Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 35

Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 35
ástríðu og það var eitthvað sem stuðningsmennirnir kunnu að meta. Stuðningsmenn elska leikmenn sem eru tilbúnir að gefa allt sitt í hlut- ina og þeir sáu hversu mikið ég var tilbúinn að fórna mér fyrir liðið. Það er held ég fyrst og fremst ástæðan fyrir því að ég er hátt skrifaður hjá þeim. Eins þá rakst maður mjög reglu- lega á stuðningsmennina á alls- konar stuðningsmannasamkomum og ég var alltaf opinn og tilbúinn að tala við þá. Nokkrir úr þessum hópi eru góðir vinir mínir í dag. Ég var líka duglegur að mæta á leiki með liðinu þegar að ég var staddur í Kaupmannahöfn, eftir að ég yfirgaf félagið, og ég sat þá bara með hörðustu stuðningsmönnunum. Ég held að almennt séð þá fíli stuðn- ingsmenn knattspyrnuliða það þeg- ar maður gefur af sér og sýnir þessa mannlegu hlið á sér.“ Horfir sáttur til baka Ragnar verður 35 ára gamall í júní en óvíst er hvað tekur við hjá honum þegar samningur hans renn- ur út í Úkraínu næsta sumar. „Þegar maður var yngri var mað- ur alltaf að reyna að komast í hærri gæðaflokk og reyna að sanna sig út um allt. Þegar ég horfi til baka náði ég nánast að gera allt sem mig dreymdi um á mínum fótboltaferli. Ég hef ekki það mikið að sanna lengur og ef ég ætlaði mér að flytja núna til Kína eða Bandaríkjanna þyrfti tilboðið að vera ansi gott. Ég á ekki mörg ár eftir í boltanum og ég er meira að hugsa um að njóta mín núna og hafa gaman af því sem ég er að gera. Ég þurfti að yfirgefa FCK því ég sá það fljótlega í janúar að ég fengi ekki mörg tækifæri með liðinu á nýju ári. Það var einhvern veginn allt að breytast hjá FCK en á sama tíma vissi ég, þegar ég samdi í Kaupmannahöfn í janúar á síðasta ári, að ég myndi ekki spila alla leiki með liðinu. Ég var samt alveg tilbúinn að vera hluti af hópnum, vitandi það að ég myndi fá ein- hverja leiki inn á milli, en þegar ég áttaði mig á því að ég yrði bara Lalli varamaður þarna út tímabilið og ætti aldrei möguleika á að spila þá var ekkert gaman að þessu leng- ur. Þú vilt finna það sem knatt- spyrnumaður að þú sért með ein- hvern tilgang og þar sem eru not fyrir þig. Ég vissi að ég myndi fá að spila í Úkraínu og ég vildi fá að finna fyrir tilgangi aftur. Eins þá fannst mér þetta gott tækifæri fyr- ir sjálfan mig til þess að aðeins núllstilla mig og byrja upp á nýtt ef svo má segja þar sem síðasta ár hefur verið erfitt.“ Varð þreyttur á landsliðinu Miðvörðurinn er næstleikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins frá upphafi með 97 A-landsleiki en hann er spenntur fyrir komandi tímum með nýjum þjálfurum lands- liðsins. „Það kom alveg tími hjá mér þar sem ég var orðinn þreyttur á lands- liðinu og ég ákvað þess vegna að kalla þetta gott eftir HM 2018. Svo tók Erik Hamrén við liðinu og þá breyttist mikið. Það voru margir sem sannfærðu mig um að rétt væri að halda áfram, bæði leikmenn og starfsmenn innan KSÍ, og til að byrja með sneri ég í raun bara aft- ur í liðið fyrir þá sem vildu endi- lega að ég héldi áfram. Svo allt í einu hvarf þessi leiði og mér fór að líða virkilega vel í landsliðs- umhverfinu á nýjan leik og ég skrifa það að mörgu leyti á Ham- rén enda algjörlega frábær náungi og þjálfari.