Morgunblaðið - 22.01.2021, Page 4

Morgunblaðið - 22.01.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fjögur ný kórónuveirusmit greind- ust innanlands í fyrradag. Tveir greindust í einkennasýnatöku og hinir í sóttkvíarskimun. Ekki var vit- að af neinu smiti á landamærunum en einn beið niðustöðu mótefnamæl- ingar og annar var með mótefni. Bólusetning var hafin hjá 5.725 manns í fyrradag og henni lokið hjá 480 manns samkvæmt vefsíðunni covid.is/bolusetningar. Bólusetning var t.d. hafin hjá 37,2% þeirra sem eru 90 ára og eldri og lokið hjá 4,8% í þeim aldursflokki. Starfsfólk Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins (HH) blandaði í gærmorgun bóluefni frá Pfizer í Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut. Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunar- fræðingur hjá HH, sagði að með réttum sprautum væri hægt að ná sex skömmtum úr hverju glasi. Það er fimmtungi meira en náðist í byrj- un með þeim sprautum sem fyrst voru notaðar og munar um minna. Þau í Orkuhúsinu fengu 180 glös í þessari sendingu sem nægði í 1.080 skammta. Einnig fór bóluefni á Landspítalann og út á land og var blandað þar. Sprauturnar sem starfsfólk HH útbjó í gær voru fyrir fólk á hjúkr- unarheimilum og sambýlum sem var að fá seinni sprautuna. Einnig aðra sem eru í dagdvöl, endurhæfingar- innlögn og hliðstæðum úrræðum. „Við reynum að ná til allra sem eru komnir yfir áttrætt og njóta ein- hverrar þjónustu hjá kerfinu,“ sagði Margrét. Listinn yfir bólusetta er svo borinn saman við þjóðskrá til að sjá hverja er eftir að bólusetja í hópnum. Haft er samband við þá og þeim boðin bólusetning. Í gær var eftir að bólusetja um 30 manns sem fæddust á árunum 1920-1922. Morgunblaðið/Eggert Sprauturnar Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins setti rétta skammta af bóluefninu í sprautur dagsins. Fimmtungi betri nýting nú á bóluefninu frá Pfizer  Áfram haldið við bólusetningu elsta fólksins og annarra forgangshópa t.d. á hjúkrunarheimilum og sambýlum í gær Morgunblaðið/Eggert Vandvirkni Hver dropi af bóluefni er dýrmætur og mikilvægt að vanda sig. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rauntímagreining á jarðskjálfta- óróa til að greina náttúruvá á Ís- landi, er heiti eins af níu verkefnum sem hlutu öndvegisstyrki Rann- sóknasjóðs árið 2021. Verkefnis- stjórar eru Krist- ín Jónsdóttir, hópstjóri nátt- úruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, Corentin Caudron, IS- TERRE í Gre- noble í Frakk- landi og Thomas Lecocq við Royal Observatory í Belgíu. Hver öndvegisstyrkur er allt að 150 milljónir kr. á þriggja ára tímabili. „Við ætlum að þróa og innleiða nýjan hugbúnað sem finnur sjálf- virkt óróapúlsa sem núverandi kerfi missa af í raun,“ sagði Kristín. Nú eru óróapúlsar í jarðhræringum greindir sjónrænt. Ætlunin er að smíða sjálfvirkt kerfi sem finnur slíka atburði, staðsetur þá og skráir. „Þetta er eitthvað alveg nýtt. Við getum ekki miðað við neitt annað slíkt kerfi neins staðar í heiminum,“ sagði Kristín. Jarðskjálftar verða við snöggar sprunguhreyfingar í jarðskorpunni. Bylgjurnar eru skarpar og vel þekktar. „Með því að meta komu- tíma þeirra getum við staðsett jarð- skjálfta. Svo erum við með þróaðar aðferðir við að reikna út hvað gerðist í upptökum jarðskjálftans, hvort það varð sigskjálfti, sniðgengisskjálfti eða eitthvað annað. Við reiknum líka út stærð jarðskjálftans og fleira. Að- ferðir við að vinna úr jarðskjálfta- gögnum eru orðnar