Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Qupperneq 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2021 É g er á mjög góðum stað í dag en þetta hefur verið löng vegferð og ég hef lagt mikið á mig, en mögu- lega getur sagan mín hjálpað öðr- um konum. Þetta er ekki falleg saga,“ segir Anna María Sigtryggsdóttir sem sest með blaðamanni yfir góðum kaffibolla einn eftirmiðdag í vikunni. Hún fagnaði nýlega sjö ára edrúafmæli, en líf hennar hefur verið þyrnum stráð allt frá barnæsku. Með hug- rekki, dugnaði og elju tókst Önnu Maríu að stíga út úr ljótum heimi fíkniefna og skapa sér fallegt líf. Upplifði mikla höfnun Anna María fæddist í Reykjavík og á eina eldri systur. Þegar þær systur eru átta og tíu ákveða foreldrar hennar að skilja. „Mamma kallar á okkur systur inn í svefn- herbergi og ég sest á milli hennar og pabba á rúmið. Systir mín stendur álengdar. Þetta and- artak er greypt í huga mér. Mamma segir okk- ur að þau ætli að skilja og spyr okkur: „Hvort viljið þið koma með mér eða pabba ykkar?“ Systir mín var fljót að velja pabba. Ég man að ég grét svo mikið af því mig langaði svo að fara þangað sem systir mín fór, en ég gat ekki látið mömmu vera eina þannig að ég valdi hana. Þetta var svakalegt áfall,“ segir Anna María. „Pabbi eignast fljótt aðra konu og fjögur börn. Ég var í litlu sambandi við systur mína fyrstu árin á eftir en við tókum upp þráðinn þegar við vorum unglingar. Þetta hefur sett mark sitt á líf mitt og haft djúp áhrif á mig. Ég fer stundum í þetta áfall enn, sem fullorðin kona. Það sem ég upplifði í barnæskunni var höfnun og sú tilfinning hefur verið ríkjandi allt mitt líf,“ segir Anna María. „Það tekur við mikið brölt á mömmu. Við fluttum oft og ég fór í marga grunnskóla. Ég upplifði ekki ást og umhyggju hjá móður minni heldur mikla höfnun; ég var alltaf fyrir henni. Ég var sett í sveit á vorin og sótt á haustin og aldrei á sama bóndabæ. Hún var alltaf að koma mér einhvers staðar fyrir. Ég hafði aldr- ei þetta öryggi sem barn á að hafa.“ Rabarbaravínið himnasending „Ég var tólf ára þegar ég drakk í fyrsta skipti. Það var á einum sveitabænum og fundum við krakkar dunk af eldgömlu rabarbaravíni uppi á lofti. Guð minn góður, þetta var himnasend- ing fyrir tólf ára barnið. Allur kvíði hvarf og mér fannst ég svo frábær. Ég vissi að ég myndi gera þetta aftur. Stuttu síðar byrjaði ég í helgarmynstri; ég byrja að drekka niðri í bæ, fara á rúntinn og í heita lækinn,“ segir hún og segist fljótt hafa farið að drekka illa. „Mamma sendi mig í heimavistarskóla þeg- ar ég var fjórtán ára þar sem ég var í tvö ár. Það voru í raun bestu vetur unglingsáranna. Þar fann ég til öryggis. En ég var ekki búin að vera í skólanum nema í viku þegar ég fer á réttardansleik í Njálsbúð og kem heim drukk- in daginn eftir og var rekin í viku,“ segir hún. „Mamma sagði við mig að um leið og ég yrði sextán ætti ég að flytja að heiman. Þá þyrfti hún ekki lengur að taka ábyrgð á mér. Hún vildi bara losna við mig, það var bara þannig.“ Trúði ekki að pabbi væri dáinn Sextán ára stóð Anna María uppi ein og flutti um skeið til föður síns og fann sér vinnu. „Ég fékk vinnu á síma. Ég var ekki með nein framtíðarplön. Ég var rosalega tætt og mig langaði bara í ást og umhyggju. Ég óskaði þess að ég ætti heilbrigða móður.