“ Fann gleðina á ný „Ég var hins vegar fljótur að finna gleðina í landsliðinu á nýjan leik, þökk sé Hamrén og Frey Al- exanderssyni. Núna er ég ekkert að hugsa um að leggja landsliðsskóna á hilluna og ef landsliðið vill mig þá er ég svo sannarlega klár í slaginn. Það er algjör snilld að Eiður [Smári Guðjohnsen] sé kominn aft- ur inn í þetta og Arnar Þór [Við- arsson] lítur virkilega vel út og lít- ur út fyrir að vita upp á hár hvað hann vill. Maður er orðinn 34 ára gamall og Kári [Árnason] er bráðum fer- tugur þannig að það er nokkuð augljóst að HM 2022 í Katar er lík- legast okkar síðasta tækifæri til að komast á stórmót. Ég hef fulla trú á því að ég geti náð mér af þessum smávægilegu meiðslum sem hafa verið að hrjá mig og kannski á maður eitt til tvö ár eftir eða þrjú til fjögur ár. Maður veit aldrei en ég held að það sé alveg óhætt að segja það að þetta sé okkar síðasti séns, allavega þeirra sem eru komnir á seinni hluta ferilsins, að komast á stórmót,“ bætti Ragnar við í samtali við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reyndur Ragnar Sigurðsson í baráttu við Pierre-Emil Höjbjerg í leik Íslands og Danmerkur í haust. Ragnar er að- eins sjö leikjum frá því að jafna leikjamet Rúnars Kristinssonar með landsliði Íslands og gæti því slegið það í ár. ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021  Alexander Petersson landsliðs- maður í handknattleik er farinn frá Rhein-Neckar Löwen eftir níu ára dvöl. Hann samdi við félagið um starfslok eftir að ljóst varð að hann fengi ekki nýjan samning í sumar og hefur nú samið við sitt gamla félag Flensburg um að leika með því út þetta tímabil. Flensburg er á toppi þýsku 1. deildarinnar og Löwen í öðru sæti. Alexander er farinn heim frá HM í Egyptalandi af persónulegum ástæðum og spilar ekki tvo síðustu leiki Íslands.  Davíð Örn Atlason knatt- spyrnumaður úr Víkingi í Reykjavík og lykilmaður í liðinu undanfarin sex ár, er kominn til Breiðabliks. Kópa- vogsfélagið keypti hann af Víkingum og samdi við hann til þriggja ára.  Kvennalið Breiðabliks fékk líka liðsauka í gær þegar Birta Georgsdóttir, 18 ára sóknarmaður, kom til liðsins frá FH.  Davíð Snorri Jónasson var í gær kynntur af KSÍ sem nýr þjálfari 21 árs landsliðs karla í stað Arnars Þórs Viðarssonar. Davíð þjálfaði síðast 17 ára landslið karla og áður meist- araflokk Leiknis í Reykjavík ásamt því að vera aðstoðarþjálfari Stjörn- unnar.  Ólafur Ingi Skúlason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, er hættur sem spilandi aðstoðarþjálfari Fylkis og hefur verið ráðinn þjálfari U19 ára landsliðs karla og U15 ára landsliðs kvenna.  Knattspyrnulið KA hefur fengið til sín 26 ára gamlan belgískan miðju- mann, Sebastiaan Brebels. Hann kemur frá B-deildarliðinu Lommel.  Hilmar Snær Örvarsson hafnaði í níunda sæti á heimsbikarmóti fatl- aðira í stórsvigi í Sviss í gær. Hann er á leið á tvö mót um helgina í sinni sterkari grein, sviginu.  Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley urðu í gærkvöld fyrsta liðið til að sigra Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í tæp fjögur ár. Liverpool hafði ekki tapað þar í 68 deilda- leikjum í röð. Burnley vann óvæntan sigur, 1:0, með marki Ashley Barnes úr vítaspyrnu rétt fyrir leikslok. Liv- erpool hefur ekki skorað í fjórum leikjum í röð í deildinni og er að dragast aftur úr efstu liðunum en Burnley komst í betri fjarlægð frá botnliðunum. Chelsea mun því halda metinu næstu árin en það er 86 heimaleikir án taps. Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: MG-höllin: Stjarnan – Þór Þ................ 18.15 Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Keflavík 20.15 1. deild karla: Smárinn: Breiðablik – Vestri .............. 19.15 Flúðir: Hrunamenn – Skallagrímur ... 19.15 Vallaskóli: Selfoss – Sindri .................. 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Kórinn: HK – Kría................................ 19.30 Hleðsluhöll: Selfoss U – Vængir J ...... 19.30 Dalhús: Fjölnir – Víkingur .................. 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Hertz-höllin: Grótta – ÍR.......................... 20 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót kvenna: Origo-völlur: Valur – KR .......................... 