Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 12

Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 Landssamtök lífeyrissjóða telja að raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða hafi numið rúmlega 9% á nýliðnu ári. Benda samtökin á að um áætlun sé að ræða, endanleg niðurstaða um uppgjör sjóðanna fáist ekki fyrr en sjóðirnir skila ársreikningum sín- um. Er það nokkuð minni ávöxtun en árið 2019 þegar hún reyndist 11,8%. Tryggingafræðileg staða sjóðanna miðar að því að sjóðirnir nái að minnsta kosti 3,5% meðal- raunávöxtun til lengri tíma litið og því er ljóst að kerfið hefur bætt tryggingafræðilega stöðu sína verulega á síðustu tveimur árum. Líkt og fram hefur komið í Morg- unblaðinu jukust erlendar eignir sjóðanna talsvert á nýliðnu ári, bæði vegna hækkana á eignamörk- uðum og einnig vegna veikingar krónunnar. Í lok nóvember síðast- liðins voru erlendar eignir 34% af heildareignum sjóðanna og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Inn- an skamms mun Seðlabankinn birta tölur sem varpa ljósi á þróun er- lendra eigna sjóðanna yfir allt árið 2020. Þá skiluðu innlendar eignir einn- ig góðri ávöxtun á árinu, þótt hækk- anir hafi ekki verið eins miklar og á mörkuðum erlendis. Sé litið í baksýnisspegilinn, fimm ár aftur í tímann, er meðalraun- ávöxtun lífeyrissjóðanna 5,5%. Litið lengra aftur eða um 10 ár er raun- ávöxtunin 5,8%. Ljósmynd/AFP Hlutabréf Erlendir eignamarkaðir reyndust lífeyrissjóðunum happasælir. Raunávöxtunin að meðaltali 9%  Ávöxtunin var 11,8% árið 2019 Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Er blaðran ð trufla þig?a ● Þrívirk góðgerla formúla ● Trönuberjaþykkni ● Inniheldur A-vítamín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar slímhúðar 22. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.91 Sterlingspund 177.56 Kanadadalur 102.22 Dönsk króna 21.134 Norsk króna 15.228 Sænsk króna 15.508 Svissn. franki 145.85 Japanskt jen 1.2513 SDR 187.04 Evra 157.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.9194 Hrávöruverð Gull 1854.6 ($/únsa) Ál 1951.5 ($/tonn) LME Hráolía 56.07 ($/fatið) Brent ● Norður- og Eystrasaltslöndin hafa að eigin frum- kvæði farið fram á það við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn að hann greini helstu ógnir og veikleika varðandi peningaþvætti og fjármögnun hryðju- verka á svæðinu með hliðsjón af hversu samofin fjár- málakerfi landanna eru og sérstaklega hve mikið er um að bankar starfi og hafi tengsl yfir landamæri á svæði Norður- og Eystrasaltslandanna. Frá þessu er greint í frétt á vef Seðlabanka Íslands. Þar segir einnig að með því að fá sjónarmið sjóðsins, sem hafi orðspor sem traustur og sjálfstæður ráðgjafi um peningaþvætti og baráttuna gegn fjármögnun hryðjuverka, gefist tæki- færi til að greina áhættu á svæðinu í heild, greina hvaða árangur hefur náðst í að milda áhættu og gefa ráðleggingar um framhaldið. Sjóðurinn mun samkvæmt fréttinni hefja úttekt sína í janúar 2021 og er búist við að hann greini frá nið- urstöðum sínum um mitt ár 2022. Greiningin nær til Danmerkur, Eist- lands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. AGS greinir hættu á peningaþvætti Glæpir Sjóðurinn greinir hættuna. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar, sem skipaður er þingmönn- unum Óla Birni Kárasyni (form.), Bryndísi Haraldsdóttur, Brynjari Níelssyni, Ólafi Þór Gunnarssyni og Willum Þór Þórssyni, tekur undir þau áform fjármála- og efnahagsráð- herra að selja hlut í Íslandsbanka og skrá bankann á hlutabréfamarkað. Telur meirihlutinn að margt bendi til þess að nú sé hagfelldur tími til þess að losa um 25-35% hlut í bank- anum, m.a. í ljósi mikillar eftirspurn- ar sem reyndist í hlutafjárútboði Icelandair Group í september síðast- liðnum en einnig vegna þess að eignamarkaðir hafa hækkað mikið undanfarin misseri. Hagfelldur tími til að selja Bendir meirihlutinn á í áliti sem efnahags- og viðskiptanefnd hefur sent ráðherra að úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hafi hækkað um 26% frá miðju síðast ári og hafi aldr- ei verið hærri og þá hafi hlutabréfa- verð þeirra banka sem skráðir eru á markað hér á landi, Arion banka og Kviku, hækkað verulega. Sömu