Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 55
HM 2021 Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslendingar hefja leik á HM karla í handknattleik í Egyptalandi í kvöld þegar Ísland mætir Portúgal í höf- uðborginni Kaíró klukkan 19:15. Þjálfarar og leikmenn Íslands hugsa um einn leik í einu eins og fram hef- ur komið. Ef við leyfum okkur hins vegar að horfa lengra fram í tímann í mótinu má setja dæmið þannig fram að leikurinn gegn Portúgal sé afar mikilvægur í baráttunni um að komast í 8-liða úrslit mótsins. Í F-riðlinum ásamt Íslandi og Portúgal leika einnig Alsír og Mar- okkó. Engin stig fást gefins á HM frekar en annars staðar en miðað við styrkleika liðanna síðustu árin er búist við því að Ísland og Portúgal muni berjast um efsta sætið í riðl- inum. Í kvöld eru því í boði tvö mik- ilvæg stig til að taka með sér í milli- riðilinn. Komist íslenska liðið í milliriðil, eins og búist er við, mætir Ísland þremur liðum sem komast áfram úr E-riðli þar sem eru Frakk- land, Noregur, Austurríki og Sviss. Fyrirfram er búist við því að Frakkland, Noregur, Ísland og Portúgal geti blandað sér í barátt- una um sætin tvö í 8-liða úrslitum keppninnar. Að þessu sinni taka 32 þjóðir þátt í lokakeppninni og eru milliriðlarnir fjórir. Tvö lið úr hverj- um milliriðli fara í 8-liða úrslit og þar tekur við útsláttarkeppni. Með þetta til hliðsjónar má segja að sigur gegn Portúgal í kvöld gæti komið íslenska liðinu í skemmtilega stöðu. Í leikjunum í milliriðli væri þá mikið undir með tilheyrandi spennu fyrir landsliðið og alla þá sem fylgjast með hér heima. Hvern- ig spilamennskan verður hjá liðinu verður svo að koma í ljós rétt eins og hjá öðrum liðum eins og Frakk- landi og Noregi. Frakkar eru alla jafna mjög sterkir en í fyrra tókst liðinu þó ekki að komast áfram í milliriðil á EM. Þá tapaði liðið einmitt fyrir Portú- gal í riðlakeppninni, liðinu sem Ís- land mætir í kvöld. Ekkert er því öruggt á mótum sem þessum, hvorki hjá Frökkum, Íslendingum né öðrum. Eins og að tefla biðskák Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað mikið um íslenska liðið að undanförnu og leiki þess gegn Portúgal í undankeppni EM í síð- ustu viku. Liðin mætast í þriðja sinn á skömmum tíma og staðan er því væntanlega eins og skák á milli þjálfaranna. Rétt eins og þegar stórmeistarar lenda í því að tefla biðskák á alþjóðlegum mótum eru Guðmundur Þ. Guðmundsson og Paulo Pereira kollegi hans hjá Portúgal að stúdera stöðuna ásamt sínum aðstoðarmönnum. Reyna að átta sig á því hvaða leik andstæðing- urinn ætlar að leika næst. Ekki er heiglum hent að koma á óvart úr því sem komið er. Tveir mótsleikir á milli þjóðanna eru nýafstaðnir auk þess sem liðin mættust á EM fyrir ári. Þar hafði Ísland betur, 28:25, og lék íslenska liðið lék mjög vel. Í Morgunblaðinu í gær líkti Arnór Þór Gunnarsson, fyrirliði Íslands, þessari þriggja leikja törn gegn Portúgal við þá reynslu að leika í úr- slitakeppni Íslandsmótsins. Átti þar við að í úrslitakeppninni mætast sömu liðin nokkrum sinnum á örfá- um dögum og skammur tími sem myndast til að vinna með nýjar áherslur fyrir hvern leik. Mættust 2000, 2001 og 2003 Portúgalar voru gestgjafar á HM í handknattleik árið 2003 eða fyrir átján árum. Þá mættust þjóðirnar einnig í riðlakeppni lokakeppninnar og hafði Ísland betur 29:28. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Ísland og það gerði einnig Ein- ar Örn Jónsson. Einar er einnig í Egyptalandi en í öðru hlutverki. Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfaði íslenska liðið þá eins og nú. Dagur Sigurðsson var í íslenska lið- inu og stýrir nú Japan á HM. Aron Kristjánsson var einnig í íslenska liðinu 2003 en hann kom Barein á HM í Egyptalandi en lét af störfum á síðasta ári. Halldór Jóhann Sigfús- son stýrir Barein á HM. Ísland og Portúgal mættust á þremur stórmótum af fjórum fyrir um tveimur áratugum. Á EM í Kró- atíu árið 2000, á HM í Frakklandi 2001 og svo í Portúgal 2003. Portú- gal hafði betur, 28:25, á EM 2000 en ári síðar vann Ísland 22:19 í Frakk- landi. Þá var Erlingur Richardsson í landsliðinu en þegar þetta er skrifað er hann fyrstur á biðlista inn á HM í Egyptalandi sem þjálfari Hollands. Ekki mættust þjóðirnar á stór- móti í handboltanum frá 2003 til 2020. Fyrsta viðureign karlalands- liða Íslands og Portúgal fór fram í Klagenfurt hinn 26. febrúar árið 1977. Þá fór B-keppnin fram í Aust- urríki en Ísland vann stórsigur gegn Portúgal 29:14. Morgunblaðið hefur lengi fylgst með handboltalandslið- inu og Sigtryggur Sigtryggsson fjallaði um mótið fyrir blaðið. Um leikinn gegn Portúgal skrifaði hann meðal annars: Taugaslappleiki í Klagenfurt „Undirritaður hefur sjaldan eða aldrei orðið vitni að öðrum eins taugaslappleik og kom fram hjá ís- lenzka handknattleikslandsliðinu í fyrri hálfleik leiks þess við Portú- gala í B-heimsmeistarakeppninni í íþróttahúsinu í Klagenfurt í Austur- ríki á laugardaginn. Mér er til efs að leikmennirnir hafi sofið mikið nótt- ina fyrir leikinn. Stóra stundin var að renna upp – keppnin að því tak- marki sem þeir höfðu sett sér fyrir mörgum mánuðum og einbeitt sér að með fleiri æfingum en nokkurt ís- lenzkt landslið hefur áður lagt að baki. Leikmennirnir gerðu sér greinilega glögga grein fyrir þeim kröfum sem gerðar voru til þeirra – þeim vonum sem margir binda við þá í keppninni hér í Austurríki,“ skrifaði Sigtryggur meðal annars en íslensku landsliðsmennirnir náðu sér á strik í síðari hálfleik eins og úrslitin sýna. Svo fór að Ísland vann sér sæti á HM 1978 með frammi- stöðu sinni í Austurríki. Við skulum vona að taugaspennan verði öllu minni hjá okkar mönnum annað kvöld þegar Portúgal er aftur fyrsti andstæðingur. Leikur sem gæti haft mikil áhrif á gang mála  Fyrsti leikur Íslands á HM í Egyptalandi í kvöld  Mikilvæg stig í boði Morgunblaðið/Eggert Heilræði Janus Daði Smárason , Tomas Svensson, Guðmundur, Gunnar Magnússon og Elliði Snær Viðarsson. ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 Í gær hófst heimsmeist- aramótið í handbolta í Egypta- landi og óhætt er að segja að allt annað en handboltinn sjálfur hafi verið aðalumfjöllunarefnið síð- ustu dagana fyrir mót. Margir hafa efast um hvort skynsamlegt sé að halda stór- mót eins og þetta í miðjum far- aldri og einmitt á þeim tíma sem útbreiðsla hans er nánast í há- marki víða um heim. Tvö lið komust ekki á mótið þegar á reyndi, Tékkland og Bandaríkin, og kalla þurfti inn varaþjóðir í þeirra stað. Norður- Makedónía og Sviss mæta dag- inn fyrir sinn fyrsta leik á mótinu. Staðið hefur tæpt hvort lið Grænhöfðaeyja geti mætt til leiks fyrir sinn fyrsta leik á morg- un og mörg lið hafa misst leik- menn í einangrun vegna smita á síðustu dögum. Íslensku leikmennirnir hafa ekki kvartað yfir neinu eftir að þeir komu til Egyptalands, alla vega ekki opinberlega, en norskir kollegar þeirra virðast lítt hrifnir af því sem þeir hafa upplifað fyrstu dagana í landinu. Einn besti handboltamaður heims, Sander Sagosen, sagði við VG í gær að sóttvarna- ráðstafanir Egypta væru ekkert annað en grín og hann óttaðist mjög að smitast á hóteli liðsins. Við þessar aðstæður þarf lít- ið út af að bera til að mótið í heild sinni fari í uppnám. Það er ekki hægt annað en að finna til með Egyptum sem hafa stefnt að því í langan tíma að halda glæsilegt og eftirminnilegt heimsmeistaramót frammi fyrir fjölda áhorfenda. Vonandi verður mótsins minnst eftir á vegna afreka sem unnin voru á vellinum en ekki vegna atvika utan hans. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Barbára Sól Gísladóttir, landsliðs- kona frá Selfossi, er á leið til skoska knattspyrnufélagsins Celtic á láni til vorsins. Barbára er 19 ára og lék fyrstu tvo A-landsleiki sína í haust. Hún er uppalin á Selfossi og hefur leikið með Selfyssingum allan sinn feril en alls á hún að baki 50 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skor- að sex mörk. Þá hefur hún leikið 36 leiki með yngri landsliðunum. Cel- tic er í þriðja sæti skosku úrvals- deildarinnar með 16 stig eftir sjö umferðir, tveimur stigum minna en topplið Rangers og Glasgow City. Barbára Sól lánuð til Celtic Morgunblaðið/Eggert Celtic Barbára Sól Gísladóttir leik- ur í Skotlandi til vorsins. Auk viðureignar Portúgals og Íslands í fyrstu umferð riðlakeppninnar á HM í handknattleik í kvöld er sannkallaður stórleikur á dagskrá á sama tíma. Þá mætast Norðmenn og Frakkar í E-riðlinum en þetta eru einmitt liðin sem fengu silfur og brons á síðasta heimsmeistaramóti árið 2019. Norðmenn töpuðu þá fyrir Dönum í úrslitaleik en Frakkar unnu Þjóðverja í leiknum um bronsið. Leikurinn getur ennfremur haft mikla þýðingu fyrir íslenska liðið því fari svo að Ísland verði eitt þeirra þriggja liða sem komast áfram úr F-riðli keppninnar verða andstæðingarnir þrjú efstu liðin í E-riðlinum. Reikna má fastlega með því að Noregur og Frakkland verði þar á meðal. Silfurliðið gegn bronsliðinu Önnur umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, Dominos-deild- arinnar, verður leikin í kvöld og annað kvöld. Nú eru einmitt eitt hundrað dagar frá því fyrstu um- ferðinni lauk en eftir að Keflvík- ingar höfðu sigrað Þór á Akureyri, 94:74, þann 6. október var öllu skellt í lás og Íslandsmótinu frestað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Í þessari fyrstu umferð í byrjun október vann Grindavík sigur á Hetti á Egilsstöðum, 101:94, ÍR lagði Tindastól á Sauðárkróki, 87:83, Þór vann Hauka í Þorlákshöfn, 105:97, Njarðvík vann KR í Vesturbænum, 92:80, og Stjarnan lagði Val á Hlíð- arenda, 91:86. Fjórir leikir af sex í umferðinni fara fram í kvöld og þar er sér- staklega áhugaverð viðureign KR og Tindastóls á dagskránni. Bæði liðin töpuðu á heimavelli í fyrstu um- ferð. KR-ingar mæta með nýjan leik- mann, Ty Sabin, en tveir eru farnir sem spiluðu gegn Njarðvík í haust. Njarðvíkingar taka á móti Hauk- um og eru með talsvert breytt lið frá sigrinum á KR í haust. Zvonko Bulj- an, sem þá átti stórleik, er farinn aft- ur, sem og Ryan Montgomery, en þeir hafa fengið mikinn liðsauka í Antonio Hester, fyrrverandi leik- manni Tindastóls. Haukar eru með þrjá nýja menn sem þeir frumsýna væntanlega í kvöld. Eitt hundrað dagar á milli umferðanna Sænska knattspyrnufélagið Norr- köping staðfesti í gær að gengið hefði verið frá samningum við Finn Tómas Pálmason, miðvörðinn unga, sem það hefur keypt af KR- ingum. „Hann er ungur leikmaður sem hefur fest sig í sessi í aðalliði félags þar sem hann hefur orðið landsmeistari og spilað í Evrópu- keppni. Hann hefur sýnt að hann getur spilað á háu getustigi og við erum afar ánægðir með að fá hann í okkar raðir,“ segir Rikard Norling þjálfari Norrköping á heimasíðu fé- lagsins. Staðfestu kaupin á Finni Tómasi Ljósmynd/Norrköping Norrköping Finnur Pálmason er kominn til sænska félagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.