Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021
ÚKRAÍNA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Ragnar Sig-
urðsson er mættur til Úkraínu þar
sem hann vonast til þess að núll-
stilla sig eftir erfitt ár í Danmörku.
Miðvörðurinn, sem er 34 ára
gamall, skrifaði undir samning sem
gildir út tímabilið við úrvalsdeild-
arlið Rukh Vynnyky frá borginni
Lviv en liðið er í tólfta og þriðja
neðsta sæti deildarinnar með 9 stig,
stigi frá fallsæti.
Ragnar kemur til Rukh Vynnyky
frá FC Kaupmannahöfn en varn-
armaðurinn á að baki farsælan at-
vinnumannaferil í Svíþjóð, Dan-
mörku, Rússlandi og Englandi en
hann hélt út í atvinnumennsku árið
2007 frá uppeldisfélagi sínu Fylki.
„Mér líst virkilega vel á þessi
skipti til Úkraínu þar sem ég þekki
þjálfarann Ivan Fedyk mjög vel
eftir að hafa unnið með honum hjá
Krasnodar í Rússlandi á sínum
tíma,“ sagði Ragnar í samtali við
Morgunblaðið en Fedyk var aðstoð-
arþjálfari Krasnodar þegar Ragnar
lék með liðinu frá 2014 til 2016.
„Það var hann sem fékk mig
hingað og það hefði í raun aldrei
komið til greina hjá mér að fara til
Úkraínu ef hann væri ekki að þjálfa
hérna. Hann kom liðinu upp í efstu
deild á síðasta vetur og þegar þú
ert nýliði í efstu deild er markmiðið
fyrst og fremst að halda sæti sínu í
deildinni. Mér fannst það ótrúlega
skemmtileg áskorun að koma hing-
að og hjálpa honum og liðinu í því.
Ég er búinn að mæta á nokkrar æf-
ingar hjá félaginu og það eru miklir
hæfileikar í leikmannahópnum.
Strákarnir hérna eru mjög tekn-
ískir og ég er virkilega spenntur
fyrir framhaldinu.
Klúbburinn vonast til þess að
geta nýtt þá reynslu sem ég hef
inni á vellinum sjálfum en maður er
kannski ekki að fara bregða sér í
eitthvert sérstakt leiðtogahlutverk í
klefanum sjálfum þar sem ég tala
ekki tungumálið. Persónulega hef
ég aldrei litið á sjálfan mig sem
einhvern svakalegan leiðtoga í klef-
anum enda ekki eitthvað sem ég
hef pælt mikið í í gegnum tíðina.
Fyrir mér hefur þetta alltaf bara
snúist um það að skila sínu á vell-
inum og ég er kominn hingað til
Úkraínu til þess að gera akkúrat
það,“ bætti Ragnar við.
Náði aldrei neinum takti
Ragnar, sem lék með FCK frá
2011 til 2014, sneri aftur til félags-
ins í janúar á síðasta ári en kom að-
eins við sögu í fjórum leikjum með
liðinu í öllum keppnum á leiktíðinni.
„Það fór ekkert eins og ég hafði
hugsað mér eða vonast eftir hjá FC
Kaupmannahöfn. Ég var ekki í
neitt svakalega góðu formi þegar
ég kom til Kaupmannahafnar og
strax í fyrstu æfingaferðinni tóku
sig upp einhver smávægileg meiðsli
hjá mér. Svo var öllu skellt í lás í
Rússlandi þar sem konan mín var
kasólétt og hún sat því föst í
Moskvu. Hún mátti ekki einu sinni
heimsækja móður sína í Volgograd
og það var allt lokað í Danmörku
líka. Einhvern veginn tókst mér
samt að koma henni til Íslands þar
sem fjölskylda mín og vinir gátu
stutt við bakið á henni. Ég var
virkilega stressaður yfir þessu öllu
saman og missti til að mynda af
fæðingu dóttur minnar sem bæði
tók á og sat í mér.