18 Egilshöll: Fylkir – Þróttur R ................... 20 Í KVÖLD! HM2021 Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenska landsliðið mætir Frakk- landi á HM karla í handknattleik í Egyptalandi í dag klukkan 17 í milli- riðli 3. Frakkland er í efsta sæti í milliriðlinum með 6 stig og því ljóst að verkefnið verður erfitt hjá ís- lenska liðinu sem er með 2 stig. Tækist Íslandi að leggja bæði Frakkland og Noreg að velli er enn þá fræðilega mögulegt að komast áfram en þá þyrftu úrslit í mörgum öðrum leikjum að vera Íslendingum hagstæð. Lið Íslands og Frakklands eiga sameiginlegt að vera í uppbyggingu eftir að leikmenn sem unnið hafa til verðlauna á stórmótum eru sestir í helgan stein. Árangur liðanna verð- ur auðvitað ekki lagður að jöfnu enda unnu Frakkar hvert stórmótið á fætur öðru. Endurnýjunin hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel hjá Frökkum. Þeir unnu þó til brons- verðlauna á HM fyrir tveimur árum en á EM í fyrra komust þeir hins vegar ekki áfram úr riðlakeppninni. Þá tapaði liðið fyrir Portúgal eins og Ísland gerði nú á HM. Þar af leið- andi er svolítið erfitt að átta sig á styrk franska liðsins þótt liðið sé sigurstranglegra liðið gegn Íslandi. Frakkar unnu Norðmenn í fyrsta leiknum í keppninni sem er augljóst styrkleikamerki en í fyrsta leiknum í milliriðli lentu þeir í basli gegn Als- ír, liði sem Ísland vann stórsigur gegn. Alexander ekki meira með Þau tíðindi bárust úr herbúðum íslenska liðsins í gær að Alexander Petersson yrði ekki meira með í keppninni og væri á leið til Þýska- lands frá Egyptalandi af persónu- legum ástæðum. Þar af leiðandi má reikna með því að Ómar Ingi Magn- ússon komi aftur inn í hópinn í dag. Fyrirliðinn Arnór Þór Gunn- arsson var á skýrslu gegn Sviss en kom ekkert við sögu. Á vefnum Ak- ureyri.net kemur fram hjá Skapta Hallgrímssyni, fyrrverandi blaða- manni á íþróttadeild Morgunblaðs- ins, að Arnór hafi orðið fyrir meiðslum í læri í leiknum gegn Mar- okkó. Að upphitun lokinni fyrir leik- inn gegn Sviss hafi verið ljóst að hann væri ekki leikfær. Margir leikir gegn Frökkum Þeir eru orðnir ansi margir A- landsleikirnir hjá karlaliðum Íslands og Frakklands í handknattleiknum. Þjóðirnar hafa mæst sextíu og einu sinni en sextíu ár eru frá fyrsta leiknum sem var á HM í V- Þýskalandi í september 1961. Ísland vann þá öruggan sigur 20:13. Leikir þjóðanna hafa víða farið fram og hérlendis hafa þau til að mynda mæst í Keflavík og á Blönduósi. Nokkrir leikir á milli þessara þjóða hafa skipt óhemjumiklu máli. Þar rís hæst úrslitaleikurinn á Ól- ympíuleikunum árið 2008. En tvo aðra mætti einnig nefna. Leikinn um bronsverðlaunin á Ólympíuleikunum árið 1992 og undanúrslitaleik á EM árið 2010. Í þessum þremur leikjum höfðu Frakkarnir ávallt betur. Möguleikarnir fyrir hendi „Ég myndi segja að Frakkarnir séu slakari en þeir hafa verið síðasta áratuginn. Mér finnst að við ættum að eiga möguleika ef við spilum bet- ur í sókninni en við gerðum gegn Sviss. Ef það tekst, og við höldum áfram svipaðri spilamennsku í vörn- inni, þá ættum við að eiga góða möguleika á sigri,“ segir örvhenta skyttan Kristján Örn Kristjánsson sem leikur með Aix í Frakklandi. Viðtal við Kristján Örn er að finna á HM-vef mbl.is. Bæði lið í upp- byggingarferli  Íslendingar glíma við Frakka á HM í dag  Sextíu ár liðin frá fyrsta leik þjóðanna Morgunblaðið/Golli Kempur Sitjandi frá vinstri: Hannes Þ. Sigurðsson var formaður landsliðs- nefndar þegar Íslandi mætti Frakklandi árið 1961 og þeir Birgir Björnsson og Gunnlaugur Hjálmarsson tóku þátt í leiknum. Róbert Gunnarsson og Ólafur Stefánsson tóku þátt í úrslitaleiknum gegn Frökkum árið 2008.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.