Morgunblaðið - 22.01.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 22.01.2021, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 ✝ Sigrún fæddistí Kambfelli í Eyjafirði 18. októ- ber 1927. Hún lést 5. janúar 2021 á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri. Sigrún var dóttir hjónanna Ásbjarn- ar Árnasonar, f. 1.maí 1880 á Mel- um í Fnjóskadal, d. 12. apríl 1962, og Gunnlaugar Gestsdóttur, f. 26. nóvember 1894 í Reykhúsum í Eyjafirði, d. 19. nóvember 1981. Sigrún var sjöunda í röð tíu systkina, alsystkini voru Hólm- fríður, f. 13.2. 1915, d. 6.2. 1998, Bára, f. 18.10. 1917, d. 14.3. 1998, þá Kristbjörg, f. 9.3. 1930, d. 9.6. 2020, og yngstur var Val- geir, f. 14.8. 1936, d. 5.9 2011. Samfeðra voru Magðalena, f. 1.9. 1900, d. 11.3. 1987, Árni, f. 6.7. 1905, d. 29.5. 1985, Ing- ólfur, f. 21.4. 1907, d. 26.7. 1993, Hulda, f. 28.2. 1908, d. 10.5. 2003, Jóhannes, f. 26.10. 1911, d. 30.8. 2005. Sigrún giftist 18. júní 1946 Ásgeiri J. Björnssyni, kaup- manni frá Siglufirði, f. 22.1. 1925, d. 24.4. 2015. börn: 1) Jónína Gunnlaug, f. 17.2. 1949, gift Magnúsi Guð- brandssyni, þau eiga fjögur börn: Guðbrand, kvæntur Katr- ínu Bryndísi Sigurjónsdóttur og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Ásgeir Rúnar, barnsmóðir Hulda Ósk Ómars- dóttir, þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. Anna Júlía gift Sig- urði Alfreðssyni þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Krist- inn, barnsmóðir María Fjóla Björnsdóttir og eiga þau þrjú börn. 2) Gunnar Björn, f. 12.8. 1960, kvæntur Ellen Hrönn Haraldsdóttur, þau eiga tvær dætur: Sigrúnu Andreu, sam- býlismaður Baldur Ingi Har- aldsson og eiga þau eina dóttur. Elínu Lilju, sambýlismaður Elmar Baldursson, þau eiga tvo syni. 3) Ásbjörn Svavar, f. 13.4. 1963, kvæntur Sigríði Sunnevu Pálsdóttur, og eiga þau þrjú börn: Hauk Hlíðar, sambýlis- kona Birgitta Birgisdóttir. Heru Sigrúnu og Fannar Pál. 4) Rósa Ösp, f. 25. maí 1967, gift Unn- steini Ingasyni og eiga þau tvö börn: Önnu Karen, sambýlis- maður Arnar Freyr Bjarnason, og Ásgeir Inga, sambýliskona Heiðbjört Einarsdóttir. Sigrún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag, 22. jan- úar 2021, klukkan 13.30. Streymt verður frá útför, stytt slóð: https://tinyurl.com/y6k47h4a Virkan hlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Sigrún fór ung í fóstur til Árna bróður síns og Maríu konu hans sem þá ráku kúabúið á Hóli í Siglufirði. Þessi dvöl reyndist Sig- rúnu heillarík, en þar fann hún sinn lífsförunaut en Ás- geir var þá ráðs- maður á búinu. Þau giftust 1946 og fljótlega þar á eftir fluttu ungu hjónin í Eyja- fjörðinn að Knarrarbergi þar sem þau bjuggu í fimm ár. Það- an fluttu þau aftur til Siglu- fjarðar og byggðu sér hús á Hafnargötu 22 þar sem þau bjuggu samfellt í fimmtíu ár. Á efri árum fluttu þau svo til Ak- ureyrar. Sigrún fór í Hússtjórnarskól- ann á Hallormsstað og lærði vefnað og aðra handavinnu, sem alla tíð var hennar líf og yndi. Hún sótti fjölda nám- skeiða í handmennt og hafði un- un af því að læra meira á því sviði. Hún vann á Saumastof- unni Salínu á Siglufirði í nokk- ur ár auk þess að aðstoða Ás- geir í versluninni. Ásgeir og Sigrún eiga fjögur „Í rökkri minninganna mun- um við mætast á ný,“ Kahil Gi- bran. Þú varst sjöunda af tíu börn- um afa, fimm systkinin talsvert eldri og fimm alsystkinin. Þið hélduð þétt saman, sérstaklega þið þrjú yngstu, ferðuðust sam- an, hélduð afmælin ykkar hvert hjá öðru og hittust reglulega þótt þið byggjuð ekki á sama stað lengst af. Eftir að þið pabbi fluttuð aftur til Akureyrar sáust þið oftar, þá var glatt á hjalla