Ég sneri svo aftur í liðið þegar
ég var orðinn heill heilsu og fékk
sem dæmi tækifæri gegn Celtic í
Evrópudeildinni en meiddist svo
strax aftur. Ég náði einhvern veg-
inn aldrei upp neinum takti né að
byggja mig almennilega upp. Á
sama tíma hef ég alltaf á mínum
knattspyrnuferli getað spilað bara
heilar 90 mínútur, líka eftir gott
sumarfrí eða hlé, þannig að ald-
urinn er greinilega aðeins farinn að
segja til sín hjá manni. Þegar allt
kemur til alls er líka erfitt að vera
mótiveraður þegar það er ekkert
nema vesen í gangi í kringum mann
og ég einfaldlega hugsaði ekki
nægilega vel um bæði líkamann og
andlegu hliðina.“
Dýrkaður í Danmörku
Ragnar er í guðatölu hjá stuðn-
ingsmönnum FCK og felldu margir
þeirra tár þegar Ragnar yfirgaf lið-
ið í vikunni.
„Það er frábært þegar maður
finnur fyrir svona miklum kærleika
frá liðinu og stuðningsmönnunum
sem maður elskar. Þegar ég var
þarna á mínum yngri árum þá spil-
aði ég fótbolta af gríðarlega mikilli
Ekkert gaman að vera
bara Lalli varamaður
Ragnar Sigurðsson er kominn til Úkraínu og hyggst hjálpa ungu liði Rukh
Vynnyky að halda sér í efstu deild Skemmtileg áskorun að aðstoða gamlan
félaga Tilbúinn í slaginn ef landsliðsþjálfararnir vilja hafa hann áfram
Ragnar Sigurðsson er 34 ára gamall og lék með meistaraflokki Fylkis
til 2006.
Hann lék með sænska liðinu Gautaborg frá 2007 til 2011 og varð
sænskur meistari 2007 og bikarmeistari 2008.
Hann lék með FC Köbenhavn í Danmörku frá 2011 til ársloka 2013 og
varð danskur meistari 2013 og bikarmeistari 2012.
Hann lék með Krasnodar í Rússlandi frá 2014 til 2016.
Hann lék með Fulham í ensku B-deildinni 2016-2017.
Hann lék með Rubin Kazan í Rússlandi 2017-2018.
Hann lék með Rostov í Rússlandi 2018 til 2019.
Hann lék með FC Köbenhavn á ný árið 2020.
Hann er leikmaður Rukh Vynnyky í Úkraínu til sumarsins 2021.
Ragnar er næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands með 97 landsleiki.
Ragnar hefur leikið 374 deildaleiki á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku,
Rússlandi og Englandi á ferlinum.
Ragnar er leikjahæsti Íslendingurinn í rússnesku úrvalsdeildinni með
120 leiki.
Ragnar Sigurðsson
England
Liverpool – Burnley ................................ 0:1
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
hjá Burnley á 65. mínútu.