“ Á þessum tíma var drykkjan ekki farin úr böndunum, en oft kom það fyrir að Anna María drykki sig til óminnis. „Svo kynnist ég fyrrverandi manni mínum á sjómannaballi á Hótel Íslandi þegar ég er sautján. Við förum að búa mjög fljótlega en hann kunni illa við sig fyrir sunnan og við flutt- um út á land í lítið sjávarþorp. Ég fékk góða vinnu í Búnaðarbankanum og vann þar í níu ár. Ég drakk ekki mikið á þessum tíma en þeg- ar ég drakk drakk ég illa. Eiginmaðurinn þurfti oft að koma mér heim,“ segir Anna María. Hún eignaðist dóttur nítján ára og síð- ar bættust í hópinn tveir drengir. En áður en yngsta barnið kom í heiminn reið mikið áfall yfir. „Ég var 23 ára og búin að eiga tvö börn. Pabbi hafði oft komið í heimsókn til mín með sín litlu fjögur börn og konu og ég á mjög góð- ar minningar frá því. Eitt sinn var ég í vinnunni í bankanum og maðurinn minn kem- ur þangað og ég sá það strax á svipnum að eitt- hvað hafði gerst. Hann bað mig að koma út í bíl og ég hélt annaðhvort að eitthvað hefði komið fyrir börnin eða pabba hans, sem hafði verið veikur. Hann segir mér að presturinn sé kom- inn heim og svo segir hann mér að pabbi sé dá- inn. Ég trúði þessu ekki og fór að hlæja; við- brögðin voru svona skrítin. En þá hafði pabbi látist í vinnuslysi. Hann var að vinna í skurði við gamalt hús og fékk steintröppur yfir sig og lést samstundis.“ Ég saknaði svo mömmu „Ekki nóg með það heldur á sama tíma var mamma týnd og hafði skilið eftir bréf. Það var auglýst eftir henni í sjónvarpi og útvarpi. Þarna er ég nýbúin að jarða pabba og mamma týnd. Hún fannst svo síðar í annarlegu ástandi og illa til reika, enda kalt úti. Hún var lögð inn á geð- deild og þar var hún kalin á puttum. Þetta var mikið áfall en var aldrei rætt,“ segir hún. Stuttu síðar kallar móðir þeirra þær systur á sinn fund. „Við fórum heim til hennar og þá tilkynnir hún okkur að hún vilji slíta öll samskipti við okkur systurnar og hún vilji engin samskipti framar. Við hefðum verið rosalega mikil byrði og hún vildi ekkert meira með okkur hafa. Ég bara grét. Ég gleymi því aldrei að minn fyrr- verandi, þessi geðgóði maður, barði í borðið og sagði við hana: „Ertu að segja mér það að þú viljir aldrei hitta barnabörnin þín aftur?“ Hún svaraði: „Já, ég er að segja það.“ Systir mín stóð upp og gekk út og hefur ekki talað við hana í 24 ár.“ Anna María segir að þrátt fyrir allt sem á undan var gengið hafi ást hennar á mömmu sinni enn verið til staðar. „Ég fór heim og grét á hverju kvöldi, ég saknaði svo mömmu. Mig langaði svo að deila með henni lífi mínu; þarna er ég ung móðir með tvö lítil börn og nýbúin að missa pabba. Nokkrum vikum seinna hringdi ég í hana og bað hana að endurskoða málið og hún sam- þykkti það en á sínum forsendum. Síðan þá hefur samband okkar verið stormasamt og erf- itt. Ég hef þurft að loka á hana oft og ég sleit svo öll samskipti við hana fyrir um sex árum. Ég hef verið ofboðslega reið við hana en veit auðvitað að hún er veik kona.“ Fer frá þremur litlum börnum Þriðja barnið fæddist og það var nóg að gera. „Ég drakk aldrei á meðgöngu og drakk í raun bara þegar eitthvað var um að vera. En svo þegar yngsta barnið var eins og hálfs, tveggja ára fannst mér ég vera orðin svo stór og mikil. Ég kemst í samband við einhvern sem lætur mig hafa ólöglegar brennslutöflur sem innhalda efedrín. Ég byrja bara að bryðja þetta og áður en ég veit af er ég farin að taka miklu meira en ég átti að gera. Ég svaf ekki á nóttunni og mætti ósofin í bankann. Þetta er bara spítt. Og þarna gerist eitthvað innra með mér. Alkóhólisminn minn fer á eitthvert annað stig. Ég fer að verða mjög eirðarlaus og sótti mikið suður. Ég verð óheiðarleg í hjónaband- inu. Ég fór að ljúga til að komast suður að djamma. Þarna er ég með þrjú lítil börn en ég þurfti að komast út af heimilinu,“ segir Anna María og segist á þessum tíma ekki hafa gert sér neina grein fyrir því að efnið sem hún var að taka væri í raun bara eiturlyf. „Þetta voru bara megrunartöflur! Og ég grenntist, trúðu mér.“ Anna María segist hafa verið á milli tann- anna á fólki í litla þorpinu. „Ég er tekin fyrir ölvun við akstur og fólk fer að taka eftir breytingum á mér. Það fer að verða miklu styttri í mér þráðurinn gagnvart börnunum og þau voru farin að fara í taug- arnar á mér. Ég varð allt önnur manneskja. Ég var farin að mæta illa í vinnu og yfirmaður minn tók mig tali og spurði: „Myndir þú telja að þú værir veik fyrir víni?