerir í Mbl. 9. janúar
eru ósannindi, algjörlega úr lausu
lofti gripin. Íhlutun og afskipti
Auðar og Eyþórs og skjólstæðinga
þeirra af nýtingu og uppbyggingu
lóðar í einkaeign eru með öllu óvið-
eigandi og ólíðandi.
Það er rangt sem Auður held-
ur fram að eigendur Laxabakka
hafi kært Landvernd til lögreglu.
Hið sanna er að húsbrot, listverka-
þjófnaður og varsla á þýfi var kært.
Samkvæmt rannsókn og minn-
ispunktum lögreglu kom síðan í ljós
að Einar Bergmundur Arnbjörns-
son, fyrverandi stjórnarmaður
Landverndar, var viðriðinn þetta
afbrot ásamt hinni svokölluðu Al-
viðrunefnd sem sá um vörslu þýf-
isins við herfileg skilyrði.
Að vitna í „gjafagerning“
Magnúsar í Alviðru er í þessu sam-
hengi afar óviðfelldið, enda flest
ákvæði þessa gjafagernings verið
þverbrotin frá upphafi. Í landi Önd-
verðarness 2 eru þrjár litlar sumar-
bústaðalóðir sem var búið að marka
áratugum áður en sýslunefndin og
Landvernd náðu til sín „gjöfinni“
með bolabrögðum og gátu þess
vegna ekki fallið undir þessa
meintu gjöf. Ein þessara lóða til-
heyrir Laxabakka eins og öllu upp-
lýstu fólki er vel kunnugt um.
Síðan Íslenski bærinn varð
lögmætur eigandi að Laxabakka
með það markmið að bjarga ein-
stökum menningarverðmætum hef-
ur öllum umleitunum fulltrúa og
lögmanna eigenda um samtal, sam-
ráð og fundi verið svarað með útúr-
snúningum, rangfærslum og dóna-
skap.
Rangfærslur, valdníðsla og embættisafglöp
Eftir Hannes
Lárusson »… eru nær allar
staðhæfingar sem
hafðar eru eftir þessum
aðilum rangar og í sum-
um tilfellum beinlínis
verið að halda fram
algerum fjarstæðum.
Hannes Lárusson
Höfundur er myndlistarmaður og
staðarhaldari Íslenska bæjarins.
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendi-
kerfið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar
leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í
skráningarferlinu. Eftir að viðkom-
andi hefur skráð sig sem notanda í
kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna
svæðið. Hægt er að senda greinar
allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
SMARTLAND
MÖRTU MARÍU