Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Blaðsíða 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2021
É
g er á mjög góðum stað í dag en
þetta hefur verið löng vegferð og
ég hef lagt mikið á mig, en mögu-
lega getur sagan mín hjálpað öðr-
um konum. Þetta er ekki falleg
saga,“ segir Anna María Sigtryggsdóttir sem
sest með blaðamanni yfir góðum kaffibolla
einn eftirmiðdag í vikunni. Hún fagnaði nýlega
sjö ára edrúafmæli, en líf hennar hefur verið
þyrnum stráð allt frá barnæsku. Með hug-
rekki, dugnaði og elju tókst Önnu Maríu að
stíga út úr ljótum heimi fíkniefna og skapa sér
fallegt líf.
Upplifði mikla höfnun
Anna María fæddist í Reykjavík og á eina eldri
systur. Þegar þær systur eru átta og tíu
ákveða foreldrar hennar að skilja.
„Mamma kallar á okkur systur inn í svefn-
herbergi og ég sest á milli hennar og pabba á
rúmið. Systir mín stendur álengdar. Þetta and-
artak er greypt í huga mér. Mamma segir okk-
ur að þau ætli að skilja og spyr okkur: „Hvort
viljið þið koma með mér eða pabba ykkar?“
Systir mín var fljót að velja pabba. Ég man að
ég grét svo mikið af því mig langaði svo að fara
þangað sem systir mín fór, en ég gat ekki látið
mömmu vera eina þannig að ég valdi hana.
Þetta var svakalegt áfall,“ segir Anna María.
„Pabbi eignast fljótt aðra konu og fjögur
börn. Ég var í litlu sambandi við systur mína
fyrstu árin á eftir en við tókum upp þráðinn
þegar við vorum unglingar. Þetta hefur sett
mark sitt á líf mitt og haft djúp áhrif á mig. Ég
fer stundum í þetta áfall enn, sem fullorðin
kona. Það sem ég upplifði í barnæskunni var
höfnun og sú tilfinning hefur verið ríkjandi allt
mitt líf,“ segir Anna María.
„Það tekur við mikið brölt á mömmu. Við
fluttum oft og ég fór í marga grunnskóla. Ég
upplifði ekki ást og umhyggju hjá móður minni
heldur mikla höfnun; ég var alltaf fyrir henni.
Ég var sett í sveit á vorin og sótt á haustin og
aldrei á sama bóndabæ. Hún var alltaf að
koma mér einhvers staðar fyrir. Ég hafði aldr-
ei þetta öryggi sem barn á að hafa.“
Rabarbaravínið himnasending
„Ég var tólf ára þegar ég drakk í fyrsta skipti.
Það var á einum sveitabænum og fundum við
krakkar dunk af eldgömlu rabarbaravíni uppi
á lofti. Guð minn góður, þetta var himnasend-
ing fyrir tólf ára barnið. Allur kvíði hvarf og
mér fannst ég svo frábær. Ég vissi að ég
myndi gera þetta aftur. Stuttu síðar byrjaði ég
í helgarmynstri; ég byrja að drekka niðri í bæ,
fara á rúntinn og í heita lækinn,“ segir hún og
segist fljótt hafa farið að drekka illa.
„Mamma sendi mig í heimavistarskóla þeg-
ar ég var fjórtán ára þar sem ég var í tvö ár.
Það voru í raun bestu vetur unglingsáranna.
Þar fann ég til öryggis. En ég var ekki búin að
vera í skólanum nema í viku þegar ég fer á
réttardansleik í Njálsbúð og kem heim drukk-
in daginn eftir og var rekin í viku,“ segir hún.
„Mamma sagði við mig að um leið og ég yrði
sextán ætti ég að flytja að heiman. Þá þyrfti
hún ekki lengur að taka ábyrgð á mér. Hún
vildi bara losna við mig, það var bara þannig.“
Trúði ekki að pabbi væri dáinn
Sextán ára stóð Anna María uppi ein og flutti
um skeið til föður síns og fann sér vinnu.
„Ég fékk vinnu á síma. Ég var ekki með nein
framtíðarplön. Ég var rosalega tætt og mig
langaði bara í ást og umhyggju. Ég óskaði þess
að ég ætti heilbrigða móður.“
Á þessum tíma var drykkjan ekki farin úr
böndunum, en oft kom það fyrir að Anna
María drykki sig til óminnis.
„Svo kynnist ég fyrrverandi manni mínum á
sjómannaballi á Hótel Íslandi þegar ég er
sautján. Við förum að búa mjög fljótlega en
hann kunni illa við sig fyrir sunnan og við flutt-
um út á land í lítið sjávarþorp. Ég fékk góða
vinnu í Búnaðarbankanum og vann þar í níu
ár. Ég drakk ekki mikið á þessum tíma en þeg-
ar ég drakk drakk ég illa. Eiginmaðurinn
þurfti oft að koma mér heim,“ segir Anna
María. Hún eignaðist dóttur nítján ára og síð-
ar bættust í hópinn tveir drengir. En áður en
yngsta barnið kom í heiminn reið mikið áfall
yfir.
