Morgunblaðið - 22.01.2021, Qupperneq 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Torfufell 26, Reykjavík, fnr. 205-3135 , þingl. eig. Jónas Rúnar
Sigfússon, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 26.
janúar nk. kl. 10:00.
Rjúpufell 15, Reykjavík, fnr. 205-3161 , þingl. eig. Jónas Rúnar
Sigfússon, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 26.
janúar nk. kl. 10:30.
Gaukshólar 2, Reykjavík, fnr. 204-8675 , þingl. eig. Margrét Rósa Ei-
narsdóttir, gerðarbeiðandi Samskip hf., þriðjudaginn 26. janúar nk.
kl. 11:00.
Rauðás 16, Reykjavík, fnr. 204-6285 , þingl. eig. Guðný Erla Fanndal,
gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf.,
Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild og Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 26.
janúar nk. kl. 11:30.
Njörvasund 34, Reykjavík, fnr. 202-0722 , þingl. eig. Rafn Rafnsson
og Sif Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður, Reykjavíkurborg,
TM hf. og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 26. janúar
nk. kl. 13:30.
Njörvasund 34, Reykjavík, fnr. 202-0723 , þingl. eig. Sif Si-
gurðardóttir og Rafn Rafnsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf.,
Landsbankinn hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg
og TM hf., þriðjudaginn 26. janúar nk. kl. 13:40.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
21 janúar 2021
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Jórunnarstaðir, Eyjafjarðarsveit, fnr. 215-9023 , þingl. eig. Magnús
Þór Magnússon og Elmar Þór Magnússon, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 26. janúar nk. kl. 14:10.
Ásgarður lóð, Svalbarðsstrandarhr, fnr. 216-0123 , þingl. eig.
Húseignir ehf., gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., þriðjudaginn 26. janúar nk. kl. 11:00.
Melasíða 2, Akureyri, fnr. 214-9056 , þingl. eig. Verdicta slf., gerðar-
beiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Melasíða 2 a-j,húsfélag,
þriðjudaginn 26. janúar nk. kl. 10:10.
Litlahlíð, Eyjafjarðarsveit, fnr. 215-9941 , þingl. eig. Anna Hafdís
Theodórsdóttir og Friðrik Sigtryggur Bjarnason, gerðarbeiðandi
Arion banki hf., miðvikudaginn 27. janúar nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
21. janúar 2021
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Zumba Gold kl.10:30,
NÝTT NÁMSKEIÐ BYRJAR Í DAG - Kaffi kl.14:30 - Vegna
fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafnframt er
grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með
eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar og skráning
í síma 411-2701 & 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:15-15.30. Heitt
á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í
viðburði eða hópa: 411-2600.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00.
Dansleikfimi í sjálandsskóla kl. 16:00 og 16:45. Áfram skal gæta að
handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra athugið grímuskylda í
Jónshúsi.
Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8:30 og
9:30. Bingó á miðvikudögum kl. 13:00. Handverk á miðvikudögum kl.
13:00. Píla á fimmtudögum kl. 13:00. Línudans á föstudögum kl. 10:00
og 11:00. Grýmuskilda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt
að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna
- opin vinnustofa 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Prjónakaffi kl. 13:15 í
salnum, við sköpum notalega stemningu við snarkandi arin-eld. Kaffi-
salan ,,Kaffi og krásir er opin alla virka daga frá kl. 14:30 - 15:30.
Seltjarnarnes Kaffikrókurinn er eingöngu opinn fyrir íbúa
Skólabrautar. Vonandi styttist í að almenn dagskrá geti farið af stað
fyrir alla. Þangað til, sýnum þolinmæði og förum að reglum.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
með
morgun-
nu
Smá- og raðauglýsingar
Mig langar til að
skrifa nokkur orð
um vin minn Ásgeir
Júlíus Ásgeirsson,
en okkar kynni hófust þegar ég
fór að ástunda búddisma fyrir
tæpum fjörutíu árum. Ásgeir var
þá í forsvari fyrir búddistasam-
tökin á Íslandi. Við vorum ekki
mörg sem ástunduðum búddisma
á Íslandi á þeim tíma. Öflugt
starf og félagslíf voru engu að
síður einkennandi fyrir starfsem-
ina og þótt sum okkar hafi helst
úr lestinni með árunum og horfið
úr starfi samtakanna hefur vin-
áttan og kunningsskapurinn
haldist alla tíð.
Ásgeir, eða Ásgeir leiðtogi
eins og hann var oft kallaður, var
bæði hrifnæmur og listrænn.
Milli þess sem hann stóð fyrir
fræðslu á fundum las hann gjarn-
an upp ljóð, einkum eftir Einar
Benediktsson, og gítarinn var
aldrei langt undan. Ásgeir var
lærður prentsmiður og vann
Ásgeir Júlíus
Ásgeirsson
✝ Ásgeir JúlíusÁsgeirsson
fæddist 5. júní
1951. Hann lést 5.
september 2019.
