Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
THE HOLLYWOOD REPORTER
CHICAGO SUN-TIMES
LOS ANGELES TIMES INDIEWIRE ROGEREBERT.COM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Móatún 7 nefnist raftónlistarforlag
sem Árni Grétar Jóhannesson,
sjálfur raftónlistarmaður, rekur og
sérhæfir sig í útgáfum á sjö tomma
hljómplötum sem eru framleiddar
hér á Íslandi. Útgáfurnar eru núna
orðnar 70 talsins og hafa selst í yf-
ir tvö þúsund eintökum og þá nær
eingöngu til erlendra kaupenda.
Eins og Árni bendir á eru þetta
heljarinnar ósköp af íslenskri raf-
tónlist eftir flytjendur á borð við
Skurken, Biogen, Röskvu, Future-
grapher og Andartak en einnig
hafa þekktir, erlendir flytjendur
gefið út á vegum Móatúns 7, til
dæmis Future Sound Of London,
Plaid, B12, Metamatics o.fl. Síð-
asta 7" útgáfan er með þýsku
sveitinni Drøn – en þeir eru mjög
þekktir í raftónlistinni. Spilanir á
bandcamp-síðu Móatúns 7 voru á
síðasta ári nokkuð hundruð þúsund
og þar má kynna sér útgáfuna í
þaula sem og kaupa plötur en slóð-
in á hana er moatun7.band-
camp.com.
Skornar á staðnum
„Þetta hefur mikið safnaragildi,“
segir Árni um sjötommuna sem er
sama stærð og smáskífan gamla og
því ekki plássfrek. Útgáfuformið
kallast á við heiti fyrirtækisins en
það er heimilisfang æskuheimilis
Árna á Tálknafirði. Hann býr þó í
Reykjavík.
„Mér þykir þetta svo skemmti-
legt format og var alltaf að fá send
lög til að gefa út á netinu, á
streymisveitur, eitt eða tvö lög,“
segir Árni um tilurð útgáfunnar
eða forlagsins eins og hann kallar
það og því hafi hann slegið til og
farið að gefa út sjötommur. Áður
en til þess kom hafi hann fengið
fyrirspurnir frá raftónlistar-
mönnum um hvort ekki væri hægt
að gefa tónlistina út á föstu formi
og varð sjötomman fyrir valinu,
eini vínillinn sem tekur við einu
eða tveimur lögum. Hver útgáfa er
aðeins 30 eintök og segir Árni
vínilinn skorinn út hjá Úlfari sem
rekur Vinyll.is. Hann geti því
mætt á staðinn og beðið þar til
verkinu er lokið.
En er þetta ekki bölvað vesen?
Jú, vissulega er þetta vesen og
nær allur kostnaður fer í að fram-
leiða plöturnar, segir Árni, en
engu að síður geggjað gaman að
geta gefið tónlistina út með þess-
um hætti. Hann segir vínilinn líka
hafa safnaragildi. „Margir eru að
safna sjötommum og þá sér-
staklega í raftónlistargeiranum.
Sama fólk er líka að safna geisla-
diskum,“ segir Árni og bætir við
að hann hafi líka gefið út sex safn-
plötur sem hafi að geyma allar
sjötommurnar til þessa.
Svipar til jaðardjassmenn-
ingar
,,Núna er þetta orðið þannig að
flestir vilja gefa út á föstu formi,
þar hefur orðið mikil breyting á
stuttum tíma, fyrir fimm árum
vildi enginn gera það,“ segir Árni.
Fólki þyki gaman að geta sett
plötu á fóninn, sýnt safnið og lán-
að úr því jafnvel, líkt og með bæk-
ur.
Útgáfan hófst með Biogen
heitnum og Röskvu (Tanya Pol-
lock), tónlist þeirra var á fyrstu
útgáfunni og á eftir fylgdi tónlist
Árna og tveggja erlendra vina
hans. Fóru í kjölfarið að berast
fyrirspurnir utan úr heimi frá raf-
tónlistarmönnum, hvort Árni væri
til í að gefa út þeirra tónlist líka.
Vinir og kunningjar hans í brans-
anum, sem gefið höfðu út hjá öðr-
um fyrirtækjum, sneru sér líka til
Mótaúns 7.