mjög þróaðar en nú ætlum við að finna aðferð til að nýta samfelldu gögnin sem jarð- skjálftamælarnir skrá enn betur,“ sagði Kristín. Við það á m.a. að beita vélanámi og gervigreind eða svipuð- um aðferðum og eru t.d. notaðar við sjálfvirkar andlitsgreiningar. „Við ætlum að finna atburðina sem valda samfelldum titringi, oft á þröngu tíðnibili, sem við köllum óróaatburði eða óróapúlsa. Þessi hristingur getur staðið frá nokkrum mínútum og upp í nokkra daga. Svona atburðir virðast verða af ýms- um orsökum. Stóru skriðjöklarnir valda t.d. titringi á vorin og við vilj- um skilja betur hvað er að gerast þar. Eins fáum við sterkan óróa í tengslum við Skaftárhlaup. Svo vit- um við að eldgosum fylgir órói og hans verður líka vart í aðdraganda eldgosa. Þess vegna er mikilvægt fyrir vöktunina að við greinum öll þessi merki,“ sagði Kristín. Reiknað er með að verkefnið standi í þrjú ár og bindur Kristín vonir við að því verði lokið á þeim tíma. Þrír nýdoktorar munu starfa við verkefnið hér á landi. Tveir þeirra eru á landinu og sá þriðji í Frakklandi en hann mun væntan- lega flytja hingað vegna verkefnis- ins. Hluti hópsins hefur unnið að öðru verkefni sem nú er að ljúka. Í því uppgötvaðist t.d. jöklaóróinn sem nú á að rannsaka betur. Hanna sjálfvirka leit að óróapúlsum  Verkefni um rauntímagreiningu á jarðskjálftaóróa til að greina náttúruvá fékk öndvegisstyrk  Þróa og innleiða nýjan hugbúnað  Finnur óróapúlsa, staðsetur og skráir  Nýtir samfelld jarðskjálftagögn Kort/Veðurstofa Íslands Jarðskjálftar Kortið sýnir skjálftamæla og alla skjálfta frá ársbyrjun 2020. Kristín Jónsdóttir Rannsóknasjóður mun veita styrki til 82 nýrra verkefna á þessu ári og hafa þau aldrei ver- ið fleiri í sögu sjóðsins. Eins hefur heildarupphæð sem út- hlutað er aldrei verið hærri. Alls bárust 402 umsóknir að þessu sinni. Hlutverk sjóðsins er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám á Íslandi. Sjóðurinn hefur starf- að frá árinu 2004. Styrkveitingar til nýrra verk- efna árið 2021 nema 1,3 millj- örðum króna. Þar eð verkefnin eru almennt til þriggja ára verð- ur heildarframlag til þeirra um fjórir milljarðar. Auk nýrra verk- efna koma tæplega tveir millj- arðar til greiðslu á árinu vegna styrkja til eldri verkefna. Stærsta úthlutunin RANNSÓKNASJÓÐUR Tíðni dauðsfalla á Íslandi yfir sein- asta ár virðist hafa sveiflast töluvert frá meðaltali dánartíðni seinustu ára. Eurostat, Hagstofa Evrópusam- bandsins, hefur borið saman þróun dánartíðni í hverri viku á fyrstu ell- efu mánuðum seinasta árs í löndum Evrópu og á hvaða tímabilum hún hefur verið frábrugðin dauðsföllum á sama tíma á árunum 2016-2019. Fjöldi látinna af völdum kórónuveir- unnar hefur mikil áhrif á dánartöl- urnar, á tímabilinu frá mars og til loka október létust 297.500 fleiri ein- staklingar í löndum ESB en á sama tímabili á árunum á undan. Á Íslandi fjölgaði dauðsföllum í fyrstu bylgju faraldursins mest um 7,5% umfram meðaltal fyrri ára. Yfir sumarmán- uðina lækkaði dánartíðnin verulega en í september og einkum október fjölgaði dauðsföllum mikið á Íslandi og voru í október 26,5% umfram meðaltal seinustu ára. omfr@mbl.is Dauðsföll árið 2020 á Íslandi og ESB meðaltal Hlutfallsleg breyting frá meðaltali áranna 2016-2019 Ísland ESB meðaltal Heimild: Eurostat jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. 30% 20% 10% 0% -10% -20% 13,8% 24,9% 26,5% 17,1% -21,1% -5,7% Dánartölur sveiflast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.