Staðan:
Manch. Utd 19 12 4 3 36:25 40
Manch. City 18 11 5 2 31:13 38
Leicester 19 12 2 5 35:21 38
Liverpool 19 9 7 3 37:22 34
Tottenham 18 9 6 3 33:17 33
Everton 17 10 2 5 28:21 32
West Ham 19 9 5 5 27:22 32
Chelsea 19 8 5 6 33:23 29
Southampton 18 8 5 5 26:21 29
Arsenal 19 8 3 8 23:19 27
Aston Villa 16 8 2 6 29:18 26
Leeds 18 7 2 9 30:34 23
Crystal Palace 19 6 5 8 22:33 23
Wolves 19 6 4 9 21:29 22
Newcastle 18 5 4 9 18:30 19
Burnley 18 5 4 9 10:22 19
Brighton 19 3 8 8 22:29 17
Fulham 18 2 6 10 15:27 12
WBA 19 2 5 12 15:43 11
Sheffield Utd 19 1 2 16 10:32 5
Spánn
Valencia – Osasuna................................... 1:1
Eibar – Atlético Madrid........................... 1:2
Staða efstu liða:
Atlético Madrid 17 14 2 1 33:7 44
Real Madrid 18 11 4 3 30:15 37
Barcelona 18 10 4 4 37:17 34
Villarreal 19 8 9 2 28:19 33
Sevilla 18 10 3 5 23:16 33
Real Sociedad 19 8 6 5 29:16 30
Granada 19 8 4 7 23:31 28
Real Betis 19 8 2 9 24:32 26
HM karla í Egyptalandi
MILLIRIÐILL 1:
Úrúgvæ – Pólland................................. 16:30
Ungverjaland – Brasilía....................... 29:23
Spánn – Þýskaland.............................. 32:28
Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Staðan:
Ungverjaland 3 3 0 0 102:69 6
Spánn 3 2 1 0 88:83 5
Pólland 3 2 0 1 89:66 4
Þýskaland 3 1 0 2 99:75 2
Brasilía 3 0 1 2 75:91 1
Úrúgvæ 3 0 0 3 48:117 0
MILLIRIÐILL 2:
Japan – Argentína............................... 24:28
Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
Króatía – Barein.................................. 28:18
Halldór J. Sigfússon þjálfar Barein.
Danmörk – Katar ................................. 32:23
Staðan:
Danmörk 3 3 0 0 97:63 6
Króatía 3 2 1 0 83:71 5
Argentína 3 2 0 1 72:76 4
Katar 3 1 0 2 78:87 2
Japan 3 0 1 2 82:88 1
Barein 3 0 0 3 59:86 0
Forsetabikarinn, 1. riðill:
Angóla – Kongó .................................... 31:32
Grænhöfðaeyjar – Túnis........................ 0:10
Leikir í dag:
14.30 Sviss – Portúgal ............................. M3
14.30 Norður-Makedónía – Rússland .... M4
14.30 Marokkó – Suður-Kórea ................ F2
17.00 Ísland – Frakkland ........................ M3
17.00 Egyptaland – Hvíta-Rússland ...... M4
17.00 Austurríki – Síle.............................. F2
19.30 Noregur – Alsír .............................. M3
19.30 Slóvenía – Svíþjóð .......................... M4
Dominos-deild karla
ÍR – Þór Ak ......................................... 105:90
Grindavík – Haukar ............................. 82:75
KR – Höttur...................................... 113:108
Tindastóll – Valur................................. 71:77
Staðan:
Grindavík 4 4 0 396:366 8
Keflavík 3 3 0 292:237 6
Stjarnan 3 3 0 274:239 6
ÍR 4 3 1 387:356 6
Njarðvík 3 2 1 285:274 4
KR 4 2 2 374:375 4
Valur 4 2 2 330:332 4
Þór Þ. 3 1 2 284:306 2
Tindastóll 4 1 3 365:373 2
Haukar 4 1 3 335:355 2
Þór Ak. 4 0 4 352:404 0
Höttur 4 0 4 359:416 0
1. deild karla
Fjölnir – Álftanes ................................. 71:67
Evrópudeildin
Lyon-Villeurbanne – Valencia........... 90:77
Martin Hermannsson skoraði 9 stig fyrir
Valencia og átti 7 stoðsendingar en hann
lék í 27 mínútur.
NBA-deildin
Cleveland – Brooklyn .............. (frl.) 147:135
Indiana – Dallas................................ 112:124
Philadelphia – Boston ...................... 117:109
Atlanta – Detroit...................... (frl.) 123:115
Toronto – Miami ............................... 102:111
Minnesota – Orlando............................ 96:97
Houston – Phoenix ........................... 103:109
Golden State – San Antonio............... 121:99
LA Clippers – Sacramento................ 115:96
KÖRFUBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Grindvíkingar hafa ekki látið það
áfall að missa landsliðsmanninn
Sigtrygg Arnar Björnsson í at-
vinnumennsku rétt áður en Ís-
landsmótið hófst aftur fyrr í þess-
um mánuði slá sig út af laginu.
