Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 56

Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 56
húsinu verði þó aðeins þátttak- endur í pallborðinu. Hún segir líka viðburð á dagskrá í samstarfi við Alliance Française en bíða þurfi frekari fyrirmæla sóttvarna- yfirvalda hvað hann varðar. Laugardaginn 16. janúar kl. 13 fara fram pallborðsumræður með yfirskriftinni No Woman Alone sem streymt verður á zoom og verður þar rætt um ofbeldi í nán- um samböndum út frá mörgum hliðum. Á sunnudegi, 17. janúar, verður rætt um birtingarmyndir hinsegin samfélagsins í kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum. Einnig verða haldnar pallborðsumræður um kvikmyndatökukonur en dag- skrána alla má finna á fyrrnefndri heimasíðu hátíðarinnar. Lea segir að skoðað verði m.a. hvers vegna konur séu ekki fleiri í röðum kvik- myndatökumanna og segir eina af ástæðunum þá að bransinn sé ekki mjög fjölskylduvænn. Ýmis umfjöllunarefni Lea er spurð að því hvaða skil- yrði myndir þurfi að uppfylla til að komast á hátíðina. „Það verður að vera kvenkyns leikstjóri,“ svar- ar Lea og bendir á að af þeim kvikmyndum sem nái langt á heimsvísu og/eða falli í meg- instrauminn séu aðeins um 10-12% leikstýrt af konum. Lea bætir við að ef leikstjórinn skilgreini sig sem konu sé hann líka gjald- gengur. Hún segir myndir hátíðarinnar fjalla um allt mögulegt og ekki að- eins feminísk málefni. „Við erum ansi frakkar, sýnum allt svo lengi sem kona leikstýrir,“ segir Lea. Lögð verður áhersla á kvikmyndir sem eru öðruvísi, með fjölbreytt- um kvenhlutverkum og -persónum sem gefa áhorfendum tækifæri til að umbylta fyrirsjáanlegum, kynjamiðuðum normum, svo vísað sé aftur í tilkynningu, enda snúist femínismi um jafnrétti fyrir alla, að mati skipuleggjenda. Lea er spurð að því hvernig hægt sé að bjóða upp á hátíðina gestum að kostnaðarlausu. „Við borgum okkur ekki nein laun, þetta er bara sjálfboðastarf,“ svar- ar hún, „allur peningurinn fer í að halda hátíðina og sinna henni.“ Falleg opnunarmynd Þegar viðtalið fór fram voru enn að bætast við myndir á dagskrá hátíðarinnar en þá voru komnar 20 kvikmyndir, stuttmyndir og heimildarmyndir auk sjónvarps- þáttaraðar. Það verður því af nógu að taka í dag og næstu þrjá daga og koma verkin frá ýmsum löndum, m.a. Frakklandi, Þýskalandi, Ís- landi, Egypta- landi, Kýpur, Portúgal, Ísrael, Ástralíu og Nor- egi. Aðalnýjungin í ár er frumsýn- ing á nýrri stuttri sjónvarpsþátta- syrpu, Norms, sem er úr smiðju The Lost Shoe Collective og voru þættirnir teknir upp í Reykjavík og Berlín. Leikstjóri þeirra er Júl- ía Margrét Einarsdóttir. Lucie Samcová Hall Allen, sendiherra ESB á Íslandi, mun opna hátíðina í dag með netskila- boðum og verður opnunarmyndin Port Authority eftir leikstjórann Danielle Lessovitz sem sögð er áköf ástarsaga sem eigi sér stað í „kiki ballroom“-senunni í New York. Aðalpersónan, Paul, upp- götvar að Wye, 22 ára stúlka sem hann hefur leitað til og er ástfang- inn af, er transkona. „Þetta er ótrúlega falleg mynd um transstúlku og leikkonan sem leikur hana í myndinni er trans- kona í alvörunni og það er nú ekki alltaf þannig. Þetta er frábær mynd frá New York og fyrsta kvikmynd Lessovitz í fullri lengd. Þetta er geggjuð