“ Ég neitaði því. Ég sá þetta ekki; ég sá ekki vandamálið,“ segir Anna María, sem segist þá hafa viljað skilnað. „Þessi maður elskaði mig og gerði allt fyrir mig og er yndislegur maður. En ég vildi bara skilja og sagðist ætla að flytja með börnin suð- ur, en þar átti ég ekkert bakland. Móðir mín var eins og hún var og pabbi var dáinn,“ segir hún. „Eiginmaðurinn sagði að það kæmi ekki til greina að ég tæki börnin. Það endar svo þann- ig að ég labba út af heimilinu frá manninum mínum og þremur litlum börnum. Þetta er svo sorglegt. Ég fór bara suður að djamma,“ segir Anna María og felur andlitið í höndum sér. Minningin er sár. Við tók ellefu ára fyllerí Eftir nokkra mánuði í höfuðborginni var þrýst á Önnu Maríu um að gera eitthvað í sínum málum. „Ég fór inn á Vog í desember 1999, þá 27 ára gömul. Ég var bara að drekka á þessum tíma og ekki farin að nota eiturlyf. Þarna fer ég í mína fyrstu meðferð. Ég man bara að ég sá ekki vandamálið heldur var ég bara að slökkva elda. Ég veit ekki hvað var að gerast með mig; hvar var móðir barnanna, hvar var Anna María? Ég kom inn á Vog og fannst ég ekki passa þar inn. Ég var sett í hóp og öðrum meg- in við mig var maður sem var af Litla-Hrauni og hinum megin róni sem ég hafði oft séð í bænum. Ég klára samt heila meðferð, fer á Vík en viku eftir að ég kom út datt ég í það. Ég tók þetta ekki alvarlega. Mánuði seinna er ég aftur komin í meðferð og þar kynnist ég manni. Ég hafði aldrei séð svona sætan strák.“ Af Vogi lá leiðin á Vík og þaðan á áfanga- heimili fyrir konur. En stuttu seinna fer Anna María að búa með þessum manni sem hún hafði fallið svona kylliflöt fyrir. „Það komu strax rauð flögg. Eftir nokkra mánuði edrú fórum við út á land og duttum bara í það. Og við tekur ellefu ára fyllerí. Í ell- efu ár. Hann kynnir mig fyrir hörðum efnum. Ég byrjaði að nota amfetamín, sem varð svo efnið mitt. Ég hætti alveg að drekka áfengi og fer bara að nota fíkniefni og það á hverjum ein- asta degi. Ég er þarna inn og út úr vinnum, enda oft rekin. Á þessum ellefu árum fluttum við oft. Þetta samband einkenndist af svaka- lega mikilli geðveiki, öskrum og slagsmálum. Ég get ekki lýst þessu, þetta var viðbjóður. Hann lagði oft á mig hendur og ég kom mér ekki út úr þessu sambandi. Ég var með ótrú- lega lítið sjálfstraust og lítil einhvern veginn. Mig langaði svo mikið út úr þessu sambandi og að verða edrú fyrir börnin mín. Ég var oft ekki í ástandi til að taka börnin aðra hverja helgi,“ segir hún og segist hafa reynt að taka þau þeg- ar hún gat. Í dag þakkar Anna María fyrir að börnin hafa alltaf átt yndislegan föður og stjúpmóður sem er þeim eins og önnur móðir. „Þessi neysla er eitt stórt áfall. Stærsta áfall- ið er að ég skuli ekki hafa getað verið til staðar fyrir börnin mín. Alltaf þegar þau komu var ég uppfull af sektarkennd, skömm og sorg.“ Það var allt brunnið Árið 2004 varð Anna María fyrir enn einu áfallinu. Hvaða kona var þetta? Þegar Anna María Sigtryggsdóttir var ung þriggja barna móðir tók alkóhólisminn af henni öll völd. Við tók fjórtán ára helvíti en Anna María leiddist út í hörð efni. Í dag hefur hún verið edrú í sjö ár. Leiðin upp á við hefur verið löng og ströng en Anna María lifir í dag fallegu og innihaldsríku lífi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Anna María Sigtryggsdóttir hefur verið edrú í sjö ár og nýtur þess að vera til stað- ar fyrir börnin sín þrjú og ömmustelp- urnar sínar. Hún er laus við fíknina sem heltók líf hennar um langt skeið. ’Lífið var hræðilega erfitt ogég sá börnin mín sjaldan. Þávar öllum orðið ljóst hvað ég varorðin veikur alkóhólisti og allir búnir að loka á mig. Ég umgekkst bara fólk í neyslu og kunni varla að eiga eðlilegar samræður. Það snerist allt um fíkniefni og glæpi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.