Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 56
húsinu verði þó aðeins þátttak-
endur í pallborðinu. Hún segir líka
viðburð á dagskrá í samstarfi við
Alliance Française en bíða þurfi
frekari fyrirmæla sóttvarna-
yfirvalda hvað hann varðar.
Laugardaginn 16. janúar kl. 13
fara fram pallborðsumræður með
yfirskriftinni No Woman Alone
sem streymt verður á zoom og
verður þar rætt um ofbeldi í nán-
um samböndum út frá mörgum
hliðum. Á sunnudegi, 17. janúar,
verður rætt um birtingarmyndir
hinsegin samfélagsins í kvikmynd-
um og sjónvarpsþáttum. Einnig
verða haldnar pallborðsumræður
um kvikmyndatökukonur en dag-
skrána alla má finna á fyrrnefndri
heimasíðu hátíðarinnar. Lea segir
að skoðað verði m.a. hvers vegna
konur séu ekki fleiri í röðum kvik-
myndatökumanna og segir eina af
ástæðunum þá að bransinn sé ekki
mjög fjölskylduvænn.
Ýmis umfjöllunarefni
Lea er spurð að því hvaða skil-
yrði myndir þurfi að uppfylla til
að komast á hátíðina. „Það verður
að vera kvenkyns leikstjóri,“ svar-
ar Lea og bendir á að af þeim
kvikmyndum sem nái langt á
heimsvísu og/eða falli í meg-
instrauminn séu aðeins um 10-12%
leikstýrt af konum. Lea bætir við
að ef leikstjórinn skilgreini sig
sem konu sé hann líka gjald-
gengur.
Hún segir myndir hátíðarinnar
fjalla um allt mögulegt og ekki að-
eins feminísk málefni. „Við erum
ansi frakkar, sýnum allt svo lengi
sem kona leikstýrir,“ segir Lea.
Lögð verður áhersla á kvikmyndir
sem eru öðruvísi, með fjölbreytt-
um kvenhlutverkum og -persónum
sem gefa áhorfendum tækifæri til
að umbylta fyrirsjáanlegum,
kynjamiðuðum normum, svo vísað
sé aftur í tilkynningu, enda snúist
femínismi um jafnrétti fyrir alla,
að mati skipuleggjenda.
Lea er spurð að því hvernig
hægt sé að bjóða upp á hátíðina
gestum að kostnaðarlausu. „Við
borgum okkur ekki nein laun,
þetta er bara sjálfboðastarf,“ svar-
ar hún, „allur peningurinn fer í að
halda hátíðina og sinna henni.“
Falleg opnunarmynd
Þegar viðtalið fór fram voru enn
að bætast við myndir á dagskrá
hátíðarinnar en þá voru komnar
20 kvikmyndir, stuttmyndir og
heimildarmyndir auk sjónvarps-
þáttaraðar. Það
verður því af
nógu að taka í
dag og næstu
þrjá daga og
koma verkin frá
ýmsum löndum,
m.a. Frakklandi,
Þýskalandi, Ís-
landi, Egypta-
landi, Kýpur,
Portúgal, Ísrael,
Ástralíu og Nor-
egi. Aðalnýjungin í ár er frumsýn-
ing á nýrri stuttri sjónvarpsþátta-
syrpu, Norms, sem er úr smiðju
The Lost Shoe Collective og voru
þættirnir teknir upp í Reykjavík
og Berlín. Leikstjóri þeirra er Júl-
ía Margrét Einarsdóttir.
Lucie Samcová Hall Allen,
sendiherra ESB á Íslandi, mun
opna hátíðina í dag með netskila-
boðum og verður opnunarmyndin
Port Authority eftir leikstjórann
Danielle Lessovitz sem sögð er
áköf ástarsaga sem eigi sér stað í
„kiki ballroom“-senunni í New
York. Aðalpersónan, Paul, upp-
götvar að Wye, 22 ára stúlka sem
hann hefur leitað til og er ástfang-
inn af, er transkona.
„Þetta er ótrúlega falleg mynd
um transstúlku og leikkonan sem
leikur hana í myndinni er trans-
kona í alvörunni og það er nú ekki
alltaf þannig. Þetta er frábær
mynd frá New York og fyrsta
kvikmynd Lessovitz í fullri lengd.
