Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Heimsmeistaramótið íegypskum handbolta fórekki alveg eins og Íslend- ingar höfðu hugsað sér. Raunar svo illa að næstu daga ræddu menn að ekkert heimsmeistaramót hefði verið jafnlærdómsríkt. Snjóflóðahrina gekk yfir landið um liðna helgi og þurfti að rýma hús á Flateyri og Siglufirði í varúðarskyni og óvissustig í gildi víða norðanlands. Snjóflóðin ollu nokkru raski, en ekki verulegu tjóni. Athafnaskáldin þrífast víða, en á Ísa- firði sagði stjórnarformaður rækju- verksmiðjunnar Kampa að bókhaldið virtist byggt á skáldskap, en fyrir- tækið fékk greiðslustöðvun fyrir skömmu vegna mikils fjárhags- vanda. Þjóðleikhúsið opnaði gáttir sínar á ný með frumsýningu á stóra sviðinu, sem var jafnvel enn stærra en vana- lega þar sem aðeins einn leikari var á sviðinu. Var þó haft á orði að Björn Thors hefði fyllt vel út í það, en í salnum var ekki sömu sögu að segja, aðeins 100 manns leyfð vegna fjölda- takmarkana. Hafró fann villu í útreikningum sín- um og jók því ráðgjöf sína um loðnu- veiði. 61 þúsund tonn af loðnu sýta það. Vonir eru uppi um enn meiri hækkun eftir hressilegar loðnu- mælingar út af landinu. Dreifingarfyrirtækið Distica greindi frá því að bóluefnissendingar til landsins virtust ætla að verða reglu- legri á næstunni, en magnið enn í minna lagi. Banaslys í Sundhöll Reykjavíkur í liðinni viku komst aftur í fréttir þeg- ar út spurðist að hinn látni, ungur og hraustur karlmaður, hefði legið sex mínútur á botni laugarinnar án þess að nokkur virtist verða þess var. Jóhannes Eðvaldsson (Búbbi), landsliðsfyrirliði og atvinnumaður í fótbolta víða um heim, lést í Skot- landi sjötugur að aldri.    Drög Guðmundar Inga Guð- brandssonar umhverfisráðherra að rammaáætlun útiloka stóran hluta landsins frá nýtingu vindorku, en samkvæmt frumvarpi hans mætti ekki setja upp vindmyllur á frið- lýstum svæðum, svæðum sem í ráði er að friðlýsa og gervöllu hálendinu. Tvisvar kviknaði í einu og sama hús- inu í Seljahverfi í Breiðholti. Maður var í húsinu þegar eldurinn tók að loga eldsnemma að morgni, en hann komst út af sjálfsdáðum. Guðmundur Felix Grétarsson, ný- bakaður handhafi í Lyon í Frakk- landi, komst á fætur eftir hand- leggjaágræðsluna í fyrri viku og dansaði af því tilefni nokkur spor. Blær, leigufélag VR, hyggst reisa 36 íbúða hús í Úlfarsárdal. Miðað við umsóknir virðist þó ekki minni þörf á fleiri orlofshúsum í eigu VR og ann- arra stéttarfélaga.    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra flutti Alþingi munnlega skýrslu um bóluefnismál, þar sem hún lofsöng Evrópusamvinnu í þeim efnum og kvaðst þess fullviss að þorri landsmanna yrði bólusettur fyrir mitt ár. Fleiri voru gamanmálin ekki þann daginn. Af meginlandinu var hins vegar allt komið í bál og brand vegna bóluefn- ismálanna, þar sem Evrópusam- starf um öflun bóluefna (sem Ísland er aðili að) var komið í miklar ógöng- ur. Það hefur frá upphafi verið mikið klúður en versnaði til muna eftir að bóluefnaframleiðendur greindu frá framleiðsluörðugleikum í Evrópu. Af því tilefni setti Evrópusambandið Bretum úrslitakosti. KSÍ blés rykið af áformum um nýjan þjóðarleikvang í Laugardal, sem at- huga á betur með sumrinu. Áætlaður kostnaður er á bilinu 9-16 milljarðar, svo sennilega endar hann í 32. Ferðaþjónustan hefur lagt höfuð sín í bleyti og komist að því að hún kjósi helst fáa en vel stæða erlenda ferða- menn til landsins í sumar, gjarnan fjarri mannabyggð. Útlit er fyrir að einkareknum bað- lónum fjölgi töluvert á næstu mán- uðum og misserum í trausti þess að enginn hörgull verði á hreinlátum ferðamönnum næstu ár. Íslandsbanki gaf út þjóðhagsspá, þar sem 3,2% hagvexti er spáð. Það byggist þó á því að 700 þúsund ferða- menn villist hingað í ár og að einn þeirra kaupi bankann í