og ósjaldan gripið í spil og þar sem þið voruð fimm skiptust þið á að leggja ykkur. Þú hafðir unun af því að vera úti í náttúrunni, veiddir eins og enginn væri morgundagurinn í Miklavatni eða á bryggjunni í Haganesvík, pabbi taldi það ekki eftir sér að skutla þér í Fljótin, þá leit hann við í Nýjabæ meðan þú barðir vatnið. Á haustin fóruð þið í berjamó, þú varst eldfljót að tína, notaðir báðar hendur og það var saftað, sultað og fryst. Fimmtudagar voru fundar- dagar, þá var oft glatt á hjalla á Hafnargötunni þegar sauma- klúbburinn eða Línuhópurinn komu eða þú fórst út á kven- félags- eða slysavarnafundi. Heimilið þitt bar vitni um natni og umhyggju og óteljandi handavinnustundir, útsaumur af öllum gerðum, þú elskaðir að læra nýjar aðferðir, prjónelsi á okkur krakkana, þig sjálfa og síðar barnabörnin að ógleymdum öllum fötunum sem þú saumaðir á mig. Ég þurfti ekki annað en opna pöntunarlista þess tíma og segja „mig langar í svona“ og það var saumað, fram á nótt, ef því var að skipta, en alltaf varstu í eldhúsinu þegar við vöknuðum að morgni tilbúin í nýjan dag. Garðurinn var engin undantekn- ing, rósirnar sunnan við hús og matjurtirnar á bak við hús og öll suðrænu blómin sem þú rækt- aðir í stofunni, allir smáköku- dunkarnir sem bakað var í fyrir jólin og þeir límdir aftur en við fundum ráð við því, en þegar þú merktir jólaísinn sem sviðasultu sást þú við okkur. Þú sast aldrei auðum höndum en varst um leið alltaf til staðar fyrir okkur, lagðir okkur lífsregl- urnar með hægð og hlýju. Þú kenndir mér margt, en margt ætlaði ég að læra síðar, því miður, ekki hvað síst í handa- vinnunni, ofurnákvæm, með millimetrana í augunum, ég erfði það ekki. Þið pabbi voruð alltaf eitt, stóðuð saman í blíðu og stríðu í sextíu og níu ár og í dag er bóndadagurinn og afmælisdagur pabba, þú ert sjálfsagt búin að sjóða hangikjötið og útbúa þorrahlaðborð í hádeginu í tilefni dagsins og þar sem þið hafið sameinast á ný trúi ég að þið grípið í spil eða fáið ykkur snún- ing. Elsku mamma, þú varst orðin þreytt og því hvíldinni fegin, ég kveð þig með broti úr ljóði eftir vin ykkar Bjarka Árnason. Dagur er liðinn og dögg skín á völl dularfull blámóða sveipast um fjöll lækurinn hjalandi hoppar á stein hjúfrar sig fugl á grein. Þreyttur frá deginum hraða ég ferð heim þig að finna svo glaður ég verð njótum við saman við náttgala klið næðis í kyrrð og frið. Takk fyrir allt mamma mín, þín Rósa. Elsku mamma, það voru for- réttindi að alast upp hjá foreldr- um eins og ykkur pabba. Við erum fjögur systkinin og ólumst upp við mikinn kærleik, virðingu og reglusemi. Þú varst lengst af heimavinn- andi og það má alveg segja að þú hafir svo sannarlega verið mið- punktur og hjarta heimilisins, vakandi og sofandi yfir prakk- arastrikum okkar. Oftar en ekki þurftir þú að ræða málin við okkur og ekki varstu vön að skipta skapi, held- ur voru hlutirnir leystir í róleg- heitum við eldhúsborðið. Bæði heimilið og heimilisfólk- ið bar þess vel merki hversu nat- in þú varst við heimilisstörfin og einstaklega flink hannyrðakona, myndir, púðar, teppi og margt fleira prýddi heimilið svo ekki sé minnst á allan fatnaðinn sem þú bæði saumaðir og prjónaðir á okkur systkinin og svo barna- börnin. Ég minnist þess er ég kom heim með Blazer-jakka keyptan í Karnabæ að þér fannst tilefni til að spretta honum upp og laga verksmiðjufráganginn. Iðulega kíktir þú á sauma- skapinn á fatnaði sem hafði verið keyptur og oftar en ekki þurfti að betrumbæta flíkina. Hafnargata 22 var svo sann- arlega griðastaður okkar fjöl- skyldunnar og vina þótt oft væri mikill gestagangur og kom þar enginn að