Morgunblaðið - 22.01.2021, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021
✝ Sigrún fæddistí Kambfelli í
Eyjafirði 18. októ-
ber 1927. Hún lést
5. janúar 2021 á
hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Hlíð á
Akureyri.
Sigrún var dóttir
hjónanna Ásbjarn-
ar Árnasonar, f.
1.maí 1880 á Mel-
um í Fnjóskadal, d.
12. apríl 1962, og Gunnlaugar
Gestsdóttur, f. 26. nóvember
1894 í Reykhúsum í Eyjafirði, d.
19. nóvember 1981.
Sigrún var sjöunda í röð tíu
systkina, alsystkini voru Hólm-
fríður, f. 13.2. 1915, d. 6.2. 1998,
Bára, f. 18.10. 1917, d. 14.3.
1998, þá Kristbjörg, f. 9.3. 1930,
d. 9.6. 2020, og yngstur var Val-
geir, f. 14.8. 1936, d. 5.9 2011.
Samfeðra voru Magðalena, f.
1.9. 1900, d. 11.3. 1987, Árni, f.
6.7. 1905, d. 29.5. 1985, Ing-
ólfur, f. 21.4. 1907, d. 26.7. 1993,
Hulda, f. 28.2. 1908, d. 10.5.
2003, Jóhannes, f. 26.10. 1911,
d. 30.8. 2005.
Sigrún giftist 18. júní 1946
Ásgeiri J. Björnssyni, kaup-
manni frá Siglufirði, f. 22.1.
1925, d. 24.4. 2015.
börn: 1) Jónína Gunnlaug, f.
17.2. 1949, gift Magnúsi Guð-
brandssyni, þau eiga fjögur
börn: Guðbrand, kvæntur Katr-
ínu Bryndísi Sigurjónsdóttur og
eiga þau þrjú börn og þrjú
barnabörn. Ásgeir Rúnar,
barnsmóðir Hulda Ósk Ómars-
dóttir, þau eiga tvö börn og tvö
barnabörn. Anna Júlía gift Sig-
urði Alfreðssyni þau eiga þrjú
börn og eitt barnabarn. Krist-
inn, barnsmóðir María Fjóla
Björnsdóttir og eiga þau þrjú
börn. 2) Gunnar Björn, f. 12.8.
1960, kvæntur Ellen Hrönn
Haraldsdóttur, þau eiga tvær
dætur: Sigrúnu Andreu, sam-
býlismaður Baldur Ingi Har-
aldsson og eiga þau eina dóttur.
Elínu Lilju, sambýlismaður
Elmar Baldursson, þau eiga tvo
syni. 3) Ásbjörn Svavar, f. 13.4.
1963, kvæntur Sigríði Sunnevu
Pálsdóttur, og eiga þau þrjú
börn: Hauk Hlíðar, sambýlis-
kona Birgitta Birgisdóttir. Heru
Sigrúnu og Fannar Pál. 4) Rósa
Ösp, f. 25. maí 1967, gift Unn-
steini Ingasyni og eiga þau tvö
börn: Önnu Karen, sambýlis-
maður Arnar Freyr Bjarnason,
og Ásgeir Inga, sambýliskona
Heiðbjört Einarsdóttir.
Sigrún verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag, 22. jan-
úar 2021, klukkan 13.30.
Streymt verður frá útför, stytt
slóð:
https://tinyurl.com/y6k47h4a
Virkan hlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Sigrún fór ung í
fóstur til Árna
bróður síns og
Maríu konu hans
sem þá ráku
kúabúið á Hóli í
Siglufirði. Þessi
dvöl reyndist Sig-
rúnu heillarík, en
þar fann hún sinn
lífsförunaut en Ás-
geir var þá ráðs-
maður á búinu. Þau
giftust 1946 og fljótlega þar á
eftir fluttu ungu hjónin í Eyja-
fjörðinn að Knarrarbergi þar
sem þau bjuggu í fimm ár. Það-
an fluttu þau aftur til Siglu-
fjarðar og byggðu sér hús á
Hafnargötu 22 þar sem þau
bjuggu samfellt í fimmtíu ár. Á
efri árum fluttu þau svo til Ak-
ureyrar.
Sigrún fór í Hússtjórnarskól-
ann á Hallormsstað og lærði
vefnað og aðra handavinnu,
sem alla tíð var hennar líf og
yndi. Hún sótti fjölda nám-
skeiða í handmennt og hafði un-
un af því að læra meira á því
sviði. Hún vann á Saumastof-
unni Salínu á Siglufirði í nokk-
ur ár auk þess að aðstoða Ás-
geir í versluninni.
Ásgeir og Sigrún eiga fjögur
„Í rökkri minninganna mun-
um við mætast á ný,“ Kahil Gi-
bran.