ógáti. Verkalýðshreyfingin ætlar að gera sig gildandi fyrir komandi kosn- ingar, segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og ekki seinna vænna. Hann kvaðst treysta því að stjórn- málaflokkarnir gerðu skoðanir hans að sínum í stefnuskrá. Markaðsstofur landshlutanna búa sig undir annað Íslendingasumar í ferðaþjónustu. Ekki þó á sama gjaf- verði og í fyrra, en því er lofað að þjónustan batni. Snjór hélt áfram að hrannast upp, vetrarfærð víðast um land og krapa- flóð á Austurlandi. Óvissa var víða vegna snjóflóðahættu, jafnvel á Hofsósi, þar sem gríðarlegur snjór hefur safnast upp. Íslensku bókmenntaverðlaunin voru veitt á Bessastöðum, en þau fengu Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Sumarliði R. Ísleifsson og þær Arn- dís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir.    Íslensku bókaforlagaverðlaunin höfðu áður verið veitt, en þar fengu bókaforlögin 400 milljónir króna í endurgreiðslu kostnaðar í boði ör- látra stjórnmálamanna en á kostnað skattborgara. Veðurstofan segir óróa á Reykjanes- skaga hafa birst í 22 þúsund jarð- skjálftum þar á svæðinu síðasta árið, flestum tiltölulega vægum. Gera verði ráð fyrir aukinni spennu á svæðinu, sem ekki losni nema í stórum skjálfta í fyllingu tímans. Isavia lét sér fátt um finnast og boðaði mikla uppbyggingu á Keflavíkur- flugvelli. Þar stendur til að verja tæp- um 12 milljörðum í framkvæmdir í ár, enda lítið ónæði af ferðamönnum. Það þykir Samtökum iðnaðarins þó alls ekki nóg og raunar ekki nóg að aðrir opinberir aðilar hyggist fara í 127 milljarða framkvæmdir á árinu. Ríki og sveitarfélögum hafi verið í lófa lagið að framkvæma miklu meira, en of mik- ið hafi tafist á undirbúningsstigi. Rannsókn á flúormagni í hrossum bendir til þess að flúormengun sé óveruleg og langt undir eitrunar- mörkum, meiri þó eftir því sem dregur nær Grundartanga. Meiri ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af jórturdýrum. Félagi Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var harðlega gagnrýnd af Þórarni Ævarssyni vinnuveitanda fyrir villandi mál- flutning um vangoldin laun. Of mik- ið væri gert úr umfangi slíkra mála.    Í ljós kom að óþokki hafði skotið kúlu á bíl Dags B. Eggertssonar borgar- stjóra við heimili hans. Áður hafa verið sagðar fréttir af sams konar árásum á skrifstofur sumra stjórnmálaflokka. Starfsfólk leikskóla í Hafnarfirði mótmælti áformum bæjarins um að hafa leikskólana opna allt árið, en til þessa hefur þeim verið lokað í fjórar vikur að sumarlagi. Reynir nú á hagsmunir hvorra verði látnir ráða; barna eða starfsfólksins. Kórónuveirusmit hafa verið á miklu undanhaldi og kvaðst Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ekki úti- loka tilslakanir innanlands á næst- unni. Núverandi sóttvarnarreglur eru að óbreyttu í gildi til 17. febrúar. Út kom bók eftir Einar Kárason rit- höfund um athafnaskáldið Jón Ás- geir Jóhannesson og nefnist hún Málsvörn. Fram kemur í henni að óvenjuhátt hlutfall þess fólks, sem hann hefur kynnst á lífsleiðinni, sé óheiðarlegt, illa gert og hafi sætt færis með að klekkja á honum. Creditinfo rannsakaði kynjahlutföll stjórnenda fyrirtækja, en konur eru aðeins 18% framkvæmdastjóra fyrir- tækja í landinu. Það færist raunar til betri vegar, en nokkuð hægt, því á liðnu ári féllu 25% ráðninga í fram- kvæmdastjórastörf konum í skaut. Alþingi leggur til að 30 manns fái ís- lenskan ríkisborgararétt, en þar á meðal er tónlistarmaðurinn Damon Albarn, sem hér hefur verið með annan fótinn í um aldarfjórðung. Hann vill vera með tvöfaldan rík- isborgararétt vegna Brexit. Nú er frost á Fróni Mikið hefur snjóað norðanlands að undanförnu, svo snjóflóðahættu hefur víða gætt, til dæmis á Hofsósi sem hér sést. Morgunblaðið/Eggert 24.1.-29.1. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.