eða svipaða sögu megi segja erlendis frá þar sem hlutabréfaverð hafi almennt hækkað og það eigi einnig við um markaðsvirði margra banka, m.a. á Norðurlöndum. Fyrrnefndur meirihluti áréttar í áliti sínu atriði sem hann telur að hafa verði í huga við sölu- og skrán- ingarferli bankans. Þannig þurfi t.d. að tryggja að hámark verði sett á mögulegan hlut hvers tilboðsgjafa og nefnir í því sambandi 2,5-3,0% af heildarhlutafé bankans. Þá leggur nefndin til að sett verði efri- og neðrimörk á hversu stór hlutur verði seldur í fyrstu atrennu. Nefnir nefndin í því sambandi 25% að lág- marki og 35% að hámarki. Miðað við þá tillögu gæti hlutdeild stórtækustu kaupenda numið u.þ.b. 10% af þeim hlutabréfum sem boðin yrðu til kaups, að því gefnu að ekki kæmi til skerðinga á hlut þátttakenda af öðr- um ástæðum. Nefnir nefndarmeiri- hlutinn raunar að setja ætti reglu sem tryggi að þeir tilboðsgjafar sem leggi fram minnstu tilboð, a.m.k. eina milljón eða minna, verði ekki fyrir skerðingu ef umframeftirspurn myndast í útboðinu. Meirihlutinn gerir mögulega arðgreiðslu Íslands- banka til núverandi eiganda, ríkis- sjóðs, að umtalsefni. Segir þar að samkvæmt upplýsingum nefndar- innar gæti bankinn greitt 3 til 4 milljarða út án þess að ganga gegn tilmælum fjármálaeftirlitsnefndar. „Líklegt er að arðgreiðslan hafi takmörkuð áhrif á væntanlegt verð á þeim hlutum sem í boði eru og því virðist skynsamlegt að bankinn greiði arð áður en til útboðs kemur,“ segir í álitinu. Allir þingmenn stjórn- arandstöðunnar í efnahags- og við- skiptanefnd skiluðu hver sínu áliti. Það eru þau Jón Steindór Valdi- marsson (varaform.), Oddný G. Harðardóttir, Smári McCarthy og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Jón Steindór telur að ekki skuli selja meira en fjórðungshlut í bankanum í ferlinu. Þá vill hann að umframeft- irspurn skuli ekki verða til skerðing- ar á skráningum undir 10 milljónum króna. Þá telur Jón Steindór að sex mánuðum eftir frumútboð í bankan- um skuli leggja formlegt mat á hvernig til hafi tekist, m.a. með tilliti til hlutabréfaverðs og breytinga á hluthafahópi bankans. Vill hann að ekki „verði tekin nein ákvörðun um frekari sölu hluta í bankanum fyrr en að loknu“ þessu mati. Oddný G. Harðardóttir finnur ferlinu flest til foráttu. bendir hún á að ekki hafi farið fram nauðsynleg umræða frá bankahruni um hvernig almenningur vilji að bankakerfið þróist í landinu. Hún segir mikla óvissu uppi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar sem geti haft áhrif á söluverð, þau fyrirtæki sem eigi í viðskiptum við bankann eða hvaða áhrif innlend fjárfesting í bönkum hafi á hagkerfið í heild. Þá segir í áliti hennar að undirbúningi að söl- unni sé ábótavant. „Aðeins eru rúm 11 ár frá því að einkareknir bankar hrundu á Íslandi með afar neikvæðum efnahagslegum afleiðingum. Rannsókn á þeirri einkavæðingu hefur ekki farið fram, þrátt fyrir samþykki Alþingis á slíkri rannsókn.“ Óljós ábati af söluferlinu Smári McCarthy skilar ítarleg- asta sérálitinu. Niðurstaða hans er sú að hvorki fjármálaráðherra né meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar hafi „fært sannfærandi rök fyrir því að ábatinn [af sölu hlutar- ins] sé mikill“ og að því sé „eðlilegt að bíða með söluferli en nýta þess í stað vorið til að meta hvaða skilyrði þurfi að vera fyrir hendi til að ábati af slíkri aðgerð verði mikill“. Sig- mundur Davíð lýsir ekki andstöðu við söluferlið sem slíkt en setur marga fyrirvara við það. Bendir hann t.d. á að mótsögn felist í því þegar stjórnvöld tali um að mikil- vægt sé að losa um eignarhlutinn til þess að létta á skuldum ríkisins en að á sama tíma hafi ríkisstjórnin lagt fram „þingsályktunartillögu þar sem opnað var á þann möguleika að nýta afrakstur af sölu Íslandsbanka í framkvæmdir við svokallaða borgar- línu“. Skynsamlegt að Íslandsbanki greiði út arð fyrir söluferlið  Hver tilboðsgjafi geti ekki keypt stærri hlut en sem nemur 2,5%-3,0% í bankanum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkisbanki Íslandsbanki komst í eigu ríkisins þegar kröfuhafar fallna Glitn- is afhentu hann sem hluta af stöðugleikaframlagi við uppgjör búsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.