mynd, ég er búin að horfa á hana þrisvar,“ segir Lea um myndina. Raunveruleikinn ekki endur- speglaður í kvikmyndum Lea ítrekar að ástæðan fyrir því að hátíðin sé haldin sé sú að sýna þurfi veruleikann eins og hann er í raun og veru. Hún vísar í eftir- farandi orð sín í fréttatilkynningu: „Því miður er raunveruleikinn ekki endurspeglaður í kvikmynd- um og sjónvarpi heimsins þar sem kvikmyndabransinn er mjög karl- lægur. Vissulega er þetta að breytast hægt og rólega en eins og staðan er núna er langt í land með að konur, kynsegin fólk og fjölmenning sé sýnd í „main- stream“ miðlum. Kvikmyndamiðillinn er ótrúlega sterkur áhrifavaldur í lífi fólks og einmitt þess vegna er RVK Fem- inist Film Festival svo mikilvæg hátíð og með því að auka sýnileika kvikmynda sem endurspegla raun- veruleikann erum við að búa til fyrirmyndir og bylta staðalímynd- um sem heyra vonandi bráðum sögunni til.“ Þeim sem vilja kynna sér betur dagskrá hátíðarinnar er bent á fyrrnefnda heimasíðu á slóðinni rvkfemfilmfest.is og einnig má finna viðburði hátíðarinnar á Facebook. Hér til hliðar má svo lesa pistil kvikmyndarýnisins Gunnars Ragnarssonar um valdar myndir á hátíðinni. Trans Úr Port Authority, opnunarmynd hátíðarinnar. Segir í henni af kynnum ungs manns af stúlku sem er trans. Púpa Úr bresku kvikmyndinni Cocoon eftir Leonie Krippendorf. Ljósmynd/Elsa Katrín Ólafsdóttir Samstarfskonur Skipuleggjendur RVK FFF eru þær María Lea Ævarsdóttir og Nara Walker. Sjóndeildarhringurinn víkkaður  Fjöldi kvikmynda í leikstjórn kvenna á dagskrá Reykjavík Feminist Film Festival  Streymt á net- inu og aðgangur ókeypis  Áhersla á kvikmyndir með fjölbreyttum kvenhlutverkum og -persónum Júlía Margrét Einarsdóttir VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Reykjavík Feminist Film Festival (Rvk FFF), kvikmyndahátíð helg- uð femínisma, hefst í dag og stendur út næstkomandi sunnu- dag. Að þessu sinni verður öllum Íslendingum boðið á hátíðina sér að kostnaðarlausu þar sem hún mun fara fram í streymi á netinu. Heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar í ár er Halla Kristín Einarsdóttir kvikmynda- gerðarkona sem hefur gert kvik- myndir á borð við Konur á rauðum sokkum og Hvað er svona merkilegt við það. „Nú víkkum við sjóndeildar- hringinn og bæt- um við nýju þema. Við ætlum að halda áfram að leggja áherslu á kvenleikstýrur og m.a. halda zoom-umræðupanel tileinkaðan kvikmyndatökukonum. Aðalmarkmiðið í ár er að tengjast Trans Íslandi, Samtökunum ’78 og Intersex Íslandi og þar með auka sýnileika LGBTQI+-samfélagsins á Íslandi og erlendis,“ segir í til- kynningu en vegna Covid-19 verð- ur hátíðin á netinu en vel valdir viðburðir þó í boði innan sótt- varnatakmarkana. Helstu styrktaraðilar hátíðarinnar í ár eru Reykjavíkurborg, atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytið, sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, franska sendiráðið og Norræna húsið og myndir hátíðar- innar má nálgast á heimasíðu hennar, www.rvkfemfilmfest.is. Umræður á zoom Lea Ævarsdóttir, ein skipu- leggjenda Rvk FFF, segir pall- borðsumræðum verða streymt á netinu frá Norræna húsinu en í Halla Kristín Einarsdóttir 56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.