Þú varst sjöunda af tíu börn-
um afa, fimm systkinin talsvert
eldri og fimm alsystkinin. Þið
hélduð þétt saman, sérstaklega
þið þrjú yngstu, ferðuðust sam-
an, hélduð afmælin ykkar hvert
hjá öðru og hittust reglulega
þótt þið byggjuð ekki á sama
stað lengst af. Eftir að þið pabbi
fluttuð aftur til Akureyrar sáust
þið oftar, þá var glatt á hjalla og
ósjaldan gripið í spil og þar sem
þið voruð fimm skiptust þið á að
leggja ykkur.
Þú hafðir unun af því að vera
úti í náttúrunni, veiddir eins og
enginn væri morgundagurinn í
Miklavatni eða á bryggjunni í
Haganesvík, pabbi taldi það ekki
eftir sér að skutla þér í Fljótin,
þá leit hann við í Nýjabæ meðan
þú barðir vatnið. Á haustin fóruð
þið í berjamó, þú varst eldfljót
að tína, notaðir báðar hendur og
það var saftað, sultað og fryst.
Fimmtudagar voru fundar-
dagar, þá var oft glatt á hjalla á
Hafnargötunni þegar sauma-
klúbburinn eða Línuhópurinn
komu eða þú fórst út á kven-
félags- eða slysavarnafundi.
Heimilið þitt bar vitni um
natni og umhyggju og óteljandi
handavinnustundir, útsaumur af
öllum gerðum, þú elskaðir að
læra nýjar aðferðir, prjónelsi á
okkur krakkana, þig sjálfa og
síðar barnabörnin að ógleymdum
öllum fötunum sem þú saumaðir
á mig. Ég þurfti ekki annað en
opna pöntunarlista þess tíma og
segja „mig langar í svona“ og
það var saumað, fram á nótt, ef
því var að skipta, en alltaf varstu
í eldhúsinu þegar við vöknuðum
að morgni tilbúin í nýjan dag.
Garðurinn var engin undantekn-
ing, rósirnar sunnan við hús og
matjurtirnar á bak við hús og öll
suðrænu blómin sem þú rækt-
aðir í stofunni, allir smáköku-
dunkarnir sem bakað var í fyrir
jólin og þeir límdir aftur en við
fundum ráð við því, en þegar þú
merktir jólaísinn sem sviðasultu
sást þú við okkur.
Þú sast aldrei auðum höndum
en varst um leið alltaf til staðar
fyrir okkur, lagðir okkur lífsregl-
urnar með hægð og hlýju.
Þú kenndir mér margt, en
margt ætlaði ég að læra síðar,
því miður, ekki hvað síst í handa-
vinnunni, ofurnákvæm, með
millimetrana í augunum, ég erfði
það ekki.
Þið pabbi voruð alltaf eitt,
stóðuð saman í blíðu og stríðu í
sextíu og níu ár og í dag er
bóndadagurinn og afmælisdagur
pabba, þú ert sjálfsagt búin að
sjóða hangikjötið og útbúa
þorrahlaðborð í hádeginu í tilefni
dagsins og þar sem þið hafið
sameinast á ný trúi ég að þið
grípið í spil eða fáið ykkur snún-
ing.
Elsku mamma, þú varst orðin
þreytt og því hvíldinni fegin, ég
kveð þig með broti úr ljóði eftir
vin ykkar Bjarka Árnason.
Dagur er liðinn og dögg skín á völl
dularfull blámóða sveipast um fjöll
lækurinn hjalandi hoppar á stein
hjúfrar sig fugl á grein.
Þreyttur frá deginum hraða ég ferð
heim þig að finna svo glaður ég verð
njótum við saman við náttgala klið
næðis í kyrrð og frið.
Takk fyrir allt mamma mín,
þín
Rósa.
Elsku mamma, það voru for-
réttindi að alast upp hjá foreldr-
um eins og ykkur pabba.
Við erum fjögur systkinin og
ólumst upp við mikinn kærleik,
virðingu og reglusemi.
Þú varst lengst af heimavinn-
andi og það má alveg segja að þú
hafir svo sannarlega verið mið-
punktur og hjarta heimilisins,
vakandi og sofandi yfir prakk-
arastrikum okkar.
Oftar en ekki þurftir þú að
ræða málin við okkur og ekki
varstu vön að skipta skapi, held-
ur voru hlutirnir leystir í róleg-
heitum við eldhúsborðið.
Bæði heimilið og heimilisfólk-
ið bar þess vel merki hversu nat-
in þú varst við heimilisstörfin og
einstaklega flink hannyrðakona,
myndir, púðar, teppi og margt
fleira prýddi heimilið svo ekki sé
minnst á allan fatnaðinn sem þú
bæði saumaðir og prjónaðir á
okkur systkinin og svo barna-
börnin.