Útför hans fór
fram 2. október
2019.
lengi við sitt fag en
sneri sér svo að gerð
skemmtilegra list-
muna úr tré sem
hann varð seinna
þekktur fyrir.
Óhætt er að segja
að mikið listfengi sé
í ætt Ásgeirs. Faðir
hans Ásgeir Júl-
íusson var auglýs-
ingateiknari og
myndlistarmaður
og systir hans Ingibjörg er lista-
kona. Þá lagði Helgi Valur, sonur
Ásgeirs og Pálínu Gestrúnar Sig-
urjónsdóttur, fyrir sig tónlist og
elsti sonurinn Ásgeir Jón, sem
Ásgeir eignaðist með Ólafíu
Jónsdóttur, er myndlistarmaður,
en hann bjó hjá okkur fjölskyld-
unni til skamms tíma. Ég er svo
lánsöm að hafa daglega fyrir aug-
unum verk eftir bæði Ásgeir Jón
og Ingibjörgu uppi á vegg heima
hjá mér.
Það var yndislegt að fá að
kynnast ástvinum Ásgeirs. Móðir
Ásgeirs, Guðrún (Rúna) Guð-
mundsdóttir, varð góð vinkona
okkar hjóna. Hún bjó í svörtu fal-
legu húsi við Vesturgötu í Hafn-
arfirði. Það stakk svolítið í stúf
við önnur hús þarna, dálítið jap-
anskt fannst mér alltaf. Það
mætti kannski segja að það hafi
verið eins konar fyrirboði því síð-
ar gekk Ásgeir að eiga Mayumi
Yamada frá Japan. Við áttum
margar góðar stundir saman og
mér er minnisstætt þegar þau
hjónin og börn þeirra Trausti og
Ingunn fengu einu sinni að gista
hjá okkur fjölskyldunni í nokkrar
nætur áður en þau ferðuðust til
Japan. Sonurinn á heimilinu tók
sig þá til og eldaði kakósúpu
handa krökkunum en þetta er ef-
laust í fyrsta og eina skiptið sem
hann hefur látið að sér kveða eld-
húsinu. Nú eru þessi sömu börn
orðin fullorðin. Svona líður tím-
inn.
Seinna kynntist Ásgeir Helgu
Jónsdóttur. Þau bjuggu saman í
Grindavík um tíma en fluttu fyrir
nokkrum árum til Svíþjóðar þar
sem þau keyptu hús nálægt
æskuvini Ásgeirs, Bjarna, og
Regínu konu hans. Þau höfðu
bæði búið í Svíþjóð áður en þau
kynntust og skömmu áður en þau
fluttu út komu þau við til að
kveðja okkur.
Ekki hvarflaði þá að mér að
þetta yrði í síðasta sinn sem ég
berði Ásgeir augum.
Kæri Ásgeir, takk fyrir sam-
fylgdina. Við vorum ekki alltaf
sammála en við vorum sannar-
lega vinir gegnum súrt og sætt og
ég met mikils allt það sem þú
kenndir mér í lífinu. Árin í sam-
tökunum voru einstakur skóli.
Ég votta Helgu, börnum Ás-
geirs, barnabörnum, Pálu, Ma-
yumi og öðrum aðstandendum og
vinum samúð mína.
Anna Leósdóttir.
✝ Elín Stella Sig-urðardóttir
fæddist í Kópavogi
29. apríl 1952. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands á Selfossi 10.
janúar 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Magnús Jónsson, f.
23. september
1923, d. 13. ágúst
1988, og Pálína Jóhannesdóttir,
f. 2. apríl 1925, d. 13. maí 2013.
Stella var þriðja í röð tíu systk-
ina en hin eru: Jón Haukur, f.
1949, Benedikt Tryggvi, f.
1951, Erla Sigurlín, f. 1955, d.
1957, Jóhannes Ómar, f. 1956,
d. 2018, Sölvi Ellert, f. 1958,
Ása Líney, f. 1959, d. 2011,
Helgi Guðmundur, f. 1960, Ein-
ar Már, f. 1965, og Guðrún
Fanney, f. 1966.
Eiginmaður Stellu er Helgi
arfirði. Börn þeirra eru: Theo-
dór Elvis, f. 2010, og Ólafur
Flóki, f. 2013.
Stella ólst upp í Kópavogi en
flutti til Reykjavíkur þegar hún
hóf nám í hárgreiðslu við Iðn-
skólann í Reykjavík. Vann hún
við fagið í nokkur ár eftir út-
skrift áður en hún hóf störf hjá
Sparisjóði Kópavogs. Hún starf-
aði hjá bankanum meirihluta
starfsævinnar, fylgdi honum í
gegnum ýmsar breytingar og
lauk starfsferlinum sem þjón-
ustufulltrúi hjá Íslandsbanka.
Stella og Helgi kynntust árið
1972 og stofnuðu heimili á
Þórsgötu í Reykjavík. Þau
fluttu í Kópavoginn árið 1976
þar sem þau bjuggu til ársins
2018. Þá festu þau kaup á rað-
húsi á Selfossi og færðu sig
þannig nær sumarbústaðnum
sínum í Haukadal þar sem þau
eyddu miklum tíma.
