Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana Vísindamenn hafa grafið upp feikn- arstóra risaeðlu í suðvesturhluta Argentínu. Er um að ræða 98 millj- óna ára steingerving. Talið er að hún hafi verið meðal stærstu risa- eðla sem fundist hafa. Steinrunnin löpp á stærð við meðalstóran mann er talin hafa til- heyrt grasætunni risastóru en leggjarbeinin virðast 10-20 prósent stærri en beinin sem fundust af stærstu risaeðlu sem nokkru sinni hefur fundist, Patagotitan may- orum, að sögn vísindamanna við La Matanza-háskólann. Grasæturnar voru gríðarlega háls- og halalangar og lifðu á plöntulaufi. Munu þær hafa verið stærstu skepnur sem nokkru sinni hafa lifað á jörðunni. Patagotitan mayorum, einnig frá Argentínu, vó um 70 tonn og var 40 metra löng, eða sem svarar fjórum strætólengdum. Steingervingarnir risastóru upp- götvuðust árið 2012 í Neuquen- árdalnum og hófst uppgröftur þar 2015. agas@mbl.is AFP Stærsta risa- eðla sögunn- ar fundin í Patagóníu Steingervingar í Argentínu vekja mikla athygli Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Joe Biden gaf í gær út tíu tilskipanir til að styrkja sóknina gegn kórónu- veirunni á fyrsta starfsdegi sínum sem forseti Bandaríkjanna. Hefur faraldurinn lostið Bandaríkin hart og dregið rúmlega 406.000 manns til bana og stórskaðað efnahags- og at- vinnulíf. Bólusetningu verður hraðað og aukinn kraftur færður í skimanir við veirunni. Neyðarlögum verður beitt til að auka framleiðslu á nauð- synjavörum eins og andlitsgrímum sem skylt verður m.a. að bera á flug- völlum, í flugvélum og járnbrautar- lestum auk opinberra bygginga. Kynnti Biden áformin sem þjóðar- stefnu og breytti þar með fyrri stefnu stjórnvalda en forveri hans, Donald Trump, lét einstökum ríkjum það eft- ir að ákveða hvað þeim væri fyrir bestu í veiruvörnum. Sætti stjórn Trumps gagnrýni úr ýmsum áttum fyrir að hafa aldrei náð tökum á far- aldrinum. Um 24,5 milljónir Banda- ríkjamanna hafa sýkst af veirunni. Biden sór embættiseið í fyrradag á tröppum þinghússins í Washington og varaði þar við því að banvænasta tímabil faraldursins væri að ganga í garð, en nú hafa rúmlega 400.000 Bandaríkjamenn látist af völdum kór- ónuveirunnar. Biden kynnti í gær aðgerðaáætlun í sjö liðum sem m.a. kveður á um skil- virka dreifingu bóluefnis. Er það stefna stjórnar Biden að ganga þurfi hratt til verks og bólusetja 100 millj- ónir manns fyrir lok apríl. Í því skyni verða opnaðar sérstakar miðstöðvar bólusetninga á íþróttavöllum og fé- lagsheimilum. Ákvað Biden að verja 1,9 milljónum milljóna til aðgerðanna gegn veirunni innanlands og verður opnuð sérstök skrifstofa til að samræma aðgerðir í glímunni gegn veirunni. Þar af verður 20 milljörðum dollara varið til kaupa á bóluefni og 50 milljörðum til skimun- ar fyrir kórónuveirunni. Ganga aftur í WHO Biden staðfesti einnig tilskipun um að Bandaríkin hverfi aftur til aðildar að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og þar með þátttöku í víðtæku alþjóðlegu stríði gegn kórónuveir- unni. Sneri hann þar með við ákvörð- un Trumps sem dró Bandaríkin út úr WHO í tíð sinni. Kreppa í atvinnumálum verður næststærsta viðfangsefnið í upphafi valdatíma Bidens. Nýjar upplýsingar um auknar umsóknir um atvinnuleys- isbætur þykja vera aðvörun um við- sjárvert ástand. Um 900.000 nýjar umsóknir um