Ég minnist þess er ég kom
heim með Blazer-jakka keyptan í
Karnabæ að þér fannst tilefni til
að spretta honum upp og laga
verksmiðjufráganginn.
Iðulega kíktir þú á sauma-
skapinn á fatnaði sem hafði verið
keyptur og oftar en ekki þurfti
að betrumbæta flíkina.
Hafnargata 22 var svo sann-
arlega griðastaður okkar fjöl-
skyldunnar og vina þótt oft væri
mikill gestagangur og kom þar
enginn að tómum kofunum þar
sem ömmusnúðar, soðið brauð,
kleinur og kaffi virtust vera til í
óendanlegu magni.
Tímann nýttir þú vel. Frí-
stundir notaðir þú mikið í handa-
vinnu sem þú hafðir líf og yndi af
og þó að þú gætir setið ein tím-
unum saman við hannyrðir
varstu líka mikil félagsvera og
man ég þá sérstaklega eftir
hlátrasköllum innan úr stofu
þegar þið vinkonurnar voruð
með saumaklúbba og ekki má nú
gleyma megrunarklúbbnum Lín-
unni! Þá fyrst var nú glatt á
hjalla og mikið hlegið og gert að
gamni sínu og hefur þú oft rifjað
þessa tíma upp með mikilli gleði.
Þú varst mikill náttúruunn-
andi enda alin upp í sveit og
hafðir þú sérlega gaman af því
að rækta ýmiss konar jurtir,
grænmeti og blóm, tína ber, fara
í veiði og njóta þín í náttúrunni
með pabba og okkur systkinun-
um.
Þið pabbi voruð aldrei upp-
tekin af veraldlegum hlutum eða
neinu slíku, þið virtust vera svo
meðvituð um það, að þegar öllu
er á botninn hvolft þá snýst
þetta allt um hamingjuna, um-
burðarlyndi og náungakærleik-
ann og að allir væru alltaf að
gera sitt besta, enda sáuð þið
aldrei neitt nema gott í öllum.
Ég er óendanlega þakklátur
fyrir að hafa fengið að hafa þig
þetta lengi og að börnin okkar
hafi fengið að kynnast þér svona
vel og geta tekið þitt góða for-
dæmi með sér út í lífið.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
yndislega móður, tengdamóður
og ömmu.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
(Davíð Stefánsson)
Hvíl í friði.
Ásbjörn Svavar Ásgeirsson.
Elsku Sigrún amma kvaddi
okkur þann 5. janúar sl. og var
jarðsett í dag, 22. janúar, á af-
mælisdegi Ásgeirs afa sem hefði
orðið 96 ára.
Það sem þið voruð yndisleg
bæði tvö og nú veit ég að ykkur
líður báðum vel að vera sam-
einuð á ný.
Alveg er ég viss um að afi hef-
ur tekið á móti þér með opinn
faðminn.
Ég á eftir að sakna þess að
geta knúsað þig. Amma gaf allra
bestu knúsin enda fékk maður að
minnsta kosti fjögur knús bæði
þegar maður kom í heimsókn og
svo líka þegar maður fór.
Ég er svo þakklát fyrir allar
minningarnar okkar saman og
hvað þú varst alltaf dugleg og
áhugasöm að fylgjast með okkur
systkinunum, hvað við værum að
gera og hvetja okkur áfram og
hrósa, þú varst alltaf svo jákvæð.
Ég er bæði heppin og þakklát
fyrir að hafa verið skírð í höfuðið
á þér og fá að bera nafn jafn
yndislegrar manneskju og þú
varst.
Elsku amma, ég bið að heilsa
afa, sakna ykkar alltaf.
Langar að láta þetta kvæði
fljóta með sem afi fór svo oft
með fyrir okkur þegar við systk-
inin vorum yngri.
Gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá,
því amma hún er mamma hennar
mömmu
og mamma er það besta sem ég á.
Í rökkrinu hún segir mér oft sögur,
svæfir mig er dimma tekur nótt,
syngur við mig kvæði fögur,
þá sofna ég bæði sætt og vært og
rótt.
(Böðvar Guðmundsson)
Hera Sigrún Ásbjarnardóttir.
Takk elsku amma fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig, alla
ástina og umhyggjuna sem þú
gafst mér, einnig vil ég þakka
þér fyrir að vera alltaf til staðar
þegar ég þurfti á þér að halda.