Árni er spurður að því hvort
þetta sé mjög lokaður heimur,
þessi tiltekni heimur raftónlistar
sem hann gefur út. ,,Já og nei,“
svarar hann. ,,Þessi tónlist er ekki
bara teknó og þetta er svipað
jaðardjassmenningu, flestir þekkj-
ast innan geirans,“ segir Árni.
,,Þessi þekkir þennan og þessi
þennan og þá liggur leiðin að
stórum stjörnum, frægum raf-
tónlistarmönnum sem finnst kúl
að gefa út hjá íslenskri smáútgáfu.
Þetta er kannski ekki lokaður
heimur en verður hálfgert nörda-
samfélag, menn að tala um græj-
ur,“ segir Árni sposkur.
Virt þýskt tríó á
sjötugustu plötunni
Móatún 7 er greinilegt ástríðu-
verkefni og segist Árni brenna
fyrir útgáfunni. Hann hafi nú
komið sér upp sterku tengslaneti,
verkefnin komi til hans og sam-
starf við hina ýmsu raftónlistar-
menn hafi blómstrað. Nýjasta út-
gáfan, sú sjötugasta, er með
tónlist þýska tríósins Drøn og seg-
ir Árni að þar fari mjög þekkt
sveit og virt. „Þeir hafa gefið út
hjá stórum útgáfufyrirtækjum og
eru mjög virtir,“ segir Árni.
Hann segir að lokum að útgáfan
sé fyrst og fremst ástríða og það
sem hún gefi honum líka sé
tengslanetið sem fari sífellt
stækkandi. „Maður kynnist fleira
fólki, fær verkefni borguð eins og
að búa til remix fyrir stærri aðila
og maður fær að vinna með
fleirum.“
Bölvað vesen, geggjað gaman
Rafmagnaður Árni Grétar Jóhannesson er raftónlistarmaður og útgefandi.
Móatún 7, raftónlistarforlag Árna Grétars Jóhannessonar, hefur gefið út 70
sjö tomma vínilplötur Hefur mikið safnaragildi, segir Árni um útgáfuformið
Kvikmyndin
Leynilögga, í
leikstjórn Hann-
esar Þórs Hall-
dórssonar sem
þekktastur er
fyrir markvörslu
í knattspyrnu,
hefur verið valin
í þann hluta
kvikmynda-
hátíðarinnar í
Gautaborg sem helgaður er verk-
um í vinnslu. Er hátíðin sú um-
fangsmesta sem haldin er á Norð-
urlöndunum. „Þetta eru frábærar
fréttir fyrir myndina. Þetta hefur
verið skemmtilegt ferli frá byrjun
og virkilega skemmtilegt að fá
þessa viðurkenningu,“ er haft eft-
ir Lilju Ósk Snorradóttur, fram-
leiðanda hjá Pegasus, í tilkynn-
ingu. „Þetta hefur verið draumur
lengi og þegar þau hjá Pegasus
sáu að við gætum gert myndina
og unnið í kringum fótboltann þá
gat þetta ekki klikkað,“ er haft
eftir Hannesi í tilkynningu. Meðal
þeirra sem leika í myndinni eru
Auðunn Blöndal, Egill Einarsson,
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir,
Sverrir Þór Sverrisson, Vivian
Ólafsdóttir og Björn Hlynur Har-
aldsson. Tökum lauk í desember í
fyrra og er eftirvinnsluferli hafið
og stefnt að frumsýningu með
vorinu.
Leynilögga Hann-
esar í Gautaborg
Hannes Þór
Halldórsson
Suðurkóreski
leikstjórinn
Bong Joon-ho,
sem sópaði í
fyrra að sér
verðlaunum fyrir
kvikmyndina
Parasite og
þ.á m. Óskar-
num, mun fara
fyrir dómnefnd
alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar
í Feneyjum í haust, að því er fram
kemur á vef hennar. Hátíðin verður
haldin í 78. sinn í september og er
Bong fyrstur Suður-Kóreumanna
til að gegna formennsku í dóm-
nefndinni.
Bong Joon-ho for-
maður í Feneyjum
Bong Joon-ho