Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heilsa& útivist –– Meira fyrir lesendur Nú er tíminn til að huga að betri heilsu og bættum lífstíl. Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefn PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir þriðjudaginn 26. janúar. fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. janúar SÉRBLAÐ Menningarviður- kenningar RÚV fyrir árið 2020 voru veittar í vik- unni og með breyttu sniði því vegna samkomu- takmarkana fór engin eiginleg at- höfn fram. Var því greint frá við- urkenningum og viðurkenningarhöfum í Menning- unni á RÚV og Víðsjá á Rás 1. Veitt var viðurkenning úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskálda- sjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu en einnig veitti Rás 2 Krókinn sem eru verðlaun fyrir framúrskar- andi lifandi flutning á árinu og einn- ig var tilkynnt um val á orði ársins 2020. Andri Snær Magnason hlaut við- urkenningu Rithöfundasjóðs Ríkis- útvarpsins fyrir ritstörf og segir m.a. í rökstuðningi úthlutunarnefnd- ar að viðurkenningar Rithöfunda- sjóðs Ríkisútvarpsins séu fyrstu og elstu rithöfundaverðlaun Íslendinga og veittar fyrir ævistarf höfundar frekar en einstök verk. Trúlega hafi enginn íslenskra nútímahöfunda verið þýddur á fleiri tungumál en Andri Snær og öll hans stærri bók- menntaverk margverðlaunuð innanlands sem utan. Helgi Björnsson hlaut Krókinn fyrir framúrskarandi tónlistarflutning á árinu með þátt- um sínum Heima með Helga í Sjón- varpi Símans. Orð ársins 2020 á RÚV er „þrí- eykið“ og hjá Stofnun Árna Magn- ússonar orðið sóttkví. „Bæði orðin eru mjög einkennandi fyrir það sem hæst bar á nýliðnu ári,“ segir í til- kynningu um orðin. Þríeykið vísar að sjálfsögðu í þau Ölmu D. Möller landlækni, Víði Reynisson yfirlög- regluþjón og Þórólf Guðnason sótt- varnalækni en ekki var langt liðið á faraldurinn þegar farið var að kalla Ölmu, Víði og Þórólf einu nafni þríeykið, eins og segir í tilkynningu. Alls var 121 styrkur veittur úr sam- einuðum Tónskáldsjóði Ríkis- útvarpsins og STEFs árið 2020 og má sjá lista yfir styrkþega á menn- ingarvef RÚV. Sjóðurinn hefur það markmið að stuðla að frumsköpun og útbreiðslu íslenskrar tónlistar og veitir höfundum fjárstuðning fyrir tónsmíðar og heildstæð verk. Andri Snær, Helgi Björns og þríeykið  Menningarviðurkenningar RÚV Andri Snær Magnason Helgi Björnsson Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þórdís Helgadóttir, heimspekingur og rithöf- undur, hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Fasaskipti en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Salnum. Keppnin um Ljóð- stafinn er haldin af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar en efnt var til samkeppninnar árið 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör (1917-2000) og eru verðlaun ávallt veitt á afmælisdegi hans. Auk peningaverðlauna varðveitir sigurskáldið göngustaf Jóns úr Vör í eitt ár. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Annað sæti hreppti ljóð Eyþórs Árnasonar, Skrítnir dagar, og þriðja sæti ljóðið Óvænt stefnumót eftir Unu Björk Kjerúlf. Að auki hlutu sjö ljóð sérstaka viðurkenningu dóm- nefndar. Þar af voru þrjú ljóð eftir Eyþór, tvö eftir Bjarna Bjarnason og ljóð eftir Hauk Þor- geirsson og Hjört Marteinsson. 331 ljóð barst í keppnina að þessu sinni en þau mega ekki hafa birst áður og skulu send inn undir dulnefni. Dómnefnd skipuðu Ásta Fanney Sigurðardóttir, Eiríkur Ómar Guð- mundsson og Kristín Svava Tómasdóttir. Iðar af göldrum góðrar ljóðlistar Eftir sigurskáldið Þórdísi Helgadóttur hafa komið út smásagnasafnið Keisaramörgæsir (2018) og með höfundakollektífinu Svika- skáldum ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd og Nú sker ég netin mín. Þórdís var leikskáld Borgarleikhússins 2019-2020, auk þess sem leikverk hennar Þensla hefur verið sett þar upp. Smásögur, ljóð og esseyjur Þór- dísar hafa birst á ýmsum vettvangi. Í umsögn dómnefndar segir að Fasaskipti sé margrætt ljóð um „umhverfingar og skil milli heima; yfirborð og himnur, mörk dags og næt- ur, þunnt skænið sem aðskilur veruleika okkar frá djúpinu. Í forgrunni eru börnin sem sjálf eru nýkomin úr öðrum heimi og hika ekki við að brjóta ísinn. Skáldið fangar villt og hrátt flæði orðanna og nær að veita því skýran far- veg á áhrifaríkan hátt. Það gefur sér lausan tauminn en þessi lausi taumur leiðir lesandann ekki út á þekju heldur að aðalatriðum, því sem skáldinu liggur á hjarta. Ljóðið er í senn raunsætt og fjarstæðu- kennt, úthugsað en einnig leikandi áreynslu- laust. Það ber með sér hömlulaust afl líkt og á eða foss. Í vissum skilningi er það á hreyfingu, merking þess gæti breyst frá degi til dags. Ljóðið hreyfist og breytist og virðist nánast iða af göldrum góðrar ljóðlistar.