Þeir eru efstir í Dominos-deild
karla með átta stig eftir fyrstu
fjóra leikina og innbyrtu fjórða
sigurinn í gærkvöld þegar Hauk-
ar komu í heimsókn suður með
sjó, 82:75. Þrír sigrar eru í höfn á
einni viku eftir að keppni fór í
gang á ný og Grindvíkingar hafa
með þeim sent skýr skilaboð um
að þeir ætli sér að vera með í bar-
áttunni í vetur.
Kristinn Pálsson tryggði sig-
urinn með þriggja stiga skoti rétt
fyrir leikslok þegar hann kom
Grindavík í 80:75. Hann og eist-
neski framherjinn Joonas Järve-
läinen voru atkvæðamestir í lið-
inu með 20 stig hvor og Dagur
Kár Jónsson skoraði 17. Hjá
Haukum var Breki Gylfason með
16 stig og 10 fráköst og Brian
Fitzpatrick 15 stig og 10 fráköst.
KR í vandræðum með Hött
KR lenti í miklum vandræðum
með nýliða Hattar í Vesturbænum
og var undir lengi vel en náði að
knýja fram sigur í lokin, 113:108.
Annar sigur KR í röð eftir tvö töp
í byrjun móts en nýliðarnir frá Eg-
ilsstöðum eru áfram án stiga.
„Í fyrri hálfleik áttu KR-ingar í
erfiðleikum með varnarleik Hattar
og náði til að mynda Ty Sabin ein-
ungis að skora 7 stig í fyrri hálf-
leiknum. Í síðari hálfleik var allt
annað að sjá til KR-inga og mun-
aði þar miklu um að losnaði meira
um Sabin í sóknarleik liðsins, sem
skoraði að lokum 29 stig í leikn-
um,“ skrifaði Gunnar Egill Daní-
elsson m.a. um leikinn á mbl.is.
Matthías Orri Sigurðarson
skoraði 23 stig fyrir KR og Brynj-
ar Þór Björnsson 19. Hjá Hetti
var Michael Mallroy með 29 stig
og Sigurður Gunnar Þorsteinsson
22.
ÍR vann sannfærandi sigur á
Þór frá Akureyri eftir flottan síð-
ari hálfleik. Staðan var 51:48 fyrir
Breiðhyltinga í hálfleik en þeir
stungu af í þriðja leikhluta og
lokatölur urðu 105:90. Þriðji sigur
þeirra en Akureyringar eru áfram
án stiga og erfiður vetur fram und-
an hjá þeim.
Everage Lee Richardson skor-
aði 28 stig fyrir ÍR, Collin Pryor
21, Sigvaldi Eggertsson var með
19 stig og 9 fráköst og Evan Sing-
letary skoraði 18 stig.
Dedrick Deon Basile skoraði 25
stig fyrir Þór og Ivan Aurrecoec-
hea var með 24 stig og 17 fráköst.
Kolbeinn Fannar Gíslason skoraði
16 stig.
Jón Arnór Stefánsson og
Kristófer Acox eru greinilega að
koma Valsmönnum á hærri stall en
þeir hafa verið á um árabil. Hlíð-
arendaliðið vann góðan sigur á
Tindastóli á Sauðárkróki í gær-
kvöld, 77:71, þar sem KR-ingarnir
fyrrverandi skoruðu tæpan helm-
ing stiganna, Kristófer 18 og Jón
Arnór 17.
Jaka Brodnik skoraði 16 stig
fyrir Tindastól og Viðar Ágústs-
son 15 en Sauðkrækingar hafa
mátt þola þrjá ósigra í fyrstu fjór-
um umferðunum, tvo þeirra á
heimavelli.
Fjórir sigrar í fjórum leikjum
Valsmenn sigruðu á Sauðárkróki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Liðsauki Tyler Sabin hefur reynst KR-ingum drjúgur og hér sækir hann að
körfu Hattarmanna í leiknum í Vesturbænum í gærkvöld.
Skýr skilaboð frá Grindavík