Morgunblaðið - 14.01.2021, Page 64

Morgunblaðið - 14.01.2021, Page 64
ALLT AÐ 50% AFVÖLDUM VÖRUM Útsala ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 GLORY bekkur. Ýmsir litir. Áður 15.900 kr.NÚ 10.900 kr. RETINA skemill með geymslu. Ýmsir litir. 60 cm. Áður 18.900 kr.NÚ 13.900 kr. WESTON TVEGGJA SÆTA SÓFI Bonded leður. L164 cm. Áður 159.900 kr.NÚ 127.900 kr. 20% 26% 30% Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir tæplega fimm árum sendi Steinunn Helgu Hákonardóttir inn sanna ástarsögu í ástarsögukeppni í tengslum við Brúðkaupsblað Morgunblaðsins og sigraði. Á liðnu hausti betrumbætti hún sög- una, fyllti í eyður og úr varð ævi- sagan Saga um sigur mannsand- ans og sanna ást, sem hún gaf börnum sínum og nánum ætt- ingjum í jólagjöf. Ritun sögunnar fór fram í bak- húsi í garðinum hjá Guðrúnu Evu Mínervudóttur í Hveragerði og tók um fimm vikur. Steinunn hringdi í skáldkonuna og pantaði húsið eftir að hafa horft á sjón- varpsviðtal við hana, þar sem hún greindi frá aðstoð sinni við fólk sem vildi skrifa. „Ég varð alveg heilluð,“ segir Steinunn, en bætir við að tvær grímur hafi runnið á hana þegar hún hafi verið búin að koma sér fyrir með tölvuna við eldhúsborðið í bakhúsinu. „„Hvað er ég búin að koma mér út í?“ hugsaði ég með mér.“ Spilin á borðið Reynslunni ríkari segist Stein- unn hafa viljað skrifa bók fyrir börnin sín, upplýsa þau um það sem hún ein vissi, svo þau þyrftu ekki að velkjast í vafa um hlutina. „Ég byrjaði að safna steinum og skrifa þegar ég var níu ára, hef alltaf síðan haft mikla þörf fyrir að skrifa, hef skrifað margar sög- ur um álfa, huldufólk og ástina, en aldrei leyft neinum að lesa skrifin fyrr en nú,“ upplýsir hún. Til nán- ari skýringar segir hún að eftir andlát foreldra sinna hafi hún átt- að sig á því að hún hefði viljað spyrja þá um svo margt sem hana hafi vantað svör við. „Þess vegna ákvað ég að segja börnunum sög- una mína.“ Steinunn eignaðist fyrst barn 18 ára, giftist Sigurði Stefánssyni, barnsföður sínum, og bjuggu þau saman í tvö ár. „Þá skildi leiðir, við hittumst ekkert í 44 ár, en er- um nú ánægð hjón.“ Í millitíðinni var Steinunn gift öðrum manni í 34 ár og á með honum tvö börn. Sigurður eignaðist einnig tvö börn með annarri konu sinni en var ekkjumaður þegar þau Steinunn hittust aftur. „Ég var alltaf í sam- bandi við foreldra hans og systur en dóttir okkar hitti ekki pabba sinn í öll þessi ár, ekki frekar en ég.“ Tíminn í Hveragerði leið hratt. „Umhverfið var ævintýri út af fyr- ir sig, eins og að vera í drauma- heimi, í annarri vídd, og það var yndislegt að vera í bakgarðinum og kjafta við hænurnar þeirra.“ Að loknum tveimur vikum af fimm hafi Guðrún Eva reglulega komið yfir og leiðbeint Steinunni í klukkutíma í senn, lesið yfir það sem hún hafi skrifað þann og þann daginn og veitt henni innblástur. „Guðrún Eva er himnesk og indæl manneskja, góður kennari, fer mjúku leiðina en er samt ákveðin. Öll þessi hvatning og hlýja, þetta hrós og umhverfi í bakgarðinum, er stórkostlegt.“ Sagan er hispurslaus frásögn frá æsku til efri ára. „Þetta er al- gerlega ég,“ áréttar Steinunn og leggur áherslu á að sambandið við Sigurð sé þungamiðjan. „Þegar við hittumst aftur kom í ljós að mis- skilningur olli skilnaðinum.“ Stein- unn útskýrir málavöxtu í bókinni og segist vera komin á bragðið. „Mig langar til þess að halda áfram að skrifa og ætla í söng- nám,“ segir hún. „Ég er komin á þann aldur að mig langar til þess að láta drauma mína rætast.“ Ástfangin af lífinu Morgunblaðið/Eggert Ástfangin Steinunn Helgu Hákonardóttir heldur áfram að skrifa.  Skilnaður vegna misskilnings  Saman aftur 44 árum síðar Aftur saman Guðrún Björg með foreldrum sínum, Steinunni og Sigurði. Einar Örn Benediktsson listamaður mun veita gest- um leiðsögn um sýninguna Gilbert & George: THE GREAT EXHIBITION í kvöld kl. 20 í Listasafni Reykja- víkur í Hafnarhúsi. Mun Einar segja frá einstaka verkum og sýningunni út frá sínu sjónarhorni. „Eftir að hafa búið um nokkurra ára skeið í London þekkir hann borgina í þaula og það umhverfi sem Gilbert & George spretta úr,“ segir í tilkynningu frá safninu og að Einar hafi einnig góða innsýn í það hvernig Gilbert & George tali inn í dæg- urmenningu og hvernig þeir hafi haft áhrif á strauma og stefnur í tísku og tónlist. Upp- bókað var í leiðsögnina í gær en hún verður send út í beinu streymi á fés- bókarsíðu safnsins. Einar Örn segir frá Gilbert & George FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 14. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Íslendingar hefja leik á HM karla í handknattleik í Egypta- landi í kvöld þegar Ísland mætir Portúgal í höfuðborginni Kaíró. Þjálfarar og leikmenn Íslands hugsa um einn leik í einu eins og fram hefur komið. Ef við leyfum okkur hins vegar að horfa lengra fram í tímann í mótinu má setja dæmið þannig fram að leikurinn gegn Portúgal sé afar mikilvægur í baráttunni um að komast í 8-liða úrslit mótsins. Búist er við því að baráttan um efsta sætið í F-riðli verði á milli Íslands og Portúgals. »55 Fyrsti leikurinn á HM í Egyptalandi gæti reynst afar mikilvægur ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.