„Ég var 23 ára og búin að eiga tvö börn.
Pabbi hafði oft komið í heimsókn til mín með
sín litlu fjögur börn og konu og ég á mjög góð-
ar minningar frá því. Eitt sinn var ég í
vinnunni í bankanum og maðurinn minn kem-
ur þangað og ég sá það strax á svipnum að eitt-
hvað hafði gerst. Hann bað mig að koma út í bíl
og ég hélt annaðhvort að eitthvað hefði komið
fyrir börnin eða pabba hans, sem hafði verið
veikur. Hann segir mér að presturinn sé kom-
inn heim og svo segir hann mér að pabbi sé dá-
inn. Ég trúði þessu ekki og fór að hlæja; við-
brögðin voru svona skrítin. En þá hafði pabbi
látist í vinnuslysi. Hann var að vinna í skurði
við gamalt hús og fékk steintröppur yfir sig og
lést samstundis.“
Ég saknaði svo mömmu
„Ekki nóg með það heldur á sama tíma var
mamma týnd og hafði skilið eftir bréf. Það var
auglýst eftir henni í sjónvarpi og útvarpi. Þarna
er ég nýbúin að jarða pabba og mamma týnd.
Hún fannst svo síðar í annarlegu ástandi og illa
til reika, enda kalt úti. Hún var lögð inn á geð-
deild og þar var hún kalin á puttum. Þetta var
mikið áfall en var aldrei rætt,“ segir hún.
Stuttu síðar kallar móðir þeirra þær systur
á sinn fund.
„Við fórum heim til hennar og þá tilkynnir
hún okkur að hún vilji slíta öll samskipti við
okkur systurnar og hún vilji engin samskipti
framar. Við hefðum verið rosalega mikil byrði
og hún vildi ekkert meira með okkur hafa. Ég
bara grét. Ég gleymi því aldrei að minn fyrr-
verandi, þessi geðgóði maður, barði í borðið og
sagði við hana: „Ertu að segja mér það að þú
viljir aldrei hitta barnabörnin þín aftur?“ Hún
svaraði: „Já, ég er að segja það.“ Systir mín
stóð upp og gekk út og hefur ekki talað við
hana í 24 ár.“
Anna María segir að þrátt fyrir allt sem á
undan var gengið hafi ást hennar á mömmu
sinni enn verið til staðar.
„Ég fór heim og grét á hverju kvöldi, ég
saknaði svo mömmu. Mig langaði svo að deila
með henni lífi mínu; þarna er ég ung móðir
með tvö lítil börn og nýbúin að missa pabba.
Nokkrum vikum seinna hringdi ég í hana og
bað hana að endurskoða málið og hún sam-
þykkti það en á sínum forsendum. Síðan þá
hefur samband okkar verið stormasamt og erf-
itt. Ég hef þurft að loka á hana oft og ég sleit
svo öll samskipti við hana fyrir um sex árum.
Ég hef verið ofboðslega reið við hana en veit
auðvitað að hún er veik kona.“
Fer frá þremur litlum börnum
Þriðja barnið fæddist og það var nóg að gera.
„Ég drakk aldrei á meðgöngu og drakk í
raun bara þegar eitthvað var um að vera. En
svo þegar yngsta barnið var eins og hálfs,
tveggja ára fannst mér ég vera orðin svo stór
og mikil. Ég kemst í samband við einhvern
sem lætur mig hafa ólöglegar brennslutöflur
sem innhalda efedrín. Ég byrja bara að bryðja
þetta og áður en ég veit af er ég farin að taka
miklu meira en ég átti að gera. Ég svaf ekki á
nóttunni og mætti ósofin í bankann. Þetta er
bara spítt. Og þarna gerist eitthvað innra með
mér. Alkóhólisminn minn fer á eitthvert annað
stig. Ég fer að verða mjög eirðarlaus og sótti
mikið suður. Ég verð óheiðarleg í hjónaband-
inu. Ég fór að ljúga til að komast suður að
djamma. Þarna er ég með þrjú lítil börn en ég
þurfti að komast út af heimilinu,“ segir Anna
María og segist á þessum tíma ekki hafa gert
sér neina grein fyrir því að efnið sem hún var
að taka væri í raun bara eiturlyf.
„Þetta voru bara megrunartöflur! Og ég
grenntist, trúðu mér.“
Anna María segist hafa verið á milli tann-
anna á fólki í litla þorpinu.
„Ég er tekin fyrir ölvun við akstur og fólk
fer að taka eftir breytingum á mér. Það fer að
verða miklu styttri í mér þráðurinn gagnvart
börnunum og þau voru farin að fara í taug-
arnar á mér. Ég varð allt önnur manneskja.