“ Tekur þátt eins og í lottói „Þetta er mikill heiður, þetta er stóri vinn- ingurinn í ljóðasenunni – að fá svona vegleg verðlaun fyrir stakt ljóð,“ segir Þórdís en hún hefur áður sent ljóð í keppnina. „Ætli þetta hafi ekki verið í þriðja skipti, kona tekur þátt eins og í lottói og vonast eftir hinu besta,“ segir hún. Og núna fær Þórdís göngustaf Jóns úr Vör heim og gleðst yfir því að vera komin í hóp góðra skálda sem hafa varðveitt stafinn í eitt ár hvert. „Nú þegar stafurinn kemur með anda Jóns inn á heimilið er ekki um annað að ræða en að sökkva mér ofan í höfundarverkið hans, sem ég þekki skammarlega illa.“ Þórdís samdi Fasaskipti sérstaklega fyrir keppnina. „Það er sjálfstætt, ekki hluti af stærra verki, en ég vinn að ljóðabók – meðal annars. Í þessu ljóði er margt – myndir, þemu og stemning – sem er líka að finna víðar í því sem ég skrifa og það kemur bara af sjálfu sér. Við skriftirnar er kona alltaf í samtali við undirmeðvitundina, og sérstaklega við að yrkja. Þá koma oft sömu hlutir upp í ólíkum myndum og þannig á þetta ljóð heima með ýmsu öðru sem ég er að skrifa þessa dagana.“ Sigurljóðið verður væntanlega með í ljóða- handritinu sem Þórdís er að móta en hún seg- ist líka vera með skáldsögu í smíðum og að í vor komi út hjá Svikaskáldum styttra verk eft- ir hana, einskonar tilraunakennd ljóðsaga. Hún segir að samfélag, eins og hún á með skáldsystrum í Svikaskáldum, sé sér afar mikilvægt. „Ég er að ljúka meistaragráðu í ritlist, hef dólað mér í því í ein fimm ár, og eitt af því góða við námið er að kynnast og vinna með öðrum sem eru að skrifa, kasta hugmyndum á milli. Þú lærir eins mikið af samnemendunum og kennurunum. Ég hef nýlokið við meistara- verkefnið mitt í ritstjórn Bergþóru Snæ- björnsdóttur sem er algjör gersemi. Af öllum listgreinum er ritlistin einna einmanalegust og það er hætt við að þú verðir pínu bilaður ef það koma engin viðbrögð á meðan þú ert að skapa verkin. Mér finnst nauðsynlegt að hafa fólk í kringum mig sem ég get rætt við um skrifin. Það gerist svo mikið í samtalinu, kemur súr- efni inn í verkin. Að vinna í samstarfi við aðra er engin ógn við egóið, þvert á móti lyftir stuðningurinn okkur upp,“ segir Þórdís. Kári Rafnar hlaut fyrstu verðlaun Við athöfnina í Salnum í gær voru einnig veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs sem fyrst var haldin árið 2012. 202 ljóð bárust að þessu sinni í keppnina og var dómnefnd sú sama. Fyrstu verðlaun hlaut Kári Rafnar Eyjólfs- son í 5. bekk Álfhólsskóla fyrir ljóðið Engla- bróðir. Í öðru sæti var Árelía Ísey Benedikts- dóttir í 5. bekk í Waldorfskólanum Lækjar- botnum og í þriðja sæti Rayan Sharifa í 8. bekk Álfhólsskóla. Átta nemendur til viðbótar hlutu viðurkenningar fyrir fjölbreytileg og áhugaverð ljóð. „Stóri vinningurinn í ljóðasenunni“  Þórdís Helgadóttir hreppti Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Fasaskipti  Þórdís er bæði með ljóðahandrit og skáldsögu í smíðum  Grunnskólanemar í Kópavogi líka verðlaunaðir fyrir ljóð Morgunblaðið/Árni Sæberg Lukkuleg Þórdís Helgadóttir tók í gær við Ljóðstaf Jóns úr Vör við athöfn í Salnum í Kópavogi. „Þetta er mikill heiður,“ sagði hún, „að fá svona vegleg verðlaun fyrir stakt ljóð.“ Ég elska börnin mín og börnin sem börnin mín Elska og börnin sem elska börnin mín. Þau keyra kuldaskó í gegnum ísinn þegar Tjörnina hefur lagt. Þau elska að beita afli. Brjóta flísar úr ísingunni og halda þeim upp að Andlitinu. Ég sé þau út um gluggann, saltsleikt Auga hússins. Þau sjá mig gegnum tært gler. Ljósgul skíma og svo dimmir. Þannig er tíminn Skorinn í sneiðar, hvítar og svartar, skiptingin Ekki bróðurleg frekar en á öðrum gæðum. Frostið herðir á aðgreiningunni milli heima Og breytir lygum í sannindi. Gerir göngubrú úr Svokölluðu yfirborði vatnsins. Ef falskir botnar fela Eitur eða fjársjóði, hvað felur þá falskt yfirborð? Börnin en ekki ég treysta gljúpri himnunni Yfir handanheiminum þar sem andardrátturinn Rennur í öfuga átt. Enda er stutt síðan þau komu Í gegn, önduðu hringöndun meðan þau drukku, Fljótandi fæði úr sykurbrjósti. Þau bíta í rendurnar Bryðja glerbrjóstsykur, stolt af styrk sínum. Í barnatennur vantar taugarnar fyrir tannkul. Það blómstrar ætiþistill í eldhúsglugganum. Enginn elskar veturinn eins og börnin mín. Fasaskipti VERÐLAUNALJÓÐ ÞÓRDÍSAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.