Útför Stellu fer fram frá Sel-
fosskirkju 22. janúar 2021
klukkan 14. Steymt verður frá
útför:
https://promynd.is/elinstella
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Hauksson, f. 19.
september 1952.
Þau eignuðust þrjú
börn saman en þau
eru: 1) Erla Hlín, f.
1975, í sambúð
með Sveini Guð-
mundssyni, f. 1982.
Þau eru búsett í
Kópavogi. Börn
Erlu eru: Sunna
Hlín, f. 2000, og
Orri Þór, f. 2004.
Barn Sveins er Guðmundur, f.
2005. 2) Sigurður Heiðar, f.
1978, í sambúð með Söru Jóns-
dóttur, f. 1977. Þau eru búsett í
Danmörku. Börn þeirra eru:
Patrik Nói, f. 2008, og Elva Ka-
milla, f. 2010. 3) Sigrún Ella, f.
1989, í sambúð með Finnboga
Jökli Péturssyni, f. 1988. Þau
eru búsett í Reykjavík. Sonur
Helga er Ólafur Daði, f. 1982, í
sambúð með Olgu Möller, f.
1988. Þau eru búsett í Hafn-
Steinn við hafið.
Stormur. Brim.
Syngjandi steinn.
Og síðan þögnin.
(Hjörtur Pálsson)
Þetta stutta ljóð kom í huga
minn eftir að sorgleg tíðindi um
lát Elínar Stellu Sigurðardótt-
ur, mágkonu minnar, bárust
mér.
Í ljóðinu les ég harminn,
átökin, vonina og höggið sem
hún og nánustu fjölskyldumeð-
limir hafa þurft að upplifa við
veikindi sem stóðu skamma
stund. Stellu kynntist ég þegar
Ása Líney, systir hennar,
kynnti mig fyrir henni fyrst
allra í fjölskyldu þeirra fyrir
rúmum 40 árum. Nú eru þær
systur, sem voru svo nánar, lík-
lega farnar að taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið fyrir
tæpum 10 árum er Ása féll frá
og Jóhannes bróðir þeirra verð-
ur áreiðanlega með þeim en
hann kvaddi síðari hluta árs
2018.
Stella var mjög opin og fé-
lagslynd. Hún passaði vel upp á
tengsl við fjölskyldu sína og
ættmenni og var, má segja, í
forsvari fyrir sinn ættlegg þeg-
ar kom að skipulagi ættarmóta
í föður- og móðurlegg. Stella
tilheyrði stórum systkinahópi
sem hittist um árabil í skötu á
Þorláksmessu, í jólaboðum, af-
mælum og við önnur hátíðleg
tilefni.
Skötuboðin voru í fyrstu á
heimili foreldranna en þegar
því lauk opnuðu Stella og Helgi
heimili sitt fyrir skötuveisluna.
Það var nú ekki alveg sjálfgefið
að hver sem er væri tilbúinn til
þess, ilmsins vegna.
Minnisstæðar eru mér jeppa-
ferðir okkar Stellu, Helga og
Ásu sem við fórum í, meðal
annars um Vestfirði, Austur-
land og vítt og breitt um fjöll
og firnindi. Stundum var látið
reyna á farartækin, hóflega þó,
með fyllstu aðgát enda komum
við alltaf án áfalla úr okkar
ferðum.
Þegar haldið var á svæði á
afréttum Rangárvalla- og Ár-
nessýslna kom sér vel í upphafi
og lok þeirra ferða að fá að
halda til á sumarbústaðalandi
Helga og Stellu í Haukadal
vestan undan Bjólfelli þar sem
þau byggðu sér sumarbústað í
gróðurvin í miðri uppblásinni
malarsléttu. Allt var þar gert af
vandvirkni og nákvæmni, hægt
og bítandi, og náttúran látin
njóta alls vafa í hverju sem var
gert.
Þeim var umhugað um að
hlúa að þeim viðkvæma gróðri
sem þar var og það hefur borið
góðan árangur. Um verslunar-
mannahelgar stóðu þau fyrir
fjölskyldumóti í Haukadal sem
sló út aðrar yfirauglýstar úti-
samkomur víða um land því að í
Paradísinni var allt sem þurfti,
söngur, gítar, varðeldur, grillið,
gleði og gaman.
Stella og Helgi fluttu fyrir
skömmu úr Kópavogi í Akra-
land á Selfossi. Þar með stytt-
ist leiðin í Haukadalinn, sælu-
staðinn.
Það er sárt til þess að hugsa
að þau hafi ekki fengið lengri
tíma saman til að njóta lífsins á
þeim fallega stað eins samrýmd
og þau voru í öllu því sem þau
gerðu.
Í lok ferðar þakka ég Stellu
fyrir allar samverustundirnar.
Helga, börnum og fjölskyldum
votta ég mína dýpstu samúð.
Þorgrímur Óli Sigurðsson.
Elín Stella
Sigurðardóttir