tómum kofunum þar sem ömmusnúðar, soðið brauð, kleinur og kaffi virtust vera til í óendanlegu magni. Tímann nýttir þú vel. Frí- stundir notaðir þú mikið í handa- vinnu sem þú hafðir líf og yndi af og þó að þú gætir setið ein tím- unum saman við hannyrðir varstu líka mikil félagsvera og man ég þá sérstaklega eftir hlátrasköllum innan úr stofu þegar þið vinkonurnar voruð með saumaklúbba og ekki má nú gleyma megrunarklúbbnum Lín- unni! Þá fyrst var nú glatt á hjalla og mikið hlegið og gert að gamni sínu og hefur þú oft rifjað þessa tíma upp með mikilli gleði. Þú varst mikill náttúruunn- andi enda alin upp í sveit og hafðir þú sérlega gaman af því að rækta ýmiss konar jurtir, grænmeti og blóm, tína ber, fara í veiði og njóta þín í náttúrunni með pabba og okkur systkinun- um. Þið pabbi voruð aldrei upp- tekin af veraldlegum hlutum eða neinu slíku, þið virtust vera svo meðvituð um það, að þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta allt um hamingjuna, um- burðarlyndi og náungakærleik- ann og að allir væru alltaf að gera sitt besta, enda sáuð þið aldrei neitt nema gott í öllum. Ég er óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að hafa þig þetta lengi og að börnin okkar hafi fengið að kynnast þér svona vel og geta tekið þitt góða for- dæmi með sér út í lífið. Ég og fjölskylda mín kveðjum yndislega móður, tengdamóður og ömmu. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. (Davíð Stefánsson) Hvíl í friði. Ásbjörn Svavar Ásgeirsson. Elsku Sigrún amma kvaddi okkur þann 5. janúar sl. og var jarðsett í dag, 22. janúar, á af- mælisdegi Ásgeirs afa sem hefði orðið 96 ára. Það sem þið voruð yndisleg bæði tvö og nú veit ég að ykkur líður báðum vel að vera sam- einuð á ný. Alveg er ég viss um að afi hef- ur tekið á móti þér með opinn faðminn. Ég á eftir að sakna þess að geta knúsað þig. Amma gaf allra bestu knúsin enda fékk maður að minnsta kosti fjögur knús bæði þegar maður kom í heimsókn og svo líka þegar maður fór. Ég er svo þakklát fyrir allar minningarnar okkar saman og hvað þú varst alltaf dugleg og áhugasöm að fylgjast með okkur systkinunum, hvað við værum að gera og hvetja okkur áfram og hrósa, þú varst alltaf svo jákvæð. Ég er bæði heppin og þakklát fyrir að hafa verið skírð í höfuðið á þér og fá að bera nafn jafn yndislegrar manneskju og þú varst. Elsku amma, ég bið að heilsa afa, sakna ykkar alltaf. Langar að láta þetta kvæði fljóta með sem afi fór svo oft með fyrir okkur þegar við systk- inin vorum yngri. Gaman væri að gleðja hana ömmu og gleðibros á vanga hennar sjá, því amma hún er mamma hennar mömmu og mamma er það besta sem ég á. Í rökkrinu hún segir mér oft sögur, svæfir mig er dimma tekur nótt, syngur við mig kvæði fögur, þá sofna ég bæði sætt og vært og rótt. (Böðvar Guðmundsson) Hera Sigrún Ásbjarnardóttir. Takk elsku amma fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, alla ástina og umhyggjuna sem þú gafst mér, einnig vil ég þakka þér fyrir að vera alltaf til staðar þegar ég þurfti á þér að halda. Ekki hefur alltaf verið létt að hafa einn orm sem stoppaði aldr- ei, ég var inn um allt og upp um allt en sama þótt ég hafi brotið og bramlað þá spurðir þú bara á rólegum nótum „er ekki betra að vera í boltaleik úti?“ Þú hafðir óendanlega mikla þolinmæði gagnvart mér og ekki bara mér heldur líka þessum prjónum sem þú varst alltaf með í hendinni, enda á Ellen dóttir mín fullt af fötum sem þú prjónaðir á mig sem barn. En það síðasta sem þú prjónaðir og gafst mér var ponsjó, húfa og vettlingar sem mig langaði svo í, þetta var ekki léttasta uppskriftin sem þú hefur fengið enda skildi enginn hvern- ig ætti að gera þetta, sama hvernig þú spurðir enda raktirðu þetta líka rosalega oft upp, en þú gafst heldur aldrei upp og á end- anum fattaðir þú þennan snún- ing, en þegar kona var í heim- sókn hjá þér og spurði mig hver gerði svona fallegt handverk og ég svaraði stolt „amma“ og leit á þig þá sagðir þú „og hvað er ég gömul?