Ég var farin að mæta illa í vinnu og yfirmaður
minn tók mig tali og spurði: „Myndir þú telja
að þú værir veik fyrir víni?“ Ég neitaði því. Ég
sá þetta ekki; ég sá ekki vandamálið,“ segir
Anna María, sem segist þá hafa viljað skilnað.
„Þessi maður elskaði mig og gerði allt fyrir
mig og er yndislegur maður. En ég vildi bara
skilja og sagðist ætla að flytja með börnin suð-
ur, en þar átti ég ekkert bakland. Móðir mín
var eins og hún var og pabbi var dáinn,“ segir
hún.
„Eiginmaðurinn sagði að það kæmi ekki til
greina að ég tæki börnin. Það endar svo þann-
ig að ég labba út af heimilinu frá manninum
mínum og þremur litlum börnum. Þetta er svo
sorglegt. Ég fór bara suður að djamma,“ segir
Anna María og felur andlitið í höndum sér.
Minningin er sár.
Við tók ellefu ára fyllerí
Eftir nokkra mánuði í höfuðborginni var þrýst
á Önnu Maríu um að gera eitthvað í sínum
málum.
„Ég fór inn á Vog í desember 1999, þá 27 ára
gömul. Ég var bara að drekka á þessum tíma
og ekki farin að nota eiturlyf. Þarna fer ég í
mína fyrstu meðferð. Ég man bara að ég sá
ekki vandamálið heldur var ég bara að slökkva
elda. Ég veit ekki hvað var að gerast með mig;
hvar var móðir barnanna, hvar var Anna
María? Ég kom inn á Vog og fannst ég ekki
passa þar inn. Ég var sett í hóp og öðrum meg-
in við mig var maður sem var af Litla-Hrauni
og hinum megin róni sem ég hafði oft séð í
bænum. Ég klára samt heila meðferð, fer á Vík
en viku eftir að ég kom út datt ég í það. Ég tók
þetta ekki alvarlega. Mánuði seinna er ég aftur
komin í meðferð og þar kynnist ég manni. Ég
hafði aldrei séð svona sætan strák.“
Af Vogi lá leiðin á Vík og þaðan á áfanga-
heimili fyrir konur. En stuttu seinna fer Anna
María að búa með þessum manni sem hún
hafði fallið svona kylliflöt fyrir.
„Það komu strax rauð flögg. Eftir nokkra
mánuði edrú fórum við út á land og duttum
bara í það. Og við tekur ellefu ára fyllerí. Í ell-
efu ár. Hann kynnir mig fyrir hörðum efnum.
Ég byrjaði að nota amfetamín, sem varð svo
efnið mitt. Ég hætti alveg að drekka áfengi og
fer bara að nota fíkniefni og það á hverjum ein-
asta degi. Ég er þarna inn og út úr vinnum,
enda oft rekin. Á þessum ellefu árum fluttum
við oft. Þetta samband einkenndist af svaka-
lega mikilli geðveiki, öskrum og slagsmálum.
Ég get ekki lýst þessu, þetta var viðbjóður.
Hann lagði oft á mig hendur og ég kom mér
ekki út úr þessu sambandi. Ég var með ótrú-
lega lítið sjálfstraust og lítil einhvern veginn.
Mig langaði svo mikið út úr þessu sambandi og
að verða edrú fyrir börnin mín. Ég var oft ekki
í ástandi til að taka börnin aðra hverja helgi,“
segir hún og segist hafa reynt að taka þau þeg-
ar hún gat. Í dag þakkar Anna María fyrir að
börnin hafa alltaf átt yndislegan föður og
stjúpmóður sem er þeim eins og önnur móðir.
„Þessi neysla er eitt stórt áfall. Stærsta áfall-
ið er að ég skuli ekki hafa getað verið til staðar
fyrir börnin mín. Alltaf þegar þau komu var ég
uppfull af sektarkennd, skömm og sorg.“
Það var allt brunnið
Árið 2004 varð Anna María fyrir enn einu
áfallinu.
Hvaða kona var þetta?
Þegar Anna María Sigtryggsdóttir var ung þriggja barna móðir tók alkóhólisminn af henni öll völd.
Við tók fjórtán ára helvíti en Anna María leiddist út í hörð efni. Í dag hefur hún verið edrú í sjö ár.
Leiðin upp á við hefur verið löng og ströng en Anna María lifir í dag fallegu og innihaldsríku lífi.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Anna María Sigtryggsdóttir hefur verið
edrú í sjö ár og nýtur þess að vera til stað-
ar fyrir börnin sín þrjú og ömmustelp-
urnar sínar. Hún er laus við fíknina sem
heltók líf hennar um langt skeið.
’Lífið var hræðilega erfitt ogég sá börnin mín sjaldan. Þávar öllum orðið ljóst hvað ég varorðin veikur alkóhólisti og allir
búnir að loka á mig. Ég umgekkst
bara fólk í neyslu og kunni varla
að eiga eðlilegar samræður. Það
snerist allt um fíkniefni og glæpi.