Þetta er geggjuð mynd, ég er búin
að horfa á hana þrisvar,“ segir
Lea um myndina.
Raunveruleikinn ekki endur-
speglaður í kvikmyndum
Lea ítrekar að ástæðan fyrir því
að hátíðin sé haldin sé sú að sýna
þurfi veruleikann eins og hann er í
raun og veru. Hún vísar í eftir-
farandi orð sín í fréttatilkynningu:
„Því miður er raunveruleikinn
ekki endurspeglaður í kvikmynd-
um og sjónvarpi heimsins þar sem
kvikmyndabransinn er mjög karl-
lægur. Vissulega er þetta að
breytast hægt og rólega en eins
og staðan er núna er langt í land
með að konur, kynsegin fólk og
fjölmenning sé sýnd í „main-
stream“ miðlum.
Kvikmyndamiðillinn er ótrúlega
sterkur áhrifavaldur í lífi fólks og
einmitt þess vegna er RVK Fem-
inist Film Festival svo mikilvæg
hátíð og með því að auka sýnileika
kvikmynda sem endurspegla raun-
veruleikann erum við að búa til
fyrirmyndir og bylta staðalímynd-
um sem heyra vonandi bráðum
sögunni til.“
Þeim sem vilja kynna sér betur
dagskrá hátíðarinnar er bent á
fyrrnefnda heimasíðu á slóðinni
rvkfemfilmfest.is og einnig má
finna viðburði hátíðarinnar á
Facebook. Hér til hliðar má svo
lesa pistil kvikmyndarýnisins
Gunnars Ragnarssonar um valdar
myndir á hátíðinni.
Trans Úr Port Authority, opnunarmynd hátíðarinnar. Segir í henni af kynnum ungs manns af stúlku sem er trans.
Púpa Úr bresku kvikmyndinni Cocoon eftir Leonie Krippendorf.
Ljósmynd/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Samstarfskonur Skipuleggjendur
RVK FFF eru þær María Lea
Ævarsdóttir og Nara Walker.
Sjóndeildarhringurinn víkkaður
Fjöldi kvikmynda í leikstjórn kvenna á dagskrá Reykjavík Feminist Film Festival Streymt á net-
inu og aðgangur ókeypis Áhersla á kvikmyndir með fjölbreyttum kvenhlutverkum og -persónum
Júlía Margrét
Einarsdóttir
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Reykjavík Feminist Film Festival
(Rvk FFF), kvikmyndahátíð helg-
uð femínisma, hefst í dag og
stendur út næstkomandi sunnu-
dag. Að þessu sinni verður öllum
Íslendingum boðið á hátíðina sér
að kostnaðarlausu þar sem hún
mun fara fram í streymi á netinu.
Heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar
í ár er Halla Kristín Einarsdóttir
kvikmynda-
gerðarkona sem
hefur gert kvik-
myndir á borð
við Konur á
rauðum sokkum
og Hvað er
svona merkilegt
við það.
„Nú víkkum
við sjóndeildar-
hringinn og bæt-
um við nýju
þema. Við ætlum að halda áfram
að leggja áherslu á kvenleikstýrur
og m.a. halda zoom-umræðupanel
tileinkaðan kvikmyndatökukonum.
Aðalmarkmiðið í ár er að tengjast
Trans Íslandi, Samtökunum ’78 og
Intersex Íslandi og þar með auka
sýnileika LGBTQI+-samfélagsins
á Íslandi og erlendis,“ segir í til-
kynningu en vegna Covid-19 verð-
ur hátíðin á netinu en vel valdir
viðburðir þó í boði innan sótt-
varnatakmarkana. Helstu
styrktaraðilar hátíðarinnar í ár
eru Reykjavíkurborg, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytið,
sendinefnd Evrópusambandsins á
Íslandi, franska sendiráðið og
Norræna húsið og myndir hátíðar-
innar má nálgast á heimasíðu
hennar, www.rvkfemfilmfest.is.
Umræður á zoom
Lea Ævarsdóttir, ein skipu-
leggjenda Rvk FFF, segir pall-
borðsumræðum verða streymt á
netinu frá Norræna húsinu en í
Halla Kristín
Einarsdóttir
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021