atvinnuleysisstyrk bár- ust í síðustu viku eða fleiri en nokkru sinni frá í fjármálakreppunni 2008- 2010, að sögn atvinnumálaráðuneyt- isins í Washington. Frá áramótum í fyrra hafa 78 milljónir manns sótt um atvinnuleysisbætur. Nokkrar tilskipanirnar í gær sneru við ýmsum stefnumálum Trumps. Þannig hefur Biden hætt við hina um- deildu Keystone XL-olíuleiðslu og múrinn við landamæri Texas sem átti að stöðva ólöglega innflytjendur sem stefndu til Bandaríkjanna. Hann ákvað einnig að endurnýja aðildina að Parísarsamkomulaginu í loftslags- málum. Öldungadeildin samþykkti í fyrri- nótt að útnefna Patrick Leahy, demó- krata frá Vermont, sem varaforseta deildarinnar, en hefð er fyrir því að starfsaldursforseti þess flokks sem hefur meirihluta gegni starfinu. Mun hann stýra fundum deildar- innar þegar Kamala Harris varafor- seti er vant viðlátin. Hann er 80 ára að aldri og hefur meðal annars leikið aukahlutverk í fimm kvikmyndum um Leðurblökumanninn, en Leahy er mikill aðdáandi ofurhetjunnar. Segir veirunni nýtt stríð á hendur  Biden setur fram þjóðarstefnu gegn kórónuveirunni  Stefnt að því að bólusetja 100 milljónir manns á fyrstu hundrað dögum Bidens í embætti  Bandaríkin taki aftur þátt í Parísarsáttmálanum og WHO AFP Til starfa Biden hófst handa strax eftir innsetningarathöfnina og undirrit- aði fjölda tilskipana til að endurreisa bandarískt athafnalíf. Framrás tímans getur verið harð- neskjuleg mannslíkamanum. Nýjar rannsóknir benda til þess að orsakir megi finna – og hugsanlega lausn á ýmsum kvillum og aldurstengdri hrörnun. Vísindamenn hafa lengi vit- að að vitsmunir hrörna eftir því sem við eldumst og sérstakir öldrunar- sjúkdómar, m.a. alzheimers, tengj- ast bólgum. En þeir eru enn að af- hjúpa nákvæmlega hvers vegna og hvernig þetta gerist. Í rannsókn sem skýrt er frá í tíma- ritinu Nature er nákvæmlega sagt til um hlutverk miðlandi hormóns sem finnst í miklu meira magni í bæði eldra fólki og músum en í yngri ein- tökum þeirra. Þegar vakinn var girt- ur af í eldri músum stóðu þær yngri músunum á sporði í öllum athöfnum sem reyndu á minni þeirra og rat- færni. Hafði aukið hormónamagn áhrif á efnaskipti í ónæmisfrumum, svonefndum átfrumum, með þeim af- leiðingum að þær geymdu orku fremur en að neyta hennar. Það svelti frumurnar og sendi þær í skað- vænlega bólgukennda hraðferð tengda vitsmunahrörnun og fjölda aldurstengdra sjúkdóma. Hormónið, protaglandin E2 (PGE2), „er megin-gangstillir alls konar bólgutegunda, slæmra sem góðra, og skilvirkni þess er háð því að vissir frumuhópar virkist,“ segir stjórnandi rannsóknarinnar hjá Stanfordháskóla í Kaliforníu, Katrin Andreasson, við AFP-fréttaveituna. Hafi tekist að greina EP2-móttak- arann og eftir það hafi verið skoðað hvort með einhverri aðferð mætti orka gegn neikvæðum áhrifum hormónsins. Voru músum gefnar tvær efnablöndur sem gátu afgirt EP2-móttakarann og sneru þær við efnaskiptavanda sem gerir vart við sig í eldri átfrumum. Hljóp æskufjör í mýsnar og skemmandi bólguvirkni varð upprætt. Samskonar áhrif komu fram í músum sem var genabreytt með því að fjarlægja EP2-móttakarann úr frumunum. agas@mbl.is Stöðva má aldurshnignun  Búið að greina hormón sem stýrir hrörnun mannslíkamans Öldrunarhormón Kemur að því að snúa megi aldurshrörnun við?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.