“ og ég glotti og sagði kortér í 100 í stað þess að segja 85, og þú gast gast endalaust gert grín að þessu og hlegið með mér. Aldrei gleymi ég hvað þú naust þín vel í garðinum heima á Sigló, öll út í mold og skælbros- andi og hlæjandi, og afi ekkert skárri, blístrandi af gleði. Þegar ég var yngri og að háma í mig nammið sem afi átti, sagðir þú oft að ég væri ekkert voðalega ólík föður mínum því þegar hann var lítill þá þurftir þú að skrifa svið á ísboxin því annars var ísinn búinn fyrir Þor- láksmessu því þeir bræður voru ekki lengi að átta sig á því ef það var kominn ís í kistuna. Að vita að þú hafir ekki verið hrædd við hvíldina gaf mér auka kraft, kraft sem ég hélt að væri ekki til. Takk enn og aftur amma fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gert. Þú ert stjarnan mín bjarta. Ég elska þig og mun sakna þín. Þín nafna, Sigrún Andrea Gunnarsdóttir. Sigrún Ásbjarnardóttir Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, HAUKUR GUÐMANN GUNNARSSON endurskoðandi, lést þriðjudaginn 19. janúar á deild A2 Landspítala, Fossvogi. Útförin verður auglýst síðar. Elín J.G. Hafsteinsdóttir Anna S. Guðmundsdóttir Ingunn Hafdís Hauksdóttir Þórlindur Kjartansson Hafsteinn Gunnar Hauksson Daði Már Sigurðsson Anton Haukur Þórlindsson Elín Katrín Þórlindsdóttir og systkini hins látna Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖRÐUR Þ. ÞORMÓÐSSON tæknifræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 11. janúar. Útförin hefur farið fram. Steindór Harðarson Uki Nanna Harðardóttir Guðmundur B. Ólafsson Björn Harðarson barnabörn og langafabarn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRYNJÓLFUR H. MAGNÚSSON, Selá í Fnjóskadal, lést á heimili sínu föstudaginn 15. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 25. janúar klukkan 13.30. Jarðsett verður í Hálskirkjugarði. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt í lokuðum hóp. Hjartans þakkir fær starfsfólk almennrar göngudeildar lyflæknasviðs SAK og Heimahlynning SAK. Hulda Björg Kristjánsdóttir Magnús Brynjólfsson Marion Brynjolfsson Guðrún Brynjólfsdóttir Össur Hafþórsson Helgi Brynjólfsson Kristján Brynjólfsson Maxime Logi Brynjolfsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR MAGNÚSSON, kennari og leiðsögumaður, Látraströnd 18, Seltjarnarnesi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn laugardaginn 16. janúar, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjudaginn 26. janúar klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin. Streymi verður aðgengilegt á mbl.is/andlat. Gunnhildur Skaftadóttir Hulda Guðmundsdóttir Hilmar Þór Sigurðsson Magnús Guðmundsson Eygló Kúld Eiríksdóttir Íris Guðmundsdóttir Ólafur Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri JÓN VIÐAR ÞÓRISSON Kirkjuteigi 5, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 18. janúar. Útför fer fram fimmtudaginn 28. janúar klukkan 13.30. Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Lena Sigríður Hemmingsen Glenn Hemmingsen Íris Andrea Jónsdóttir og barnabörn Stefán G. Jónsson Jóhanna Bára Þórisdóttir Kristjana Þórisdóttir Jón G. Stefánsson Helgi Heiðar Stefánsson Sigurður Örn Stefánsson og makar Stefanía Auðbjörg Halldórsdóttir Þórunn Davíðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.