Ekki hefur alltaf verið létt að
hafa einn orm sem stoppaði aldr-
ei, ég var inn um allt og upp um
allt en sama þótt ég hafi brotið
og bramlað þá spurðir þú bara á
rólegum nótum „er ekki betra að
vera í boltaleik úti?“ Þú hafðir
óendanlega mikla þolinmæði
gagnvart mér og ekki bara mér
heldur líka þessum prjónum sem
þú varst alltaf með í hendinni,
enda á Ellen dóttir mín fullt af
fötum sem þú prjónaðir á mig
sem barn. En það síðasta sem þú
prjónaðir og gafst mér var
ponsjó, húfa og vettlingar sem
mig langaði svo í, þetta var ekki
léttasta uppskriftin sem þú hefur
fengið enda skildi enginn hvern-
ig ætti að gera þetta, sama
hvernig þú spurðir enda raktirðu
þetta líka rosalega oft upp, en þú
gafst heldur aldrei upp og á end-
anum fattaðir þú þennan snún-
ing, en þegar kona var í heim-
sókn hjá þér og spurði mig hver
gerði svona fallegt handverk og
ég svaraði stolt „amma“ og leit á
þig þá sagðir þú „og hvað er ég
gömul?“ og ég glotti og sagði
kortér í 100 í stað þess að segja
85, og þú gast gast endalaust
gert grín að þessu og hlegið með
mér.
Aldrei gleymi ég hvað þú
naust þín vel í garðinum heima á
Sigló, öll út í mold og skælbros-
andi og hlæjandi, og afi ekkert
skárri, blístrandi af gleði.
Þegar ég var yngri og að
háma í mig nammið sem afi átti,
sagðir þú oft að ég væri ekkert
voðalega ólík föður mínum því
þegar hann var lítill þá þurftir
þú að skrifa svið á ísboxin því
annars var ísinn búinn fyrir Þor-
láksmessu því þeir bræður voru
ekki lengi að átta sig á því ef það
var kominn ís í kistuna.
Að vita að þú hafir ekki verið
hrædd við hvíldina gaf mér auka
kraft, kraft sem ég hélt að væri
ekki til. Takk enn og aftur amma
fyrir allt sem þú hefur kennt
mér og gert.
Þú ert stjarnan mín bjarta.
Ég elska þig og mun sakna þín.
Þín nafna,
Sigrún Andrea
Gunnarsdóttir.
Sigrún
Ásbjarnardóttir
Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
HAUKUR GUÐMANN GUNNARSSON
endurskoðandi,
lést þriðjudaginn 19. janúar á deild A2
Landspítala, Fossvogi.
Útförin verður auglýst síðar.
Elín J.G. Hafsteinsdóttir
Anna S. Guðmundsdóttir
Ingunn Hafdís Hauksdóttir Þórlindur Kjartansson
Hafsteinn Gunnar Hauksson Daði Már Sigurðsson
Anton Haukur Þórlindsson Elín Katrín Þórlindsdóttir
og systkini hins látna
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HÖRÐUR Þ. ÞORMÓÐSSON
tæknifræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 11. janúar.
Útförin hefur farið fram.
Steindór Harðarson Uki
Nanna Harðardóttir Guðmundur B. Ólafsson
Björn Harðarson
barnabörn og langafabarn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BRYNJÓLFUR H. MAGNÚSSON,
Selá í Fnjóskadal,
lést á heimili sínu föstudaginn 15. janúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 25. janúar klukkan 13.30.
Jarðsett verður í Hálskirkjugarði. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt
í lokuðum hóp. Hjartans þakkir fær starfsfólk almennrar
göngudeildar lyflæknasviðs SAK og Heimahlynning SAK.
Hulda Björg Kristjánsdóttir
Magnús Brynjólfsson Marion Brynjolfsson
Guðrún Brynjólfsdóttir Össur Hafþórsson
Helgi Brynjólfsson
Kristján Brynjólfsson
Maxime Logi Brynjolfsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON,
kennari og leiðsögumaður,
Látraströnd 18, Seltjarnarnesi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
laugardaginn 16. janúar, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju
þriðjudaginn 26. janúar klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin.
Streymi verður aðgengilegt á mbl.is/andlat.
Gunnhildur Skaftadóttir
Hulda Guðmundsdóttir Hilmar Þór Sigurðsson
Magnús Guðmundsson Eygló Kúld Eiríksdóttir
Íris Guðmundsdóttir Ólafur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
JÓN VIÐAR ÞÓRISSON
Kirkjuteigi 5, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
mánudaginn 18. janúar. Útför fer fram
fimmtudaginn 28. janúar klukkan 13.30.
Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánustu ættingjar og vinir
viðstaddir. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Lena Sigríður Hemmingsen Glenn Hemmingsen
Íris Andrea Jónsdóttir
og barnabörn
Stefán G. Jónsson
Jóhanna Bára Þórisdóttir
Kristjana Þórisdóttir
Jón G. Stefánsson
Helgi Heiðar Stefánsson
Sigurður Örn Stefánsson
og makar
Stefanía Auðbjörg Halldórsdóttir
Þórunn Davíðsdóttir